Morgunblaðið - 01.09.2002, Page 18

Morgunblaðið - 01.09.2002, Page 18
Einn góður... – Veistu hvað er bleikt, silfurlitað og drulla yfir því? – Svín með eyrnalokka! (Siggi Atli, 9 ára, á www.trassi.is.) barn@mbl.is LÓÐRÉTT: 1) Í þetta áttu að skrifa stafi og stíla. 2) Stærðfræði kennir manni að..... 3) Það þarf .... til að skrifa á svarta töflu. 4) Er stundum græn, stundum svört, jafnvel hvít. 5) Eftir leiðinlega kennslustund verða all- ir glaðir þegar koma.... 6) Þessi stelpa fór í skóla bara til að geta fengið sumarfrí. 7) ....fræði kennir manni um frumefnin. 8) Sá er klaufskur sem ekkert .... 9) Sá er gleyminn sem ekkert ... 10) Fátt er skemmtilegra en að lesa góða ... 11) Ég .. ekki nógu vel á töfluna. LÁRÉTT: 1) Notist til að stroka út. 10) Til að skrifa þarf að eiga ...... 12) Í myndmennt fær maður að ..... 13) Eru nemendur ekki alltaf að hugsa um næsta ...? 14) Þessi lætur þig vita hvenær tíminn byrjar. 15) Sá sem treður lærdómnum í hausinn þinn. 16) Ef þú ættir ekki eina svona, væri skóladótið allt út um allt. 17) ...... skólinn manni líka manna- siði? Skólakrossgátan Flestum krökkum þykir gaman að byrja í skólanum. Sumum af því að það er svo brjálæðislega gaman að vera í skóla – einsog allir vita – en flestum þykir enn betra að hitta aftur alla skemmtilegu félagana sína, rifja upp minningar og fremja ný prakk- arastrik. Góðar hugmyndir fyrir góðan bekk Það er ótrúlega gaman að vera í bekk þar sem allir eru vinir, ekki strákar á móti stelp- um eða einhver einn sem er skilinn út undan eða strítt. Best að vera í bekk þar sem krakk- arnir gera hluti saman, bæði í og utan skólans. En það er engin heppni að vera í þannig bekk, það er undir krökkunum sjálfum komið. Ef þig langar að vera í samheldnum bekk geturðu prófað eitthvað af eftirfarandi hugmyndum og sagt félögunum frá þeim. Eða fengið enn betri hugmyndir sjálf/ur. Verður bekkjarpartí hjá þér? Hvernig væri að byrja skólaárið vel með bekk- japartíi? Hvernig væri að fá ókeypis 30 tommu pítsu og tvo poka af brauðstöngum frá Hróa hetti? Hljómar vel! Nú stendur barnablað Moggans fyrir bekkj- arkeppninni þar sem þrír heppnir og sam- heldnir bekkir geta unnið þessa pítsu- veislu. Vill þinn bekkur taka þátt? Keppnisreglur: 1) Bekkurinn – eða nokkrir krakk- ar sem bekkurinn velur – skapar einhverskonar listaverk þar sem ævintýrið um Hróa hött kemur fyrir. Það getur verið saga, myndasaga, ljósmynd, kvikmynd, klippimynd, höggmynd, ljóð eða hvaða sem ykkur snillingunum dettur í hug. 2) Verkið skal vera tilbúið hinn 16. september því að í sein- asta lagi þann dag skal það sent á: Barnablað Moggans – Hrói höttur – Kringlunni 1 103 Reykjavík. Eða þið sendið netpóst á barn- @mbl.is þar sem verkinu er lýst eða mynd af því fylgir með. Mun- ið að senda inn nafn bekkjarins, skóla og heimilisfang. Góða skemmtun! Gott í góða gogga Það er alltaf gaman að borða saman og það er ágæt hugmynd að bekkurinn fái sér eitt- hvað gott í gogginn reglulega. Til dæmis í löngu frímínútunum á föstudögum? En þá verður að skiptast á að búa til eitthvað gott handa öllum hinum, 2–3 í einu. Fyrir þá sem ekki kunna (né finnst skemmti- legt) að kokka má poppa, brytja niður ávexti sem dýft er í súkkulaðisósu, eða bera fram grænmeti með ídýfu. Á Netinu eru fullt af síðum með uppskriftum sem börn geta farið eftir. Reynið síðuna www.trassi.is. Svo eru þessar reyndar á ensku:  kid.allrecipes.com/directory/2251.asp  kidshealth.org/kid/stay_healthy/re- cipe_links.html  www.honey.com/recipes/kidsresp/ Svo er auðvitað gott að spyrja bara pabba eða ömmu um uppskrift að uppáhaldinu ykk- ar … Bók besta bekkjarins? Það er mjög gaman að þekkja alla í bekknum vel. Veistu t.d. hver er uppá- haldshljómsveit allra? Eða hvað hina langar að vera í framtíðinni? Líklega ekki. Sniðugt væri að útbúa bók sem allir í bekknum þurfa að skrifa í. Öðrum megin á opn- unni geta verið spurningar sem allir verða að svara um sjálfan sig, sem þig eða aðra langar að vita um bekkjafélagana. Hinum megin hafa þeir svo frjálsa síðu þar sem þeir geta gert hvað sem er, límt flottar myndir úr tímaritum, skrifað ljóð eða annað sem þeim finnst flott. Bókin er svo látin ganga á milli eða jafnvel skoðuð í fyrsta skipti í pítsupartíinu! Skólinn er byrjaður. Gaman! Nafn: Einar Freyr Magnússon. Bekkur: 7. bekkur. Skóli: Víkurskóli, Mýrdalshreppi. „Já, þótt sumarfríið hafi verið fljótt að líða. Það er skemmtilegast að hitta krakkana aftur, því ég hef verið mest í sveitinni í sum- ar. Ég hlakka til að byrja að læra dönsku og mér finnst enska og stærðfræði mjög skemmtileg fög.“ Nafn: Gunnar Eyþórsson. Bekkur: 5. bekkur. Skóli: Álftanesskóli. „Það er ágætt að byrja aft- ur í skólanum. Skemmtileg- ast er að hitta vinina aftur. Svo hlakka ég líka til að byrja aftur í íþróttum og listum.“ Nafn: Íris Aníta Eyþórs- dóttir. Bekkur: 3. bekkur. Skóli: Álftanesskóli. „Já, það er gaman af því að mér finnst gaman í skól- anum. Og íþróttirnar eru langtum skemmtilegastar.“ Nafn: Margrét Sif Magnúsdóttir. Bekkur: 4. bekkur. Skóli: Setbergsskóli, Hafnarfirði. „Það er gaman að byrja aftur í skólanum og mér finnst skemmtilegast að skrifa. Og vera með öllum bestu vinkonum mínum, því þær eru með mér í bekk.“ Er gaman að byrja aftur í skólanum? Margrét Sif Íris Aníta Gunnar Einar Freyr Arnaldur Björnsson, 11 ára nemi í Vesturbæj- arskóla, dreif sig á Stúart litla 2 með pabba sínum um daginn og voru þeir feðgar mjög ánægðir með myndina. „Þessi mynd er aðeins betri en sú fyrri, því nú er maður búinn að kynnast honum og kom- inn inn í þetta, allt er klappað og klárt. Sagan ger- ist í einum rykk því það þarf ekkert að undirbúa mann.“ Arnaldur segir söguna sjálfa vera mjög spenn- andi, sérstaklega atriðin með fálkanum. „Það sem er svo best við myndina er kötturinn Snjóbert, sem hélt uppi gríninu. Svo auðvitað spennuatriðin, fálkinn og auðvitað Stúart.“ Arnaldur mælir með myndinni „fyrir krakka svona 6–11 ára til að ná söguþræðinum og skilja, en síðan er þetta líka fjölskyldumynd þótt eldri kynslóðin hlæi sig ekki í keng“, segir Arnaldur að lokum. Arnaldur 11 ára. Betri en fyrri myndin Krakkarýni: Stúart litli 2 LITIÐ BRODDGÖLTINN Er leikur að læra? Nú kemur það í ljós! Hér áttu að fara inn í þennan skóla vinstra megin, og kemur út úr honum hægra megin, en bara ef … þú virki- lega einbeitir þér á meðan þú ert inni í skólanum! Er gaman í þínum bekk?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.