Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 31

Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 31 SÖNGFÉLAGIÐ Sálubót leggur land undir fót og heldur tónleika í Blönduóskirkju á föstudagskvöld kl. 20.30 og í Langholtskirkju í Reykjavík á laugardag kl. 16. Söngfélagið tók forskot á sæluna í síðustu viku og hélt tónleika í Glerárkirkju. Boðið er upp á fjöl- breytta skemmtun með kórsöng, einsöng, tvísöng og hljómsveit. Söngfélagið Sálubót er fjörutíu manna blandaður kór og eru fé- lagar flestir úr Þingeyjarsveit en einnig frá Akureyri og Húsavík. Stjórnandi kórsins er Jaan Alavere frá Eistlandi. Einsöngvarar úr röð- um kórfélaga eru þau Dagný Pét- ursdóttir og Karl Ingólfsson en auk þess hefur kórinn fengið til liðs við sig þau Hildi Tryggvadótt- ur og Óskar Pétursson og syngja þau einnig saman dúetta á tónleik- unum. Söngfélagið Sálubót hefur nú hafið sitt tíunda starfsár og í til- efni þeirra tímamóta var ákveðið að halda í söngferðalag til Reykja- víkur, með viðkomu á Blönduósi, en kórinn hefur aldrei áður haldið tónleika í höfuðborginni. Sigurður Birgisson, formaður Söngfélagsins Sálubótar, sagði að nokkrir áhugasamir söngmenn hefðu tekið sig saman fyrir tíu ár- um og kannað áhuga fyrir því að stofna kór. Áhuginn reyndist fyrir hendi og í upphafi voru kórfélagar um tuttugu og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt síðan. „Það komu tíu nýir félagar í kórinn nú í haust en þeir eru þó ekki með á tónleik- unum að þessu sinni.“ Sigurður sagði að mikið væri um að hjón störfuðu með kórnum en flestir eru kórfélagarnir úr Þingeyj- arsveit. „Á þessum tíu árum sem kórinn hefur starfað hefur margt fólk flust frá okkur, m.a. til Ak- ureyrar, en það heldur tryggð við kórinn og mætir alltaf austur á æfingar.“ Margt breyst í starfi kórsins Svanbjörg Sverrisdóttir stjórn- aði kórnum fyrstu fimm árin en hún var þá jafnframt tónlistar- kennari við Stórutjarnaskóla. Jaan Alavere tók við starfi Svanbjargar, bæði í Stórutjarnaskóla og við stjórnun kórsins, og er þetta hans fimmta starfsár. Sigurður sagði að Jaan hefði unnið mjög gott starf og að margt hefði breyst í starfi kórsins á þessum tíma. Þá hefur Jaan samið þrjú lög fyrir kórinn og eru tvö þeirra á efnisskrá tónleikanna um helgina. Sigurður sagði að efnisskrá tón- leikanna væri tvískipt, klassísk lög fyrir hlé og svo léttari lög eftir hlé, þar sem einnig kemur hljóm- sveit við sögu. Hljómsveitin er skipuð þeim Jaan Alavere á píanó, Tarvo Nomm á bassa og Sigurði formanni á trommur. Hildur Tryggvadóttir er einn af stofn- endum kórsins. Hún hefur sagt skilið við kórstarfið en mætir nú til leiks með einsöng og tvísöng. Þá var leitað til Óskars Péturs- sonar að taka lagið með kórnum og sagði Sigurður að hann hefði tekið því ljúfmannlega. „Það er mikill fengur fyrir okkur að hafa Óskar með.“ Kórinn hefur haldið nokkra tón- leika í Glerárkirkju í gegnum tíð- ina en aðsókn á tónleika kórsins þar hefur þó aldrei verið eins góð og sl. fimmtudag. Sigurður sagði að tónleikarnir hefðu verið mjög vel heppnaðir og hann vonast til að Húnvetningar og höfuðborgarbúar taki kórnum jafnvel og fjölmenni á tónleikana um helgina. Söngfélagið Sálubót úr Þingeyjarsveit í tónleikaferð Hildur Tryggvadóttir og Óskar Pétursson syngja ástar- dúett á tónleikum Sálubótar í Glerárkirkju. Morgunblaðið/Kristján Jaan Alavere, stjórnandi Söngfélagsins Sálubótar. Syngur í fyrsta sinn í Reykjavík FIMMTUDAGSTILBOÐ Suðurlandsbraut Sími 533 3109 Opið mán.-fös. kl. 12-18 laugardaga kl. 10-16 HERRASKÓR M. REIM OG MOKKASÍNUR LITUR: SVARTUR STR: 40-46 VERÐ 4.995 BÓK Margrétar Þ. Jóelsdóttur um ofvirka og misþroska drenginn Birgi byggist á viðtöl- um hennar við dreng í 4. bekk grunnskóla og við móður hans, kenn- ara og aðra sem höfðu með drenginn að gera. Bókin er notuð við kennslu við Kenn- araháskóla Íslands. Margrét hefur lokið BA-námi í myndlist, BA-námi í sérkennslu- fræðum við Kenn- araháskóla Íslands og námsráðgjöf við Há- skóla Íslands, kennt við Fossvogsskóla og síðar Dalbrautarskóla þar sem hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi. Í bókinni er sagt frá ungum dreng sem á við erfiðleika að etja, einkum félagslega en einnig námslega, og er hann handfylli fyrir marga kennara sína sem sumir hverjir hafa ekki fengið mikla þjálfun í að sinna slík- um börnum. Farið er ofan í feril drengsins, áhrif þau sem umhverfið hefur á hann, áhrif hans á önnur börn í skólanum og hvernig skólinn reynir að takast á við það verkefni að veita honum menntun. Um er að ræða svokallaða tilviksrannsókn sem lýst er í meistaraprófsritgerð Mar- grétar á sérkennslusviði við Kenn- araháskóla Íslands. Í slíkri rannsókn er lögð áherzla á hvað hægt sé að læra af einstöku tilviki og gengið út frá að talað sé við nokkurn fjölda fólks til að fá víðari sjóndeildarhring, dýpri skilning og þekkingu á efninu og einnig getur verið um að ræða að fá staðfestingu á tilgátum eða hug- myndum (bls. 15). Ég var nokkuð lengi að komast í gegnum bókina, þótt sums staðar hafi textinn náð að vera í allgóðu samhengi, en málalengingar eru þó nokkrar og stundum fannst mér ég vera að drukkna í smáatriðum. Einna bezt féll mér að lesa fylgiskjal 4 en þar er lýst nokkrum vettvangs- punktum eins og þeir eru kallaðir, þegar Margrét segir beint frá heim- sókn sinni í skólann og hvernig Birg- ir og aðrir nemendur komu henni fyrir sjónir, hvað var um að vera og hver var að gera eða segja hvað. Ég er þess ekki umkomin að kveða upp úr með rannsóknaraðferðina sjálfa, enda er henni beitt í greinum af þessu tagi, en aðferðin er mér sem lækni fremur ókunnugleg. Maður er vanari því að úrtak fyrir rannsókn þurfi að vera marktækt og nái til ákveðins fjölda einstaklinga en síður að ályktað sé einungis út frá einum. Það breytir því samt ekki að málefni ofvirkra og misþroska barna er áhugavert og um þarfir slíkra barna þarf að ræða út frá sem flestum sjón- arhornum. Mörg ofvirk börn og fjölskyldur þeirra þyrftu jafnvel að geta fengið þjónustu eins og fötluð börn. Þá þarf að efla sálfræði- þjónustu í skólakerfinu en til þess vantar meira fé. Sérkennarar sitja þess vegna gjarnan uppi með vaxandi hóp erfiðra nemenda (Grét- ar Marinósson 1994). Margrét kemst að þeirri niðurstöðu að undirbúningur margra kennara fyrir það að kenna þessum börnum sé ónógur og sömuleiðis að boðskipti innan skólans milli hinna ýmsu kennara, sérkennara, yf- irmanna og heilbrigðisstarfsfólks séu ekki nægilega skilvirk. Nýr kennari fái ekki nægar upplýsingar um nemandann til þess að geta starf- að rétt með honum, margir kennarar telji sig ekki vita hvernig takast eigi á við afbrigðilega hegðun eða skringilegheit, óróleika og hvatvísi og svo mætti lengi telja. Gott er til þess að vita að þetta efni skuli nú vera tekið fastari tökum en verið hef- ur í Kennaraháskólanum. Birgir skrifar þegar síðuhornum er flett segir innan á einni af fremstu síðunum. Ég hafði tekið eftir teikn- ingum neðst á sérhverri hægri síðu og verð að segja að mér finnst þær vera algjör snilld. Skemmtileg hug- mynd, afar lifandi myndir sem tengj- ast hver annarri ótrúlega vel. Mynd- ir Stephens Fairbairn einar sér gera þessa bók sérstaka og eigulega. Einn ofvirkur drengur BÆKUR Meistaraprófsritgerð – Hvernig skólinn kemur til móts við of- virkan og misþroska dreng, eftir Mar- gréti Þ. Jóelsdóttur. Teikningar: Stephen Fairbairn. Útgefandi: Æskan 2000. 205 bls. BIRGIR Katrín Fjeldsted Margrét Jóelsdóttir SÍÐASTA sýning á leikritinu Lífinu þrisvar sinnum eftir Yasminu Reza er á laugardags- kvöld á Stóra sviði Þjóðleik- hússins. Leikritið fjallar um tvo stjarneðlisfræðinga, Henri og Hubert yfirmann hans, og eig- inkonur þeirra, lögfræðinginn Soniu og Inès, sem „gerir ekk- ert, það er að segja fullt“. Henri og Sona eiga von á Hubert og Inès í kvöldmat, og nú eru þau mætt, degi fyrr en von var á þeim. Leikendur eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður Sigur- jónsson, Stefán Karl Stefáns- son og Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir. Lífið þrisv- ar sinnum lýkur göngu sinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.