Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 1
Bush vill enn frekari stækk- un NATO GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti eindregnum stuðningi sínum við sögulega stækkun Atlantshafsbandalagsins (NATO) í gær en gert er ráð fyrir að sjö ríkjum verði boðin aðild að bandalaginu á leiðtogafundi þess sem hefst í Prag í Tékklandi í dag. Sagði Bush eftir komuna til Prag að hann væri jafnvel hlynntur enn frekari stækkun NATO. „Öll lýðræðisríki í Evrópu, sem hafa áhuga á aðild að NATO og eru reiðubúin til að leggja sitt af mörkum til verkefna þess, ættu að vera velkomin í bandalag okkar,“ sagði Bush í ræðu sinni en öruggt er talið að Búlgaríu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Slóvakíu, Slóveníu og Rúmeníu verði boðin aðild að NATO að þessu sinni. Leitar eftir stuðningi vegna Íraks Bush notaði tækifærið og fór fram á stuðning NATO-ríkjanna við stefnu Banda- ríkjastjórnar gagnvart Írak en sumar NATO-þjóðir, s.s. Frakkland og Þýskaland, hafa verið Bandaríkjunum tregar í taumi hvað það varðar. Þá réð hann Saddam Hussein, forseta Íraks, frá því að ljúga til um gereyðingarvopnaeign Íraka. Eru Bandaríkjamenn farnir að þreifa fyr- ir sér um stuðning um 50 ríkja um það hvað þau geti lagt af mörkum í hugsanlegum hernaðaraðgerðum gegn Írak, fari svo að stjórnvöld í Bagdad hlíti ekki skilmálum nýrrar ályktunar öryggisráðs SÞ þar sem þess er krafist að Írakar sanni að þeir búi ekki yfir neinum gereyðingarvopnum eða séu að reyna að eignast slík. Prag, Washington. AFP. Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti skömmu eftir komuna til Prag í gær. STOFNAÐ 1913 273. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 mbl.is Í leit að nýju hlutverki Róttækra breytinga vænst á leiðtogafundi NATO 32 Flækingar á faraldsfæti Yfir hundrað tegundir fugla hafa hrakist til landsins 20 Öðruvísi sálumessa Sálin og Sinfónían rugla saman reytum í Háskólabíói 58 HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra segir að íslenzk stjórn- völd hafi fengið staðfest að út- reikningar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins feli í sér að krafizt verði 27-földunar á fram- lagi Íslands í þróunarsjóði ESB vegna stækkunar þess. Það sam- svarar um 2,7 milljörðum króna. „Raunverulega er krafan um að við borgum svipað inn í sjóðina og ef við værum aðilar að Evrópusam- bandinu,“ segir Halldór. Í drögum að samningsumboði framkvæmdastjórnar ESB vegna fyrirhugaðra viðræðna við EFTA- ríkin er aukinheldur gert ráð fyrir að ESB krefjist frjálsra fjárfest- inga í sjávarútvegi á Íslandi og í Noregi. Sú krafa er sett fram á móti kröfu EFTA-ríkjanna um fulla fríverzlun með fisk til að bæta þeim upp missi tollfrelsis í nýjum aðildarríkjum ESB. „Við sömdum á sínum tíma í samningnum um EES um að fjár- festingar í sjávarútvegi væru und- anskildar og okkur finnst þær ekki koma málinu við í þessu sam- hengi,“ segir Halldór. Hann segir að hugsanlegt sé að gera breyting- ar varðandi fjárfestingar í sjávar- útvegi í tengslum við hugsanlega umsókn um aðild að ESB. „En ég tel að EES-samningurinn eigi að standa. Það kemur skýrt fram í honum hvernig þessum málum er háttað og ég sé enga ástæðu til að slaka til í því sambandi nema við fáum eitthvað í staðinn. Þegar við höfum beðið um ákveðin réttindi, er sagt að við verðum að gera okk- ur grein fyrir að við séum ekki að- ildarríki. Nú koma þeir og segja að við verðum að greiða inn í sameig- inlega sjóði eins og við séum aðild- arríki og fallast á algjört fjárfest- ingafrelsi eins og við séum aðilar, en á móti á ekkert að koma,“ segir ráðherra. Halldór er staddur á leiðtoga- fundi NATO í Prag og hyggst ræða málið við evrópska starfsbræður. Kröfurnar eins og Ísland væri í ESB Prag. Morgunblaðið. Halldór Ás- grímsson segir krafist 27-föld- unar á framlagi  Krafa gerð/20 SPÆNSKIR sjómenn vinna að hreinsun strand- lengjunnar nærri Arteixo í Galisíu-héraði á Spáni í gær. Sandurinn í fjörunni er mengaður af olíu sem hefur borist til lands úr gríska olíuskipinu Prestige undanfarna daga. Óttast er að olíulekinn valdi meiriháttar umhverfisslysi. / 18 Reuters Strandlengjan hreinsuð GUNNAR Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins, segir að tilraunir utan- ríkisþjónust- unnar til að koma sjón- armiðum Íslands á framfæri við aðildarríki ESB hafi borið nokkurn árangur. Aðild- arríkin hafi gert athugasemdir við upplegg framkvæmdastjórnarinnar á fundi í gær og umræðu um það í EFTA-hópi aðildarríkjanna hafi verið frestað fram í næstu viku. „Eftir því sem við komumst næst er alveg ljóst að þó að aðildarríkin séu sammála um að þau telji eðlilegt að það komi fjárframlög frá okkur og að þau fari vaxandi þá hefur ekki náðst samstaða um reikniaðferðir framkvæmdastjórnarinnar,“ segir Gunnar Snorri. Ekki sam- staða í ESB Gunnar Snorri Gunnarsson TVÖ HUNDRUÐ tuttugu og fimm metra há bygging úr stáli og gleri verður byggð andspæn- is þeim stað þar sem World Trade Center stóð áður, í stað byggingar sem eyðilagðist í kjölfar þess að tvíburaturnarnir hrundu til jarðar eftir árásirnar á Bandaríkin 11. september í fyrra. Um er að ræða fyrstu endurbygginguna sem ráðist verður í á World Trade Center-lóðinni. Byggingaráform þessi voru kynnt í New York í gær en turninn sem um ræðir verður 52 hæða hár. „Sú staðreynd að þessi bygging mun rísa hér, einmitt þar sem [World Trade Center] nr. 7 stóð áður, er til marks um að við látum hryðju- verkamenn ekki buga okkur,“ sagði Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, í gær. Taka á bygginguna í notkun árið 2005 en að henni standa verktakinn Larry Silverstein og arkitekt hennar er David Childs. Enn er ekki bú- ið að ákveða hvað skuli rísa á þeim stað, þar sem tvíburaturnarnir sjálfir stóðu, en Silverstein og Childs segja að hönnun þeirra á turninum nýja verði þar höfð til hliðsjónar. Endurreisnin hafin Reuters David Childs sýnir hönnun sína. New York. AP. BRETAR kaupa meira af fiski og fiskafurðum frá Íslandi en nokkurri annarri þjóð. Sem dæmi um það má nefna að hlut- deild Íslend- inga í fiski og frönskum í Bretlandi er jafnvel meiri en þeirra eigin. Á fyrstu sex mán- uðum þessa árs keyptu Bretar fisk og fiskaf- urðir af Íslend- ingum fyrir um 15 milljarða króna. Athygli- vert er að Ís- lendingar fá nær undantekningar- laust hærra meðalverð fyrir afurðir sínar en aðrar þjóðir. Minna af ferskum fiski héðan Þrátt fyrir að innflutningur Breta af ferskum fiski frá Íslandi hafi dreg- izt saman um 3.100 tonn á fyrri helmingi þessa árs, borga þeir engri annarri þjóð jafnmikið fyrir ísfiskinn og okkur. Af ferskum fiski keyptu Bretar mest frá Íslandi, mælt í verð- mætum, eða fyrir 3,1 milljarð króna. Magnið var nú 8.500 tonn. Næstir komu Færeyingar með 2,5 milljarða króna, en að baki þeim verðmætum stendur mun meira af fiski eða 12.600 tonn. Freðfiskur fyrir 28,5 milljarða Bretar borga einnig mest fyrir frystan fisk héðan, eða um 5,7 millj- arða króna, en Norðmenn koma rétt á eftir okkur með 5,5 milljarða. Þá keyptu Bretar freðfisk af Rússum fyrir 4,3 milljarða og af Dönum fyrir 3,2 milljarða Fáum mest allra fyrir fiskinn  Bretar/C12                     !" ! " #   !     "!"#"      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.