Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VINIR Indlands halda sína árlegu
styrktartónleika í Salnum í kvöld kl.
20.
Vinir Indlands er félag sjálf-
boðaliða sem hefur það að markmiði
að styðja fátæk börn og munaðar-
laus í Suður-Indlandi til náms.
Kjartan Jónsson er einn af Vinum
Indlands. „Félagið er rúmlega
tveggja ára gamalt. Við vorum nokk-
ur á Indlandi, þar sem verið var að
stofna húmanistahreyfingu og koma
á sjálfboðaliðastarfi. Hugmynd okk-
ar var ekki að koma á beinu hjálp-
arstarfi, en við sáum strax að það er
hægt að gera mikið fyrir lítinn pen-
ing þar. Það er líka vandmeðfarið
hvernig peningar eru notaðir í starfi
af þessu tagi. Það er auðvelt að gera
fólk ófært um að sjá um sig. Við
ákváðum engu að síður að styrkja
sjálfboðaliða úr röðum heimamanna
í því að styðja börn til náms. Fyrir
hverja rúpíu sem þeir safna, leggjum
við fram aðra á móti, þannig að þetta
virkar hvetjandi á heimamenn. Engu
að síður eru þeir ábyrgir fyrir verk-
efninu og það á hvorki að standa né
falla með okkar stuðningi, en vera
fyrst og fremst hvetjandi fyrir þá.
Það er algengt að fólk á þessum slóð-
um hafi um tvö þúsund krónur í
mánaðartekjur. Skólaganga barns
getur kostað frá þúsund krónum og
upp í þrjú-fjögurþúsund á ári, - fer
hækkandi með aldri barnsins; - og þá
er þetta talsverður peningur.“
Kjartan segir að fyrsta veturinn
hafi um hundrað börnum verið hjálp-
að til náms með þessum hætti, en í
vor var fjöldinn orðinn fjórtán
hundruð börn. „Það hefur verið
mjög gaman að sjá hvernig stemmn-
ing hefur skapast á staðnum eftir að
þetta verkefni fór í gang, en við er-
um að vinna í úthverfi Madras. Starf
heimamanna hefur margfaldast og
það hefur verið gaman að sjá að
þetta skuli virka þannig.“
Þeir sem koma fram á tónleikum
Vina Indlands eru Sigrún Hjálmtýs-
dóttir (Diddú), sópransöngkona,
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanóleikari, Guðrún S. Birgisdóttir,
flautuleikari, Jónas Ingimundarson,
píanóleikari, Herdís Þorvaldsdóttir,
leikkona, Bubbi Morthens, söngvari,
Tríó Reykjavíkur: Guðný Guð-
mundsdóttir, fiðluleikari, Gunnar
Kvaran, sellóleikari og Peter Máté,
píanóleikari.
Ágóði tónleikanna rennur óskipt-
ur til verkefna á Indlandi. Þeim sem
vilja kynna sér starfsemi félagsins
nánar er bent á heimasíðu þess:
www.vinirindlands.is.
Styðja börn í Madras til náms
Morgunblaðið/Þorkell
Þau koma meðal annarra fram á styrktartónleikum í Salnum.
GYRÐIR Elíasson hefur á hartnær
tuttugu ára löngum ferli gefið út
ljóðabækur, smásagnasöfn og skáld-
sögur. Hann hefur vakið athygli og
hlotið verðlaun fyrir stílsnilli sína en
hann er umfram allt skáld ljóðrænnar
frásagnar þar sem andrúmsloftið sem
hann skapar er í fyrirrúmi.
Bjarni Jónsson réðst ekki á garð-
inn þar sem hann er lægstur þegar
hann tók sig til og snaraði æskuverki
Halldórs Laxness, Barni náttúrunn-
ar, í leikritsform, en það var frumflutt
21. apríl sl. Þar lét hann tvo sögu-
menn segja frá til að skapa drama-
tíska spennu, gefa aðalpersónunum
meiri vídd og færa verkið nær nú-
tímahlustendum.
Að færa skáldsöguna Svefnhjólið í
leikrænan búning er mun erfiðara
viðfangsefni. Skáldsagan var gefin út
haustið 1990 og vakti töluverða at-
hygli. Sagan hefur áður hrifið leikhús-
fólk; Þórarinn Eyfjörð notaði hana
ásamt fleiri sögum og ljóðum Gyrðis
sem efnivið í leiksýningu haustið
1997. Aðalpersónan líður gegnum ein-
hverskonar tilveru og ræður hvorki
hvar hún vaknar næst né veit við
hverju hún má búast. Aukapersón-
urnar eru margar og koma stutt við
sögu. Sagan er því í eðli sínu nær ger-
sneydd dramatík. Stærsti þröskuld-
urinn er samt hvernig á að skila and-
rúmslofti sögunnar til útvarpshlust-
enda svo vel sé, án þess að festast í
smáatriðum og missa at-
hygli þeirra.
Bjarni velur að ein-
beita sér að þeim þáttum
verksins sem Gyrði þyk-
ir takast best upp í.
Hann vinsar úr ljóðræn-
ustu kaflana, atriði þar
sem aðalpersónan, Dav-
íð, á samskipti við aðrar
persónur og þau sem eru
ómissandi fyrir fram-
vindu verksins. Með því
að skilja kjarnann frá
hisminu fær hann sterk-
ari heildarmynd á text-
ann – dulúðin í sögu
Gyrðis verður allt að því áþreifanleg.
Bjarni ákveður að stíga eitt skref
til viðbótar í vinnslu textans fyrir út-
varp og fær til samstarfs hljómsveit-
ina múm. Af listgreinum öllum er tón-
listin sú sem hentar miðlinum best og
því liggur beint við að skapa grund-
völl þar sem texti Gyrðis í leikgerð og
leikstjórn Bjarna blandast við nýstár-
lega tónlist hljómsveitarinnar. Þenn-
an blending tónlistar og leiklistar
kjósa aðstandendurnir að kalla hljóð-
verk.
Að sjálfsögðu er erfitt að gera ná-
kvæman greinarmun á hve miklu
hlutverki tónlist gegnir í leiklistar-
flutningi. Einstaka lög eru e.t.v. feng-
in að láni til að skreyta leiksýningar;
tónlist samin sérstaklega fyrir sýn-
inguna til áhrifsauka og uppbrots; eða
hér þar sem tónlistin er sögð jafn-
rétthá textanum. Hér eru engin skýr
mörk og í sjálfu sér enginn megin-
munur á hvernig tónlistin er notuð
hér og t.d. áhrifstónlistinni sem
hljómsveitin samdi fyrir leikritið Bláa
hnöttinn þó að hér sé hún töluvert
fyrirferðarmeiri.
Aðalatriðið er hve vel tekst til að
laga tónana að textanum og gera úr
hvorutveggja sannfærandi heild. Það
væri gaman að þróa hugmyndina
áfram í framtíðinni því útvarpið er
einmitt miðillinn þar sem auðveldast
er að gera tilraunir í þessa átt.
Leikararnir standa
sig allir með prýði und-
ir vandaðri leikstjórn
Bjarna. Hér er ekki á
ferðinni átakamikill
leikur heldur ber allt
að sama brunni, hér er
látleysið í heiðrum haft
og róleg hrynjandi tón-
listarinnar stjórnar
hægum hníganda
verksins allt til enda.
Ýmiskonar hljóð gegna
stóru hlutverki í verk-
inu og gefa vísbend-
ingu um það sem koma
skal í flutningi á leiklist
í útvarpi. Það er ekki úr vegi að skjóta
því að forráðamönnum leiklistardeild-
ar útvarpsins að gaman væri að heyra
verk sem væri samið frá grunni í sam-
vinnu tónskálda og leikskálda.
Mest ber að sjálfsögðu á sögu-
manni og aðalpersónunni sem Rúnar
Freyr Gíslason leikur. Hér sýnir
Rúnar Freyr á rólegu nótunum á sér
nýja hlið sem hann hefur ekki fengið
tækifæri til að sinna á sviðinu. Hann
kemur skemmtilega á óvart og bætir
enn einni fjöðrinni í hattinn. Þórunn
E. Clausen á auðvelt með að beita
rödd sinni þannig að hún hljómi trú-
verðug í hlutverkum barna og ung-
lingsstúlkna og skilar vel gáska og
áhyggjuleysi æskunnar en Hjalti
Rögnvaldsson og Guðrún Þ. Stephen-
sen fást hér við trega ellinnar og tekst
með örfáum tilsvörum að undirstrika
þann þátt í hugmyndaheimi verksins.
Sjómaður Theodórs Júlíussonar og
kona Arndísar Hrannar Egilsdóttur
voru skemmtilega dregnar smá-
myndir.
Það er gaman þegar vel tekst til
eins og að skapa jafneinfaldan og
brothættan heim og Gyrðir leiðir les-
endur sína um í hljóðverki. Það verð-
ur forvitnilegt að fylgjast með í fram-
tíðinni hvernig þetta form leiklistar-
flutnings í útvarpi mun þróast.
Ævintýri á afturgöngu
Sveinn Haraldsson
LEIKLIST
Útvarpsleikhúsið
Höfundar hljóðverks: Bjarni Jónsson og
múm sem byggja verkið á samnefndri
skáldsögu Gyrðis Elíassonar. Leikstjóri:
Bjarni Jónsson. Höfundar og flytjendur
tónlistar: múm. Hljóðsetning í stúdíói:
Bjarni Jónsson og Kristín Anna Valtýs-
dóttir. Hljóðvinnsla: Hjörtur Svavarsson.
Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hjalti
Rögnvaldsson, Guðrún Þ. Stephensen,
Rúnar Freyr Gíslason, Theodór Júlíusson
og Þórunn E. Clausen. Frumflutt sunnu-
dag 17. nóvember; endurtekið að kvöldi
fimmtudags 21. nóvember.
SVEFNHJÓLIÐ
Bjarni Jónsson
) >@
@ A
2# % #@ 4
)
7
!#
!6
)@ 8B) # /(
* @ *
C
)!#@ =-
3 .%@ D)$" <
)
!!#@ 4( #
.%4 @
>
!!#@ ;E= /(
1# @ F
! ,
@ ;E= /(
3% @
<
@ 4( #
5% 6 ## @ 8
/ C"
#''@ <#
#7 =)
!!#@ 9$
+ # # 2 )""8@ @ (!" 5!!
9:@ *
C
)!#@ =-
8!
#
!"##$#%
* @ *
C
)!#@ =-
3% @
<
@ 4( #
9:@ *
C
)!#@ =-
- $%#4@ *
C
)!#@ =-
;4@ ;
4' *
@ =-
4 < % @ =&! D
&!"
@ ;E= /(
4 @ =#
*' C"!!#@ 4( #
. @
$
G
!
"
@ ;E= /(
. 4# $ @ D)
/ 8% 4&
%"
@ 9$
= @ *
C
)!#@ =-
!"##& ' ( '
+ %> . &@ 8# H#%
@ ;E= /(
@
!&
D
!"
@ 4( #
# @ I
D
D)!!#@ 4( #
+ @ 3
#
@ ;E= /(
.# #@ <
J
!J #@ ;E= /(
?"" %@ @
5%
% @ D)
*)!!# # 9
E#@ 4( #
'
.# # % @ @ <
J
!J #@ ;E= /(
. # @
;"!"
@ =-
1 A&@
!&
!' # "%
G#
!'@ =-
)*( +#'
2# % #@ 4
)
7
!#
!6
)@ 8B) # /(
5% 6 ## @ 8
/ C"
#''@ <#
+ # # 2 )""8@ @ (!" 5!!
B#
%@ I
%
!!#@
&# 6 @ * =
!"
@ ;E= /(
% C D @
$"!!#@ <#
0 E !"!
@ K%
L
;"!
!!#@ *
"0 5% #@ @ 4( #
&# 6 4 ;@ * =
!"
@ ;E= /(
@ @ 4( #
,-.
,
/0,1
<0!%&!!#
( ! "
) '"%' ' ?)
4#
)C)M
<0 &!
!
"/
# <0 "- #
%
!' 8
) +1
1
!
!
3 %
) (
) 6!! #
( +
!! &M
)
!1
'
%(2 ' #'((
3 .%@ D)$" <
)
!!#@ 4( #
.%4 @
>
!!#@ ;E= /(
1# @ F
! ,
@ ;E= /(
#@ =)
!!#@ 9$
@ 9$
C
!!#@ =-
%
@ 8
D)!!#@ 4( #
.4 @ D D)!!#@ 9"/( "
A% @ ;JN
E!J
@ ;E= /(
@ 9(
4$J@ ;E= /(
06 . .6
6 1 @ D)
/ 8!#@ *
"0 =
!"##34
6 @ 6@ C$
!"
@ 4( #
F B 4 #6 @ $ *)!
!"
%@
/( 7 #% + %@
/( 4 #$ 6 @ 5!
)
!#@ <#
9 % @ G#
!
(
@ 4( #
. # # ##4 @ @ (3#!/( =
4 @ 9
I!
!!#@ O
! @ ;" >3#
#!
@ ;E= /(
+, -".
9"/) 4(! #
M 9!
1
9"/) 4(! #
M .%
9"/) 4(! #
M
9"/) 4(! #
M &)/ 9"/) 4(! #
M 4$"
9"/) 4(! #
M
#
9"! !/
M
8!!#M
E
M
E
-8!!#M *!
!
1
E
-8!!#M
)
/ !, -" .
E
-9"/)
%&
M
%&
9"%
! ;"!
>"!!#
M 5!
)
' %-/%
M %! E
-9"%M %@
!
1
E
-8!!#M D
(
#