Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 4
FORELDRAR Hjálmars Björnsson- ar, 16 ára pilts sem fannst látinn við árbakka í Rotterdam í Hollandi í lok júní síðastliðins, sætta sig ekki við þá rannsókn sem fram hefur farið hjá hollenskum yfirvöldum. Vilja þau að íslensk stjórnvöld beiti þau hollensku frekari þrýstingi og hafa í því skyni ritað öllum alþingismönnum bréf og leitað eftir stuðningi þeirra. Áður hef- ur fjölskylda Hjálmars m.a. leitað til forsætisráðherra, utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra. Björn Hjálmarsson, faðir Hjálm- ars, segir í samtali við Morgunblaðið að fjölskyldan hafi uppi grunsemdir um að Hjálmari hafi verið ráðinn bani. Leggja þau ekki trúnað á þær skýringar sem hollenska lögreglan hefur gefið um að reiðhjólaslys hafi líklega átt sér stað. Í skýrslum lög- reglunnar sé jafnvel gefið óbeint í skyn að um sjálfsmorð hafi verið að ræða. Fjölskylda Hjálmars vill hins vegar að mál hans verði rannsakað sem sakamál þar sem áverkar á líki hans bendi til vofveiflegs atburðar. Hjálmar fór á reiðhjóli í skóla sinn í Rotterdam fimmtudaginn 27. júní en þegar hann kom ekki til baka á til- settum tíma var farið að grennslast eftir honum. Tveimur dögum síðar fannst hann látinn á árbakka í grennd við heimili sitt og skóla. Farsími Hjálmars fannst skammt frá en reið- hjólið í runna 60 metra frá árbakk- anum. Á því voru skemmdir en Björn telur að margháttaðir áverkar á höfði sonar síns útiloki reiðhjólaslys. Gagnrýna hollensku lögregluna Björn gagnrýnir viðbrögð og máls- meðferð hollensku lögreglunnar og segir að þar hafi átt sér stað fjölmörg mistök. Hann segist einnig draga í efa frásögn vina Hjálmars sem voru þeir síðustu sem sáu hann á lífi hinn 27. júní. Við nánari skoðun hafi fram- burður vinanna reynst rangur en lög- reglan ekki viljað leggja trúnað á það. Meðal annars hafi öryggismyndbönd hrakið framburð þeirra en lögreglan ekki aflað myndbandanna og þeim hafi svo verið eytt. Björn segir að vinirnir hafi í fyrstu neitað að hafa séð Hjálmar daginn sem hann hvarf en síðar ákveðið að „leysa frá skjóðunni“. Sögðu þeir Hjálmar hafa verið í miklu uppnámi, hafa neytt áfengis þennan dag eftir slæmt gengi í skólanum og verið í ást- arsorg. Björn segir að eftir samtöl við kennara í skólanum og fleiri hafi verið augljóst að þessi framburður átti ekki við nein rök að styðjast, Hjálmar hafi m.a. tekið tvö próf þennan dag og gengið mjög vel í þeim. Hann hafi heldur ekki verið í óreglu. Þá hafi ít- arleg rannsókn Gísla Pálssonar hjá embætti ríkislögreglustjóra, á SMS- skilaboðum í farsíma Hjálmars og fleiru hrakið framburð vinanna. Baráttuþrekið á þrotum Björn var nýbyrjaður í doktors- námi í barnalækningum, eftir sjö ára nám og störf í Hollandi er áfallið reið yfir í sumar. Hvarf hann frá því námi og fljótlega eftir lát Hjálmars fluttist fjölskyldan til Íslands. Björn starfar nú sem læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og býr þar ásamt eiginkonu sinni, Herdísi Har- aldsdóttur og tveimur sonum þeirra. „Við Herdís höfum í fimm mánuði verið að berjast í þessu máli og átt yndislega ættingja að sem hafa að- stoðað okkur. En við erum einfald- lega að gefast upp og búin að steypa okkur í stórkostlegar skuldir. Okkar baráttuþrek er á þrotum og nú, þegar hátíð ljóss og friðar er að bresta á, höfum við ekki enn fengið frið til að syrgja strákinn okkar,“ segir Björn. Leitað til þingmanna um stuðning við að lát íslensks pilts í Hollandi verði rannsakað betur Morgunblaðið/Jim Smart Björn Hjálmarsson og Herdís Haraldsdóttir hafa síðustu fimm mánuði bar- ist fyrir því að ítarlegri rannsókn fari fram á láti sonar þeirra. Grunar að syni sínum hafi ver- ið ráðinn bani en 6,3 milljarða verði innri leiðin fyrir valinu. Þingmennirnir benda á að innri leiðin sé ekki aðeins ódýrari heldur einnig fljótunnari og arðsamari, en arðsemi ytri leiðar er 10% og innri leiðar 14% samkvæmt arð- semismati. Í þessu sambandi nefnir Ólaf- ur að arðsemi Hvalfjarðar- ganga hafi verið 15 til 16% og tvöföldun Reykjanesbrautar kosti fjóra til fimm milljarða. Guðmundur segir að ekki sé viðunandi að haldið sé áfram að togast á um þessa framkvæmd og mikilvægt sé að hefja und- irbúningsvinnu þegar á næsta ári. Ólafur Örn segir að það verði að gæta hagsmuna ríkissjóðs og verja fjármunum með eins skynsamlegum hætti og kostur sé enda sé mikil þörf fyrir fé til margvíslegra þátta. „Þeir milljarðar sem geta sparast við það að fara innri leiðina geta komið í góðar þarfir en fyrir þá má meðal annars byggja mislæg gatnamót við Miklu- braut og Kringlumýrarbraut og önn- ur mislæg gatnamót að auki eða þrjú 90 rýma hjúkrunarheimili fyrir aldr- aða, svo dæmi séu tekin,“ segir Guð- mundur. Þingmennirnir segja að ytri leiðin sé ekki aðeins dýrari heldur geti hún   # & !         '(       TVEIR þingmenn Reykjavík- ur, Guðmundur Hallvarðsson, formaður samgöngunefndar, og Ólafur Örn Haraldsson, for- maður fjárlaganefndar, vilja knýja á um að teknar verði ákvarðanir varðandi Sunda- braut innan fárra mánaða og leggja áherslu á að svonefnd innri leið verði farin frekar en að reist verði hábrú á ytri leið, en með því megi spara að minnsta kosti þrjá milljarða króna. Sundabraut er vegtenging milli Vogahverfis og Gufuness og hefur nefnd á vegum Reykjavíkurborgar og Vegagerðar- innar verið með málið til skoðunar undanfarin ár. Um þjóðveg er að ræða og greiðist kostnaður af vegafé. Fimm valkostir hafa verið ræddir en þingmennirnir Guðmundur Hall- varðsson, Sjálfstæðisflokki, og Ólafur Örn Haraldsson, Framsóknarflokki, segja að af tveimur kostum, sem eink- um hafi verið til umræðu, þ.e. ytri leið og innri leið, leggi þeir áherslu á að innri leiðin verði farin. „Sem þing- menn Reykjavíkur viljum við láta til okkar taka í þessu máli og knýja á um að ákvarðanir verði teknar sem fyrst, innan mjög fárra mánaða,“ segir Ólaf- ur Örn og bætir við að ljúka megi framkvæmdum á næstu fjórum til fimm árum. Þeir segja mikilvægt að borg og ríki vinni að þessu máli í góðu sam- komulagi og leggja áherslu á að fram- kvæmdir trufli ekki íbúðabyggð í Vogahverfinu. Hönnun mannvirkj- anna verði líka með þeim hætti að umferð verði ekki beint upp Skeið- arvog. Tvenn mislæg gatnamót fyrir mismuninn Samkvæmt kostnaðaráætlun Línu- hönnunar frá nóvember 2000 kostar vegtengingin frá Sæbraut að Halls- vegi 9,1 milljarð miðað við ytri leiðina Tveir þingmenn Reykjavíkur vilja að ákvörðun verði tekin um Sundabraut sem fyrst Ólafur Örn Haraldsson og Guðmundur Hall- varðsson skoða kosti varðandi Sundabraut. Innri leiðin þremur milljörðum ódýrari Morgunblaðið/Jim Smart hindrað skipaferðir og slíti í sundur hafnarsvæðið í Sundahöfn. Með innri leiðinni komi mikil landfylling og þar fáist mjög verðmætt byggingaland, sem í raun greiði fyrir landfyllinguna. „Við viljum taka af skarið og knýja á um framkvæmdir þarna,“ segir Ólafur Örn og Guðmundur tekur í sama streng. „Það er líka mikilvægt að hafa í huga að ódýrari leiðin er ekki á kostnað öryggisins og það er ekki hægt að bíða lengur í ljósi sífellt vax- andi umferðarþunga Elliðaárbrekk- unnar,“ segir hann. FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálaráðherra hefur í nýlegu bréfi til aðstandenda Hjálmars heitins Björns- sonar heitið því að taka mál hans upp við hollenska dómsmálaráðherrann á fundi í London í næstu viku, hafi umbeðin svör ekki borist frá hollensku lögreglunni í þess- ari viku. Stefán Eiríksson, skrif- stofustjóri í dómsmálaráðu- neytinu, segir að eftir að hollenska lögreglan lauk rannsókn sinni í september sl. hafi embætti ríkislög- reglustjóra sent hollenskum yfirvöldum bréf. Þar var upplýsingum komið á fram- færi, sem safnað hafði verið hér á landi, óskað eftir að- gangi að gögnum málsins og boðin fram öll aðstoð ís- lenskra yfirvalda við rann- sóknina. Stefán segir að svar hafi ekki borist enn frá Hol- landi við þessu erindi. Verði það svar ekki komið í lok vikunnar muni dóms- málaráðherra taka mál Hjálmars upp við hollenska starfsbróður sinn í London. Málið hugs- anlega rætt á fundi ráðherra Kosningavefur á mbl.is SÉRSTAKUR kosningavefur hefur verið opnaður á mbl.is. Á vefnum er að finna allar fréttir sem tengjast væntanlegum alþingiskosningum og ýmsa tengla þeim tengda, hægt er að nálgast upplýsingar um nýja kjör- dæmaskipan og sjá hvað er fram- undan í kosningabaráttunni. Athugasemdum og ábendingum um vefinn má koma til skila á net- fangið kosning@mbl.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.