Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 52

Morgunblaðið - 14.11.2002, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5 og 7. Vit 460  SK RadíóX Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8, 9 og 10.10. Vit 461  Kvikmyndir.is Stundum er það sem að þú leitar að.. þar sem þú skildir það eftir. Clint Eastwood, Jeff Daniels og Anjelica Huston í mögnuðum spennutrylli sem skilur áhor- fandann eftir agndofa. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 471 Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429  MBL AUKASÝNINGkl. 9. Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs. E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P  Kvikmyndir.com  HK DV  SV Mbl  SK RadíóX 1/2 Kvikmyndir.is  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 10.15. Bi. 16. anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 14. Yfir 47.000 áhorfendur WITH ENGLISHSUBTITLESAT 5.45 Sýnd kl. 6. B.i. 12. Sýnd kl. 5.45 með enskum texta, 8 og 10.10. B.i. 12. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Mbl Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16. 8 Eddu verðlaun.  HJ Mbl 1/2 HK DV  SFS Kvikmyndir.is Clint Eastwood, Jeff Daniels og Anjelica Huston í mögnuðum spennutrylli sem skilur áhorfandann eftir agndo- fa. „EDDUSIGURVEGARI: HEIMILDARMYND ÁRSINS“ Sýnd kl. 6 og 8. ÞAÐ hlýtur vera helsta metn- aðarmál allra alvörurokksveita að ná að skapa sér sinn eigin stíl, sinn eigin hljóm sem sker sveitina frá öllum öðrum. En svo virðist sem það reynist erfiðara og erfiðara með hverju árinu sem líður, hverri sveitinni sem stígur fram á sjónarsviðið, að ná þessu göfuga marki. Blessunarlega hafa furðu margar íslenskar rokksveitir náð að tileinka sér sinn eigin stíl sem sker þær hverja frá annarri og oftast nær frá öllum öðrum líka. Ensími er ein þessara sveita. Hægt og örugglega hefur sveitin náð að þróa stíl sinn, sem með ófullkominni lýsingu grundvallast af þéttum rafgítar- vegg, lunknum rafhljómapælingum og sérstæðum rokksöng Hrafns. Hér áður fyrr, á öndverðum níunda áratugnum, hefðu einhverjir kosið að flokka tónlist sveitarinnar undir kuldarokk og svo sem ekkert að því að gera slíkt hið sama í dag enda er drunginn sem einkennir annars melódískt rokkið á stundum einkar hráslagalegur. Níundi áratugurinn á það reyndar til að koma nokkuð oft upp í hugann er hlustað er á sveitina því greinilegt er að áhrifa- valdar áttu sér stund og stað þá, og á þá bæði við eðalkuldarokksveitir á borð við Killing Joke og Þeysara, sem og tölvupopp í kuldalegri kant- inum, sveitir á borð við Depeche Mode, Human League, Ultravox og jafnvel Gary gamla Numan. En ekki má skilja það sem svo að hér sé á ferð hljómsveit gagntekin af einhverri fortíðarþrá því hér er ein- ungis um langsóttan keim frá um- ræddum sveitum að ræða, and- rúmsloft sem gæðir annars býsna framþróaðan rokkhljóminn sem Ensími hefur náð að skapa aukna dulúð og vikt. Strax við fyrstu hlustun liggur ljóst fyrir að þriðja plata Ensíma, sem ber nafn sveitarinnar, er henn- ar heillegasta til þessa og sú sann- færing verður einfaldlega traustari við ítrekaða hlustun. Hana skortir reyndar ámóta grípandi rokkslag- ara og „Atari“ og „Vínrauðvín“ en þar uppá móti koma miklu jafnari lagasmíðar og að ekkert lag á nýju plötunni getur talist vont – þótt vissulega séu þau misáhugaverð. Og vert er að geta þess að aldrei hefur sveitin hljómað eins vel á plötu en þetta ku í fyrsta sinn sem sveitarmenn sáu sjálfir um upp- tökustjórn og útsetningar. Platan rennur þannig einkar vel í gegn. Fer sterklega af stað með „Tito“, „Daols“ og nær hámarki með hinu frábæra „Brighter“, sem ég leyfi mér að fullyrða að sé mergjaðasta lag sveitarinnar frá upphafi, þar sem kafloðinn bassa- leikur nýjasta liðsmannsins Guðna Finnssonar gerir algjörlega gæfu- muninn og hífir lagið upp í snilld- ina. Dægurfluga grípandi og mel- ódísk en langlíf þó með allri sinni dýpt og dulúð. Og ekki spillir fyrir hugvitsamlega hannað myndbandið við lagið, sem tónar vel saman með smekklegu umslagi plötunnar. „Yog Hurts“ er einna líkast eldri lögum sveitarinnar með sínu dramatíska kraftrokksviðlagi, fínt lag sem ætti að geta notið sín vel í síbylju út- varpsstöðvanna. Þegar líða tekur á seinni hluta plötunnar fer tilþrif- unum því miður heldur fækkandi. Það er erfitt að henda reiður á því en útsetningin á „Revive“ virkar svolítið gærdagsleg og á það reynd- ar við fleiri lög þótt í minna mæli sé. Á köflum þykir mér hljómborðs- leikurinn keyra fullmikið fram úr hófi og vera heldur of mjúkur á kostnað gítarveggjarins þétta, eins og í lögunum „Sturmgrass“ og „Pattern Song“. En þótt laglínan minni á köflum óþægilega á „Ever- long“ The Foo Fighters í „Trak- dora“ þá er það lag eitt það magn- aðasta á plötunni, trommuleikur Jóns Arnar brýtur það vel upp fyrir viðlagið, sem ætti að geta hljómað vel þétt á tónleikum. „Tungen“ er lag sem líður hjá án eftirtektar þrátt fyrir margítrekaða hlustun og því er til happs að athyglin náist aftur áður en yfir lýkur í tveimur síðustu lögunum, „Barcode“ sem rokkar vel og „Mushgrave Story“ sem sker sig svolítið frá hinum lög- unum, er lágstemmdara og and- rúmsríkt, líkt og reyndar svo mörg önnur, en er alveg laust við rafgít- arvegginn, sem vikið hefur fyrir kassagítarnum. Í fyrsta sinn kýs sveitin að hafa textana á ensku og það sleppur al- veg fyrir horn, fellur ágætlega að tónlistinni, þótt maður sakni vissu- lega lunkinna orðaleikjanna sem farnir voru að einkenna textana á síðustu plötu. Ensími er hljómsveit sér á báti í íslenskri rokkflóru. Hún er þroskuð sveit sem er tamt að draga mann inn í ákveðið andrúm ólíkt öllu öðru – kalt en notalegt þó. Ensími er plata sem hljómar frábærlega, rennur vel og inniheldur að mestu vel samin og langlíf rokklög. Tónlist Hlýlegt kuldarokk Ensími Ensími Hitt Records Ensími, þriðja geislaplata rokk- hljómsveitarinnar Ensími sem skipuð er þeim Hrafni Thoroddsen söngvara, gít- arleikara og forritara, Franz Gunnarssyni gítarleikara, Jóni Erni Arnarssyni trommuleikara og Guðna Finnssyni bassaleikara. Útsetningar og upp- tökustjórn var í höndum hljómsveit- arinnar og fór fram í Stúdíó Ástarsorg. Skarphéðinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.