Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsing um innköllun
þriggja myntstærða
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Samkvæmt reglugerð nr. 673 frá 19. september 2002,
sem sett er með heimild í lögum um gjaldmiðil Íslands, nr. 22/1968,
sbr. lög nr. 36/1998, hefur forsætisráðherra, að tillögu Seðlabanka
Íslands, ákveðið innköllun eftirtalinna þriggja myntstærða:
5 aurar
Útgefnir: 1981
Þvermál: 15 mm
Þyngd: 1,5 grömm
Málmur: brons
10 aurar
Útgefnir: 1981
Þvermál: 17 mm
Þyngd: 2 grömm
Málmur: brons
50 aurar
Útgefnir: 1981
Þvermál: 19,5 mm
Þyngd: 3 grömm
Málmur: brons
Frestur til að afhenda ofangreinda mynt til innlausnar er fram að 1. október
2003. Allir bankar og sparisjóðir eru skyldugir að taka við peningunum til
þess tíma og láta í staðinn peninga, sem ekki á að innkalla.
Peningarnir, sem innkalla á, eru lögmætur gjaldmiðill í lögskiptum manna
til loka innköllunarfrestsins. Seðlabanki Íslands mun þó innleysa ofangreinda
mynt eigi skemur en í 12 mánuði þar á eftir, fram að 1. október 2004.
Útgefnir: 1986
Þvermál: 19,5 mm
Þyngd: 2,65 grömm
Málmur: koparhúðað stál
Reykjavík, 30. september 2002.
Efni er varðar innköllunina má finna á vef Seðlabanka Íslands
(www.sedlabanki.is).
Á HAUSTDÖGUM bauð Borgar-
leikhúsið dansunnendum að berja
augum einn af merkari danshöfund-
um tuttugustu aldarinnar. Það var
dansflokkur Merce Cunningham sem
flutti tvö dansverk eftir hann og var
hann sjálfur með í för. Það er mikill
fengur í því að fá þennan höfund í
heimsókn og kunni landinn auðsjáan-
lega vel að meta það því húsið var
sneisafullt og margir þurftu frá að
hverfa. Cunningham, sem gjarnan er
nefndur Einstein dansins, hóf dans-
feril sinn sem sólódansari hjá Martha
Graham-dansflokknum. Hann stofn-
aði sinn eigin dansflokk sumarið 1953
og hefur allar götur síðan samið dans-
verk sem eru nú orðin um tvö hundr-
uð.
Cunningham vinnur um margt á
annan hátt en samtíma danshöfund-
ar. Hann býr til hugmynd af hreyf-
ingu og segir dönsurum sínum til um
hvernig formið er en lætur þá svo um
að gefa hreyfingunni líf eða með öðr-
um orðum að fylla í formið. Cunning-
ham býr einungis til hreyfingar og
spor.
Hann hefur engan áhuga á að koma
hugmyndum á framfæri eða að leitast
við að tengjast og túlka fyrirfram
ákveðna tónlist, eins og hefð er fyrir í
klassískum ballett. Dansarar hans
reyna aldrei að dansa með tónlistinni í
verkum hans. Þeir læra fleiri en eitt
„hlutverk“ og er gjarnan sá háttur
hafður á að rétt fyrir sýningu er
ákveðið hver fer með hvaða „hlut-
verk“. Þannig nær Cunningham að
hafa ferskt yfirbragð á hverri sýningu
þó sumir segi að þannig hafi hann
dansarana á tánum þar sem það er
aukaálag fyrir dansarana að vita ekki
hvaða hlutverk þeir eigi að dansa á
komandi sýningu. Cunningham er
þekktur fyrir að vinna hreyfingar
með hjálp tölvuforrits sem kallast Lif-
eForm og var sérstaklega hannað eft-
ir hans höfði. Sköpunarferlið hefst í
tölvunni og heldur síðan áfram með
yfirfærslu af hreyfihugmyndum úr
tölvunni yfir til dansaranna.
Fyrra verk kvöldsins var verk frá
árinu 1968 og nefnist Rainforest.
Dansararnir hreyfðu sig um sviðið í
hreyfistíl Cunninghams og minntu
snöggar höfuðhreyfingarnar á fugla í
suðrænum regnskógum.
Heliumuppblásnir silfurkoddar,
upphaflega hönnun Andy Warhols,
bifuðust um sviðið kringum dansar-
ana. Þeir voru klæddir í húðlitaðar
tættar sokkabuxur og aðsniðna boli.
Ýmis umhverfishljóð, rafmögnuð
hljóð og hljóð frá dýrum juku á ab-
straktleika verksins. Seinna verk
kvöldsins, Biped, frumsýnt 1999,
samanstóð af mun flóknari hreyfing-
um. Dansararnir voru klæddir olíu-
litum, hálfsíðum, aðsniðnum samfest-
ingum sem ljósið endurkastaðist
skemmtilega af. Í Biped reynir af al-
vöru á líkamsstyrk dansaranna.
Dansgerðin er mun flóknari en í fyrra
verkinu þar sem hreyfingarnar eru
fleiri og erfiðari og framkvæmdar á
styttri tíma.
Þróun í hreyfingum höfundar er
greinileg, séu borin saman þessi tvö
dansverk. Gegnsætt tjald var fyrir
sviðinu og á það var varpað tölvugraf-
ík, ýmist af dönsurum á hreyfingu eða
mynstri kúlna og strika á ferð um
tjaldið. Þetta gaf verkinu nýja vídd og
vísindalegt yfirbragð.
Innihald verksins og viðfangsefni
eru hreyfingarnar sjálfar. Þær voru
bæði athyglisverðar og fallegar í nekt
sinni.
Það sem er merkilegt við danslist
Merce Cunningham er það kerfi
hreyfinga sem hann bjó til og heldur
áfram að þróa, kominn á níræðisald-
ur. Hægt er að tala um Cunningham-
dansara og vita þá þeir sem til listar
hans þekkja hvað felst í því og því er
hægt að segja að listform hans standi
sjálfstætt. Jafnvel þó að hreyfingarn-
ar í Biped hafi verið allt annað en ein-
faldar þá var hreinleiki Cunningham-
dansformsins hvíld fyrir augað. Það
þarf að vera áhugavert til að halda at-
hygli og einbeitingu dansara og
áhorfenda út verkið og það var það.
Dönsurunum með Cunningham í
broddi fylkingar var óspart klappað
lof í lófa í sýningarlok. Dansararnir
ýttu silfruðum helíumkoddum fyrra
verksins til áhorfenda sem héldu
þeim svífandi á lofti í salnum undir
húrrahrópum sínum.
Hreinleiki
formsins
Morgunblaðið/Sverrir
Merce Cunningham ásamt dansflokki sínum við lok sýningar í Borgarleikhúsinu.
LISTDANS
Borgarleikhúsið
Höfundur Rainforest: Merce Cunn-
ingham. Tónlist: David Tudor. Sviðsmynd:
Andy Warhol. Lýsing: Aaron Copp. Svið-
setning: Merce Cunningham, Robert
Swinston. Dansarar: Cédric Andrieux,
Jonah Boaker, Holley Farmer, Jeannie
Steele, Derry Swan, Robert Swinston.
Tónlistarmenn: Takehisa Kosugi, James
Woodrow. Höfundur Biped: Merce Cunn-
ingham. Tónlist: Gavin Bryars. Sviðs-
mynd; Shelley Eshkar, Paul Kaiser. Bún-
ingar: Suzanne Gallo. Lýsing: Aaron
Copp. Dansarar: Cédric Andrieux, Jonah
Bokaer, Lisa Boudreau, Ashley Chen,
Paige Cunningham, Holley Farmer, Jenni-
fer Goggans, Mandy Kirschner, Koji Min-
ato, Daniel Roberts, Daniel Squire, Jean-
nie Steele, Derry Swan, Cheryl Therrien.
Tónlistarmenn: Takehisa Kosugi, Audrey
Riley, James Woodrow. Þriðjudagur 24.
september.
MERCE CUNNINGHAM
Lilja Ívarsdóttir
TÍU ár eru liðin frá
andláti Steinars Sig-
urjónssonar rithöf-
undar á morgun, 2.
október. Af því tilefni
munu vinir hans og
kunningjar koma sam-
an þann dag kl. 20.30
á Gauki á Stöng (efri
hæð) og „Blanda aftur
í svartan dauðann“.
Þeir sem rifja upp
kynni sín af Steinari
og verkum hans eru
meðal annars: Ásdís
Kvaran, Bernard
Scudder, Bjarni Þór-
arinsson, Gylfi Gísla-
son, Guðbergur Bergs-
son, Einar Kárason, Eyvindur
Erlendsson, Hafsteinn Austmann,
Jón Proppé, Karl Guð-
mundsson, Kristbjörg
Kjeld, Magnús Páls-
son, María Kristjáns-
dóttir, Marta Nordal,
Megas, Ólafur Gunn-
arsson, Ólafur Páll
Sigurðarson, Sig-
urður A. Magnússon,
Stefán Jónsson, Una
Margrét Jónsdóttir,
Þorri Jóhannsson,
Þorsteinn Antonsson,
Þorsteinn frá Hamri
og Þröstur Helgason.
Eftir auglýsta dag-
skrá verður orðið gef-
ið laust og velkomið
að minnast skáldsins.
Atburðurinn verður hljóðritaður
og tekinn upp á myndband.
Steinars Sigur-
jónssonar minnst
á Gauknum
Steinar
Sigurjónsson
Selfosskirkja Síðustu tónleikar í
röðinni Septembertónleikar í Sel-
fosskirkju verða í kvöld kl. 20.30. Þá
leika Gunnar Björnsson á selló og
Haukur Guðlaugsson á orgel m.a.
verk eftir Fauré, Debussy, Rachm-
aninoff, Maríu Theresu von Paradis
og Björgvin Þ. Valdimarsson. Á milli
laganna verður rætt við áheyrendur
um tónlistina og höfundana.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is