Morgunblaðið - 26.11.2002, Qupperneq 1
Maður á
bara eitt líf
Sómalska baráttukonan Waris
Dirie í heimsókn á ný Fólk 46
STOFNAÐ 1913 277. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Æfði júdó
í Japan
Eyrbekkingurinn Bjarni Skúlason
stefnir hátt Íþróttir B2
Af málþingi um framtíð
íslenskrar myndlistar Listir 24
Þú vinnur
nítján (19)
Bond bíó-
myndir?
Focus 007
njósnaleikur
Taktu þátt.
JÓLASTEIKIN er þriðjungi
ódýrari í ár en í fyrra, að sögn
matvörukaupmanna. Telja sumir
30-40% ódýrara að kaupa í jóla-
matinn í ár.
Kalkúnn var til að mynda aug-
lýstur á 499 krónur í Fjarðarkaup-
um fyrir síðustu helgi, Nettó aug-
lýsti hamborgarhrygg á 695
krónur kílóið og Bónus hangi-
frampart á 599 krónur. Úrbeinað
Sambandshangilæri er nú selt á
1.399 krónur kílóið í Bónusi. Of-
framboð á svínakjöti hefur ekki
einasta leitt til verðlækkana því
hermt er að framleiðendur sem
ekki koma vöru sinni að í versl-
unum „selji hana í heimasölu“ og
gangi með tilboðsblöð í fyrirtæki.
Elías Þór Þorvarðarson versl-
unarstjóri í Nettó í Mjódd telur
ýmislegt meðlæti með jólamatn-
um ódýrara nú en í fyrra.
Sigurður Gunnar Markússon,
rekstrarstjóri Nóatúnsverslana,
kveðst hins vegar óttast að kapp
kaupmanna sé meira en forsjá og
að „ekki sé alltaf um að ræða vöru
í hæsta gæðaflokki“.
Ljóst er að rjúpa verður ekki á
tilboðsverði fyrir þessi jól og segir
Sigurður dæmi um að veiðimenn
hafi farið fram á 2.000 krónur fyrir
fuglinn. „Þetta er verð sem ég hef
aldrei nokkurn tímann heyrt áð-
ur,“ segir hann.
Stórmarkaðir sem selja bækur
auglýstu 30-100% afslátt af jóla-
bókum nú um helgina og segjast
forsvarsmenn Bónuss, Hagkaupa
og Nettó allir ætla að vera með
lægsta verðið.
Haft er eftir kaupmanni að
meiri harka sé í samkeppninni en
áður. „Auglýsingar undanfarinna
daga eru stríðsyfirlýsingar og við
erum einungis að tala um verð í
dag. Þetta er ekki botninn,“ segir
Elías Þór í Nettó.
Neytendajól í bókum
og hátíðarmatnum
Jólasteikin/12
Sálarstríð/23
FRELSISFLOKKURINN í Austurríki,
hinn umdeildi hægriflokkur Jörgs Haiders,
beið mikinn ósigur í þingkosningunum í
landinu á sunnudag og boðaði Haider af því
tilefni í gær afsögn sína sem fylkisstjóri í
Kärnten.
„Ég hef fengið mig fullsaddan á stjórn-
málum,“ sagði Haider í útvarpsviðtali. Af-
sögnin verður þó ekki gild fyrr en flokks-
menn hans hafa fallizt á hana. Að sögn
austurríska blaðsins Die Presse er þetta í
sjötta sinn á þessu ári sem Haider boðar
með einum eða öðrum hætti að hann hygg-
ist draga sig í hlé frá stjórnmálum.
AP
Haider var enn hinn hressasti er hann
mætti á kjörstað á Porsche-bíl sínum.
Boðar enn
afsögn sína
„Svart-blátt“ áfram/16
FORSETI Túrkmenistan, Saparmurat
Niyazov, slapp lifandi í gær er honum var
sýnt banatilræði í höfuðborg landsins,
Ashkhabad. Tilræðismennirnir skutu úr vél-
byssum á bílalest forsetans þar sem hann
var á leið til vinnu, að því er embættismenn
greindu frá.
Niyazov er einnig þekktur sem Turkmen-
bashi, eða faðir allra Túrkmena, og hefur
stjórnað landinu síðan það varð sjálfstætt
1991 og lýst sig forseta til lífstíðar. Að sögn
Interfax-fréttastofunnar særðust nokkrir,
þ. á m. vegfarendur, í tilræðinu í gær.
Banatilræði við
Turkmenbashi
Ashkhabad. AFP.
ÞRJÁTÍU prósent bólusetninga í Kína eru
háskalegar og hlutfallið er enn hærra sums
staðar í dreifbýlinu og þær valda útbreiðslu
sjúkdóma á borð við lifrarbólgu B og al-
næmi, að því er Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin og Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna greindu frá í gær.
Til að draga úr kostnaði endurnýta fjár-
sveltir spítalar og heilsugæslustöðvar
sprautunálar og látið er duga að þvo þær
með heitu vatni.
„Á hverjum degi er fólk, sem kemur á
heilbrigðisstofnanir [í Kína] til umönnunar,
óafvitandi sýkt af banvænum sjúkdómum
með háskalegum bólusetningum,“ sagði Al-
an Schnur, fulltrúi WHO.
Háskalegar
bólusetningar
Peking. AFP.
Endurnýting sprautu-
nála í Kína áhyggjuefni
Í BREYTINGARTILLÖGUM meirihluta fjár-
laganefndar er gert ráð fyrir um 3,3 milljarða
hækkun á gjaldalið frumvarps til fjáraukalaga.
Þar af renna 1,9 milljarðar til heilbrigðismála og
er langstærsti útgjaldaliðurinn 1.060 milljóna
króna aukafjárveiting til greiðslu uppsafnaðs
rekstrarhalla Landspítala – háskólasjúkrahúss
(LSH). Kemur hún til viðbótar tillögu um 1,2
milljarða aukafjárveitingu sem fyrir var í fjár-
aukalagafrumvarpinu. Áætlað var að halli á
rekstri LSH yrði 2.660 milljónir í árslok 2002.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að til-
lögur fjárlaganefndar breyti ekki að marki áætl-
unum um afkomu ríkissjóðs á þessu ári.
„ Þarna er um stór viðfangsefni að ræða í heil-
brigðismálum. Verið er að reyna að leysa vanda
daggjaldastofnana, Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss og hjúkrunarheimila,“ segir Geir.
Magnús Pétursson, forstjóri LSH, segist telja
að vel hafi verið hlustað á sjónarmið og rök-
stuðning spítalans og það komi fram í tillögun-
um. „Sumt af þessu hefur ekkert með rekstur
þessa árs að gera, a.m.k. um 800 milljónir af
þessu eru vegna fyrri ára sem hlaðist hafa upp
og valdið erfiðri greiðslustöðu.“ Aðspurður um
rekstrargrundvöll spítalans á næsta ári segir
Magnús að með þessum fjárveitingum komist
rekstur spítalans á betra ról en verið hefur.
Gjöld hækka um 3,3 milljarða í breytingartillögum fjárlaganefndar
Milljarður til að mæta
rekstrarhalla LSH
Um 1,9 milljarðar /6
GLÓANDI hraun var komið hættulega nærri lyftu-
húsi í suðurhlíðum Etnu á Sikiley í gærmorgun.
Hraunstraumurinn stöðvaðist í gær, en yfirvöld
sögðu þó að enn væri hætta á ferðum. Eldvirkni
hefur verið í fjallinu síðan í síðasta mánuði og hafa
um þúsund manns orðið að yfirgefa heimili sín.
Reuters
Hraunstraumurinn stöðvast
Einar Oddur
Kristjánsson,
varaformaður
fjárlaganefndar,
segir að hann
standi við það
sem hann hafi
margsinnis sagt
að í heildina
vanti ekki fé til
heilbrigðismála á Íslandi, út-
gjöldin séu mikil, ekki síst miðað
við hve ung þjóðin sé. „Ég bakka
ekki með það. En þessi tiltekt
núna í fjáraukalögunum er óhjá-
kvæmileg og útgjöldin munu
halda áfram að vaxa svona nema
við reynum nýjar aðferðir til þess
að stjórna heilbrigðismálunum.
Meðan við náum ekki tökum á
þessu getum við gleymt öllum
draumum um lækkun skatta. Það
verður ekki undan því vikist að
finna heilbrigðismálunum annað
rekstrarform. Við eigum engra
kost völ en að reyna að reka heil-
brigðisþjónustuna öðruvísi en við
gerum nú.“
Þurfum að
reyna nýjar
aðferðir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Innibyrgð orka
og ósýnd verk