Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 64
Morgunblaðið/Jim Smart ÞAÐ var klappað, stappað, hrópað og blístrað í lok frumsýningar á loftfim- leikauppfærslu á ástarsögu allra tíma í Borgarleikhúsinu í gær og í lokin stóðu allir frumsýningargestir upp og klöppuðu leikurum, þýðendum, leik- stjórum og öðrum aðstandendum sýn- ingarinnar lof í lófa. Enda brostu leik- ararnir breitt baksviðs að lokinni sýningu og voru eflaust í sjöunda himni, einmitt þar sem hluti sýning- arinnar á sér stað. Í dómi Sveins Haraldssonar, gagn- rýnanda Morgunblaðsins, segir að hér sé á ferðinni fágætt tækifæri til að sjá frægustu ástarsögu allra tíma í lausu lofti. Lengst til hægri á mynd- inni má sjá hjónin Nínu Dögg Filipp- usdóttur og Gísla Örn Garðarsson, sem fara með hlutverk elskendanna. Við hlið þeirra eru m.a. Ólafur Egill Egilsson, Víkingur Kristjánsson, Árni Pétur Guðjónsson, Ingvar E. Sigurðs- son og Margrét Vilhjálmsdóttir. / 28 Ástfangin í sjöunda himni SJÓVÁ-Almennar og Tryggingamiðstöðin hafa ákveðið að hækka iðgjöld brunatrygginga veru- lega um næstu áramót auk þess sem VÍS hefur verið að skoða þau mál alvarlega. Ástæðan er af- leit afkoma þessarar greinar í starfsemi félag- anna sem skýrist bæði af auknum tjónum og versnandi kjörum sem félögin njóta hjá endur- tryggingarfélögum. Sjálf hafa endurtryggingar- félögin glímt við mikið tap fjármagnstekna og af- leiðingar atburðanna 11. september í fyrra sem var stærsta einstaka vátryggingatjón sögunnar. Sveinn Segatta hjá Sjóvá-Almennum segir að afkoma greinarinnar hjá félaginu hafi verið nei- kvæð frá árinu 1998 og í ár sé tjónshlutfallið kom- ið upp í 150% og versti mánuður ársins sé eftir. Hann segir að hækkunarþörf iðgjalda sé 30– 50% eftir tegund húsnæðis, en bendir á að ein- ungis sé verið að hækka hlut tryggingafélaganna, en um tveir þriðju hlutar heildargjaldsins renna til hins opinbera og þeir hækka ekki. Tjón vegna stórbruna á þriðja milljarð Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins nemur kostnaður tryggingafélaganna vegna stórbruna sl. tveggja ára á þriðja milljarð króna gróflega áætlað, en stærstur hluti þess kostnaðar lendir á endurtryggingarfélögum sem skýrir einnig hækkun iðgjalda fyrir íslensku félögin. Þau tjón sem verst hafa komið niður á félögun- um undanfarin tvö ár eru stórbrunar í Faxafeni og við Laugaveg á þessu ári og hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum árið 2000. Í Reykjavík hafa meiriháttar brunar verið meira en tvöfalt fleiri það sem af er þessu ári en allt árið í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Lög- reglunni í Reykjavík. Margir hafa því talað um að um faraldur sé að ræða. Hörður Jóhannesson yf- irlögregluþjónn vildi ekki taka svo djúpt í árinni. Hann sagði þó að brunatilfelli hefðu verið óvenju- mörg að undanförnu en flest þeirra minniháttar. Veruleg iðgjaldahækkun brunatrygginga um áramót  Brennandi/C6–7 Ásta S. Sigurbjörnsdóttir, Drífa K. Sigurð- ardóttir, Ásdís R. Þórðardóttir og Guð- finnur Sigurvinsson skanna inn próf. PRÓFASAFNI Háskóla Íslands verður komið fyrir undir vefkerfi HÍ og er áætlað að opna slóðina á mánudag. Búið er að skanna inn yfir 3.000 próf frá sl. tveimur árum. Um langt skeið hefur afriti prófverkefna við HÍ verið komið fyrir í prófasafni sem varðveitt er á Háskólabókasafni. Brynjólfur Stefánsson, formaður stúdentaráðs HÍ, segir að stúdentaráð hafi haft frumkvæði að því að prófin yrðu aðgengileg á Netinu og um 30 manns hafi í sjálfboðavinnu skannað inn próf sem Háskólinn hefur undir höndum frá síð- ustu tveimur árum, en starfsmenn kennslu- sviðs og kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands koma til með að sjá um viðhald safnsins. „Það hafa farið um 150 vinnustundir í þetta starf sem hefur einkum átt sér stað á kvöldin,“ segir Brynjólfur og bætir við að um 1.500 til 2.000 próf séu lögð fyrir í Háskól- anum árlega. Í prófasafninu eru einungis verkefni sem kennarar hafa heimilað að fari þangað, en Brynjólfur bendir á að próf séu opinber gögn og fólk eigi skýlausan rétt á að hafa aðgang að þeim. Brynjólfur segir að þótt prófunum hafi til þessa verið haldið til haga hafi nemendur þurft að ljósrita þau og jafnvel hafa mikið fyrir því að nálgast þau. Með því að hafa próf- in á Netinu verði þau öllum aðgengileg hve- nær sem er. „Það er okkar von að með þessu fyrirkomulagi komist gömul próf í gott og varanlegt geymsluform,“ segir hann og vísar til umfjöllunar í nýjasta Stúdentablaðinu. Yfir þrjú þús- und gömul próf á Netinu ♦ ♦ ♦ SALA á fíkniefnum meðal grunn- skólanemenda verður stöðugt ágengari og að baki þeirri sölu er þéttriðið net dreifingar- og sölu- aðila. Skólastjóri sem blaðið ræddi við segist merkja að sala á fíkniefn- um verði sífellt ágengari, ekki síst þegar framboð af efnum sé mikið. „Þeir sem eru byrjaðir að fikta fá þetta frá einhverjum félögum sín- um, til dæmis eldri félögum, sem hafa þá náð sambandi við einhvern sem er að selja fíkniefni. Þegar þeir eru farnir að neyta efnanna reglu- bundið eru þeir fljótlega orðnir milliliðir sjálfir, fyrst sendlar og svo sölumenn, enda stuttur vegur þarna á milli.“ Hann segir það áhyggjuefni að 2–3 nemendur í hverjum 10. bekk í Reykjavík hafi fiktað nokkrum sinnum með hass. Annar skólastjóri tekur undir að skipulegt markaðsstarf sé unnið í tengslum við sölu á fíkniefnum og að salan fari sjaldnast fram á skólalóð- inni. Hann undirstrikar að lang- flestir nemendur standi sig vel og séu lausir við þennan vágest, en að þeir sem misstígi sig, misstígi sig illa. „Ég heyri það útundan mér að krakkar eigi auðveldara með að út- vega sér hass en að fá einhvern til að kaupa fyrir sig bjór í Ríkinu og það gerist mikið í gegnum símann.“ Hann segir ómögulegt að geta sér til um umfang sölunnar, einkum með tilkomu farsíma og SMS-skilaboða. Þéttriðið dreifingar- og sölunet  Forvarnarstarf/10 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Lífi› er allt Líftrygging og sjúkdómatrygging Sími 588 1200 NÝSIR hf., ráðgjafar- og rekstr- arþjónusta, hefur komið inn í samning sem Björn Leifsson í World Class gerði við Reykjavík- urborg í vor um byggingu heilsu- miðstöðvar. Eftir breytinguna mun Nýsir eiga líkamsræktar- stöðina til hálfs á móti Birni. Hjörleifur Kvaran borgarlögmað- ur segir að breytingin hafi engan kostnaðarauka fyrir borgina eða töf á framkvæmdum í för með sér. Í borgarráði á þriðjudag var samþykkt breyting á umræddum samningi sem Reykjavíkurborg gerði við Laugar hf., sem Björn Leifsson á, í apríl síðastliðnum um að standa í sameiningu að byggingu heilsumiðstöðvar í Laugardal. Samþykkt var að breyta samningnum þannig að í stað Lauga kæmi inn félagið Laugahús, sem Björn á til hálfs á móti Nýsi. Borgin mun eftir sem áður standa straum af byggingu 50 metra innilaugar í heilsumið- stöðinni. Hjörleifur segir að ætlunin hafi verið að bjóða alla verksamninga út í sameiningu, þótt það hafi átt að gera aðskilda verksamninga fyrir hvorn aðila. Landsbankinn tryggi fjármögnun fyrir Lauga- hús, en það hafi verið skilyrði af hálfu bankans að Ístak byggði húsið fyrir fast verð. Því verði einungis hluti Reykjavíkurborgar í framkvæmdinni boðinn út. Mun hið nýja félag einnig hafa áhuga á að stækka húsið, en sú beiðni fari fyrir skipulags- og byggingar- nefnd. Hjörleifur segir að þessi breyt- ing hafi enga sjáanlega þýðingu fyrir Reykjavíkurborg. Nú sé bú- ið að renna styrkari stoðum undir framkvæmdina. „Þessi fjármögn- un er lendingin hjá [Birni] og okkur líst betur á hana núna, þegar inn í þetta eru komnir sterkir aðilar og stórt og mikið verktakafyrirtæki hefur tekið að sér að gera þetta. Allir endar eru samanhnýttir við bankann þannig að það er alveg klárt að þetta verður að veruleika,“ segir Hjör- leifur. Framkvæmd Laugahúss hljóði upp á 13–1400 milljónir króna. Nýsir inn í heilsumiðstöð ÍSLENSK orðabók undir ritstjórn Marðar Árnasonar var mest selda bókin á Íslandi dagana 1. til 18. nóvember, samkvæmt sam- antekt Félagsvísindastofnunar. Röddin, skáldsaga Arnaldar Indriðasonar, er í öðru sæti og ævisaga Jóns Sigurðssonar eftir Guðjón Friðriksson í því þriðja. Röddin er efst á lista yfir íslensk og þýdd skáldverk en Arnaldur Indriðason á fjórar af söluhæstu bókunum í þeim flokki; Mýrin er í þriðja sæti, Napóleonsskjölin í fjórða og Dauðarósir í tíunda sæti. Orðabókin söluhæst  Bóksala/30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.