Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                  !           !  "!                 $  % &    '       ( ! %    !   $  ) *** VILJA 2,7 MILLJARÐA Útreikningar framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins gera ráð fyrir sem samsvarar 2,7 millj- arða króna framlagi af Íslands hálfu í þróunarsjóð vegna stækkunar ESB. Utanríkisráðherra segir þetta svipaða kröfu og væri Ísland aðild- arríki að ESB. Kanna stuðning gegn Írak Bandaríkjamenn þreifa nú fyrir sér um stuðning komi til hernaðar- aðgerða gegn Írökum. Sendiráðum þeirra í 50 ríkjum hefur verið gert að kanna hvers konar aðstoð rík- isstjórnir þeirra geti veitt. Hækka brunatryggingar Sjóvá-Almennar tryggingar og Tryggingamiðstöðin hyggjast hækka iðgjöld af brunatryggingum um áramót og VÍS íhugar hið sama. Ástæðurnar eru stórbrunar og versnandi endurtryggingarkjör. 8% í lestrarörðugleikum Ætla má að 8% manna á aldrinum 15 til 65 ára hér á landi eigi við lestr- arörðugleika að stríða eða um 15 þúsund manns. Berjast gegn olíubrákinni Mikill viðbúnaður er til að koma í veg fyrir að meiri olía úr olíuskipinu Prestige berist að Spánarströndum. 70 þúsund tonn af olíu eru um borð í skipinu, sem nú er sokkið, og er von- ast til að hún leki ekki út líka. Snjóbolti í Tallinn Íslenska karlalandsliðið í fótbolta beið lægri hlut í æfingarleik við Eista í Tallin í gær. Á meðan snjón- um kyngdi niður tókst Eistum tvisv- ar að lauma knettinum í netið. PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ C  K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0 G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir. Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á www.glitnir.is og fá›u a›sto› vi› a› velja flá fjármögnunarlei› sem hentar best. Stendur til a› fjölga atvinnutækjum? VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F ERFÐAFRÆÐI TRYGGINGAR INNKAUP Íslensk erfðagreining hefur rannsóknarsam- starf við Wyeth í lyfja- erfðafræði. Síðan lögboðnar bruna- tryggingar voru gefnar frjálsar hefur rekstur grein- arinnar gengið illa. Samþykkt hefur ver- ið ný innkaupa- stefna ríkisins sem á að spara mikið fé. ÍE HEFUR/4 BRENNANDI/6 STEFNT AÐ/5 MEÐ skipulagsbreytingum hjá Flugleið- um verða nokkrar breytingar í hópi stjórn- enda. Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, verður frá áramótum jafnframt forstjóri Icelandair. Einar Sigurðsson, sem verið hefur fram- kvæmdastjóri stefnumótunar- og stjórnun- arsviðs Flugleiða, tekur um áramót við nýju starfi framkvæmdastjóra hjá eignarhalds- félaginu Flugleiðum, meðal annars með ábyrgð á stefnumótun samstæðunnar. Icelandair verður skipt í fjögur svið. Ragnhildur Geirsdóttir kemur ný inn í hóp stjórnenda fyrirtækisins og verður fram- kvæmdastjóri á nýju sviði, Rekstrarstýr- ingarsviði Icelandair. Hún mun bera ábyrgð á gerð flugáætlana og framboðs- stýringu leiðakerfis millilandaflugs og starfsmannastjórnun Icelandair. Guðmundur Pálsson, sem nú er fram- kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs og tækni- þjónustu Flugleiða, verður framkvæmda- stjóri flugrekstrarsviðs Icelandair. Auk flugs fyrir leiðakerfi Icelandair þjónar flug- rekstrarsvið Flugleiðum Frakt og Flugleið- um Leiguflugi og flýgur sex flugvélum fyrir þessi fyrirtæki. Halldór Vilhjálmsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri fjármálasviðs Flugleiða, verður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Icelandair, sem meðal annars mun sinna rekstri innri banka, áhættustýringu, greiðslumiðlun og samskiptum við fjár- málastofnanir fyrir Flugleiðir. Steinn Logi Björnsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Flugleiða, verður framkvæmdastjóri mark- aðs- og sölusviðs Icelandair. Hjörtur Þorgilsson, upplýsingatækni- stjóri Flugleiða, verður eftir breytingarnar upplýsingatæknistjóri Icelandair. Guðjón Arngrímsson, sem hefur verið upplýsingafulltrúi Flugleiða, verður upp- lýsingafulltrúi Icelandair. Kristinn Halldórsson, sem verið hefur forstöðumaður flugflotamála á flugrekstr- arsviði, verður nýr tæknistjóri Icelandair. Magnús Kr. Ingason verður fram- kvæmdastjóri Fjárvakurs. Valdimar Sæmundsson verður fram- kvæmdastjóri Tækniþjónustunnar Kefla- víkurflugvelli. F Ó L K Breytt yfirstjórn Sigurður Helgason verður bæði forstjóri Flugleiða og Icelandair UM næstu áramót tekur gildi nýtt skipulag hjá Flugleiðum hf., sem þá verða eignarhaldsfélag 11 fyrirtækja í ferðaþjónustu og flugrekstri. Þrjú ný dótturfélög taka við rekstri tiltekinna þátta og þeirra stærst verður Icelanda- ir ehf., sem tekur við millilanda- flugi Flugleiða. Hin nýju félögin eru Tækni- þjónustan Keflavíkurflugvelli ehf. og Fjárvakur – fjármálaþjónusta ehf. Fyrrnefnda fyrirtækið mun hafa með höndum allt viðhald flugvéla Icelandair hér á landi en hið síðarnefnda mun sinna bók- haldsþjónustu og launabókhaldi fyrir fyrirtæki samstæðunnar. Nær allir starfsmenn Flugleiða munu flytjast til Icelandair og halda þar sömu kjörum og þeir hafa nú. Búist er við að ársvelta Icelandair verði um 23 milljarðar króna eða yfir helmingur af veltu samstæðunnar, sem var 38 millj- arðar króna í fyrra og hefur hækkað um 2,8% það sem af er ári. Af veltu Icelandair koma 75% af erlendum mörkuðum. Hörður Sigurgestsson, stjórn- arformaður Flugleiða, verður jafnframt stjórnarformaður Ice- landair. Aukin samkeppni Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, sagði á starfsmanna- fundi sem haldinn var í gær að mikilvægasta verkefni samstæð- unnar á næstu misserum væri að búa áætlunarflug undir nýja tíma og harðari alþjóðlega samkeppni. Í máli Steins Loga Björnssonar, framkvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs Flugleiða, á fundi með fjárfestum í gær kom fram að Flugleiðir gerðu í áætlunum sín- um ráð fyrir að lenda í aukinni samkeppni á næstu 3–36 mánuð- um og félagið byggi sig undir það. „Ef við búum okkur nógu vel und- ir það þá kannski verður það aldr- ei,“ bætti hann við. Sigurður sagði á sama fundi að Flugleiðir væru með lægsta ein- ingarkostnað evrópskra flug- félaga og félagið væri því vel búið undir aukna samkeppni og að keppinautar myndu helst vilja fara inn á þær leiðir sem skiluðu mestum hagnaði. Spurður að því hvaða leiðir gæfu best af sér nefndi Sigurður Kaupmannahöfn, Osló, London og Boston, en bætti því við að hann teldi ekki raun- hæft að gera ráð fyrir samkeppni til Bandaríkjanna. Hann nefndi sem dæmi að frá Noregi væri ekkert beint flug til Bandaríkj- anna og á fundinum kom einnig fram að fleiri sæti væru í boði frá Íslandi til Bandaríkjanna en frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi samanlagt. „Það er ekkert sjálf- gefið að það sé flogið frá Íslandi til Bandaríkjanna,“ sagði Sigurð- ur, en sagði skýringuna á að Flugleiðir gætu flogið til Banda- ríkjanna vera þá að félagið væri búið að byggja upp stórt leiða- kerfi. Hagræðing Afkoma Flugleiða hefur batnað mikið milli ára eins og fram hefur komið og hagnaður jókst úr tæp- um 400 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins í fyrra í rúm- ar 3.300 milljónir króna í ár. Í máli Sigurðar kom fram að helm- ingur batans væri vegna ytri að- stæðna, meðal annars vegna þess að evrópumyntir hefðu þróast í rétta átt gagnvart Bandaríkjadal og eldsneytisverð hefði farið lækkandi. Hinn helmingur batans væri vegna aðgerða fyrirtækisins sjálfs og nefndi hann sem dæmi að fyrirtækið væri nú aðeins með Boeing 757 flugvélar í rekstri og að betri nýting hefði náðst á starfsfólki. Sigurður sagði að þessar breytingar hefðu í för með sér að nú þyrfti 16% færri far- þega í hverju flugi til að það borg- aði sig. Flugleiðir hf. verða eignarhaldsfélag Miklar skipulagsbreytingar taka gildi hjá Flugleiðum um næstu áramót. Helmingur afkomubatans er vegna aðgerða fyrirtækisins, sem býr sig undir aukna samkeppni.                               !   "  #$    %    Miðopna: Brennandi hækkunarþörf 2002  FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÖFLUGIR VARAMENN HOLLENDINGA / B4 ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu stendur í stað á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í gær. Íslendingar eru í 56. sæti eins og fyrir mánuði og hafa fallið um fjögur sæti frá ára- mótum. Litlar breytingar eru á topptíulistanum. Brasilía er í efsta sæti og á eftir fylgja: Frakk- land, Spánn, Þýskaland, Argentína, England, Mexíkó, Tyrkland, Bandaríkin og Holland, sem er í 10. sæti. Af öðrum mótherjum Íslendinga í und- ankeppni EM eru Skotar í 57. sæti og falla um tvö sæti frá síðasta mánuði, Litháar eru í 99. sæti og hækka um eitt sæti og Færeyingar skipa 114. sæti listans en þeir falla um eitt sæti. Þá eru Eistlendingar, sem Íslendingar töpuðu fyrir í gær, í 62. sæti. Ísland stendur í stað hjá FIFA Félagslið þurfa að skila inn KSÍ-samningi í síðasta lagi 30 dögum eftir að leikmaður skrifar undir slík- an samning en í tilfelli Þórðar er ekki um að ræða neinn KSÍ-samning. Þórður sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að um handvömm væri að ræða að hálfu félagsins, hann hefði aldrei skrifað undir slíkan samning, aðeins gert samning við fé- lagið sjálft. „Ástæðan fyrir því að ég vil fara frá félaginu er fyrst og fremst sú að ég fékk ekki vinnu við hæfi á Akureyri, auk þess sem konan mín fékk ekki starf. Ég hef fengið góða vinnu í Reykjavík og er ekki tilbúinn að gefa hana upp á bátinn. Það er því ekkert annað fyrir mig að gera en að tilkynna félagaskipti úr KA. Ég hef ekki fundið mér félag til þess að leika með á næstu leiktíð,“ sagði Þórður. Stóðum við okkar hlut Vignir Þormóðsson formaður knattspyrnudeildar KA sagði að mat félagsins væri annað en Þórðar. „Við ætlum ekki að standa í vegi Þórðar, en teljum að hann eigi a.m.k eitt ár eftir af samningi þeim sem gerður var. Þau félög sem hafa áhuga á hon- um ræða þá við okkur um þessa hluti. Það mun ekki ganga upp að hafa leikmann sem vill ekki vera hjá okkur og því þarf að finna lausn. Það var staðið við alla þá hluti sem samið var um og Þórður á ekkert inni hjá okkur,“ sagði Vignir. Aðspurður sagði formaðurinn að vissa yfirsýn hefði skort hjá félaginu er KSÍ- samningur sem gerður var við Þórð hafi ekki verið sendur inn til KSÍ fyrr en frestur til þess var liðinn. „Ég vil ekki taka undir það að þetta hafi verið handvömm af okkar hálfu, við teljum okkur vera með samning við Þórð sem hann ætlar ekki að upp- fylla. Langi hann að fara þá verða liðin sem vilja hann að tala við okkur fyrst,“ sagði Vignir. Þórður vill rifta samningi við KA ÞÓRÐUR Þórðarson markvörður úrvalsdeildarliðs KA í knattspyrnu hefur farið fram á að fá að fara frá félaginu. Ætlar hann sér ekki að leika með liðinu á næstu leiktíð. Þórður samdi við KA til þriggja ára sl. vor þar sem m.a. var kveðið á um uppsagnarákvæði að hálfu beggja aðila eftir tvö ár. Ekki var gerður við hann svokallaður KSÍ- samningur og samkvæmt félagaskiptareglum KSÍ hefur KA þar með afsalað sér rétti sínum á leikmanninum. „ÞAÐ átti nú enginn að vita af þessu, en jú, það er rétt að ég ætla að taka þátt í úrtökumóti fyrir evr- ópsku mótaröð eldri kylfinga,“ sagði Björgvin Þorsteinsson, úr Golf- klúbbi Vestmannaeyja, í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann hefur leik á Penina golfvellinum í Portúgal í dag. Björgvin sagði að sér hefði dottið þetta í hug í haust og ákveðið að slá til. „Þetta er nú fyrst og fremst til gamans gert, mig langaði að kynnast þessu aðeins og þetta er eina leiðin til þess. Ég er með fínan kylfusvein sem er frændi minn, Björn Axelsson frá Akureyri, og við gerum okkur í rauninni ekki miklar vonir um skjót- an frama hérna,“ sagði Björgvin. Kappinn verður fimmtugur í apríl og hefur því aldur til að leika á móta- röð eldri kylfinga þó svo hann hafi tekið þátt í Landsmótinu hér heima lengst allra. „Þetta er í raun sams konar úrtökumót og íslensku strák- arnir hafa verið í undanfarin ár, nema hvað þetta eru auðvitað eldri og miklu virðulegri menn hér,“ sagði Björgvin léttur í anda. Spurður um hvað hann myndi gera ef hann kæmist alla leið sagði Björgvin: „Ég hef nú ekki hugsað þá hugsun til enda og í raun ekkert leitt hugann að því. Ég kom hingað fyrst og fremst til að kíkja aðeins á þetta.“ Mótið hefst í dag og á Björgvin teig klukkan 9.45 á Penina-vellinum og byrjar á tíunda teig. Keppt er á tveimur völlum, Penina og Palmeras Lagos, og eru um 60 keppendur á hvorum velli. „Ég held að það komist um 25 keppendur áfram af hvorum velli um sig og þeir leika síðan 72 holur á Pinta-vellinum og sú keppni stendur frá mánudegi fram á fimmtudag,“ sagði Björgvin. Björgvin á úrtökumót TRYGGVI Guðmundsson sagði að það hefði ekkert annað verið en víta- spyrna þegar hann var felldur inni í vítateig Eistlands á 43. mín. leiksins, en hollenski dómarinn Ben Haver- kort taldi að brotið hefði verið á Tryggva á vítateigslínu og hann fékk engan stuðning frá eistlenskum línu- verði, þannig að hann var í erfiðri að- stöðu. Það sást þó greinilega á fari í snjónum inni í vítateig að Tryggvi var felldur innan teigsins. „Ég skildi dómarann aðeins að hann hefði ekki dæmt vítaspyrnu. Það var mjög erf- itt að sjá línuna og góðir dómarar dæma ekki vítaspyrnu nema þeir séu hundrað prósent vissir um að þeir séu að gera rétt. Ég vissi sjálfur að þarna var um vítaspyrnu að ræða, sá það á farinu sem var eftir mig í snjónum – það var fyrir innan víta- teig,“ sagði Tryggvi, sem sagði að leikurinn hefði verið afar erfiður, ef leik mætti kalla. „Það má segja að leikurinn hafi verið barátta við erf- iðar aðstæður. Mér fannst við standa okkur vel. Ég sagði við þig fyrir leik- inn að ég myndi leggja mig allan fram og ég gerði það. Síðan fáum við á okkur tvö ódýr mörk sem ég sá ekki. Sanngjörn úrslit voru jafntefli í leik sem ekki var hægt að kalla knattspyrnuleik,“ sagði Tryggvi. Þetta var víti ■ Snjóbolti í Tallinn/B3 Ljósmynd/Arno Saar Eistland sigraði Ísland, 2:0, í vináttulandsleik í Tallinn í gær. Á myndinni er Sergei Hohlov-Simson, varnarmaður Eistlands, í þann veginn að fella Tryggva Guðmundsson, sem hafði leikið á hann. Um vítaspyrnu virtist að ræða en dæmd var aukaspyrna á vítateigs- línunni. Tryggvi tók spyrnuna sjálfur en knötturinn fór rétt framhjá stönginni. Helgi Sigurðsson fylgist grannt með gangi mála. Yf ir l i t Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið „Sjónvarps- dagskráin” frá Sonet ehf. Blaðinu verður dreift um allt land. Blaðinu í dag fylgir einnig Stúdentablaðið. Blaðinu er dreift um allt land. Í dag Sigmund 8 Menntun 36/37 Erlent 18/21 Umræðan 38/43 Höfuðborgin 22/23 Minningar 44/47 Akureyri 24 Kirkjustarf 48 Suðurnes 25 Bréf 52/53 Landið 26 Dagbók 54/55 Neytendur 27 Fólk 56/61 Listir 28/31 Bíó 58/61 Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62 Viðhorf 36 Veður 63 * * * MAÐUR sem framdi ítrekuð kyn- ferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum, m.a. hálfsystur sinni, var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Þar af voru 15 mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára. Manninum var ekki refsað fyrir brot gegn einni stúlk- unni þar sem brotin voru fyrnd. Maðurinn, sem er fæddur 1976, neitaði algjörlega sök en kvaðst ekki vita af hvaða hvötum stúlkurnar bæru þessar sakir á hann. Fjölskip- aður dómur taldi á hinn bóginn að framburður stúlknanna væri trú- verðugur og maðurinn hefði gerst sekur um alvarleg brot sem væru til þess fallin að valda fórnarlömbunum margvíslegum sálrænum erfiðleik- um. Á hinn bóginn yrði að lækka refsinguna með tilliti til þess að mað- urinn var 15–18 ára þegar brotin voru framin. Þá hefði hann ekki áður verið dæmdur fyrir refsiverða hátt- semi auk þess sem hann hefði verið í sambúð um nokkurt skeið og ætti ungt barn með sambýliskonu sinni. Þótti því dómnum rétt að skilorðs- binda refsinguna að stærstum hluta. Stúlkurnar voru 5–11 ára gamlar þegar brotin hófust. Ein þeirra er hálfsystir hans, annarrar gætti hann oft fyrir móður hennar og sú þriðja er systir vinar mannsins. Var hann dæmdur fyrir að hafa margoft á fjög- urra ára tímabili káfað á kynfærum hálfsystur sinnar og farið með fingur inn í þau. Hann var auk þess fundinn sekur um að hafa lagst ofan á stúlk- una sem hann gætti og viðhaft sam- farahreyfingar. Alvarlegustu brotin beindust gegn systur vinar hans meðan sá var að heiman. Þótti sannað að hann hefði í allnokkur skipti afklætt stúlkuna að neðan og káfað á kynfærum hennar og í fleiri en eitt skipti sett getnaðar- lim sinn í fæðingarveg hennar. Stúlkurnar kærðu allar manninn haustið 2001. Þá voru brotin gegn stúlkunni sem hann gætti fyrnd og var hann því ekki dæmdur til refs- ingar vegna brotanna gegn henni. Hann var engu að síður dæmdur til að greiða henni 200.000 í bætur, hálf- systur sinni 700.000 krónur og þeirri þriðju 500.000. Fram kemur í dómnum að hálf- systir mannsins hafi orðið fyrir al- varlegu sálrænu áfalli vegna atferlis hálfbróður síns. Fleiri atriði hefðu þó stuðlað að hlédrægni, lágu sjálfsmati og ákveðinni vanlíðan sem hún byggi enn við. Hinar stúlkurnar tvær hafi með sérfræðiaðstoð og góðum stuðn- ingi foreldra náð að vinna sig að verulegu leyti upp úr þeirri sálar- kreppu sem maðurinn hafi valdið þeim og þetta valdi þeim ekki lengur teljandi erfiðleikum í daglegu lífi. Sakarkostnaði í málinu var skipt þannig að maðurinn greiðir 1/3 en ríkissjóður 2/3. Héraðsdómararnir Jónas Jóhannsson, Ólöf Pétursdóttir og Þorgeir Ingi Njálsson kváðu upp dóminn. Dæmdur í 18 mánaða fangelsi en 15 mánuðir skilorðsbundnir Sekur um kyn- ferðisbrot gegn þremur stúlkum Morgunblaðið/Sverrir FÉLAGSMENN í Starfsmannafélagi Reykjavík- urborgar fá ekki launahækkun um næstu mánaða- mót eins og samið var um í kjarasamningi sem gerður var í upphafi árs 2000. Ástæðan er sú að vinnu við gerð starfsmatskerfis er ekki lokið. Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður starfsmannafélags- ins, segir ekki ljóst hvenær nýja launakerfið kemur til framkvæmda, en unnið sé í málinu í samvinnu við Reykjavíkurborg. Kjarasamningarnir sem gerðir voru í ársbyrjun 2000 voru gerðir til fimm ára. Ástæðan fyrir þess- um langa samningstíma var sú að gera átti tilraun með nýtt launakerfi, svokallað starfsmat og hæfn- islaun. Þetta nýja launakerfi átti að taka gildi 1. desem- ber 2002. Sjöfn segir að vinna við gerð þessa nýja kerfis hafi reynst tímafrekari en reiknað var með og sé ekki enn lokið. Hún segir ekki liggja fyrir hve- nær þessari vinnu ljúki. Þó muni þær launabreyt- ingar sem fylgja breyttu kerfi gilda frá 1. desember. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur legið fyrir í alllangan tíma að ekki yrði hægt að greiða eftir nýju starfsmatskerfi 1. desember. Sam- komulag hefur orðið milli starfsmannafélagsins og Reykjavíkurborgar að taka lengri tíma í að ljúka gerð nýs kerfis. Hins vegar hefur starfsmanna- félagið gert kröfu um að greidd yrðu svokölluð hæfnislaun núna um mánaðamótin. Þessar greiðslur áttu annars vegar að taka mið af símennt- un starfsmanna og hins vegar hæfnismati forstöðu- manna. Reykjavíkurborg taldi sér ekki fært að greiða þennan hluta um mánaðamótin vegna ónógs undirbúnings. Þessum greiðslum hefur því verið frestað líkt og greiðslum vegna starfsmatskerfisins. Sjöfn sagði aðspurð að báðir samningsaðilar hefðu talið að tvö ár væru nægilegur tími til að búa til nýtt starfsmatskerfi. Annað hefði komið í ljós. Hún sagðist á þessu stigi ekki vilja kenna neinum um. Verið væri að vinna í málinu þessa dagana. Sjöfn sagði að ekkert lægi fyrir um hve miklar launabreytingar ættu að verða 1. desember þar sem eftir væri að smíða starfsmatskerfið.Samkvæmt kjarasamningi starfsmannafélagsins hækkuðu laun félagsmanna um 3% 1. janúar 2001 og launin eiga að hækka um önnur 3% 1. janúar nk. Laun hækka ekki 1. desember Vinna við starfsmatskerfi hjá Reykjavíkurborg hefur dregist STARFSFÓLK Flugleiða lét sig ekki vanta á fund félagsins, þar sem kynntar voru viðamiklar breytingar á skipulagi þess. Á fundinum kom fram, að Flugleiðir hf. verða eignarhaldsfélag ellefu fyrirtækja í ferðaþjónustu og flugrekstri. Þrjú ný dótturfélög taka við rekstri tiltek- innar starfsemi. Þau verða Icelandair ehf., sem tekur við millilandaflugi Flugleiða, Tækniþjón- ustan Keflavíkurflugvelli ehf. og Fjárvakur – fjármálaþjónusta ehf. Tækniþjónustan mun sjá um allt viðhald flugvéla Icelandair hér á landi, en Fjárvakur mun sinna bókhaldsþjónustu og launabókhaldi fyrir fyrirtæki samstæðunnar. Nær allir starfsmenn Flugleiða munu flytjast til Icelandir og halda núverandi kjörum. Morgunblaðið/Kristinn Starfsmenn Flugleiða fjölmenntu  Flugleiðir/C1 FORELDRAR sem Morgunblaðið ræddi við eru óánægðir með 8% hækkun leikskólagjalda sem tekur gildi um næstu áramót. „Þetta er orðinn heilmikill peningur sem þarf að borga fyrir leikskóla. Við eigum þrjú börn en erum bara með eitt barn á leikskóla núna. Tvö börn voru samtímis á leikskóla og þá var gjaldið ekki jafnhátt. Ég þakka mínum sæla fyrir að vera bara með eitt barn núna. Maður þarf að vera ansi vel launaður til að borga fyrir tvö börn á leikskóla í dag,“ segir Þóra Helga Jónsdóttir, sem á barn á Drafnarborg. María Hjaltadóttir, sem er í stjórn foreldrafélagsins á Selja- borg, segist vita að fjármunir séu naumt skammtaðir til leikskólanna og að ótrúlega lágri fjárhæð sé út- hlutað til matarinnkaupa fyrir hvert barn. „Þegar ég sá þetta sagði ég við starfsfólkið að ef hækkunin skilaði sér í framlagi til leikskólans myndi ég borga þetta með bros á vör.“ Sumum leik- skólum sé illa stjórnað og hún vilji ekki að hækkunin verði t.d. notuð til að borga upp óráðsíðu á öðrum skólum. Hún hafi þó ekki rætt þessa hækkun við aðra foreldra. Auknar tekjur um 90 milljónir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að hækkun leik- skólagjaldanna um áramótin gefi um 90 milljónir króna í auknar árs- tekjur fyrir Leikskóla Reykjavíkur. Ranghermt var í Morgunblaðinu í gær að upplýsingar um 50 milljóna króna tekjuaukningu hefðu komið frá borgarstjóra og er beðist vel- virðingar á þeim mistökum. Bitnar á barnmörg- um fjölskyldum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.