Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 47
mundi atvik frá löngu liðnum árum,
stór og smá, döpur eða kátleg sem
hann setti fram í eftirminnilegum
búningi sögumannsins. Hann átti at-
hyglina og hljóðið í salnum á meðan
hann hafði orðið.
Gylfi kvæntist Öldu Bjarnadóttur
1967 og eiga þau fimm börn sem öll
hafa komist til manns.
Ég sakna hans Gylfa, en sárastur
er söknuður eiginkonu hans, barna
og barnabarna.
Elsku Bíbí, megi minningin um
elskulegan eiginmann, vin og góðan
dreng vera þér huggun í sorg þinni.
Agnar R. Hallvarðsson.
Kæri vinur og mágur.
Við andlátsfregn þína
allt stöðvast í tímans ranni.
Og sorgin mig grípur,
en segja ég vil með sanni,
að ósk mín um bata þinn
tjáð var í bænunum mínum,
en guð vildi fá þig
og hafa með englunum sínum.
Þó sorgin sé sár
og erfitt sé við hana að una,
við verðum að skilja
og alltaf við verðum að muna,
að guð, hann er góður
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért
og horfin burt þessum heimi.
Ég minningu þína
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína ég bið síðan
guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Jónsdóttir.)
Mega minningarnar um yndisleg-
an eiginmann, föður, tengdaföður og
afa verða ljós í lífi fjölskyldu þinnar
elsku Gylfi minn.
Hafdís.
12. nóvember sl. andaðist á Land-
spítalanum bróðir minn Gylfi Hall-
varðsson, en hann hafði átt við al-
varleg veikindi að stríða frá því í
desember á sl. ári. Við Gylfi vorum
yngstir sex bræðra og þótt fimm ára
aldursmunur væri okkar í milli voru
æskuárin náin og góð.
Heimili okkar var við Hrísateig.
Laugarneshverfið svo víðfeðmt þá,
nánast óbyggt inn að Kleppsholti,
og nóg við að vera. Fiskveiðar í fjör-
unni við Kirkjusand eða ferðalag á
auðninni miklu frá Hrísateigi og inn
að Vatnagörðum (Sundahöfn).
Faðir okkar var frá langtímum á
sjó og sjálfsagt oftar en ekki í nógu
að snúast hjá móður okkar með fjör-
uga og kröftuga syni, tólf ára ald-
ursbil var á milli þess yngsta og
elsta.
Viðgerðirnar á reiðhjólum, mót-
orhjólum og bílunum í bílskúrnum
heima mörkuðu þrep æskuáranna
og gerðu um leið þetta fágæta hús-
næði að tómstundaheimili bræðra
minna og strákanna sem bjuggu við
nærliggjandi götur. Gylfi var sér-
stakur áhugamaður um tæki, vélar
og bíla, sem þarna mótaðist, en
hann og Hilmar bróðir (látinn) náðu
einkar vel saman við þessa iðju. Þá
tók alvara lífsins við, til hafs var
haldið á ýmsum skipum innanlands
sem erlendis, í nám í vélvirkjun.
Tækjamaður hjá Vita- og hafnar-
málum og að síðustu í rúma tvo ára-
tugi á verkstæði Reykjavíkurhafn-
ar.
Gylfi hafði einstaka og létta lund,
sögustundirnar þegar við æsku-
félagarnir höfðum raðað okkur
kringum hann, hlustuðum og
gleyptum í okkur frásagnir hans eru
ógleymanlegar. Smásögur og ljóð
voru sett á blað og ljóst að þar var
margt bráðskemmtilegt efni sem
hann hélt fyrir sig. Gylfi var hvers
manns hugljúfi, vinsæll meðal sam-
starfsmanna og traustur félagi. Góð-
ur drengur er genginn sem ég á
margt að þakka fyrir, sérstaka sam-
fylgd.
Ég og fjölskylda mín sendum eig-
inkonu hans Öldu og fjölskyldu sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
Gylfa Hallvarðssonar.
Guðmundur Hallvarðsson.
Útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
BORGÞÓRS H. JÓNSSONAR,
Háteigsvegi 38,
fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn
22. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega
bent á Félag áhugafólks um Downs-heilkenni.
Reikn.: Sparisj. Hfj. 1101-05-418418.
Rannveig Árnadóttir,
Erna Borgþórsdóttir, Óskar Alvarsson,
Rannveig, Borgþór Alex,
Margrét Birta og Huginn þór.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR KRISTMUNDSDÓTTIR,
Þangbakka 10,
sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn
14. nóvember, verður jarðsungin frá Kópavogs-
kirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 15.00.
Hólmfríður Hermannsdóttir, Arnþór Árnason,
Kristinn Hermannsson, Inga Jóna Stefánsdóttir,
Valgerður Hermannsdóttir,
Ágústa G. Hermannsdóttir, Atli Ingi Ragnarsson,
Hulda Hermannsdóttir, Dean Thomas,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda umhyggju og vinarhug við útför
SÆMUNDAR E. ANDERSEN,
sem fór fram laugardaginn 16. nóvember í kyrrþey að ósk hins látna.
Þórdís Lillian Andersen
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
frú ÞÓRNÝ ÞURÍÐUR TÓMASDÓTTIR,
Ofanleiti 9,
Reykjavík,
verður jarðsett frá Háteigskirkju í dag, fimmtu-
daginn 21. nóvember, kl. 15.00.
Jónína Helga Jónsdóttir, Sigmundur Franz Kristjánsson,
Tómas Óli Jónsson, Matthildur Helgadóttir,
Kjartan Jónsson, Þórunn Elín Tómasdóttir,
Ólöf Guðrún Jónsdóttir, Sævar Sigurhansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur okkar og
bróðir,
ÞORGEIR GUÐJÓN JÓNSSON,
Gilsbakka 1,
Seyðisfirði,
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar þriðjudaginn
19. nóvember.
Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju mánu-
daginn 25. nóvember kl. 14.00.
Björg Valdórsdóttir,
Helga Þorgeirsdóttir, Jón Pálsson
og systkini hins látna.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir og afi,
JÓN ÆGIR JÓNSSON,
Reykjamel 1,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 22. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dís Níelsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HÁKON Í. JÓNSSON
málarameistari,
Hraunbæ 103,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 19. nóvember.
Ólafía Árnadóttir,
Bára Hákonardóttir,
Sjöfn Hákonardóttir, Jón Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
ARNGRÍMUR GUÐJÓNSSON,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju, Hafnar-
firði, föstudaginn 22. nóvember kl. 13.30.
Þórir Arngrímsson, Aldís Eðvaldsdóttir,
Ebba Freyja Arngrímsdóttir, Kristján Kristjánsson,
Arngrímur Arngrímsson, Turid Müller,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS JÓNASSONAR
forstjóra,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
áður Langagerði 9,
Reykjavík.
Jón Gunnarsson, Nína Soffía Hannesdóttir,
Guðleif Gunnarsdóttir, Jón Andrés Jónsson,
Anna Lilja Gunnarsdóttir, Þórhallur Dan Johansen,
Björn Gunnarsson, Dagmar Þóra Bergmann,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa,
sonar, bróður og mágs,
EINARS ÁSMUNDSSONAR,
Dynsölum 14,
Kópavogi.
Hjálmfríður Jóhannsdóttir,
Ásmundur Einarsson, Helga Berglind Guðmundsdóttir,
Kristín Helga Einarsdóttir, Sigurður Hrannar Hjaltason,
Rósa Björk Ásmundsdóttir,
Einar Ásmundsson,
Margrét Kjartansdóttir, Vigfús Sólberg Vigfússon,
Magnús Ásmundsson,
Viví Andersen,
Ólafur Ásmundsson, Salgerður Jónsdóttir,
Svavar Ásmundsson, Pálína Hinriksdóttir.
Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir og amma,
ANNA SIGURVEIG ÓLADÓTTIR,
Háaleitisbraut 18,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn
19. nóvember.
Sveinn B. Sigurgeirsson,
Óli A. Guðlaugsson, Sólveig Jónsdóttir,
Birgir Óli Sveinsson, Rósa Símonardóttir,
Gunnar Örn, Sveinn Óli, Hrannar Marel,
Birgir Snær, Óttar Sindri.