Morgunblaðið - 21.11.2002, Qupperneq 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 19
TVEIR menn voru teknir af lífi
samkvæmt dauðadómum í
Bandaríkjunum í fyrrinótt og
gær. Í Missouri-ríki var Will-
iam R. Jones líflátinn með ban-
vænni sprautu fyrir morð er
hann framdi 1986. Mál Jones
vakti athygli í Evrópu er hann
kvæntist austurrískri konu sem
hann kynntist í gegnum Netið.
Jones var úrskurðaður látinn
skömmu eftir miðnætti í fyrri-
nótt og var sjötti dauðamaður-
inn sem líflátinn er í Missouri á
þessu ári. Kona hans, Gerti, var
viðstödd aftökuna.
Í Texas var Craig Ogan tek-
inn af lífi fyrir morð á lögreglu-
manni. Ogan bar því við að
hann hefði skotið manninn í
sjálfsvörn, en kviðdómur lagði
ekki trúnað á það. Oagan
kvaðst alla tíð saklaus, og rétt
áður en hann var líflátinn sagði
hann: „Með því að drepa mig
hafa þeir, sem bera ábyrgðina
flekkað hendur sínar, því að ég
er saklaus.“ Önnur aftaka átti
að fara fram í Texas í gær og í
dag er aftaka fyrirhuguð í
Georgíuríki.
Loftsteinar
fátíðir
LOFTSTEINAR sem eru nógu
stórir til að geta eytt borgum á
stærð við New York rekast
sjaldnar á jörðina en talið hefur
verið, eða að líkindum aðeins
um einu sinni á árþúsundi, sam-
kvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar. Hingað til hefur
verið álitið að búast mætti við
að slíkir steinar, eins og sá sem
olli gífurlegri eyðileggingu í
Síberíu 1908, rækjust á jörðina
á um það bil 200 ára fresti,
sagði Peter Brown, stjarneðlis-
fræðingur við Háskólann í
Vestur-Ontario í Kanada, en
niðurstöður hans birtast í tíma-
ritinu Nature í dag. Rannsókn-
in byggðist á upplýsingum sem
safnað hefur verið með gervi-
tunglum undanfarin átta ár.
Ræningja-
brúðurin
TVÍTUG írönsk kona hefur
verið ákærð fyrir mannrán eftir
að hún fjötraði mann, sem ekki
vildi kvænast henni, og lokaði
hann niðri í kjallara, að því er
blaðið Etemad greindi frá í
gær. Sagði blaðið að konan,
sem heitir Maral, hefði gripið
til þessara örþrifaráða, með að-
stoð móður sinnar og ömmu,
eftir að maður sem hún dáðist
að veitti því litla athygli er hún
gerði hosur sínar grænar fyrir
honum. Blaðið hafði eftir kon-
unni að móðir hennar hefði sagt
henni að það væri hefð fyrir því
í fjölskyldu þeirra að konur
bæðu sér manns og sýndu vald
sitt. Fágætt er í Íran að konur
biðji sér manns. Foreldrar
mannsins sem hún vildi eignast
neituðu að veita samþykki sitt
sökum ruddaskapar hennar og
þá greip hún til þess ráðs að
koma á hann böndum, setti
hann í skottið á bíl móður sinn-
ar og síðan ofan í kjallarann hjá
ömmu sinni í því augnamiði að
knýja foreldra hans til að af-
henda fæðingarvottorð hans,
en því þarf að framvísa við gift-
ingar. En lögreglunni tókst að
hafa uppi á ræningjabrúðinni
og frelsa brúðgumann óviljuga.
STUTT
Aftökur
í Banda-
ríkjunum
STJÓRNVÖLD í Indónesíu og upp-
reisnarmenn í Aceh-héraði hafa náð
samkomulagi um að binda enda á
átök, sem staðið hafa um áratuga-
skeið, og verður skrifað undir samn-
inga þess efnis í næsta mánuði. Frá
þessu var greint á þriðjudaginn.
„Það á enn eftir að leiða til lykta
nokkur mál en við gerum ráð fyrir að
skrifað verði undir friðarsamkomu-
lag 9. desember 2002,“ sagði í yfir-
lýsingu frá Henry Dunant-mannúð-
arstofnuninni svissnesku, en erind-
rekar hennar hafa gegnt hlutverki
sáttasemjara í þessari deilu undan-
farin tvö ár.
Aceh er hérað syðst á Súmötru,
sem er stærsta eyja Indónesíu.
Frelsissamtök Aceh (GAM) hafa síð-
an 1976 barist fyrir sjálfstæði hér-
aðsins og er talið að 10.000 manns
hafi fallið í átökum GAM og stjórn-
arhersins. Flestir hinna föllnu voru
óbreyttir borgarar.
Skv. friðarsamkomulaginu verður
komið á fót 150 manna samráðs-
nefnd sem fengi það verkefni að hafa
eftirlit með öryggi borgaranna,
rannsaka brot á skilmálum sam-
komulagsins og grípa til ráðstafana
ef spenna myndast á ný. Mestu máli
skiptir þó, ef marka má fréttasíðu
BBC, að uppreisnarmenn krefjast ei
lengur fulls sjálfstæðis, heldur munu
sætta sig við umtalsverð sjálfstjórn-
arréttindi.
Samið um frið í Aceh-
héraði í Indónesíu
Banda Aceh í Indónesíu. AFP.
alltaf á föstudögum
Klapparstíg 27, sími 552 2522
HOPPURÓLA
Kr. 5.500.
Bráðskemmtileg bók eftir
Guðrúnu Helgadóttur um
systkini á aldrinum 9–19 ára
og fjölskyldu þeirra.
Aðdáendur Guðrúnar verða
ekki fyrir vonbrigðum með
þessa óvenjulegu sögu því að
hér sýnir hún á sér allar sínar
bestu hliðar. Spennandi og
áleitin saga – spaugilegir
atburðir og eftirminnilegar
persónur.
Ný bók
eftir Guðrúnu Helgadóttur!
Góða skemmtun!
Guðrún Helgadóttir
Komin
í verslanir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
94
43
11
/2
00
2