Morgunblaðið - 14.11.2002, Page 18
ERLENT
18 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir jólin bjóðum við upp á glæsilegt
mini-hlaðborð
Rjómalöguð súpa með nýbökuðu brauði,
hangikjöt, ávaxtafyllt lambalæri,
hamborgarhryggur, kalkúnn, villipate,
hreindýrapate, kartöflusalat, hrásalat, rauðkál,
grænar baunir, 4 tegundir af síld, sjávarrétta-
gratín, sykurbrúnaðar kartöflur, fiskipate,
tartarsósa, rauðvínssósa, sveppasósa
og ýmislegt fleira sem og eftirréttir.
Jólahlaðborð á
aðeins 2.100 kr.
(Munið að panta strax)
Pantanasími 569 0098
eða hjá Siggu í síma 699 1070
Fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga frá og með
28. nóvember
KARL Bretaprins hefur fyr-
irskipað rannsókn á ásökunum
um siðleysi í konungshöllinni
bresku í tengslum við réttarhöld
yfir bryta Díönu prinsessu, sem
nýlega fóru út um þúfur, og ásak-
anir um að kon-
ungsfjölskyldan
hafi reynt að
breiða yfir nauðg-
un, sem einn af
aðstoðarmönnum
Karls á að hafa
framið. Nú þegar
er deilt um þessa
ákvörðun Karls en
einn af trún-
aðarmönnum hans
mun annast hana.
Sir Michael
Peat, sérlegur að-
stoðarmaður
Karls, tilkynnti
um ákvörðun
prinsins á þriðju-
dag. „Ef einhver
mistök hafa verið
gerð þá vill Karl
að við göngumst
við þeim og reyn-
um að kippa hlut-
unum í lag,“ sagði
hann. „Menn hafa
komið á framfæri
ákveðnum ábend-
ingum og við
munum ekki
hunsa þær.“
Kvaðst Peat
vonast til að geta
flutt Karli skýrslu
um rannsókn sína
fyrir jól.
Heitir því að
fyllsta hlutleysis
verði gætt
Því hefur verið haldið fram í
breskum fjölmiðlum að Elísabet
Englandsdrottning hafi þrýst á
son sinn að biðja um opinbera
rannsókn á ásökunum um siðleysi
þeirra, sem starfa hjá Karli. Slík
rannsókn myndi vera alger ný-
mæli í sögu bresku konungsfjöl-
skyldunnar.
Dennis Skinner, þingmaður
breska Verkamannaflokksins,
hefur þegar gagnrýnt skipun
Peats. Benti hann á að Peat
starfaði fyrir konungsfjölskyld-
una, hefði hlotið riddaratign hjá
drottningunni og ljóst væri að
hann gengi erinda konungshall-
arinnar.
Peat hét því hins vegar að
fyllsta hlutleysis
yrði gætt og að
engu yrði til spar-
að til að fletta of-
an af hugsanlegu
misferli. Sagði
Peat að enn væri
hugsanlegt að
fram færi opinber
rannsókn en það
væri stjórnvalda
eða lögreglunnar
að fyrirskipa
hana.
Rannsóknin mun
m.a. snúast um at-
burði sem urðu
þess valdandi að
réttarhöld yfir
Paul Burrell,
bryta Díönu prins-
essu, fóru út um
þúfur fyrir
skömmu. Burrell
hafði verið sak-
aður um að stinga
undan hundruðum
muna úr eigu
Díönu eftir að hún
fórst í bílslysi í
ágúst 1997.
Endi var bund-
inn á réttarhöldin
þegar Elísabet
Englandsdrottning
greindi skyndilega
frá því að Burrell
hefði verið búinn
að láta hana vita
af því að hann
hygðist halda nokkr-
um muna Díönu. Fram kom í máli
Peats að drottningin yrði ekki
kölluð til vitnis í rannsókn hans,
enda hefði hún þegar gert grein
fyrir sínum þætti í málinu.
Þá verða einnig rannsakaðar
ásakanir George Smith, sem áður
starfaði sem þjónn hjá konungs-
fjölskyldunni, um að náinn sam-
starfsmaður Karls hefði nauðgað
honum árið 1989. Hefur Smith
sakað Karl um að hafa reynt að
hylma yfir málið.
Karl lætur
rannsaka ásak-
anir um siðleysi
London. AFP.
Paul Burrell
Karl Bretaprins
HJARTAÁFALLIÐ hægði á hon-
um – í nokkra mánuði sem voru
fljótir að líða. Það var sagt að
hann hefði sloppið með skrámur
þegar reynt hefði verið að ráða
hann af dögum. Hann hafði að
engu kröfur námsmanna um að
hann fremdi sjálfsmorð. Og keppi-
nautarnir? Ýtt til hliðar, hnepptir
í stofufangelsi, út úr myndinni.
En núna er komið að kveldi hjá
þessum mikla kappa kínverskra
stjórnmála sem var einu sinni for-
dæmdur sem „slátrarinn í Peking“
fyrir hlut sinn í áhlaupinu á stúd-
entana á Torgi hins himneska frið-
ar 1989. Li Peng, náunginn sem
hefur hangið á toppnum lengur en
allir hinir, er 74 ára og það eru
ekki lengur keppinautarnir sem
hann stendur frammi fyrir, heldur
elli kerling.
Búist er við því að Li, sem hef-
ur verið forseti kínverska þings-
ins, og þar með næstvaldamesti
maður landsins, síðan 1998 en var
áður forsætisráðherra, láti af
stöðu sinni innan Komm-
únistaflokksins á þingi flokksins
nú í vikunni, þar sem það er nú-
orðið venja að miðstjórnarmenn
setjist í helgan stein er þeir verða
sjötugir. Flestir búast síðan við
því að Li láti af þingforsetaemb-
ættinu í mars. Og þeir eru margir
sem munu ekki sakna hans.
Heimskingi
eða illmenni?
Mannréttindasamtök hafa ítrek-
að gagnrýnt Li og hann hefur ver-
ið hafður að háði og spotti og
sagður heimskingi, fordæmdur
sem illmenni og virtur að vettugi á
þeim forsendum að hann sé bara
brandari. En margir þeirra sem
hafa með þessum hætti hætt hann,
fordæmt og virt að vettugi eru
löngu horfnir af vettvangi kín-
verskra stjórnmála á meðan skot-
spónn þeirra hefur hvergi hvikað.
„Ég lít ekki á Li Peng sem lyk-
ilmann eða mikilvægan hug-
myndasmið í umbótum eða stefnu-
mótun í Kína. Ég lít fremur á
hann sem hæfileikaríkan og sig-
ursælan þátttakanda í óvægnum
stjórnmálaleiknum í landinu,“ seg-
ir Steve Tsang, yfirmaður rann-
sóknardeildar í Asíufræðum við
Oxford-háskóla í Bretlandi.
Li, sem neitar því að hann sé
eins íhaldssamur og margir hafa
viljað vera láta, hefur látið lítið
fyrir sér fara á flokksþinginu.
Hann stendur að baki Jiangs
Zemins forseta, bæði í eiginlegri
og óeiginlegri merkingu, og sjald-
an er vitnað í hann en Jiang baðar
sig aftur á móti í lofsyrðum.
„Li hefur verið haldið til baka,
að hluta til vegna þess að hann er
ekki vinsæll og ekki gefinn fyrir
að láta taka myndir af sér, og líka
til þess að blóðbaðið á Torgi hins
himneska friðar setji ekki blett á
ímynd Jiangs,“ segir Jonathan
Spence, sagnfræðingur við Yale-
háskóla í Bandaríkjunum.
Flestir Kínverjar þora ekki að
gagnrýna leiðtoga sína op-
inberlega. En í Peking láta margir
í ljósi þá persónulegu skoðun að
þeim sé lítið um Li gefið. Kínverj-
ar sem eru öruggir í útlöndum
ganga lengra.
„Það verður að refsa kínverska
slátraranum Li Peng!“ sögðu Sun
Chengkang og Yu Qing í vitn-
isburði sínum til samtakanna
Mannréttindi í Kína. Sun og Yu
eru foreldrar Sun Hui, 19 ára
efnafræðistúdents sem var myrtur
á Torgi hins himneska friðar. Þau
höfðuðu, ásamt fleirum, mál gegn
Li fyrir bandarískum dómstólum
fyrir tveimur árum.
Við fótskör
Zhou Enlais
En hvort sem maður dáist að
honum eða hatar hann spannar
ævi hans sögu Kína nútímans.
Faðir hans, kommúnískur upp-
reisnarmaður, var myrtur – varð
„píslarvottur“ – þegar Li var ung-
barn. Hann ólst upp í hellum með-
al kommúnista, eitt nokkurra
barna sem Zhou Enlai, sem síðar
varð fyrsti kommúnistinn er varð
forsætisráðherra, tók að sér. Li
lagði stund á vatnsaflsverkfræði í
Sovétríkjunum og var í 25 ár
orkumálaembættismaður og
flokksmaður áður en hann varð
forsætisráðherra 1987.
Þegar námsmenn söfnuðust
saman á Torgi hins himneska frið-
ar vorið 1989 fór Li til fundar við
þá til að byrja með og lét í ljósi
samningsvilja. Sagðist líta á þau
sem sín eigin börn. Daginn eftir
sagði Li – sem hafði þá greinilega
orðið ofan á í valdabaráttu við for-
mann flokksins, Zhao Ziyang, sem
er enn þann dag í dag í stofufang-
elsi – við kínversku þjóðina að
„stjórnleysið“ sem mótmælend-
urnir hefðu valdið, ykist dag frá
degi.
Hann lofaði aðgerðum. Nokkr-
um klukkustundum síðar setti
stjórnin herlög í nokkrum hverf-
um höfuðborgarinnar. Raddir
heyrðust sem kröfðust afsagnar
Lis, sumir kröfðust þess að hann
tæki líf sitt. Þegar skriðdrekar
óku inn á torgið aðfaranótt fjórða
júní 1989 og mörg hundruð náms-
menn féllu í valinn hafði Li greypt
orðspor sitt í stein, þótt það væri í
rauninni Deng Xiaoping sem var
við stjórnvölinn. Fregnir hermdu
að nokkrum dögum síðar hefði
einn af lífvörðum Lis reynt að
skjóta hann til bana og hæft hann
í lærið.
Lætur ekki
alveg af völdum
Þrátt fyrir fordæmingu um-
heimsins hélt Li velli. Hann fékk
hjartaáfall 1993 og það hægði að-
eins á honum, en hann var fljót-
lega farinn að spila tennis og
stjórna landinu með tilliti til
markmiða sinna – félagslegs stöð-
ugleika, umhverfismála og um-
deildra risavatnsaflsvirkjana.
Eftir að hafa verið forsætisráð-
herra tvö kjörtímabil gerðist hann
forseti þingsins 1998, sem er
valdamikil staða þótt þingið hafi
engin áhrif. Nú mun hann láta af
stöðu sinni í flokknum og hætta
sem þingforseti í mars. Þótt hann
setjist í helgan stein er líklegt að
hann haldi nokkrum áhrifum –
sérstaklega í orkuiðnaðinum, þar
sem sonur hans er á hraðri upp-
leið. Einn skjólstæðinga Lis, Luo
Gan, er á toppnum í flokknum og
hefur meiri raunveruleg völd en
flestir.
Ef marka má opinbera ævisögu
Lis kann hann einnig að verða lið-
tækur við heimilisstörfin. „Li er
góður hjálparkokkur og sinnir oft
ýmsum húsverkum,“ segir í ævi-
sögunni. Síðan er leitað til konu
hans, Zhu Lin, eftir frekari um-
sögn. „Alltaf þegar hann er í fríi
leggur hann lið við húsverkin,“
segir hún. „Svona var þetta bæði
þegar hann var óbreyttur embætt-
ismaður og líka er hann varð ráð-
herra – jafnvel líka eftir að hann
varð forsætisráðherra.“
AP
Li Peng, til hægri, flytur ávarp við upphaf flokksþings Kommúnistaflokksins sl. föstudag. Til vinstri er forseti
landsins, Jiang Zemin.
„Slátrarinn í Peking“
sest í helgan stein
’ Það verður aðrefsa kínverska
slátraranum Li
Peng! ‘
Peking. AP.