Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í DAG eru breskir og íslenskir ráð- herrar staddir í Prag á fundi Atl- antshafsbandalagsins (NATO) þar sem mikið af því starfi sem hófst á fundi utanríkisráðherra NATO í Reykjavík í maí mun væntanlega verða til lykta leitt. Varnarmálaráð- herra Bretlands, Geoff Hoon, hefur rætt um það hversu mikilvægan Bretar telja NATO-fundinn í Prag. Lesendur hafa ef til vil áhuga á að kynnast viðhorfum hans: „Síðan kalda stríðinu lauk hefur NATO breyst gífurlega í þeim til- gangi að takast á við nýjar kröfur í öryggismálum. Prag-fundurinn mun gegna lykilhlutverki í að þoka þróun bandalagsins enn fram á við. NATO hefur lengi staðið vörð um þau gildi sem Washington-sáttmál- inn um lýðræði kveður á um, ein- staklingsfrelsi, lög og reglu. Þegar þessum gildum stóð ógn af öfga- kenndri þjóðernishyggju og óstöð- ugleika á Balkanskaga var það NATO sem bjó yfir þeim pólitíska vilja og hernaðarmætti sem þurfti til að leysa deilur er upp komu í Bosn- íu, Kosovo og Makedóníu og leggja grunninn að framtíðarsátt. Breskir og íslenskir starfsmenn vinna enn saman að því að halda frið, lög og reglu á þessum svæðum. Hinir hræðilegu atburðir 11. sept- ember – og þeir sem síðan hafa orðið á Balí, í Rússlandi og víðar – sýna svo ekki verður um villst þær nýju ógnir sem stafa af hryðjuverkastarf- semi og geryeðingarvopnum. NATO þarf á að halda stjórnskipulagi sem hæfir þeim breyttu hættum og ógn- um er steðja að aðildarríkjum bandalagsins. Í Prag munu banda- lagsþjóðirnar lýsa stuðningi við nýtt stjórnskipulag sem að verður um- fangsminna, sveigjanlegra og nota- drýgra. Öllu skiptir, að samkomulag um hlutverk NATO og uppbyggingu styðjist við fyrirheit einstakra ríkja um að veita nýja möguleika og aukna samhæfingu innan bandalags- ins. Fyrirheit Íslendinga um að veita möguleika á loftflutningum er ein- mitt dæmi um það frumkvæði sem er bandalaginu svo mikilvægt. Hernaðarleg uppstokkun er ekki eina breytingin sem bíður NATO í Prag. Bandalagið mun bjóða umtals- verðum fjölda nýrra ríkja aðild. Þetta er söguleg stund. Ríki Austur- og Mið-Evrópu taka nú réttmæt sæti sín í Evrópu-Atlantshafs-sam- félaginu. Tengsl NATO við umheiminn eru einnig að breytast hratt. Hin nýju tengsl NATO og Rússlands eru til marks um stórt skref bandalagsins og Rússlands fram á við, og einnig í öryggismálum í Evrópu. Líf er að færast í samvinnu NATO og Rúss- lands fyrir tilstuðlan NATO-Rúss- landsráðsins sem stofnað var á Róm- arfundinum er fylgdi í kjölfar fundarins í Reykjavík í maí, og á þátt í að koma á grundvallarbreyt- ingu til hins betra í öryggismálum í Evrópu. Stofnendur NATO bjuggu yfir einstakri framtíðarsýn um það hvernig frjálsar þjóðir myndu vinna saman að frelsi og lýðræði. Þannig stórhugar er nú þörf til að gera NATO að miðstöð varnarmála okkar í upphafi nýrrar aldar. Takist það mun tryggt verða að NATO gegni lykilhlutverki við varnir og örygg- isgæslu við Atlantshafið fyrir kom- andi kynslóð.“ Virðingarfyllst, JOHN CULVER, sendiherra hennar hátignar, breska sendiráðinu, Reykjavík. NATO – miðstöð varnarmála Frá John Culver: NÝLEGA kom út bókin Sögur úr sveitinni eftir Önnu Þorsteinsdóttur frá Heydölum. Hefur bókin að geyma tíu sögur af dýrum sem höf- undur komst í kynni við og ellefta sagan greinir frá uppvaxtarárum Önnu á Óseyri í Stöðvarfirði, en þar fæddist hún árið 1915. Anna var prestsfrú í Eydölum, þar sem eig- inmaður hennar Kristinn Hóseas- son þjónaði í fjörutíu ár. Í tvo ára- tugi fékkst Anna við kennslu og bera sögur hennar vott um þjálfun og lifandi frásagnargáfu. Þau hjón eru nú búsett í Reykjavík og njóta elliáranna eftir farsæla starfsævi eystra. Eins og gildir um góðar bók- menntir getur fólk á öllum aldri not- ið frásagna í þessari bók. Sögurnar eru stuttar og hnitmiðaðar, ritaðar á tærri og góðri íslensku og hver um sig spennandi. Í lokafrásögninni, Jólin heima, er brugðið upp mynd- um frá æskuheimilinu á Óseyri og má þar lesa eftirfarandi um jólatré þeirrar tíðar: „Veglegasta jólatréð sem ég man eftir smíðaði Skúli bróðir minn úr gömlum rokk. Hann tengdi saman prikin úr rokknum, tók svo pílárana úr hjólinu og notaði þá sem greinar og tálgaði stall fyrir kertin. Síðan voru búnir til smá vendir úr eini og sortulyngi, þeir síðan vafðir fastir á tréð, þangað til það var sígrænt.“ Hverri sögu fylgir myndskreyting eftir Markús Þór Andrésson sem einnig hefur teiknað mynd á bók- arkápu. Sögur úr sveitinni er eigu- legt verk, kjörið nesti í aðdraganda jóla. Hafi höfundurinn heila þökk fyrir að sýna okkur inn í heim dýra og manna þar sem örlög tvinnast oft saman á ógleymanlegan hátt. HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON, fv. alþingismaður. Sögur úr sveitinni – skemmtileg bók Frá Hjörleifi Guttormssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.