Morgunblaðið - 14.11.2002, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 267. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Kunnugleg
rödd á bandi
Osama bin Laden lætur
á sér kræla á ný Erlent 16
Frumherji í fínu formi
á nýjum geisladiski Fólk 50
Píanóleikari
fyrir lífstíð
Ann Schein leikur með
Sinfóníunni í kvöld Listir 26
Það þarf fólk
eins og Rúnar
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagðist í gær ekki mundu
líða minnstu „undanbrögð eða pretti
eða blekkingar“ af hendi Saddams
Husseins Íraksforseta, eftir að
Íraksstjórn féllst á að hlíta hinni
nýju og afdráttarlausu ályktun ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna um
vopnaeftirlit í landinu. Eftir fjögurra
ára hlé munu vopnaeftirlitsmenn SÞ
væntanlega snúa aftur til Íraks í
næstu viku.
Bréf frá stjórnvöldum í Bagdad,
þar sem fallizt er á ályktun 1441 sem
samþykkt var einróma í öryggis-
ráðinu sl. föstudag, barst skrifstofu
Kofi Annan, framkvæmdastjóra SÞ,
síðdegis í gær. Um leið og fréttin um
þetta barst út endurtók Bush aðvar-
anir sínar um að „kjósi Saddam að
afvopnast ekki munum við [Banda-
ríkjamenn] hafa bandalag hinna vilj-
ugu með okkur“ til að vinna það
verk.
Annan, sem var á fundi með Bush í
Hvíta húsinu þegar bréf Íraka barst,
sagði að vopnaeftirlitsmenn samtak-
anna myndu halda til Bagdad strax á
mánudag, 18. nóvember.
Scott McClellan, talsmaður Hvíta
hússins, sagði á blaðamannafundi að
ályktun öryggisráðsins væri bind-
andi fyrir Írak, hvort sem þarlend
stjórnvöld sættu sig við hana eða
ekki. „Saddam Hussein átti ekkert
val annað en að hlíta ályktuninni.“
Írakar fallast á ályktun SÞ
Bush Bandaríkjaforseti segir
engin undanbrögð verða liðin
AP
Saddam Hussein Íraksforseti í
sjónvarpsútsendingu af fundi
með stjórn sinni í Bagdad í gær.
Washington, Bagdad, SÞ. AP, AFP.
ÞÝZKIR lögreglumenn vinna að því
að losa mótmælanda úr hópi her-
skárra kjarnorkuandstæðinga frá
járnbrautarspori við bæinn Leit-
stade í norðanverðu Þýzkalandi,
sem hann og fleiri samherjar hans
voru búnir að hlekkja sig við með
því að handjárna sig inni í málm-
röri sem þeir komu fyrir undir
járnbrautarteinunum. Eina leiðin
til að losa þá var að rjúfa teinana
eins og hér má sjá.
Kjarnorkuandstæðingarnir voru
að mótmæla flutningi á geislavirk-
um úrgangi úr kjarnorkuverum að
geymslustöðinni í Gorleben. Þýzk
yfirvöld búast við því að þúsundir
mótmælenda reyni áfram að hindra
för hinnar sérútbúnu flutninga-
lestar í dag.
Reuters
Mótmæla kjarnorku
Steinþór segir ástandið á kjötmark-
aðnum slæmt og flest bendi til að það
eigi eftir að versna. Offramboð hafi
verið á svínakjöti og taprekstur hjá
framleiðendum. Vegna áframhald-
andi offramboðs sé ljóst að margir
bændur verði gjaldþrota í vetur.
Verð á svínakjöti hefur lækkað um
17,7% frá í júlí og verð kjúklinga um
12,8%. Steinþór segir að kjúklinga-
verð nægi nú ekki einu sinni fyrir
breytilegum kostnaði og öllum kjöt-
framleiðendum sé valdið stórtjóni.
Á sama tíma og svína- og kjúk-
lingakjöt hefur lækkað í verði hefur
nauta- og lambakjöt hækkað. Nauta-
kjöt er nú 9,8% dýrara en í júlí og
lambakjöt 2,2% dýrara.
Móar vilja lækkun skulda
Endurskipulagning stendur nú yf-
ir á fjárhag Móa, sem hafa byggt
framleiðslugetu sína hratt upp og
eru annar stærsti kjúklingaframleið-
andi landsins. Móar hafa sent kröfu-
höfum sínum bréf og óskað eftir 25%
afslætti á skuldum gegn því að þær
verði greiddar á tveimur til þremur
árum. Lánardrottnum er einnig boð-
ið að breyta skuldum í hlutafé.
Uppnám út af
offramboði á
kjötmarkaði
Stórtjón sagt blasa við hjá
bændum og afurðastöðvum
MIKIL aukning á framleiðslu kjúklinga er að mati Steinþórs Skúla-
sonar, forstjóra Sláturfélags Suðurlands, að setja kjötmarkaðinn á
annan endann. Hann segir flest benda til að bændur og afurðafyr-
irtæki verði fyrir stórtjóni vegna þess að kjúklingaframleiðandinn
Móar sé á skömmum tíma að þrefalda framleiðslu sína.
Móar hf./10
UNDIR hótunum um að verða beitt
hervaldi af mesta herveldi heims
ákváðu stjórnvöld í Bagdad í gær að
fallast opinberlega á að hlíta ályktun
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um vopnaeftirlit, áður en frestur sá
rann út sem þeim var gefinn til að
bregðast við.
Í þrætulega orðuðu bréfi, sem á
köflum er í hótunartón, til Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóra SÞ, gagnrýn-
ir Naji Sabri, utanríkisráðherra
Íraks, stjórnvöld í Bandaríkjunum
og Bretlandi harkalega og kallar
ályktunina ósanngjarna og ólöglega,
en lýsti því þó yfir að írösk stjórn-
völd myndu hlíta henni.
„Við upplýsum yður hér með um
að við munum fást við ályktun 1441,
þrátt fyrir illt innihald hennar.
Henni verður hlítt í samræmi við þá
illsku sem runnin er undan rifjum ill-
viljaðra aðila, en það mikilvæga er að
freista þess að hlífa fólki okkar við að
verða fyrir skaða,“ segir Sabri í bréf-
inu. „Við biðjum yður hér með að
upplýsa öryggisráðið um að við erum
reiðubúnir að taka á móti eftirlits-
mönnunum í samræmi við hina fyr-
irhuguðu tímaáætlun,“ skrifar hann.
Í bréfinu, sem er níu síður að
lengd, ítrekar Íraksstjórn að hún
ráði ekki yfir neinum gereyðingar-
vopnum.
Íraksstjórn kveðst ekki ráða yfir
neinum gereyðingarvopnum
Vopnaeftirlitsmenn/15
Sameinuðu þjóðunum. AP.
KYNSLÓÐASKIPTI í leiðtogasveit
Kína færðust einum mikilvægum
áfanganum nær í gær, er nýir menn
voru skipaðir í
miðstjórn kín-
verska kommún-
istaflokksins á
flokksþingi hans
sem nú stendur
yfir í Peking.
Þau tíðindi
gerðust að bæði
Jiang Zemin,
hinn 76 ára gamli
forseti Kína, og sex aðrir menn af
hans kynslóð, sem gegnt hafa æðstu
stöðum í flokknum, voru ekki í fram-
boði í miðstjórn flokksins, eftir því
sem haft var eftir ónafngreindum
þingfulltrúum. „Þessir sex eru ekki á
listanum yfir nýju miðstjórnina. Þeir
voru ekki á frambjóðendalistanum,“
sagði einn fulltrúinn. Meðal þessara
sex eru Zhu Rongji forsætisráðherra
og Li Peng, sem gengið hefur Jiang
næstur að völdum í flokknum.
Yngt upp
í Kína
Jiang Zemin
Peking. AFP.
„Slátrarinn“/18 ÖZUR Lárusson,
framkvæmda-
stjóri Lands-
samtaka sauð-
fjárbænda, segir
að aukning
kjúklingafram-
leiðslu hafi mikil
áhrif á kjötmark-
aðinn í heild. Þeg-
ar sé of mikið
framleitt af svínakjöti og dilkabirgðir
séu meiri en eðlilegt geti talist.
Hann segir ástandið í sauð-
fjárræktinni mjög dapurt, bæði hjá
bændum og afurðastöðvum. Ekkert
megi út af bregða, enda sé afkoma
greinarinnar óviðunandi eins og er.
Özur segir að smærri bændur í
svínarækt hafi brugðið búi og svína-
rækt færst á færri hendur. Búast
megi við að það gerist að nokkru
leyti líka í kindakjötsframleiðslu ef
fram heldur sem horfir.
Hefur mikil
áhrif á
markaðinn
Özur Lárusson
SEINAGANGUR póstþjónustunnar
í Nepal olli því að kona nokkur sat
sex árum lengur í fangelsi en hún
hefði átt að gera.
Ríkisrekna dagblaðið Gorkhap-
atra sagði frá því að hæstarétt-
arúrskurður frá árinu 1997, þar
sem skipað var fyrir um að konan,
Padma Maya Gurung sem nú er 34
ára, skyldi látin laus úr fangelsi,
hefði ekki skilað sér á áfangastað
fyrr en í sumar. Hún hefur nú með
fulltingi mannréttindasamtaka
kært stjórnvöld og farið fram á
skaðabætur.
Sex aukaár
í fangelsi
Katmandú. AFP.
♦ ♦ ♦