Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 17
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 17 FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag- anna á Akranesi harmar þá ágalla sem urðu á utankjörfundaratkvæða- greiðslu í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi en áréttar að framkvæmd atkvæðagreiðslunnar hafi verið samkvæmt bestu vitund þeirra sem að henni stóðu en að ágall- ar hafi m.a. orðið vegna misskilnings milli framkvæmdaaðila og fram- kvæmdastjóra prófkjörsins. Fulltrúaráðið hefur jafnframt sent frá sér yfirlýsingu þar sem eindregn- um stuðningi er lýst við Guðjón Guð- mundsson alþingismann ásamt með vonum um að sjálfstæðisfólk í Norð- vesturkjördæmi sameinist um að tryggja honum kosningu í alþingis- kosningunum næsta vor. Harma ágalla á utan- kjörfundaatkvæðagreiðslu Ályktun fulltrúaráðsins fer hér á eftir í heild: „Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi harmar þá ágalla sem urðu á utankjörfundaratkvæða- greiðslu í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi. Fulltrúa- ráðið áréttar jafnframt að framkvæmd atkvæðagreiðslunnar var samkvæmt bestu vitund þeirra sem að henni stóðu, en ágallar urðu m.a. vegna misskilnings milli fram- kvæmdaaðila og framkvæmdastjóra prófkjörsins. Ýmislegt hefur komið fram sem styður grunsemdir um að fram- kvæmd prófkjörsins hafi verið ábóta- vant víða um kjördæmið. Nefna má: Komið hefur fram í fjölmiðlum að kosið hafi verið úti í bæ á Sauðár- króki, Grundarfirði, Skagaströnd, í Stykkishólmi og víðar án þess að ósk- að hafi verið eftir ógildingu þeirra at- kvæða með sama hætti og gert var á Akranesi. Við talningu atkvæða kom í ljós að á Vestfjörðum höfðu einstak- lingar, sem ekki fundust á kjörskrá, greitt atkvæði. Fleiri dæmi hafa verið nefnd sem ekki verða tíunduð hér. Það er með öllu óþolandi að Ak- urnesingar, sem einir hafa viðurkennt ágalla við utankjörfundaratkvæða- greiðsluna og leiðrétt þá, séu ákærðir og dæmdir á sama tíma og sambæri- legar aðferðir víðs vegar í kjördæm- inu eru látnar óátaldar. Í ljósi þess sem að framan greinir, svo og þeirrar staðreyndar að trúnaðarbrestur hef- ur orðið á milli sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu, leggur Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi til að framkvæmd prófkjörs Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi, sem fram fór þann 9. nóvember sl., verði vísað til umfjöllunar miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins.“ Fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna á Akranesi Framkvæmd próf- kjörs verði tekin fyrir í miðstjórn FUNDUR flokksráðs Vinstrihreyf ingarinnar – græns framboðs hvet- ur forystu flokksins, stjórn, þing- flokk og væntanlega frambjóðend- ur til einarðrar baráttu fyrir myndun velferðarstjórnar og ger- breyttri stefnu í umhverfismálum. Markmið Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sé gerbreytt stjórnarstefna og flokkurinn sé reiðubúinn til samstarfs við önnur stjórnmálaöfl til að knýja þær breytingar fram. Einnig sé brýnt að snúa vörn í sókn og hefja end- urreisnar- og umbótastarf í vel- ferðarmálum eftir langvarandi setu ríkisstjórna sem siglt hafa eftir leiðarljósum nýfrjálshyggj- unnar. Forðast ber tvöfalt kerfi í heilbrigðiskerfinu Í ályktuninni er einnig bent á að hverfa verði af braut einkavæð- ingar í almannaþjónustu og sí- felldra kostnaðarhækkana á al- menning með komugjöldum, háu lyfjaverði og sjúklingasköttum, skólagjöldum og öðru slíku. „Forð- ast ber að íslenska heilbrigðisþjón- ustan þróist í átt að tvöföldu kerfi með tilheyrandi mismunun og óheyrilegum kostnaði fyrir þjóð- arbúið í heild.“ Í menntamálum leggur flokks- ráðið áherslu á að hverfa þurfi frá braut skólagjalda en leggja þurfi höfuðáherslu á jafnan aðgang og jafnrétti til fjölbreytilegs náms. Einnig sé nauðsynlegt að bæta lífskjör þeirra í hópi aldraðra sem engar tekjur hafi aðrar en sam- félagslaun; þúsundir einstaklinga og fjölskyldna séu föst í fátækt- argildru sem aðallega orsakist af lágum dagvinnulaunum, veikleik- um og götum í velferðarkerfinu og ranglátri skattheimtu. Á fundinum var loks ítrekuð sú afstaða flokksins að gerð Kára- hnjúkavirkjunar sé óverjandi sakir óafturkræfra nátúruspjalla sem hún hefði í för með sér og eins beri að hverfa frá öllum áformum um orkumannvirki sem skerða myndu Þjórsárver meira en orðið er. Um atvinnumál er tekið fram að VG leggi áherslu á að stuðla að fjölbreytni í atvinnulífi, alþjóðleg- ar kannanir sýni að í smáum og meðalstórum fyrirtækjum sé að finna mikilvæga vaxtarsprota. Eins sé mikilvægt að öll nýsköpun í atvinnumálum taki mið af mark- miðum sjálfbærrar þróunar at- vinnulífsins og samfélagsins alls. Vinstri-grænir vilja gerbreytta stjórnarstefnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.