Morgunblaðið - 01.09.2002, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ÞÁ er hann loks kominn bíllinn sem
Fiat vildi að tæki forystuhlutverk á
markaði fyrir bíla í c-flokki, þ.e. sama
flokki og VW Golf, Ford Focus og
Opel Astra. Bíllinn heitir Stilo og var
kynntur blaðamönnum á Spáni síð-
astliðið haust en hefur ekki verið fá-
anlegur hérlendis nema sérpantaður
fyrr en núna.
Eins og margir aðrir nýir bílar í
þessum flokki, t.a.m. Peugeot 307 og
Toyota Corolla, tekur hönnun Stilo
mið af fjölnotabílum. Innanrýmið er
nýtt á sem hagkvæmastan hátt, bíll-
inn er hafður hár og með miklu höf-
uðrými. Auk þess eru aftursæti fær-
anleg og hægt að búa til borð úr
framsætisbakinu.
Annars konar aksturseiginleikar
Það er skemmst frá því að segja að
sala á Stilo hefur verið minni en Fiat
gerði ráð fyrir. Bíllinn er stílaður inn
á erfiðasta markaðinn þar sem sam-
keppnin er hvað mest í búnaði og
verði. Þar stendur Stilo sig þó vel og
er reyndar með best búnu bílum í sín-
um flokki og um leið á hagstæðu
verði.
Ljóst er hins vegar í huga þess sem
þetta skrifar hvað það er sem hefur
misfarist í áætlun Fiat. Stilo höfðar
ekki sterklega til bíleigenda á meg-
inlandi Evrópu sem eru vanir annars
konar aksturseiginleikum en bíllinn
býður upp á. Þar um slóðir virðast
menn helst kjósa sér bíla með stífri
fjöðrun og mikinn næmleika og svör-
un í stýri. Dæmi um slíka bíla eru
Ford Focus, VW Golf og Peugeot 307.
Stilo er allt annað en þetta. Fjöðr-
unin er mýkri og stýringin virðist
ekkert sérlega jarðtengd. Hjálpar-
átakið kemur frá rafmótor sem hefur
bæði kosti og galla í för með sér.
Kostirnir eru þeir að búnaðurinn
dregur talsvert úr eyðslu bílsins þar
sem rafmótorinn notar aðeins orku
þegar verið er að beygja bílnum.
Ókosturinn er sá að menn finna ekki
eins fyrir bílnum þegar honum er
beygt og stýringin verður loðin. Raf-
stýringin í Stilo er þeim kostum búin
að vera með sérstakri borgarstillingu,
City, sem gerir stýringuna enn léttari
t.d. þegar verið er að leggja í þröng
stæði.
Skemmtileg vél á háum snúningi
Að þessu sögðu skal það skýrt tekið
fram að það má engu að síður hafa
mikla ánægju af því að aka þessum bíl
en menn verða að setja sig í aðrar
stellingar en þeir eru vanir. Stilo var
prófaður í Dynamic-útfærslu með 1,6
lítra vél, sem eins og jafnan á við um
vélar frá Fiat, skilar mestu á háum
vélarsnúningi. En bíllinn er líka
sprækur og allt að því sportlegur þeg-
ar vélin er látin snúast hratt og hún
gefur meira segja frá sér sportlega
nótu. Þótt menn hafi í fyrstu á tilfinn-
ingunni að jarðsambandið milli bíls og
vegyfirborðs mætti vera betra þá
helgast það af rafstýrinu en ekki mis-
heppnuðum undirvagni. Bíllinn liggur
reyndar bara nokkuð vel og undir-
stýrir ekki að ráði en það tekur tíma
að venjast honum.
Afar vel búinn
Stilo er með stærri bílum í sínum
flokki. Það fer vel um fimm fullorðna í
bílnum og höfuðrými er alls staðar
með mesta móti. Það er vandað mikið
til bæði efnisvals og frágangs í inn-
anrýminu, sem í prófunarbílnum er
tvílitt með ljósu velúráklæði. Stilo
hefur vinninginn yfir keppinautana á
þessu sviði. Aftursætin, sem skiptast
60/40, eru með niðurfellanlegum bök-
um en auk þess á sleða þannig að
hægt er að færa þau bæði, eða í sitt
hvoru lagi, fram eða aftur eftir þörf-
um.
Stilo er vel búinn bíll og telst því
vera á hagstæðu verði. Staðalbúnaður
í grunngerðinni Active er m.a. ABS-
hemlar með EBD-hemlunardreif-
ingu, spólvörn, sex loftpúðar, þar af
fjölþrepapúðar fyrir bílstjóra og far-
þega í framsæti, fimm þriggja punkta
bílbelti og fimm hnakkapúðar, akst-
urstölva, hæðarstilling í ökumanns-
sæti ásamt mjóbaksstuðningi, raf-
stýrðar rúður að framan og aftan,
geislaspilari og margt fleira. Stóri
munurinn á Active og Dynamic er í
raun aðeins loftkælingin sem er í síð-
arnefnda bílnum.
Af þessu má því vera ljóst að Stilo
er afar vel búinn bíll og samkeppn-
isfær á þessum harða markaði. Act-
ive-útfærslan kostar 1.690.000 kr. en
Dynamic 1.790.000 kr. Keppinautarn-
ir eru VW Golf, sem kostar í afmæl-
isútgáfunni 1.850.000 kr., Opel Astra
á 1.848.000 kr., Peugeot 307 XT
1.765.000 kr., Toyota Corolla
1.759.000 kr. og Ford Focus Trend
1.755.000 kr.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fiat Stilo er vel búinn bíll á hagstæðu verði.
Snyrtilegur frágangur á öllu að innan.
Fimm hnakkapúðar og fimm þriggja
punkta belti eru í bílnum.
Farangursrýmið er stækkanlegt því aftursætin eru á sleða.
REYNSLUAKSTUR
Fiat Stilo 1.6 Dynamic
Guðjón Guðmundsson
Vélin er skemmtileg á háum snúningi
og skilar mest 103 hestöflum.
gugu@mbl.is
Framúrskarandi í
búnaði og innanrými
Efnisval og frágangur að innan er með besta móti.
Vél: 1.596 rsm., fjórir
strokkar, 16 ventlar.
Afl: 103 hestöfl við 5.750
snúninga á mínútu.
Tog: 145 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Gírkassi: Fimm gíra hand-
skiptur.
Hröðun: 10,9 sekúndur.
Hámarkshraði: 183 km/
klst.
Eyðsla: 8 lítrar í blönd-
uðum akstri.
Lengd: 4.253 mm.
Breidd: 1.756 mm.
Hæð: 1.525 mm.
Eigin þyngd: 1.250 kg.
Hemlar: Diskar, ABS,
EBD.
Verð: 1.790.000 kr.
Umboð: Ístraktor hf.
Fiat Stilo
1.6 Dynamic
Það er margt sem kemur á óvart
Fáðu meira en áður - fyrir minna en áður.
Komdu. Kauptu nýjan Ford Fiesta.
er dæmi um meiri bíl.
Farangursrými Fiesta
Brimborg Reykjavík Brimborg Akureyri brimborg.is