Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 4. Vit 460 Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 461  Kvikmyndir.is Stundum er það sem að þú leitar að.. þar sem þú skildir það eftir. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 471 Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs. Clint Eastwood, Jeff Daniels og Anjelica Huston í mögnuðum spennutrylli sem skilur áhorfandann eftir agndofa. Yfir 49.000 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 448 Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Ertu nógu sterk/sterkur? Myndin er byggð á sönnum atburðum. Kröftug þýsk og eftirminnileg spennumynd sem hefur fengið fjölda verðlauna og frábæra dóma. Með Moritz Bleibtreu úr ”Run Lola Run.” Sýnd kl. 6 og 8. TILRAUNIN Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Ísl. texti. B.i. 16. WITH ENGL ISH SUBT ITLES AT 5. 45 8 Eddu verðlaun Sýnd kl. 5.45 með enskum texta, 8 og 10.10. B.i. 12.HL. MBL  HK DV Sýnd kl. 6. B.i. 12. Öðruvísi grínmynd um drykkfellt og þunglynt íslenskt skrímsli sem hefur fengið nóg af mannfólkinu. í i í f llt l t í l t í li f f i f f l i . Sýnd kl. 10.15. B.i. 16. Sýnd kl. 8 og 10 — Munið forsöluna á Harry Potter og leyniklefann — Yfir 49.000 áhorfendur „ÞAÐ er oft stutt á milli popp- stjörnunnar og verkamannsins,“ segir Víðir Vernharðsson gítarleik- ari hljómsveitarinnar Daysleeper. Kannski er Víðir verkamaðurinn en „V“ eins og hann kallar sig á plöt- unni holdgervingur poppstjörn- unnar. Buster (Binni), Young (Ingó), Stefanovich (Stefán) og Bronze (Jónsi) spila allir með Daysleeper en meðlimir ganga allir nema einn undir gælunafni. Söngvarinn Sverrir Bergmann sker sig úr hópnum en nafn hans var orðið þekkt áður en hljómsveitin varð til. Sverrir og Víðir, já, látum Víði svara bæði fyrir poppstjörnuna og verkamanninn, verða fyrir svörum um nýja plötu hljómsveitarinnar, EveAlice. Þeir segja að það hafi tekið fé- lagana nokkurn tíma að sanna sig sem hljómsveit því í fyrstu hafi ver- ið litið á þá sem „Sverri Bergmann og Daysleeper“ en ekki eina heild. „Við fengum flugstart. Við byggðum á því sem Sverrir var bú- inn að gera. Það hefur líka kostað átök að komast útúr þeirri ímynd, sem einhvern veginn skapaðist í kringum það,“ segir Víðir. Víðir, Jónsi og Stefán vinna allir hjá sama fyrirtækinu við bú- slóðapökkun. „Svo á kvöldin er það áhugamálið, sem er númer eitt, tvö og þrjú, hljómsveitin,“ segir Víðir. Hljómsveitin er að mestu norð- lensk og á ættir að rekja til Sauð- árkróks og Siglufjarðar. Flestir hafa þeir þekkst í nokkur ár og kynntust Víðir, Sverrir, Jónsi og Binni á Króknum. Lágstemmt andrúmsloft Þrátt fyrir að hafa verið í ýmsum hljómsveitum saman var Daysleep- er í núverandi mynd fullstofnuð í október í fyrra. Hljómsveitin vakti athygli á Hlustendaverðlaunum FM 957 í febrúar á þessu ári, þar sem þeir fluttu lagið „Kumbh Mela“. Á tónleikum hefur verið tekið eftir því að Daysleeper sækist eftir rólegri stemmningu og sitja strák- arnir oft á stólum við spilamennsk- una. Þeir segjast hafa gaman af nánd við áhorfendur. „Þó svo það komi þyngri eða hressari lög inn á milli þá viljum við alltaf halda þessari lágstemmdu stemmningu,“ út- skýrir Víðir. Nokkurn tíma tók að fá á hreint að þeir væru að fara að taka upp plötu. „Skyndilega varð allt klárt og við fengum þarna 18 daga til að taka upp plötuna,“ útskýrir Víðir en upptökur fóru fram í byrjun september. Þeir eru stoltir af frumburðinum og ætla að standa og falla með EveAlice. „Við lögðum allt okkar í þessa blessuðu plötu,“ segir Sverrir og Víðir tekur undir það: „Það var ýmsu fórnað.“ Mikil spilamennska bíður félag- anna á næstunni en hingað til hafa þeir ekki viljað spila of oft. „Við er- um vanir að spila svona einu sinni eða tvisvar í mánuði,“ segir Sverr- ir, sem að undanförnu hefur tekið því rólega vegna hálskirtlaaðgerð- ar, sem hann fór í. „Við höfum ekki borið okkur eft- ir neinu spiliríi og frekar spilað þegar okkur langar til. Við erum að reyna að forðast að spila á hverjum einasta fimmtudegi allt árið. Við viljum halda ólíka tónleika í hvert sinn,“ útskýrir Víðir. Þeir segja að hljómsveit- armeðlimir komi úr ýmsum áttum hvað tónlistina varðar en sameinist um ákveðna áhrifavalda. „Ég held að það sé ekkert launungarmál að Jeff Buckley er í uppáhaldi hjá okk- ur,“ segir Sverrir. Lögin í tímaröð á plötunni Óvenjulegt er við plötuna að lagalistinn er byggður á tímaröð, fyrsta lagið er elst og svo endar platan á nýjasta laginu. „Síðustu lögin eru eftir okkur alla,“ segir Víðir. Fyrsta lagið á plötunni er fjög- urra ára gamalt. Víðir samdi lagið og segir það upprunalega samið sem þungarokkslag. „Hvort sem einhver trúir því eða ekki! Það hljómar mjög mjúkt þarna,“ segir hann. „Nú erum við búnir að koma þessum lögum frá okkur og getum hafist handa við eitthvað nýtt,“ seg- ir Sverrir. Þeir eru sammála um að síðustu lögin á plötunni séu þeirra bestu. Þau eru orðin heilsteyptari. „Allir tóku virkan þátt í þeim og kláruðu sinn part vel,“ segir Sverrir. Þeir viðurkenna að vera fremur alvarlegir ungir menn. „En við tök- um okkur alls ekkert of hátíðlega,“ bætir Sverrir við. „Við getum verið að gantast milli laga á tónleikum og hagað okkur eins og fífl á æfingum þótt við séum að spila háalvarlegt lag,“ segir Víðir. Daysleeper gefur út EveAlice Alvarlegir ungir menn Félagarnir í Daysleeper sögðu Ingu Rún Sigurð- ardóttur að þeir hefðu fengið flugstart í tónlist- inni en það hefði kostað átök að sanna sig. ingarun@mbl.is Platan EveAlice er komin út og Daysleeper heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói miðvikudaginn 4. desember. Meðlimir Daysleeper eru ánægðir með frumburðinn og ætla að standa og falla með honum. Félagarnir segjast hafa lagt allt sitt í þessa plötu, sem inniheldur bæði gömul og ný lög.  12 TÓNAR: 5ta herdeildin spil- ar kl. 21 og kynnir efni af nýjum disk.  ARI Í ÖGRI: Hljómsveitin Valíum, þeir Hjört- ur og Haraldur, leika og syngja föstudags- og laugardagskvöld.  ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Harm- onikkuball með Harmonikku- félagi Reykjavíkur á laugardags- kvöld.  BARINN, Sauðárkróki: Vítam- ín spila á laugardagskvöld.  BREIÐIN, Akranesi: Á móti sól með stanslaust stuð á laug- ardagskvöldið.  BROADWAY: Papar, Logar og Bjartmar Guð- laugs á Eyjakvöldi föstudags- kvöldið. Dansleikur á eftir. Með Pöpum koma fram Andrea Gylfa, Einar Ágúst og Bergsveinn Arilíusson. Viva latino-sýningin á laugardag- inn. Hljómsveitin Spútnik m/ Kristján Gísla í fararbroddi leik- ur fyrir dansi. Le’Sing á Litla sviðinu.  BÚÐARKLETTUR, Borgar- nesi: Árni Ísleifs og félagar með Vínartónlist á laugardagskvöldið.  CAFE 22: Rokksveitin Sein spilar í kvöld.  CAFÉ AMSTERDAM: Gos trylla lýðinn um helgina.  CAFE CATALINA: Sváfnir Sigurðarson trúbador leikur fimmtudag og laugardag.  CAFE RÓMANCE: Ray Ram- on og Mette Gudmundsen leika fyrir matargesti frá miðvikudegi til sunnudags  CAFÉ RÓM, Hveragerði: Bubbi og Hera á laugardags- kvöldið  CAFFÉ KÚLTURE: Helgina 21.–24. nóvember verður þakk- argjörðarhátíðinni fagnað.  CATALINA: Upplyfting skemmtir um helgina.  CELTIC CROSS: Blúsþrjót- arnir blúsa í kvöld. Spilafíklarnir leika á föstudags- og laugardags- kvöld.  DALABÚÐ, Búðardal: Hörður Torfa með tónleika laugardags- kvöld kl. 21.  DUGGAN, Þorlákshöfn: Bubbi og Hera spila á föstudagskvöldið.  EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Dansleikur að lokinni Sól- strandaveislu á laugardaginn. Sólstrandagengið spilar til 3. Sólstrandaveislan sýnd í 5. sinn laugardag og 6. sinn sunnudag.  GAUKUR Á STÖNG: Buff í kvöld. Á móti sól leikur föstu- dagskvöld. Buttercup spila á laugardags- kvöld.  GRAND ROKK: Rokk á Grand Rokk. Rúnni Júl fagnar nýrri plötu á föstudagskvöldið ásamt rokksveit sinni. Fjörið hefst kl. 23.59. Laugardagskvöldið fagna Íslenskar járnbrautir útgáfu tveggja platna með hljómsveit- unum Moonstyx og Ég. Einnig kl. 23.59. Sunnudagskvöldið. „Slowcore“. Hljómalind kynnir: Jessica Baliv, Rivulets, Drekka og Hudson Wayne. 700 kall inn. Kakó á könnunni. 21.  GULLÖLDIN: Sælusveitin leikur föstudags- og laugardags- kvöld.  GUNNUKAFFI, Hvamms- tanga: Hörður Torfa með tón- leika föstudagskvöld kl. 21.  HITT HÚSIÐ: Fimmtudagsfor- leikur. Heróglymur, BoB og Nat- ar.  HLÉGARÐUR, Mosfellssveit: Papar ásamt Karlakór Kjalnes- inga á laugardagskvöld.  HM KAFFI, Selfossi: Vítamín með orkuríkt stuð fimmtudags- og föstudagskvöld.  KAFFI AKUREYRI: Djúpu- laugarbandið Mát í kvöld og á morgun.  KAFFI REYKJAVÍK: Á fimmtudag verða útgáfutón- leikar vegna hljómdisksins Ástin og lífið sem gefinn er út til styrktar Sjálfsbjörgu. Fálkar frá Keflavík gera allt vitlaust. Sixties skemmta föstudags- og laugardagskvöld.  KAFFI STRÆTÓ: Föstudag leika Árni Ísleifs og Rúnar Georgs franska tónlist á milli kl. 13 og 15. Einar Jóns og Njalli í Holti leika svo föstudags- og laugardagskvöld.  KAFFILEIKHÚSIÐ: South River Band skemmtir. Textar á myndvarpa og fólk hvatt til að taka þátt í söngnum.  KANSLARINN, Hellu: Geir- mundur spilar á föstudagskvöld.  KÁNTRÝBÆR, Skagafirði: Hörður Torfa með tónleika fimmtudagskvöld kl. 21.  KRINGLUKRÁIN: Föstudag og laugardag leikur hljómsveitin Cadillac klassarokk.  ODD-VITINN, Akureyri: Hljómsveitin 66 leikur Credence Clearwater og aðra hressa rokk- tónlist föstudagskvöld. Einnig laugardagskvöld.  PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Stóri Björn leikur á laugardagskvöld- ið.  PLAYERS, Kópavogi: Sóldögg spilar á föstudagskvöld, Geir- mundur á laugardagskvöld.  RÁIN, Keflavík: Hafrót leikur um helgina.  SALKA, Húsavík: MÁT í góð- um gír á laugardagskvöldið.  SJALLINN, Akureyri: Sóldögg spilar á laugardagskvöld.  STAÐUR, Eyrarbakka: Bubbi og Hera sunnudagskvöld.  VIÐ POLLINN, Akureyri: Þotuliðið skemmtir föstudags- og laugardagskvöld  VITINN, Sandgerði: South River Band með skemmtun á föstudagskvöld. Textar á mynd- varpa og fólk hvatt til að taka þátt í söngnum.  VÍDALÍN: Spútnik halda uppi stuðinu á föstudagskvöldið. FráAtilÖ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.