Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 24
AKUREYRI
24 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Enskunám í Englandi
Virtur málaskóli á suðurströndinni
18 ára og eldri
2-10 vikna námskeið.
13-17 ára
2-4 vikna námskeið
50 ára og eldri
2 vikna námskeið
Skólinn sér fyrir fæði og húsnæði.
Uppl. eftir kl. 17.00 í síma 862 6825.
Akureyrarbær auglýsir:
Kjarnalundur - deiliskipulag
Framlengdur frestur
Hér með tilkynnist að áður auglýstur frestur til að gera athugasemdir við
tillögu að deiliskipulagi lóðar Náttúrulækningafélagsins við Kjarnaskóg, þar
sem byggingin Kjarnalundur stendur, hefur verið framlengdur.
Framlengdur frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl.
16.00 mánudaginn 2. desember 2002 og skal athugasemdum skilað til
Umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki
gerir athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni
samþykkur. Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi í
þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, til loka þessa
frests. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur.
Akureyri, 19. nóvember 2002
skipulags- og byggingarfulltrúi
FJÁRHAGSSTAÐA Hríseyjar-
hrepps var til umræðu á síðasta
fundi sveitarstjórnar. Kom þar fram
að staðan væri ekki góð en að nokkr-
ir þættir væru ekki nógu ljósir á
þessum tímapunkti. Verið er að
vinna við uppfærslu fjárhagsáætlun-
ar í samræmi við nýtt bókhaldskerfi
og munu línur verða skýrari þegar
því lýkur, eða um næstu mánaðamót.
Umræður urðu um framlag til At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar,
AFE og hvort það skilaði sér að ein-
hverju leyti til sveitarfélagsins. Kom
fram að þrátt fyrir erfiða stöðu í at-
vinnumálum Hríseyjarhrepps, hefði
Atvinnuþróunarfélagið ekki haft
neitt frumkvæði til úrbóta. Ákveðið
var á fundinum að athuga hvort
ástæða væri fyrir Hríseyjarhrepp að
vera aðili að félaginu.
Einnig var rætt um niðurgreiðslu
ferjugjalda en sveitarsjóður hefur
niðurgreitt ferjugjöld í Sævari um
25% á fjórum 30 miða afsláttarkort-
um á ári, til þeirra sem stunda at-
vinnu utan Hríseyjar. Fram kom á
fundi hreppsnefndr að ábendingar
og óskir hafi komið um að sveitar-
sjóður gerði betur. Sveitarstjórn
samþykkti samhljóða að auka þessar
niðurgreiðslur í 50% ótakmarkað
vegna starfa utan Hríseyjar.
Að sögn Harðar Snorrasonar
skipstjóra á Sævari fara 7-8 manns
daglega með ferjunni til fastalands-
ins og þar af er um helmingur skóla-
fólk. Á meðan frystihús Snæfells var
rekið í Hrísey var eitthvað um að
fólk kæmi daglega með ferjunni til
vinnu í eynni en því er ekki að heilsa
lengur.
Erfið fjárhagsstaða Hríseyjarhrepps rædd í sveitarstjórn
Aðild að AFE
verði endurskoðuð
HELDUR drungalegt er yfir
skammdeginu á Akureyri þessa
dagana, enda nánast allur snjór
horfinn í veðurblíðunni. Þá eru
frekar fáir bæjarbúar farnir að
setja upp jólaljós við heimili sín.
Það er þó farið að birta heldur yfir
garðinum þeirra Ragnars Sverr-
issonar formanns Kaupmanna-
félags Akureyrar í Áshlíðinni og
Guðnýjar Jónsdóttur konu hans,
enda hefur sonur þeirra Ragnar
Þór unnið hörðum höndum síðustu
daga við að setja upp jólaljós á
íbúðarhúsið og á grenitré í garð-
inum. Ragnar Þór sagðist skreyta
15-20 tré í garðinum fyrir jólin,
með á fjórða þúsund perum. Ragn-
ar Þór sagðist oft hafa verið fyrr á
ferðinni með ljósaljósin og að svo
væri reyndar með aðra bæjarbúa.
Undanfarin ár hefði stór hópur
fólks verið búinn að skreyta hjá sér
í kringum 20. nóvember. Ragnar
Þór sagði að þótt það tæki marga
daga að setja ljósin upp, væri ekki
lengi gert að taka þau niður. „Það
er samt alltaf jafn leiðinlegt að
þurfa að slökkva á þessum fallegu
ljósum aftur.“
Morgunblaðið/Kristján
Ragnar Þór Ragnarsson setur upp jólaljós í garðinum heima hjá foreldrum
sínum í Áshlíð 11 á Akureyri.
Jólaljósin sett upp
í Áshlíðinni
FIMMTÍU ár eru á morgun, föstu-
daginn 22. nóvember, liðin frá
stofnun Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri. Forgöngu um stofnun félags-
ins höfðu þeir Skapti Áskelsson,
Þorsteinn Þorsteinsson og Herluf
Ryel. Síðar bættust í hóp stofn-
enda Útgerðarfélag KEA, Gísli
Konráðsson og Arnljótur Bjarna-
son.
Hlutafé félagsins var í upphafi
ákveðið kr. 125.000. Fyrsta stjórn
Slippstöðvarinnar var skipuð þeim
Gísla Konráðssyni, Skapta Áskels-
syni, Arnljóti Bjarnasyni og Þor-
steini Þorsteinssyni, sem var vara-
maður. Prókúruumboð hafði Skapti
Áskelsson, sem síðan var um ára-
raðir framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins og í raun sá maður sem með
krafti sínum og áræði hafði forustu
um uppbyggingu stöðvarinnar,
segir í frétt frá fyrirtækinu vegna
afmælisins. Á undirbúningstíman-
um réðust þeir Anton Finnsson og
Árni Þorláksson til starfa hjá
Slippstöðinni hf. Báðir þessir menn
störfuðu eftir það hjá fyrirtækinu
það sem eftir lifði starfsævi þeirra.
Á þessum 50 árum hafa 67 skip
stór og smá verið smíðuð í Slipp-
stöðinni auk óteljandi viðhalds- og
endurnýjunarverkefna.
Frá fyrstu tíð hefur Slippstöðin
verið brautryðjandi á sviði skipa-
smíða og viðgerða og smíði vinnslu-
búnaðar fyrir fiskiskip og er í dag
stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í
landinu með rúmlega eitthundrað
starfsmenn.
Í tilefni dagsins verður efnt til
afmælishófs í matsal fyrirtækisins
milli kl. 15 og 17 á afmælisdaginn
og eru allir viðskiptavinir Slipp-
stöðvarinnar og velunnarar hennar
velkomnir.
Slippstöðin á Akureyri 50 ára
67 skip smíðuð
hjá stöðinni
Lesið verður upp úr nýútkomnum
bókum í Deiglunni, Kaupvangs-
stræti, í kvöld, fimmtudagskvöldið
21. nóvember og hefst dagskráin kl.
20.30.
Þeir sem lesa eru Þorvaldur Þor-
steinsson sem les úr Blíðfinni og
svörtu teningunum, Stefán Sig-
urkarlsson með sögu sína Handan
við regnbogann og Viðar Hreinsson
með ævisöguna um vesturfarann
Stephan G. Stephansson. Viðar mun
eftir hangikjötsveislu frá Norð-
lenska flytja fyrirlestur um þennan
skáldmælta bóndason úr Skagafirði,
sem varð þátttakandi í ævintýraleg-
ustu fólksflutningum síðari tíma.
Lesin verða ljóð eftir skáldið og kafl-
ar úr ævisögunni.
Í DAG
ÚTILÍFSSÝNINGIN Vetr-
arsport 2003 verður haldin í
Íþróttahöllinni á Akureyri um
helgina, dagana 23. og 24.
nóvember. Þetta er í sextánda
sinni sem sýningin er haldin á
Akureyri og hefur hún unnið
sér sess meðal vélsleða-
manna. Fyrirtæki á ýmsum
sviðum kynna þjónustu sína
og varning á sýningunni og þá
munu öll vélsleðaumboðin
sýna nýjustu árgerðirnar af
vélsleðum.
Markmiðið með sýningunni
er að auka áhuga fólks á úti-
vist að vetrarlagi og vekja at-
hygli á þeim fjölmörgu mögu-
leikum sem landið og hinn
íslenski vetur bjóða upp á.
Félag vélsleðamanna stend-
ur fyrir sýningunni. Fyrri
daginn verður hún opin frá kl.
10 til 18 og frá kl. 13 til 18
þann seinni.
Vetrar-
sport um
helgina
ÚRSLITAKEPPNI Söngkeppni
framhaldsskólanna vorið 2003 fer
fram í Íþróttahöllinni á Akureyri
29. mars, en þátttökurétt í keppn-
inni hafa sigurvegarar í undan-
keppni sem haldin er í framhalds-
skólum landsins fyrr á skólaárinu.
Úrslitin verða í beinni útsendingu í
sjónvarpinu.
Félag framhaldsskólanema
stendur fyrir keppninni. Sérstök
framkvæmdastjórn sér um keppn-
ina og er Örlygur Hnefill Örlygs-
son, nemi í Menntaskólanum á Ak-
ureyri, framkvæmda- og
kynningarstjóri.
Útbúið verður heilmikið svið í
Íþróttahöllinni af þessu tilefni og
hefur hópur nemenda úr Verk-
menntaskólanum á Akureyri tekið
að sér að hanna og smíða sviðs-
myndina í samvinnu við ljósa- og
tæknifólk keppninnar. Yfirumsjón
með smíði sviðsins hefur Svein-
björn Gunnlaugsson, nemi í VMA,
en hann tók einnig þátt í smíði
svipsmyndar fyrir síðustu keppni.
Gert er ráð fyrir að þátttakend-
ur í keppninni verði um eitt hundr-
að talsins og þátttökuskólarnir
hátt á þriðja tug. Þá er einnig gert
ráð fyrir að 30–40 manna lið tækni-
manna, hljóðfæraleikara og ann-
arra starfsmanna vinni að keppn-
inni.
Söngvakeppni framhaldsskólanna mikil að vöxtum
Úrslitalögin tekin nyrðra
VÍFILFELL hefur sett Jólabjór á
markað en þetta er tólfta árið sem
framleiddur er Víking Jólabjór.
Bruggun jólabjórsins er sérstök en
talsvert lengri tíma tekur að
brugga hann en hefðbundinn lag-
erbjór og er hann því aðeins fram-
leiddur í takmörkuðu magni.
Í jólabjórinn er notað svokallað
karamellumalt, sem gefur honum
dekkri lit og keim af brenndum
sykri, kaffi og karamellu, segir í
fréttatilkynningu frá Vífilfelli.
Þá er einnig afar sérstakt við
framleiðslu jólabjórsins að hann er
látinn eftirgerjast við lágt hitastig
þegar aðalgerjuninni er lokið.
Þessi vinnsluaðferð gefur jóla-
bjórnum þétt og mjúkt bragð,
mikla fyllingu og góða froðu og
hentar hann því vel með mat, skv.
því sem segir í áðurnefndri frétta-
tilkynningu.
Bruggmeistari jólabjórsins er
sem fyrr Baldur Kárason en hann
er margverðlaunaður bruggmeist-
ari, nú síðast af alþjóðasamtökum
Monde selection fyrir Víking gyllt-
an. Jólabjórinn var kynntur form-
lega í brugghúsi Vífilfells á Ak-
ureyri í gær fyrir fjölmiðlafólki og
ýmsum öðrum gestum en sala á
honum hefst í dag í vínbúðum
ÁTVR.
Jólabjór á markað
Morgunblaðið/Kristján
Einar S. Magnússon, markaðsstjóri Vífilfells, afhenti Kristjáni Þór Júl-
íussyni bæjarstjóra kassa af Jólabjór í brugghúsi Vífilfells á Akureyri,
„svona rétt til að lífga upp á fundi bæjarstjórnar“, eins og það var orðað.