Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 25
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 25 „ÉG ER óperusöngvari. Hvað dettur ykkur í hug þegar þið heyrið um óperu eða óp- erusöngvara?“ spurði Ólafur Kjartan Sigurðs- son baritónsöngvari í upphafi dagskrár sinnar og Tómasar Guðna Eggertssonar píanóleikara með yngri bekkjum Njarðvíkurskóla í gær- morgun. „Feitur karl“ var það fyrsta sem ein- um úr hópnum datt í hug en svörin sem komu í framhaldinu voru hin fjölbreytilegustu. Ólafur Kjartan og Tómas Guðni hafa að und- anförnu verið á ferð milli grunnskólanna á Suðurlandi, í Vestmanneyjum og á Suð- urnesjum með dagskrá sem heitir Íslending- urinn fljúgandi en hún er afrakstur samstarfs Íslensku óperunnar og Tónlistar fyrir alla. Í þessari viku hafa þeir félagar heimsótt skóla á Suðurnesjum og luku yfirferðinni í Njarðvík- urskóla þar sem nemendahópnum var skipt í tvennt, eftir aldri. Þeir náðu vel til barnanna strax í upphafi eins og sést á svörum þeirra við spurningunni sem sett var fram. „Syngja hátt“, „hræðilegur söngur“, „falskur“, „allar rúður brotnar“, „ösk- ur“, „leiðinlegt“, „O solo mio“, „góð rödd“ og „brotin glös“ var það sem börnunum datt helst í hug í sambandi við óperu og óperusöngvara. Líkast til hefðu svörin orðið nokkuð á aðra lund ef aftur hefði verið spurt í lok dagskrár, þegar Tómas og Ólafur voru búnir að veita börnunum innsýn í heim óperusöngvarans. Ólafur sagði þeim að óperusöngur snerist ekki aðeins um að fara í asnalega búninga og láta eins og fífl, þetta væri ákaflega skemmti- legt starf og gaman að syngja skemmtilegar óperur. Félagarnir kynntu óperusönginn með söng og leik, meðal annars heiti radda söngv- ara og spiluðu undir á ýmis hljóðfæri. „Það er einstaklega skemmtilegt að fá að gera þetta,“ sagði Ólafur Kjartan við blaða- mann að lokinni dagskrá. Hann sagði að það væru forréttindi að fá að miðla því til barnanna sem honum þætti skemmtilegast að gera. Hann sagði þó að dagskráin væri stíf. Þeir þyrftu að vakna eldsnemma á morgnana til að koma sér á staðina og geta byrjað að syngja klukkan átta, það væri ekki alltaf auðvelt. Íslendingurinn fljúgandi lýkur heimsóknum sínum í grunnskólana Feitur karl eða brotnar rúður Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ólafur Kjartan Sigurðsson söngvari hélt óskiptri athygli barnanna úr yngri bekkjum Njarðvíkurskóla og notaði til þess ýmis brögð af óperusviðinu. Njarðvík FJÖRSTÖÐIN, útvarpsstöð ung- linganna í félagsmiðstöðinni Fjör- heimum í Reykjanesbæ, hefur út- sendingar í dag. Unglingarnir senda út eigin þætti frá klukkan 16 til 22 alla virka daga fram á fimmtudag í næstu viku. Þetta er sjötta árið sem Fjörstöðin sendir út en tíðnin er 99,4. Ungling- arnir hafa farið á námskeið í þátta- gerð og eru með fjölbreytt útvarps- efni ef marka má heiti þáttanna. Sá fyrsti, sem hefst klukkan 16 í dag, heitir ÐÍ-ENDE og Hirta-funkt tek- ur við af honum. Af öðrum þáttum má nefna Svitaholuna og Sinneps- sósu. Fjörstöðin hefur út- sendingar Njarðvík OPIÐ hús verður í leikskólanum Tjarnarseli í Keflavík föstudaginn 22. október, frá klukkan 10.30 til 16, í tilefni þess að liðin eru 35 ár frá því bæjarfélagið hóf rekstur skólans. Við sama tækifæri mun leikskól- inn fagna útgáfu handbókar um vett- vangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans. Á árunum 1997 til 2000 vann skólinn það sem þróunarverk- efni og hefur verið unnið eftir þeirri stefnu síðan. Boðið verður upp á léttar veiting- ar í leikskólanum, sem er á Tjarn- argötu 19, frá klukkan 10.30 til 14.45 og eru velunnarar skólans hjartan- lega velkomnir. Opið hús í Tjarnarseli Keflavík BREYTINGAR á stjórnskipulagi Reykjanesbæjar voru samþykktar samhljóða á fundi bæjarstjórnar í fyrrakvöld. Fulltrúar Samfylkingar- innar lögðu áherslu á að nýjar stöður forstöðumanna yrðu auglýstar en fram kom hjá bæjarstjóra að ekki væri gert ráð fyrir því heldur gegndu núverandi stjórnendur áfram störf- um sínum og tækju við auknum verk- efnum vegna breytinganna. Breytingarnar sem samþykktar voru að lokinni síðari umræðu í bæj- arstjórn fela meðal annars í sér fækkun fastanefnda og sviða. Þannig verður Markaðs- og atvinnumála- skrifstofa (MOA) lögð niður og þegar hefur þremur starfsmönnum hennar verið sagt upp störfum. Þá verður markaðs- og atvinnumálanefnd, menningar- og safnaráð og fram- kvæmda- og tækniráð lögð niður og verkefnin falin öðrum nefndum bæj- arins. Jóhann Geirdal, oddviti Samfylk- ingarinnar, sagði að bæjarfulltrúar flokksins teldu margar breytinganna eðlilegar og nefndi sérstaklega breytingar á nefndaskipan. Hann og tveir aðrir viðstaddir fulltrúar Sam- fylkingarinnar töldu hins vegar nauðsynlegt að gera breytingar á stjórnun viðkomandi málaflokka hjá bæjarfélaginu. Í bókun sem þeir lögðu fram er þeirri skoðun lýst að núverandi forstöðumenn tómstunda- og íþróttasviðs væru ráðnir með til- liti til þess sviðs en ekki með tilliti til þess að undir þá heyri jafnframt menningar- og safnamál. Þá telja þeir að ef verkefni MOA verði flutt til hafnarinnar, án breytingar á stjórn- un hennar, megi búast við að at- vinnuþróun sitji á hakanum. Einnig kemur fram hjá þeim að skuldasöfn- un hafnarinnar ætti að kalla á breytta stjórnun en ekki aukið verk- svið núverandi stjórnenda. Í bókuninni leggja þeir áherslu á að stöður forstöðumanna menning- ar-, íþrótta- og tómstundasviðs og forstöðumanns atvinnu- og hafna- sviðs verði auglýstar og ráðið í stöð- urnar með tilliti til nýrra verkefna. Telja ummælin ósanngjörn Agnar Breiðfjörð Þorkelsson, varafulltrúi Samfylkingarinnar sem jafnframt á sæti í stjórn Hafnasam- lags Suðurnesja, skrifaði ekki undir þessa bókun og eftir nokkur skoð- anaskipti Jóhanns og fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins fann hann sig knúinn til að standa upp og lýsa yfir trausti á núverandi hafnarstjóra, sagðist telja að ekki yrði hægt að finna betri mann í þá stöðu. Árni Sigfússon bæjarstjóri taldi ummæli Jóhanns um stjórnendur þessara tveggja sviða bæjarins ósanngjörn. Hann sagði að fram- kvæmdastjórar sviða hjá Reykja- nesbæ væru mjög öflugir stjórnend- ur og þeir væru nú að fá aukin verkefni sem hann treysti þeim mjög vel fyrir. Sagðist bæjarstjóri ekki ætla að leggja til að þeim yrði sagt upp og stöðurnar auglýstar. Samfylkingin vill auglýsa stöður forstöðumanna Reykjanesbær ♦ ♦ ♦ Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík St ef an íu í 6. s æ ti ð Ég heiti því, að vinna á grundvelli einstaklingsfrelsis með almannahagsmuni að leiðarljósi.” Stefanía Óskarsdóttir “ www.stefania.is Skart og perlur Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 561 4500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.