Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 37

Morgunblaðið - 14.11.2002, Síða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 37 ✝ Henný María Ott-ósdóttir fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 4. júní 1939 en ólst upp í Hafnar- firði. Hún lést á St. Jos- ephs sjúkrahúsinu í New Jersey í Banda- ríkjunum 2. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Guðmundsdóttir, f. 25.3. 1901, d. 31.1. 1986, og Ottó H. Guð- mundsson, f. 25.8. 1910, d. 15.2. 1959. Systkini Hennýjar voru Henný, f. 27.11. 1927, d. 24.3. 1936, Guðmunda, f. 24.7. 1932, d. 23.12. 1999, Birkir Sólberg, f. 2.10. 1935, d. 6.1. 1942, Birgir Grétar, f. 31.12. 1946, kvæntur Sólveigu Pálsdóttur, f. 7.7. 1947. Árið 1957 hóf Henný sambúð með Hreini Sveins- syni lögfræðingi. Þau eiga tvö börn, Guðrúnu, f. 11.4. 1958, og Ottó Svein, f. 17.4. 1959, kvænt- ur Jóhönnu Ploder, þau eiga fjögur börn. Henný og Hreinn skildu. Árið 1961 giftist Henný Robert Ed- wards, f. 16.3. 1941. Eignuðust þau eina dóttur, Rose Marie, f. 24.4. 1961, gift Raymond Diaz. Þau eiga tvö börn. Henný og Robert skildu. Árið 1975 giftist Henný Vincent P. McHenry, f. 1.5. 1938. Lifir hann eiginkonu sína. Útför Hennýjar var gerð í New Jersey 6. nóvember. Elsku systir, ekki grunaði mig að þessi veikindi þín tækju svona stutt- an tíma eða aðeins fjóra og hálfan mánuð frá því þú greindist með þennan skæða sjúkdóm. En þú varst ótrúlega bjartsýn og sagðir við okk- ur að við skyldum ekki hafa neinar áhyggjur af þér, því þetta myndi lagast. En því miður fór öðruvísi en þú og við þorðum að vona. Svona er nú lífið, hvort sem okkur líkar það eður ei. Ég minnist margra góðra stunda með systur minni, bæði hér heima og eins úti í New Jersey. Það var alltaf ljúft að heimsækja hana. Tekið vel á móti manni, farið í langar og stuttar skemmtiferðir, svo og ýmsar skoðunarferðir. Það var gott að eiga Hennýju að. Henni fylgdi andblær sem ein- kenndist af hjartahlýju, góðu skapi og kímnigáfu sem hún átti í ríkum mæli. Hún ólst upp við ástríki góðra foreldra í glöðum systkinahópi sem hefur eflaust sett svip á hennar lífs- stíl. Hún naut þeirrar gæfu að eignast þrjú yndisleg börn og sex barna- börn, sem öll veittu henni mikla ánægju og hlýju. Henný er órjúfanlegur hluti æsku minnar, vegna þess hve góð hún var við mig alla tíð og fjölskyldu mína. Hún var mjög trúrækin, vildi öllum vel, hugsaði vel um sína, naut þess að hlýða á góða tónlist og umgang- ast gott fólk. Hún var um svo margt góð fyrirmynd í breytni, störfum og lífsháttum að minningin um hana mun geymast í þakklátum huga þeirra sem henni kynntust. Elsku systir, á kveðjustundu koma margar ljúfar minningar fram í hugann, en fyrst og fremst þakk- læti til þín, fyrir alla þína umhyggju og góðvild. Í þeirri trú, að hið eilífa ljós lýsi látinni systur, dauðinn sé framhald lífsins og sálin lifi að eilífu, er systir mín kvödd með djúpri virð- ingu. Henni fylgi hjartans þakkir fyrir fögur fordæmi, lærdómsrík kynni og allt annað sem hún gaf mér. Að endingu lýk ég þessum fáu lín- um með þeim orðum sem þú sagðir við mig í símann, er ég talaði við þig í síðasta sinn nokkrum dögum áður en þú lést, en þá varst þú mjög veik. Vertu sæl, elsku vina mín, Guð þig geymi og blessi að eilífu. Nú vil ég enn í nafni þínu náðugi Guð sem léttir pínu mér að minni hvílu halla og heiðra þig fyrir gæsku alla. H.P. Hvíl í friði, Birgir G. Ottósson. Mig langar að minnast elskulegr- ar vinkonu minnar sem lést 2. nóv- ember síðastliðinn í New Jersey í Bandaríkjunum eftir fimm mánaða erfitt stríð við krabbamein, hún var jarðsett miðvikudaginn 6. nóvember síðastliðinn í Bandaríkjunum. Henný María Ottósdóttir McHenry fæddist 4. júní 1939 í Hafnarfirði, hún flutti til Bandaríkj- anna 1962 og bjó þar æ síðan. Henný, eða Maja eins og ég kallaði hana, giftist bandarískum manni sem heitir Róbert Edwards og eign- aðist með honum dóttur sem heitir Rose og býr í New York. Fyrir átti hún tvö börn sem voru heima á Ís- landi, þau Guðrúnu og Ottó Hreins- börn. Maja og Róbert slitu samvistum, seinna kynntist hún seinni manni sínum sem heitir (Duke)Vincent McHenry, þau áttu engin börn sam- an. Maja var að vinna á Dunkin Donuts í Hackensack í New Jersey þegar ég kynntist henni, ég bjó í næsta bæ sem heitir Maywood, ég flutti þangað 1981 og tókust með okkur náin kynni sem entust æ síð- an. Maja fór ekki oft til Íslands og talaði sjaldan íslensku þar til hún kynntist mér, við áttum margar góð- ar stundir saman við að rifja upp æskustundir okkar heima á Íslandi, ég var mjög hissa á því hvað hún tal- aði fallega íslensku eftir allan þenn- an tíma. Við urðum mjög góðar vinkonur og vorum duglegar að fara saman á skemmtanir Íslendingafélagsins í New York og halda uppi kynnum við Íslendinga þar. Maja elskaði ís- lenskan mat og sælgæti eins og svo margir aðrir og var Ora fiskbúð- ingur og rauður Opal í miklu uppá- haldi hjá henni og í hvert sinn sem ég heimsótti Ísland bað hún mig um að koma með nokkrar dósir og pakka með mér til Ameríku ásamt harðfiski, SS pylsum og auðvitað hangikjöti, þá var nú hátíð. Við Maja töluðum saman í síma á hverju degi í næstum 17 ár, það verður skrítið að heyra ekki lengur í henni, ég mun sakna hennar mikið. Ég bið algóðan guð að vera með allri hennar fjölskyldu bæði á Ís- landi og í Bandaríkjunum börnun- um, hennar þeim Guðrúnu og Ottó, Bigga bróður hennar, elskulegum eiginmanni, honum Duke, svo og Rose dóttur hennar bið ég guðs blessunar. Ég kveð elskulega vinkonu sem var mér svo kær, hennar verður sárt saknað. Hvíl í friði. Þín Auður Magnúsdóttir Lekay og fjölskylda í Lody, New Jersey HENNÝ MARÍA OTTÓSDÓTTIR Elsku Svava amma, amma mín, langamma barnanna minna. Fyrstu orðin sem koma upp í huga minn eru fölskvalaus ástúð, umhyggja, hlýja og tryggð. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ég sakna þín amma mín. En ég hugga mig við það að þú áttir langt og gott líf. Seinustu árin í faðmi fjölskyldunnar, öllum þeim sem þykir vænt um þig. Og þú lifir í hjörtum okkar, amma. Í mínu hjarta lifir þú áfram eins og þú allt- af varst, góð amma og falleg mann- eskja. Ég man að þegar ég var lítill, var ég stundum í pössun hjá þér. Þá gerðum við Svava frænka „kökur“ í holinu. Þegar ég var í Ísaksaskóla, fór ég oft til ykkar afa í Barðavog eftir skólann með strætó númer 24. Meðan mamma og pabbi áttu ekki sjónvarp skrapp ég stundum á kvöldin til að sjá það sem mér fannst athyglisvert. Það var alltaf ✝ Svava Bern-harðsdóttir fæddist á Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önund- arfirði 3. nóvember 1914. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi 29. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholtskirkju 8. nóvember. notalegt að heimsækja þig og afa. Mér er minnisstætt hvað það var gott að koma til þín í Barða- vog 18 og fá að borða og hvíla sig. Þegar ég var krakki kom ég oft til ykkar og sumarið ’79 þegar pabbi og mamma fóru til Finn- lands var ég iðulega í mat hjá þér og þú sýndir mér hvernig maður þvær þvott og gafst mér góð ráð í veganesti þegar ég flutti af landinu. Þú hefur alltaf gefið af þínum tíma og kröftum og fundist það sjálfsagt að styðja við bakið á hverjum sem á því þurfti að halda án þess að krefjast endurgreiðslu. Þú heldur það sem þú lofar og þú bregst ekki frekar en klettur í brimi – þú ert kletturinn okkar. Ég kemst ekki til Íslands til að vera við þína hinstu ferð, af ástæð- um sem ég veit að þú tekur gildar. Ég kveð þig að sinni með orðum Stephans G.: Ég óska þér blessunar, hlýlega hönd, Þó héðan þér rétt geti ei neina, – Bless elsku amma mín, langamma, Svava okkar allra. Þinn Eiríkur Guðmundur, Harpa, Sóley Freyja og Steinar Freyr. SVAVA BERN- HARÐSDÓTTIR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANFRÍÐUR GUÐLAUGSDÓTTIR lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, mánu- daginn 11. nóvember. Stella Stefánsdóttir, Guðmundur Georgsson, Emma Stefánsdóttir, Gunnar Jónsson, Birgir Stefánsson, Heiða Hrönn Jóhannsdóttir, Stefán Stefánsson, Hólmfríður Hreinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir minn, JÓNAS RAGNAR SIGURÐSSON, frá Skuld í Vestmannaeyjum, til heimilis á Austurbrún 2, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi mánudagsins 11. nóvember. Jarðarförin nánar auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ingunn Lovísa Ragnarsdóttir. Elsku maðurinn minn, pabbi, tengdapabbi og afi okkar, ÓSKAR BJÖRGVINSSON ljósmyndari, Vestmannaeyjum, lést þriðjudaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 16. nóvember kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð hjá MND-félag- inu á Íslandi. Steina Friðsteinsdóttir, Þráinn, Kristín, Arnar, Anna Sif, Snorri, Anna og sonardætur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GYLFI HALLVARÐSSON, Hamrabergi 34, Reykjavík, lést þriðjudaginn 12. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Alda Björg Bjarnadóttir, Linda Hrönn Gylfadóttir, Bjarni Þór Gylfason, Sonja Hafdís Poulsen, Hallvarður Hans Gylfason, Álfheiður Elín Bjarnadóttir, Magna Ósk Gylfadóttir, Þórður Helgi Þórðarson, Ægir Már Gylfason, Alda Hrönn Magnúsdóttir, Gylfi Þór Magnússon, Annarósa Ósk Magnúsdóttir. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA LÁRUSDÓTTIR, Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík, lést að morgni þriðjudagsins 12. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnheiður Kristín Karlsdóttir, Örn Árnason, Svala Karlsdóttir, Guðrún Hafdís Karlsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Faðir minn, tengdafaðir og afi, KÁRI S. JOHANSEN fyrrverandi deildarstjóri í KEA, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu- daginn 7. nóvember. Útför hans verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Gunnar Kárason, Svana Þorgeirsdóttir, Gréta Aðalsteinsdóttir, Kári Árnason Johansen, Herborg Árnadóttir Johansen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.