Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 26
LANDIÐ
26 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TILRAUNIR með ræktun blóð-
bergs í sandakri hafa staðið yfir á
Sandi í Aðaldal undanfarin þrjú
ár og segir Sigfús Bjartmarsson
sem hefur unnið að þessum til-
raunum að hann hafi byrjað á
þessu vegna þess að sér hafi fund-
ist það eina leiðin til þess að auka
magn og hagkvæmni í rækt-
uninni.
„Það getur vaxið svipað magn
af blóðbergi í einum hektara og
hægt er að elta uppi í heilli sveit
og afköstin við klippinguna um
það bil fimmfaldast, en síðan er
auðvitað framtíðin að vélvæða
hana og til þess þarf að hanna
nýtt tæki,“ segir Sigfús og er
bjartsýnn á framhaldið.
Hjá honum eru nú um 2.300 fer-
metrar komnir í rækt og í nokk-
urs konar akurgerði. Hann hefur
hlaðið um það lága torfgarða til
að mynda skjól fyrir vindum
þannig að jarðvegurinn fjúki ekki
frá plöntunum, snjór setjist í
garðinn til að hlífa þeim við kali
og sjái þeim síðan fyrir vorraka. Í
haust sáði Sigfús í annan álíka
stóran garð og áætlar að bæta
öðru eins við á næsta ári.
Það tekur þrjú ár að koma akr-
inum í rækt því plantan er smá á
fyrsta ári og svo er fræið úr nátt-
úrunni misjafnlega vel þroskað og
því hætt við eyðum sem bæta þarf
úr árið eftir. Blóðbergið er fjöl-
ært og eftir að það myndar sam-
fellda breiðu má klippa á hverju
ári. Þetta er þurftalítil planta en
vex þó ekki endalaust á sama
staðnum án þess að bætt sé nær-
ingarefnum í jarðveginn.
Sigfús segir að áburðargjöf sé
vandasöm af ýmsum ástæðum. Of
mikið köfnunarefni drepur hrein-
lega blóðbergið og svo má ekki
bæta um of lífsskilyrði annarra
plantna ef ekki á að koma upp ill-
gresisvandamál. Hann segir það
tímafrekt að hreinsa mikið af
rusli og þess vegna vil hann ekki
nota lífrænan áburð úr grasbít-
um.
Sælkeramarkaður
kannaður
Sigfús segir að í ár hafi hann
leyft megninu af akrinum að gróa
saman í friði en ætlar að hefja
kryddframleiðslu á innanlands-
markað næsta sumar. Síðar er
ætlunin að flytja blóðbergið út en
til þess að eitthvert vit sé í því
þarf verulegt framleiðslumagn og
það verður tæplega nóg fyrr en
2005.
Blóðbergið er náskylt þremur
tegundum af timian sem eru
ræktaðar í Evrópu og hafa lengi
verið þar í hópi vinsælli kryddteg-
unda. Sigfús hefur aðeins kannað
sælkeramarkað í Evrópu og þar
er áhugi á að bjóða upp á heim-
skautatimian.
„Það kemur bara í ljós hvort
kaupendur verða sammála þeim
íslensku kokkum sem eru harðir á
því að blóðbergið okkar sé eð-
altimian og tilbúnir til að borga
það verð sem ég þarf að fá og
rætt hefur verið um. Ég er að
sjálfsögðu bjartsýnn á það. Ef það
gengur eftir lítur þessi búskapur
vel út fjárhagslega og síðan mjög
vel ef tekst að þróa hann vél-
tæknilega á svipað stig og annan
landbúnað.
Þá sé ég út af fyrir sig ekkert
því til fyrirstöðu að hægt verði að
bjóða þessa vöru á verði sem
gengur í stórmörkuðum Vest-
urlanda og við að tala um allstóra
grein í íslenskum landbúnaði og
líklega of ábatasama til að væla
út nokkra styrki.
Svo er einnig byrjað að rann-
saka blóðbergið héðan með það í
huga að nota það í vörur á heilsu-
markaðinn. Í því gætu leynst
miklir og spennandi möguleikar,“
segir Sigfús.
Hann segir að blóðbergsrækt
geti hentað vel með hefðbundnum
búskap þar sem uppskerutíminn
er á undan slætti. Vinnslan getur
síðan að miklu leyti farið fram í
hléum frá öðrum verkum haust og
vetur. Þetta hefur líka þann kost
að fjárfesting er lítil miðað við
hefðbundnar greinar og kostn-
aður lágt hlutfall af söluverð-
mæti. Nú þegar hafa nokkrir sýnt
áhuga á að fara út í þetta, m.a.
bændur í Suður-Þingeyjarsýslu,
en töluvert er eftir í þessu þróun-
arstarfi sem getur talist mjög at-
hyglisvert.
Sigfús hefur nýlega gert upp
gömul fjárhús á Sandi þar sem
hann hefur komið sér upp íbúð í
hlöðunni og þar er einnig mikið
pláss sem mun nýtast honum í
blóðbergsræktuninni þegar tímar
líða.
Blóðberg ræktað sem
krydd til útflutnings
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Sigfús Bjartmarsson við fjár-
húsin á Sandi, en hann var ný-
lega búinn að ganga frá akrinum
þegar fór að snjóa.
NEYTENDUR
FRAMFARAFÉLAG Fljótsdals-
héraðs hefur á undanförnum vikum
staðið fyrir raðgöngu með bökkum
Lagarfljóts. Hugmyndir eru uppi um
að búa til greiðfæran göngustíg á
þessari leið og notuðu menn tækifær-
ið til að kanna í þaula landslagið með
tilliti til staðsetningar slíks stígs.
Philip Vogler er formaður Fram-
farafélagsins. Í lok síðasta áfanga
Fljótsgöngunnar sagði hann tilgang-
inn að hvetja fólk til að kanna um-
hverfi Fljótsins og heimamenn til að
skilja að landslagið þar væri þess
virði að skoða það.
„Það var of mikið að ganga þetta á
einum degi, þar sem leiðin er um 90
km löng“ sagði Philip, „en við höfðum
heyrt um raðgöngur þar sem lengri
leiðir eru gengnar í mörgum áföng-
um og ákváðum að taka það til fyr-
irmyndar. Við skipulögðum ferðina
þannig að við enduðum hvern áfanga
hjá þjónustuaðila við Fljótið og feng-
um þar hressingu og fræðslu um
staðinn.“
Philip segir gönguna ekki hafa
verið erfiða. Mesta torleiðið hafi ver-
ið í síðasta áfanganum, þegar gengið
var frá Sólskógum á Völlum og út
með Fljótinu, að Gistihúsinu á Egils-
stöðum. „Annars erum við enn að
kanna landslagið og sjálfsagt væri
hægt að gera leiðirnar auðveldari
sums staðar með því að krækja að-
eins fyrir.“
Philip segir að hugmyndin um
uppbyggðan stíg í kringum Lagar-
fljót komist líklega til framkvæmda
einhvern tímann á öldinni. Það gæti
þó komið að því fyrr að búið yrði að
kortleggja stíg og merkja hann.
Langra væri þar til mjög greiðfær
stígur sem mætti einnig hjóla yrði til.
Milli tíu og tuttugu manns gengu í
hverjum áfanga, en þegar allt er talið
voru níutíu göngumenn þátttakend-
ur.
Vilja göngu-
stíg með bökk-
um Lagarfljóts
Egilsstaðir
Framfarafélagið með raðgöngu
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Pétur Elísson, Philip Vogler og Tryggvi Karlesson tóku þátt í öllum áföng-
um raðgöngu kringum Lagarfljót og voru bara ánægðir með sig í lok síð-
ustu göngunnar. Þá höfðu þeir lagt að baki ríflega 100 km leið.
BÆJARSTJÓRN Akraness samþykkti einróma
á dögunum tillögu þess efnis að fela nokkrum af
sviðstjórum bæjarfélagsins það verkefni að
koma með tillögur um framtíðarnotkun gömlu
slökkvistöðvar bæjarins sem stendur við Laug-
arbraut.
Ný slökkvistöð verður tekin í notkun á næsta
ári og var rætt um það í bæjarstjórninni að hús-
næði það sem hýsir slökkviliðið nú hentaði ágæt-
lega undir ýmiskonar starfssemi, s.s. leiklist,
tónlist og handverki.
Mörg félagasamtök, s.s. leikfélagið, hafa ekki
haft samastað í nokkur misseri og líta forkólfar
leikfélagsins slökkvistöðina hýru auga, auk þess
sem skortur er á æfingahúsnæði fyrir hljóm-
sveitir í bæjarfélaginu.
Húsnæði er rúmgott og í hjarta gamla mið-
bæjarins. Í ályktun bæjarstjórnarinnar segir að
þar geti þrifist fjölbreytt starfsemi, þar sem í
húsnæðinu sé nú þegar fullkomin aðstaða til
fundarhalda. Sviðstjórar tómstunda- og forvarn-
arsviðs, menningar- og fræðslusviðs og fjöl-
skyldusviðs munu á næstu vikum vinna að til-
lögum um framtíð slökkvistöðvarinnar. Þeim er
ætlað að skila hugmyndum sínum til bæjar-
stjórnar í lok ársins.
Menningarstarf
í gömlu
slökkvistöðina?
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Akranes
JARÐGULL ehf. hefur sett Fond
kjötsoð á markað fyrir almenning.
Fyrirtækið hefur um skeið framleitt
Fond kjötsoð fyrir veitingahús en
um er að ræða saltlausan eða lítið
saltaðan súpu- og sósugrunn án
aukaefna. Hin nýja vörulína sem nú
er kynnt fyrir almennan markað
samanstendur af rauðvínssoði, port-
vínssoði og villisveppasósu, og eru
vörurnar seldar í Nóatúni og
Heilsuhúsinu. Engin bragðaukandi
efni, svo sem MSG, eða hjálparefni
eru í Fond vörunum, að því er segir
í tilkynningu frá Jarðgulli. Nánari
upplýsingar um vöruna og mat-
reiðsluaðferðir er að finna á
www.fond.is.
NÝTT
Fond sósu-
og súpu-
grunnur
FRÓN hef-
ur hafið
sölu á nýrri
tegund af
jólasmá-
kökum í
pokum og
boxum. Í
pokunum
er um að
ræða þrjár
gerðir af piparkökum, myndakökur
sem hægt er að skreyta, dropakök-
ur og piparstafi sem krakkar hafa
gaman af, samkvæmt tilkynningu
frá Fróni. Í boxunum er að finna
vanilluhringi, loftkökur og hátíðar-
piparkökur og súkkulaðipiparkökur
og kókoskökur munu vera með
gómsætri súkkulaðihúð. Þá er hægt
að fá hálfmána, lakkrístoppa, app-
elsínukökur og heslihnetukökur.
Umræddar kökur fást í matvöru-
verslunum.
Jólasmá-
kökur Fróns
KÖKUBÆKLINGUR Nóa-Síríuss
er kominn út í ellefta sinn. Í bæk-
lingnum er að finna 20 uppskriftir að
smákökum,
smáréttum,
tertum og
ís, og er
hann fáan-
legur í
verslunum
gegn vægu
verði, að því
er fram kemur í tilkynningu frá fyr-
irtækinu. Ritstjóri í ár er Rut Helga-
dóttir.
Kökubæk-
lingur
Nóa-Síríuss
KARL K. Karlsson vekur
athygli á nýju kremi frá
Nivea Visage, Perfect
Contour, sem inniheldur
nýjan húðmýkjandi
vökva með bætiefna-
blöndu úr C-vítamíni,
glýsíni, sem fyrirfinnst í
húðinni sjálfri, og efninu
Proliftan. Er kreminu
ætlað að koma jafnvægi á
stuðningsprótín húðarinnar, eins og
segir í tilkynningu, og tryggja þann-
ig þéttleika hennar.
Húðmýkjandi
frá Nivea