Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 36

Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 36
UMRÆÐAN 36 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STEFANÍA Óskarsdóttir, stjórn- málafræðingur, býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, 22. og 23. nóvember nk. Stef- anía býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á stjórnmálum. Ung að árum sýndi hún strax mikinn áhuga á stjórnmálum og sat t.d. á menntaskólaárum sínum í stjórn Heimdallar og síðar í Stúd- entaráði HÍ fyrir Vöku. Eftir að hún lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Purdue-háskóla í Bandaríkj- unum hefur hún m.a. starfað sem há- skólakennari í stjórnmálafræði. Enn fremur hefur hún gegnt mörgum ábyrgðarstörfum á vettvangi Sjálf- stæðisflokksins og stýrt verkefnum fyrir ráðherra flokksins. Stefanía er heiðarleg og öflug í því sem hún tek- ur sér fyrir hendur. Ég hef þekkt hana í rúm 20 ár og get fullyrt að Stefanía mun leggja hart að sér til að vinna þjóð og landi gagn á Al- þingi. Ég mæli eindregið með því að kjósendur greiði Stefaníu atkvæði í prófkjörinu og setji hana ofarlega á listann. Stefaníu Óskarsdóttur í öruggt sæti Benedikt H. Alfonsson, skólastjóri Siglingaskólans, skrifar: BIRGIR Ármannsson hefur boðið sig fram til prófkjörs Sjálfstæð- isflokksins sem fram fer á næstunni. Birgir er með yngri frambjóðendum flokksins. Þrátt fyrir ungan aldur býr hann yfir mikilli reynslu sem mun vafalaust nýtast hon- um vel sem málsvara komandi kynslóðar á Alþingi. Má sem dæmi nefna að hann hef- ur alla tíð valist til ábyrgðarstarfa innan flokksins, hvort sem er í röð- um ungra sjálfstæðismanna eða flokksins alls. Birgir hefur til að mynda verið kjörinn til setu í mið- stjórn flokksins á mörgum síðustu landsfundum. Þeir sem til hans þekkja og hafa fylgst með þátttöku hans í þjóðmála- umræðunni vita að Birgir verður vafalaust kraftmikill þingmaður með skynsemi og rökvísi að leiðarljósi. Það er Sjálfstæðisflokknum mikill fengur að Birgir skuli hafa tekið ákvörðun um að bjóða fram krafta sína á næsta kjörtímabili. Það er því nauðsynlegt að hann fái gott braut- argengi í komandi prófkjöri flokks- ins í Reykjavík. Veljum Birgi Ár- mannsson í sjötta sæti listans. Kjósum Birgi í sjötta sætið! Guðrún Jónsdóttir kennari skrifar: STEFANÍA Óskarsdóttir er í framboði í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík, 22. og 23. nóvember. Stefanía er talsmaður frelsis í viðskiptum og hún hefur lagt áherslu á mikilvægi öflugrar samkeppni. Stefanía býður fram krafta sína í þágu framsæk- innar uppbyggingar íslensks þjóð- félags. Hún gerir sér grein fyrir að efnahagsleg framþróun Íslands er ekki síst háð áframhaldandi upp- byggingu íslenska menntakerfisins og kröftugri innlendri rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Þessu er ég innilega sammála. Ég er einnig þeirrar skoðunar að við þurfum öfl- ugt fólk eins og Stefaníu á þing til að fylgja þessum málum eftir. Því er mikilvægt að hún fái góða kosningu í prófkjörinu. Styðjum Stefaníu Kjartan Benediktsson verkfræðingur skrifar: Prófkjör Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram- bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is. SAMFYLKINGIN gerði póli- tískum andstæðingum á hægri væng stjórnmálanna mikinn greiða um helgina þegar hún hafnaði í prófkjörum flokksins einu fram- bjóðendunum, sem gætu haft ein- hverja skírskotun til hægri. Ótrú- legt var að fylgjast með úrslitunum þar sem fulltrúar gamaldags vinstri viðhorfa röðuðu sér í öll efstu sætin bæði í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi. Þeir fram- bjóðendur sem helst hafa reynt að höfða til þeirra sem talist geta hægri kratar eða markaðssinnaðir jafnaðarmenn lentu í áttunda og tí- unda sæti í Reykjavík. Í Suðvesturkjördæmi reyndi einn frambjóðandi að ná til þeirra sem skilja að velferðarkerfið lifir ekki án öflugs atvinnulífs en hann lenti einnig í sæti sem engar líkur eru til að verði þingsæti. Í því kjör- dæmi endurheimti Guðmundur Árni Stefánsson, annar helsti leið- togi vinstri krata, leiðtogasætið. Sigurvegari prófkjörsins í Reykjavík er tvímælalaust Jó- hanna Sigurðardóttir sem er ótví- rætt helsti leiðtogi vinstri krata í Samfylkingunni. Formaður Sam- fylkingarinnar, sem gaf einn kost á sér í fyrsta sætið, fékk hins vegar þannig útkomu – aðeins 55% – að hann stendur enn veikari eftir. Spyrja má hvort ein af ástæðum þess að formaðurinn fær þess hátt- ar útreið sé sú að hann hefur reynt að draga úr áhrifum þeirra sem standa lengst til vinstri í flokknum og hefur talað á þann veg að flokk- urinn geti einnig verið valkostur fyrir þá kjósendur sem vilja öflugt atvinnulíf. Þessu hafa flokksmenn nú hafnað með eftirminnilegum hætti og það sem eftir stendur er að Samfylkingin hefur ákveðið að keppa eingöngu um fylgi við Vinstri græna. Það er ekki síst umhugsunarefni fyrir kjósendur að nú eru einu aug- ljósu ráðherraefni flokksins, kæm- ist hann í ríkisstjórn, þau Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurð- ardóttir og Guðmundur Árni Stef- ánsson. Síðast þegar þetta fólk sat í ríkisstjórn tókst hvorki að ná fram einkavæðingu ríkisbankanna né nauðsynlegri lækkun skatta og þessir stjórnmálamenn hafa allar götur síðan barist gegn hvoru tveggja. Ljóst er að þrátt fyrir allt talið um nútímalega jafnaðarmennsku, markaðsbúskap og hina svokölluðu þriðju leið kýs hefur Samfylking- arfólk nú um helgina ákveðið að heyja næstu kosningabaráttu með gamaldags vinstri viðhorf að vopni. Samfylking um sósíalisma Eftir Birgi Ármannsson Höfundur er aðstoðarfram- kvæmdastjóri Verslunarráðs og sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Samfylk- ingin hefur ákveðið að keppa ein- göngu um fylgi við Vinstri græna.“ AÐ UNDANFÖRNU hefur um- ræðan um Evrópusambandsaðild farið vaxandi og er það vel. EES- samningurinn á skammt eftir ólifað og endurnýjun mun byggjast ann- ars vegar á endurnýjun aðildar með Noreg, Sviss og Liechtenstein innanborðs eða – sem alls ekki er óraunhæft – að búast við að Ísland standi eitt eftir og reyni tvíhliða samninga við Evrópusambandið. Áhrif smárra ríkja Erfitt er að gera góðan sam- anburð á þróun í Evrópu, þar sem spilin í upphafi síðasta áratugar voru ójöfn. Annars vegar voru ríki innan ESB sem höfðu haft frelsi til efnahagslegra aðgerða og athafna í áratugi og hins vegar ríki sem höfðu lotið ströngum leikreglum úreltrar kommúnistískrar hug- myndafræði. Þróunin varð mun hraðari en nokkurn óraði fyrir. Órofa samstaða innan Evrópu var lykilatriðið. Sem íslenskur þingmaður á þingi Evrópuráðsins fólst starfið í að stuðla að því að tryggja lýðræð- islega uppbyggingu nýfrjálsra ríkja. Uppbygging á nýjum innri reglum þjóðríkjanna var forsenda þess að ríkin nytu jafnræðis í evr- ópsku samfélagi. Þetta var helsta verkefnið – og í náinni samvinnu við ríki ESB. Áhrif lítilla þjóða á alþjóðavett- vangi eru oft dregin í efa. Þetta er ekki rétt. Reynsla mín er, að ef hver einstakur þingmaður, t.d. inn- an Evrópuráðs 44 ríkja, beitir sér í málum sem hann hefur áhuga á, geta áhrifin orðið jafnmikil og áhrif heilla landsdeilda stórríkja. Áhrifin fara fyrst og fremst eftir vinnu- brögðum þingmannsins. Árangur íslenskra þingmanna á alþjóðavett- vangi sýnir þetta. Jákvæð reynsla af EES Það var mikil reynsla að taka þátt í umfjöllum um EES. Árang- urinn er ótvíræður. EES hefur skilað Íslandi miklu og auðveldað okkur að ganga inn í nútíma þjóð- félag og auðveldað viðskipti, veitt okkur tækifæri til að spreyta okk- ur á evrópskum markaði, bæði með vörur og mannauð. Við höfum kom- ist inn í hringiðu athafna innan Evrópu mun hraðar en ella. Við þessar staðreyndir hafa ýmsir sett punkt og ágæti EES eitt og sér talið fullnægjandi. Ég er ein þeirra sem fögnuðu EES, hef talið hann góðan og gild- an og skilað Íslandi jafnvel meiru en búist var við. Hins vegar tel ég nauðsynlegt að horfa til framtíðar, hvert þróunin leiðir okkur, kosti og galla. Umræðan þarf að vera for- dómalaus, opinská og feimnislaus. Framtíðar- horfur EES Eftir Láru Margréti Ragnarsdóttur Höfundur er alþingismaður. „EES hefur skilað Ís- landi miklu og auðveld- að okkur að ganga inn í nútímaþjóð- félag…“ MIG langar að lýsa yfir stuðningi við Stefaníu Óskarsdóttur, fráfar- andi formann Hvatar, í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Stefanía hefur á und- anförnum árum ver- ið öflugur talsmaður jafnréttis og lagt þeirri baráttu mikið lið. Hún starfaði um 18 mánaða skeið sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu við verkefnið Konur og lýðræði, þ.e. frá því að ráð- stefna þess efnis var haldin í Reykjavík árið 1999 og fram á mitt ár 2001. Stefanía var einnig formað- ur jafnréttisnefndar Sjálfstæð- isflokksins frá 1999 til 2001. Stefanía Óskarsdóttir er stjórnmálafræð- ingur og hefur stundað rannsóknir í stjórnmálahagfræði jafnframt því að starfa sem háskólakennari í grein- inni. Hún er frjálslynd og er tals- maður frelsis í viðskiptum. Stefanía leggur einnig mikla áherslu á aðhald og sparnað í rekstri ríkisins. Stef- anía Óskarsdóttir er glæsilegur fulltrúi ungra kvenna og mun sóma sér mjög vel á Alþingi. Tryggjum Stefaníu góða kosningu Lísa Anne Libungan, nemandi í líffræði við Háskóla Íslands, skrifar: BIRGIR Ármannsson lögfræð- ingur og aðstoðar-framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins er alinn upp í Sjálf- stæðisflokknum. Hann gegndi for- mennsku í Heimdalli, sat í stjórn SUS og hefur, þrátt fyrir ungan aldur, setið í miðstjórn flokksins í mörg ár, auk fjölda annarra trúnaðarstarfa. Á náms- árunum starfaði hann með lýðræð- issinnum og sat í stúdentaráði HÍ. Vestrænni varnarsamvinnu hefur hann lagt lið með formennsku í Varð- bergi. Birgir óskar eftir stuðningi í 6. sæti á lista okkar sjálfstæðismanna í komandi þingkosningum. Trúin á frelsi, mannúð og víðsýni sjálfstæð- isstefnunnar er veganesti hans inn á þing ásamt heilindum og ríkri rétt- lætiskennd. Birgir er baráttumaður sem mun styrkja listann og stuðla að glæstum sigri Sjálfstæðisflokksins á vori komanda. Ég hvet ykkur ágætu samherjar til þess að ljá þessum unga frambjóðanda stuðning ykkar. Heilindi og baráttuandi Andrés Andrésson, stjórnarmaður í Sam- bandi ungra sjálfstæðismanna, skrifar: FRAMSÓKNARMENN í NV- kjördæmi munu kjósa sex efstu frambjóðendur á lista nk. laugard. Margir efnilegir frambjóðendur eru í boði, átta karlar og fimm konur. Það gefur engin kona kost á sér í fyrsta sæti, því verður að leggja áherslu á að konur skipi næstu sæti. Þær kon- ur sem sækjast eftir efstu sætum eru mjög frambærilegar, þær hafa bæði mikla reynslu í stjórnmálum og/eða eru ungar og eiga framtíðina fyrir sér. Þessum konum hefur verið treyst fyrir miklum ábyrgðarstöðum hvort sem það eru trúnaðarstöður innan flokksins eða í þeirra heima- héruðum. Það er mikilvægt að hvetja fólk til að kjósa konur í efstu sæti til að tryggja að bæði kynin fái sem jafn- ast vægi á listanum, því mikilvægt er að rödd kvenna heyrist á alþingi því kynin eru jú ólík og hafa mismun- andi sýn á þarfir þjóðfélagsins. Með breyttri kjördæmaskipan lít- ur út fyrir að hlutur kvenna verði lakari í næstu alþingiskosningum. Það er okkar að tryggja að svo verði ekki. Ég vil því hvetja Framsókn- arfólk til að kjósa konur. Kjósum konur Bryndís Bjarnarson, jafnréttisráðgjafi og formaður jafnréttisnefndar Framsókn- arflokksins, skrifar: BIRGIR Ármannsson, sem nú hefur boðið sig fram til setu á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er einn af þeim mönn- um sem hvað best er treystandi til að taka sæti á Alþingi. Birgir er frjáls- lyndur maður í besta skilningi þess orðs og hefur mikla reynslu á sviði þjóðmála. Í störfum sínum hefur hann tekið þátt í efl- ingu íslensks atvinnulífs og á vett- vangi stjórnmálanna hefur hann ávallt beitt sér fyrir auknu frelsi einstaklingsins. Birgir er einnig mikill áhuga- maður um utanríkismál og var t.d. formaður Varðbergs fyrir nokkrum árum. Þó að margt hafi breyst í heimsmálum á síðustu árum hafa atburðir síðustu missera sýnt að öryggi þjóðar er ekki sjálfsagður hlutur. Að þeim málum þarf að vinna af festu og til þess þurfa á Alþingi að sitja menn sem hafa áhuga og reynslu á því sviði. Birgir er einn þessara manna. Þegar við bætist að hann er traustur mál- svari sjálfstæðisstefnunnar á öðr- um sviðum leikur enginn vafi á því að hann á erindi á þing. Veljum Birgi Ármannsson í 6. sæti í kom- andi prófkjöri. Veljum Birgi í 6. sæti Már Másson viðskiptafræðingur skrifar: Vönduð ryðfrí húsaskilti Fjölbreytt myndaval Pantið tímanlega til jólagjafa HÚSASKILTI Klapparstíg 44, sími 562 3614 Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Stretchbuxur kr. 2.90 Konubux r frá kr. 1.790 ragtir, kjólar, blús ur og pils. Ódýr nát fatna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.