Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 24
LANDIÐ
24 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM helgina var á Egilsstöðum hald-
inn opinn fundur um fyrirhugaðar
virkjanaframkvæmdir á Austur-
landi. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð stóð fyrir honum og frum-
mælendur voru þeir Sigurður Jó-
hannesson, hagfræðingur hjá Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands, og
Skarphéðinn Þórisson, líffræðingur
hjá Náttúrustofu Austurlands.
Skarphéðinn reið á vaðið og út-
skýrði virkjanahugmyndina og þau
áhrif sem Kárahnjúkavirkjun kemur
sannanlega og hugsanlega til með að
hafa á vatnafar, gróður og dýralíf
svæðisins. Þá ræddi hann uppfok
vegna vatnsborðssveiflu miðlunar-
lónsins sem menn hafa miklar
áhyggjur af.
Í erindi Sigurðar var fjallað um
þrjár meginspurningar. Í fyrsta lagi
af hverju Kárahnjúkavirkjun sé op-
inber framkvæmd, en fjármálamenn
ekki látnir setja fé í fyrirtækið, eins
og t.d. útgerð og önnur fyrirtæki.
Í öðru lagi sagði hann að fólk væri
að leggja mjög mikla fjármuni í eitt
einasta fyrirtæki, ef menn vildu horf-
ast í augu við að í raun fjármagnaði
fólkið í landinu framkvæmdina.
„Reykvíkingar og Akureyringar
veðja mestu á Kárahnjúkavirkjun og
þær virkjanir sem ráðgerðar eru
vegna stækkunar Norðuráls, því þeir
eiga beinan eignarhlut í Landsvirkj-
un. Þar er um að ræða tvær og hálfa
til þrjár milljónir á hverja fjögurra
manna fjölskyldu,“ sagði Sigurður.
„Annars staðar á landinu er þetta
minna. Ég efast um að fjármálaráð-
gjafar myndu ráðleggja meðalfjöl-
skyldu að leggja svo mikla fjármuni í
hvaða fyrirtæki sem vera kynni.“
Sigurður sagði að með fyrri fjár-
festingum í virkjunum fyrir stóriðju,
sem væru um 1,5 milljónir á hverja
fjögurra manna fjölskyldu í Reykja-
vík og á Akureyri, væri heildarfjár-
festing komin í tæplega helmingi
meira. „Heildareign þessa fólks
verður fjórar til fjórar og hálf millj-
ón. Á Egilsstöðum og annars staðar
á landinu er það ein og hálf milljón.
Ég geri athugasemd við að veðja
svona miklu á eina atvinnugrein.“
Í þriðja lagi ræddi Sigurður ávöxt-
un. „Þetta lítur þokkalega út eins og
Landsvirkjun kynnir það, en í dæmið
vantar þó þrjá kostnaðarliði. Fyrst
og fremst ábyrgðina, þ.e. kostnað af
áhættunni við fjárfestinguna, sem
endurspeglast í að fjárfestar myndu
taka meiri vexti fyrir peningana í
þessu. Ég giska á að þeir myndu taka
í kringum 10% eða meira. Lands-
virkjun gerir hins vegar 5% ávöxt-
unarkröfu. Svo eru það skattarnir og
þá landið sem er ekki metið. Ég held
að það muni mest um ábyrgðina, eins
og sést af því að einkafjárfestar
höfðu ekki áhuga á að leggja fjár-
magn í verkefnið þegar þeim bauðst
það og þá var enginn umhverfis-
kostnaður inni í dæminu.“
Rætt um fjármögnun Kárahnjúkavirkjunar á Egilsstöðum
Verður mikil fjárfesting
í eina atvinnugrein
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd.
Frá fundi um Kárahnjúkavirkjun sem haldinn var á Egilsstöðum um
helgina. Fremst eru Skarphéðinn Þórisson líffræðingur sem flutti fram-
sögu og Þuríður Backman, þingmaður Vinstri grænna.
Egilsstaðir
UNNIÐ er að því að lengja stálþil
við Baldursbryggju í Súgandisey.
Það verk hefur staðið lengi til og lýk-
ur þar með hafnarframkvæmdum
við Súgandisey, sem hófust þegar
gerð var aðstaða fyrir Breiðafjarð-
arferjuna Baldur fyrir meira en 10
árum. Verkið var boðið út og átti
Skipasmíðastöðin Skipavík lægsta
tilboðið sem hljóðaði upp á 8,3 millj-
ónir króna. Lengja á viðlegukantinn
um 30 metra. Verið er að reka niður
stálþil og svo verður steyptur kantur
og fyllt og gengið frá fríholtum. Gert
er ráð fyrir að verkinu verði lokið
fyrir 31. janúar 2003.
Að framkvæmdum loknum er við-
legukantur við bryggjurnar í Stykk-
ishólmi um 450 metrar og verður öll
aðstaða fyrir báta og skip góð.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Lengja
stálþil við
Súgandisey
Stykkishólmur
Í TILEFNI af afmæli Barnaskólans
á Eyrarbakka og Stokkseyri ákvað
stjórn Ungmennafélags Stokks-
eyrar að gefa skólanum gjöf.
Þegar farið var að velta fyrir
sér hvað helst vantaði ákvað
stjórnin að gefa skólanum ný leik-
föng fyrir krakkana að nota í frí-
mínútum en sumt af gamla dótinu
var orðið þreytt. Settir voru sam-
an pakkar fyrir hvorn skóla fyrir
sig sem innihéldu meðal annars
fótbolta, körfubolta, sippubönd og
ýmsa aðra góða hluti.
Ungmennafélagið afhenti síðan
gjöfina við hátíðlega athöfn að
morgni afmælisdagsins í skólanum
á Stokkseyri þar sem allir nem-
endur skólans voru komnir saman
til að halda upp á afmælið.
Það var Ingibjörg Ársælsdóttir,
formaður félagsins, sem afhenti
Arndísi Hörpu Einarsdóttur gjöf-
ina við mikil fagnaðarlæti
barnanna. Þessi gjöf er í anda
stefnu félagsins undanfarin ár að
stuðla að hollri og góðri hreyfingu
barna og unglinga.
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
Nemendur skólans ásamt Arndísi Hörpu Einarsdóttur.
Gaf barnaskólan-
um leikföng
Eyrarbakki
HINN árlegi basar á Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi var haldinn
nýlega. Almenningi gafst kostur á
að skoða munina áður en salan
hófst og að venju var handverkið
fjölbreytt og margt sem gladdi aug-
að. Kaffisala var á staðnum og rann
allur ágóði í ferðasjóð heimilisfólks.
Fjöldi fólks kom og átti góðan dag á
dvalarheimilinu, enda basarinn
orðinn fastur liður í menningar-
viðburðum Borgnesinga.
Basar á dvalarheimilinu
Borgarnes
NÝ og fullkomin líkamsræktarstöð
hefur verið opnuð á Hvolsvelli. Það
eru þau hjónin Lúðvík Bergmann og
Elísabet María Jónsdóttir sem eiga
stöðina sem þau nefna Olympus
heilsurækt. Heilsuræktin er til húsa
í gamla kaupfélagshúsinu á Hvols-
velli, þ.e. við Austurveg 4. Að sögn
þeirra hjóna verður opið daglega frá
7-9 á morgnana og 16-21 síðdegis en
um helgar verður opið frá 10-14. Í
heilsuræktinni verða hlaupabretti og
mjög fjölbreyttir líkamsþjálfunar-
bekkir en að auki verður boxsalur og
boðið verður uppá þjálfun í boxi.
Fjölnir Þorgeirsson mun leiðbeina
fólki. Hægt verður að kaupa mán-
aðar- eða árskort og einnig staka
tíma. Verð verður sambærilegt við
það sem gerist annarsstaðar.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Hjónin Elísabet María Jónsdóttir og Lúðvík Bergmann þegar þau opnuðu
Olympus heilsurækt á Hvolsvelli.
Olympus heilsurækt
opnuð á Hvolsvelli
Hvolsvöllur