Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LEIÐTOGAFUNDUR Atl-antshafsbandalagsins(NATO), sem hefst í Pragí Tékklandi í dag, átti vissulega að verða söguleg stund, með því að ákveðið yrði að bjóða sjö nýjum ríkjum aðild að bandalaginu. Nú stefnir hins vegar í að stækk- unin falli að sumu leyti í skuggann af ákvörðunum, sem ekki geta síður orðið sögulegar, um að gera grund- vallarbreytingar á herstjórnarkerfi og viðbúnaði bandalagsins. Þær breytingar miða að því að fá NATO nýjan tilgang í breyttum heimi og gera það í stakk búið til að fást við nýjar hættur, einkum og sér í lagi hryðjuverkaógnina. Leitin að nýju hlutverki er jafnframt nátengd spennunni í samskiptum Banda- ríkjamanna og bandamanna þeirra í Evrópu, sem mun vafalaust setja mark sitt á fundinn. Sjö nýjum ríkjum boðin aðild Öruggt þykir að leiðtogarnir ákveði að bjóða sjö ríkjum aðild að bandalaginu; Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Slóvakíu, Slóveníu, Rúm- eníu og Búlgaríu. Einhvern tímann hefði auðvitað þótt saga til næsta bæjar að bandalagið teygði sig þannig langt inn á fyrrum yfirráða- svæði Sovétríkjanna, tæki jafnvel inn ríki sem voru hluti af Sovétríkj- unum sjálfum. Fyrir fimm árum fór NATO var- lega í fyrsta áfanga austurstækkun- ar með því að hleypa Tékklandi, Ungverjalandi og Póllandi inn. Það var umdeild ákvörðun og í aðildar- ríkjunum urðu ýmsir til að spá því að austurstækkun yrði til þess að koma Rússum úr jafnvægi. Lengi vel lögðust Rússar t.d. mjög ein- dregið gegn NATO-aðild Eystra- saltsríkjanna. Hið nýja bandalag Rússlands og NATO, sem varð til eftir 11. september 2001 og sú til- finning á báða bóga að Rússland standi nú með Vesturveldunum í al- þjóðlegri baráttu gegn hryðjuverk- um, hefur gert að verkum að and- staða Rússa við austurstækkunina hefur nánast gufað upp. Hitt er svo annað mál að enn er óljóst hvernig bandalagið við Rússa þróast og hvaða áhrif þeir munu fá á ákvarð- anir NATO. Hugsanlegt er að línur skýrist eitthvað í þeim efnum á fundinum. Bandarískar þotur yfir Prag Gjarnan er rætt um austurstækk- un NATO og Evrópusambandsins sem lið í „endurreisn“ álfunnar eftir tvær heimsstyrjaldir, hugmynda- fræðilegan klofning kalda stríðsins og efnahagslegt feigðarflan komm- únismans í Austur-Evrópu. NATO hefur gert miklar kröfur til hinna væntanlegu aðildarríkja, t.d. um lýðræðislega stjórnarhætti, þ.á m. borgaralega stjórn á heraflanum, virðingu fyrir mannréttindum og síðast en ekki sízt að þau geti lagt sitt af mörkum til sameiginlegra varna bandalagsins. Herafli flestra ríkjanna hefur verið skorinn verulega niður en í staðinn reynt að bæta þjálfun þeirra manna, sem eftir eru. Skipta þarf út yfirmönnum að miklu leyti, m.a. vegna þess að þeir gömlu töluðu ekki ensku og gætu ekki tekið þátt í sameiginlegum aðgerðum NATO fyrir vikið. Tæknileg endurnýjun og nútímavæðing heraflans gengur hins vegar hægt. Það er lýsandi dæmi að Tékkland treystir sér ekki til að halda sjálft uppi eftirlitsflugi með herþotum yfir Prag meðan á leiðtogafundinum stendur. Tékk- neska þingið þurfti í skyndi að sam- þykkja lög, sem kveða á um að bandarískar orrustuþotur sjái um þetta eftirlit næstu daga. Þá hafa margir innan NATO- ríkjanna áhyggjur af því að ekki verði hægt að treysta sumum nýju aðildarríkjunum fyrir hernaðar- leyndarmálum, af því að innan leyniþjónusta þeirra starfi ennþá gamlir njósnarar, sem kunni að selja hverjum sem áhuga hefur að- gang að slíkum upplýsingum. Vandamálunum verður þó ýtt til hliðar í bili á fundinum í Prag og því fagnað, hvað Austur-Evrópuríkin eru þó komin langt í umbótum, að þau eigi kost á aðild að þessum eftir- sóttasta klúbbi í Evrópu. Svo tekur við u.þ.b. tveggja ára ferli við frá- gang aðildarsamninga, þar sem nýju ríkin munu þurfa að undir- gangast enn strangari kröfur. Velgengnin ávísun á tilgangsleysi Á tímum kalda stríðsins snerist allur viðbúnaður NATO um að verj- ast árás óvinarins í austri. Nú hefur hættunni á þeirri árás ekki aðeins verið útrýmt, heldur verður stór hluti landsvæðis óvinarins innan skamms hluti af NATO og það sem eftir varð af óvininum, þ.e. Rúss- land, er komið með hálfgerða auka- aðild að bandalaginu. Þetta er auð- vitað mikill sigur fyrir bandalagið, en í honum felst um leið sú þver- sögn, að velgengnin er á góðri leið með að svipta NATO tilgangi sín- um. Bandalagið er illa í stakk búið að fást við hinar nýju hættur, sem steðja að Vesturlöndum, t.a.m. hryðjuverk og útbreiðslu gereyð- ingarvopna. Viðbúnaðurinn miðast enn um of við hefðbundnar land- varnir og aukinheldur hafa flest Evrópuríkin mjög dregið úr fram- lagi sínu til varnarmála undanfarin ár og dregizt verulega aftur úr Bandaríkjunum á því sviði. En þótt getuna skorti vantar ekki viljann; þannig virkjaði NATO í fyrsta sinn 5. greinina í stofnsátt- mála sínum, sem kveður á um að árás á eitt aðildarríki sé árás á þau öll, eftir að hryðjuverkamenn réð- ust á Bandaríkin í fyrrahaust. Þá gerðist hins vegar það, sem margir hafa litið á sem niðurlægingu fyrir bandalagið, að Bandaríkin leituðu aldrei til NATO sem slíks um aðstoð í stríðinu í Afganistan, heldur til ein- stakra aðildarríkja. Tvennt hefur verið nefnt sem útskýring á því. Annars vegar að Bandaríkin hafi vonda reynslu af seinvirku ákvarð- anatökukerfi NATO í stríðunum á Balkanskaga og hafi ekki viljað „setja stríðið í nefnd“ eins og það hefur verið orðað. Hins vegar hafi Bandaríkjamenn ekki haft NATO sem slíkt hefði ge heyja stríð á fjarlægum víg – m.ö.o. að hin evrópsku a NATO, nema kannski B hefðu litlu að bæta við eig aðarmátt Bandaríkjanna. Drög að hraðliðin í Reykjavík Í ákafri leit NATO að breyttri heimsmynd hafa a förnu orðið til hugmyndi gjöra umbyltingu á her bandalagsins. Þar er efst á laga Donalds Rumsfeld, málaráðherra Bandaríkja að komið verði á fót rúmle manna hraðliði, sem geti fa á land sem er með afar stu irvara, til að fást til hryð menn eða útlagaríki. Þótt tillagan hafi ekki v uð opinberlega fyrr en í h lesa á milli línanna í lokayf Leitin að til Merki Atlantshafsbandalagsins komið fyrir í ráðstefnuhöllinni í breiðir úr sér í bakgrunni, en þar verður öryggisgæzla og eftirlit Búast má við róttækum breytingum hefst í Prag í dag. Ólafur Þ. Stephe ríkjum aðild falli í skuggann af ákaf Atlantshafsbandalagið ekki haldið mjög marg togafundi á borð við þ sem hefst í Prag í dag er aðeins sá sextándi í í 53 ára sögu bandalag Tíu fundir voru haldni an á kalda stríðinu stó fimm hafa verið haldn að því lauk. Leiðtogarnir eru ka saman til að taka miki ustu stefnumarkandi á anirnar í starfi bandal og segja má að hver le fundur hafi markað tím af einhverju tagi. Í ræðu sinni á þingm samkundu NATO í Ty síðustu viku sagði Rob lávarður, framkvæmda NATO, að á tímum ka Sextándi leið Snýst u arumbre SAGA VELFERÐARRÍKIS Steingrímur J. Sigfússon, for-maður Vinstri hreyfingarinnar– græns framboðs er ekki nógu vel að sér í pólitískri sögu á síðari helmingi 20. aldarinnar, ef marka má grein hans hér í blaðinu í gær, þar sem hann mótmælir þeim söguskoðunum, sem settar voru fram í forystugrein Morgunblaðsins sl. sunnudag. Þar var fjallað um fjóra grundvall- arþætti í uppbyggingu velferðarríkis á Íslandi: Í fyrsta lagi forystu Alþýðuflokks- ins um uppbyggingu almannatrygg- ingakerfisins, sem enginn getur dreg- ið í efa. Það er hins vegar heldur ekki hægt að mótmæla þeirri staðreynd að Ólafur Thors beindi Sjálfstæðis- flokknum til fylgis við þær hugmyndir og tryggði flokki sínum þar með þann einstaka sess í stjórnmálakerfi Norð- urlanda að verða stærsti stjórnmála- flokkur þjóðarinnar, sem spannar skoðanalitrófið frá hægri yfir á miðju. Þetta er meginástæðan fyrir því að Alþýðuflokkurinn náði aldrei sömu stöðu og jafnaðarmannaflokkar á öðr- um Norðurlöndum. Í öðru lagi var fjallað um þá grund- vallarákvörðun, sem tekin var á miðjum Viðreisnaráratugnum, að gera láglaunafólki kleift að eignast eigið húsnæði. Aðdragandinn að því voru hörð átök á milli þeirrar ríkis- stjórnar og verkalýðshreyfingar síð- ari hluta árs 1963, sem leidd voru til lykta í krafti þeirra tengsla, sem skap- azt höfðu á milli Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks á Nýsköpunarárun- um. Í kjölfar þeirra var júnísamkomu- lagið gert 1964 og samkomulagið um byggingu 1.250 íbúða fyrir láglauna- fólk í Breiðholti 1965. Verkalýðs- hreyfingin sem slík átti að sjálfsögðu mikinn þátt í fyrrnefndu samningun- um en Guðmundur J. Guðmundsson, þáverandi varaformaður Dagsbrúnar, í því síðara í forföllum Eðvarðs Sig- urðssonar. Enda sagði í forystugrein Morgunblaðsins sl. sunnudag: „Steingrímur J. Sigfússon er hand- hafi pólitískrar arfleifðar, þ.e. hinnar sósíalísku arfleifðar, sem hefur frá upphafi til þessa dags komið lítið við sögu í uppbyggingu velferðarkerfis- ins á Íslandi. Að svo miklu leyti, sem um það hefur verið að ræða, fyrst og fremst vegna áhrifa þessara þjóð- félagsafla innan verkalýðshreyfingar- innar.“ En það var Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins, sem tók þá lykilákvörðun, sem gerði sam- komulagið 1965 mögulegt. Á þessum árum varð bylting í fé- lagslegri þjónustu sveitarfélaga við íbúa sína. Hún hófst ekki á Norðfirði, þar sem alþýðubandalagsmenn fóru með meirihlutastjórn og Sósíalista- flokkurinn fyrir tíð Alþýðubandalags- ins, heldur í Reykjavík, þar sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins ríkti í borgarstjórn undir forystu Geirs Hallgrímssonar. Þessi bylting í fé- lagslegri þjónustu var mótuð af tveim- ur mönnum fyrst og fremst, sem voru mjög samstiga í þeim aðgerðum, þeim Geir Hallgrímssyni og Þóri Kr. Þórð- arsyni, sem þá átti sæti í borgarstjórn fyrir hönd sjálfstæðismanna. Steingrímur J. Sigfússon segir í grein sinni í Morgunblaðinu í gær að því er virðist til þess að afsanna þessa fullyrðingu: „Leiddi ekki Geir Hall- grímsson þá ríkisstjórn á árunum 1974–78, sem lenti í einhverjum harð- vítugustu deilum við verkalýðshreyf- ingu og stjórnarandstöðu, sem um getur í velferðar- og kjaramálum.“ Því verður varla trúað að formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs viti ekki hver var undirrótin að herferð verkalýðshreyfingarinnar á hendur þeirri ríkisstjórn veturinn 1978. Hana er að finna í samstarfi vinstriflokkanna í vinstristjórn Ólafs Jóhannessonar og lokum þess vorið 1974. Þá spörkuðu samstarfsflokkarn- ir Birni Jónssyni, sem þá var veikur á sjúkrahúsi úr ríkisstjórninni með þeim hætti að því var ekki gleymt. Það er söguleg staðreynd að þarna er að finna rætur herferðar verkalýðs- hreyfingarinnar gegn ríkisstjórninni veturinn og vorið 1978. Þar var um að ræða uppgjör á milli Björns Jónsson- ar og Ólafs Jóhannessonar. Af þessu er mikil saga og merkileg, sem ekki hefur verið sögð, nema að mjög tak- mörkuðu leyti. Í fjórða lagi var í fyrrnefndri for- ystugrein Morgunblaðsins fjallað um þau hugmyndafræðilegu átök, sem stóðu á milli Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks við upphaf tíunda áratug- arins. Það hafði frá því á fjórða ára- tugnum verið grundvallaratriði fyrir Alþýðuflokkinn að greiðslur úr al- mannatryggingakerfinu væru jafnar til allra og rökin fyrir því voru þau að ella mundu bótaþegar líta svo á að um ölmusu væri að ræða. Þegar hér var komið sögu átti þessi röksemd ekki lengur við og fáránlegt að halda niðri greiðslum til þeirra sem þurftu á þeim að halda vegna þess að greiðslur gengju til annarra sem þurftu ekki á þeim að halda. Alþýðuflokkurinn féllst að lokum á þetta sjónarmið Sjálfstæðisflokksins. Þótt vakin sé athygli á því að þessir tveir flokkar hafi fyrst og fremst kom- ið við sögu við mótun velferðarkerf- isins á Íslandi, þ.e. Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur, er engan veginn gert lítið úr hlut þeirra ágætu manna sem Steingrímur J. Sigfússon nefnir til sögunnar í grein sinni og komu úr röðum sósíalista í stjórnmálasögu 20. aldarinnar. Þeir áttu hins vegar lítinn sem eng- an þátt í að móta þær grundvallarhug- myndir velferðarkerfisins sem Morg- unblaðið fjallaði um sl. sunnudag. Áhugi þeirra flestra beindist fyrst og fremst að utanríkismálum og að draga úr stuðningi Íslands við vestrænar þjóðir í þeim hörðu átökum sem stóðu í kalda stríðinu og lyktaði með falli Berlínarmúrsins, falli Sovétríkjanna og falli kommúnismans sem var lífs- hugsjón þessara manna. Með þessum ábendingum er Morg- unblaðið ekki að gera tilraun til að ræna einu eða neinu af vinstrimönn- um. Rannsóknir sagnfræðinga á þess- um þáttum mundu og munu leiða í ljós að sú söguskýring sem Morgunblaðið hefur sett fram á við full rök að styðj- ast. Tilefni þessara umræðna voru áform Steingríms J. Sigfússonar um myndun svonefndrar velferðarstjórn- ar. Það getur varla skaðað þær hug- myndir þótt sögulegum staðreyndum um uppbyggingu velferðarríkis á Ís- landi sé haldið til haga!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.