Morgunblaðið - 26.11.2002, Side 13

Morgunblaðið - 26.11.2002, Side 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 13 Jólagjafir www.icestart.is - sími 588 3060 Hamraborg 1-3 - 200 Kópavogurvinnufatnaður Merkjum fatnað og vörur eftir þínum óskum Hitabrúsi Flísteppi fyrir fyrirtæki til starfsmanna og viðskiptavina BAUGUR–ID jók hlut sinn í bresku matvörukeðjunni Big Food Group í gær með kaupum á 2,5 milljónum hluta. Samtals á fyrirtækið nú 16,62% í breska félaginu. Lokagengi bréfa í BFG í gær var 57,5 pens, en eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hefur meðalkaupverð Baugs–ID fram að þessu verið um 38 pens á hlut. Baugur kaupir enn í BFG GENGIÐ hefur verið frá samn- ingum um kaup á meirihluta hlutafjár í Heklu eftir venju- bundna áreiðanleikakönnun. Ákveðið hefur verið að segja upp 33 starfsmönnum til að snúa rekstri fyrirtæksins til betra horfs. Þá er stefnt að því að lækka rekstrarkostnað um 20% á næsta ári og selja eignir sem ekki tengj- ast rekstri fyrirtækisins beint. Eins og fram hefur komið hafa fjárfestar, undir forystu Tryggva Jónssonar, keypt meirihlutaeign bræðranna Sigfúsar R. Sigfús- sonar og Sverris Sigfússonar. Þessir fjárfestar eru, auk Tryggva, Búnaðarbankinn hf. og Kaupþing hf. Tryggvi hefur tekið við stöðu forstjóra Heklu af Sig- fúsi R. Sigfússyni sem verður starfandi stjórnarformaður. Sverrir Sigfússon mun starfa áfram sem ráðgjafi hjá fyrirtæk- inu. Tryggingamiðstöðin hf. á sem fyrr þriðjungshlut í fyrirtæk- inu. Búnaðarbankinn hafði um- sjón með viðskiptunum og fjár- mögnun kaupverðsins. Í fréttatilkynningu frá Heklu segir að þrátt fyrir samdrátt í bílasölu hérlendis á undanförnum misserum hafi Heklu tekist að auka markaðshlutdeild sína. Af- koma fyrirtækisins hafi engu að síður reynst óviðunandi. Ákveðið hefur verið að grípa til aðgerða til að snúa rekstri Heklu til betra horfs. Aðgerðirnar sem ráðist verður í eru þrískiptar. Starfs- fólki Heklu verður fækkað úr 183 í 150 manns. Rekstrarkostnaður verður lækkaður um 20% á næsta ári. Eignir sem ekki tengjast rekstri fyrirtækisins beint verða seldar. Einnig hafa verið gerðar breytingar á skipuriti Heklu með það fyrir augum að gera daglegan rekstur markvissari. Fasteignir seldar Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu, segir að seldar verði fast- eignir og hugsanlega einhver starfsemi sem ekki tengist bíla- rekstri. Eins ýmsar aðrar tilfall- andi eignir, svo sem bílar í eigu fyrirtækisins. Tryggvi segir að lækkun rekstrarkostnaðar komi úr ýmsum áttum innan fyrirtæk- isins. „Við fórum í gegnum alla kostnaðarliði fyrirtækisins og settum okkur markmið um að ná 20% niðurskurði. Þær tillögur sem komu út úr þessari skoðun voru umfram þau markmið sem við settum og því er ég bjartsýnn á að þau náist.“ Skipulags- breytingar hjá Heklu 33 starfsmönnum sagt upp og stefnt að sölu eigna FYRIRTÆKI í verslun og þjónustu greiða umtalsvert meira í opinber gjöld en samanlögð gjöld allra ann- arra fyrirtækja í einkarekstri. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi Sam- taka verslunar og þjónustu, SVÞ. Í nýjum upplýsingum ríkisskatt- stjóra um álagningu opinberra gjalda lögaðila fyrir 2002 kemur fram að fyrirtæki í verslun og þjón- ustu greiða um 45% opinberra gjalda lögaðila, alls rúma 14,7 millj- arða króna. Af einstökum liðum greiða þessi fyrirtæki yfir helming tekjuskatts allra lögaðila í landinu eða um 5,9 milljarða króna og um 58% eignarskatts eða 1,4 milljarða króna. Í fréttabréfi SVÞ er vakin athygli á að fyrirtæki í landbúnaði greiða aðeins um 0,5% til samneyslunnar, fiskvinnsla 4%, útgerðarfyrirtæki 5,6% og hefðbundinn iðnaður alls um 20%. „Oft heyrist talað um út- gerð og fiskvinnslu, jafnvel landbún- að, sem mikilvægustu atvinnugrein- ar landsins. Þegar litið er til þess hvaða atvinnugreinar skila mestu til samneyslunnar, kemur berlega í ljós að verslun og þjónusta eru þar mik- ilvægastar. Sama á við þegar horft er til fjölda starfa í þessum atvinnu- greinum í hlutfalli við aðrar greinar. Verslun og þjónusta veita flestu fólki atvinnu næst á eftir ríki og sveitarfélögum,“ segir í frétt SVÞ. Verslun og þjón- usta greiða mest    7)+  '87)+ 9   : ;    3   4   '2  * 5 ! B  %*  * C3>  VÉLVÆÐINGAR íslenska fiski- skipaflotans var minnst á Ísafirði á laugardag en í gær voru liðin 100 ár frá því sexæringurinn Stanley sigldi á miðin frá Ísafirði fyrir vélarafli, fyrstur íslenskra fiskibáta. Stanley var í eigu Árna Gísla- sonar fomanns og Sophusar Niel- sen, kaupmanns á Ísafirði. Hann sigldi í fyrsta sinn fyrir vélarafli hinn 25. nóvember árið 1902 og er dagurinn talinn marka upphaf vél- væðingar íslenska fiskiskipaflotans. Byggðasafn Vestfjarða hefur af þessu tilefni sett upp sýningu, sem er samsett annars vegar úr vegg- spjöldum þar sem þessi saga er rak- in í grófum dráttum og hins vegar er þar til sýnis tveggja hestafla Møllerup-vél árgerð 1902, sem er í eigu Þjóðminjasafns Íslands, sams- konar vél og sett var niður í Stanley. Í ávarpi Jóns Sigurpálssonar, for- stöðumanns safnsins, kom fram að vélin gæti hugsanlega verið sama vél og sett var niður í Stanley og er nú unnið að því að fá það staðfest. Bylting atvinnuhátta og lífskjara Þorsteinn Pálsson, sendiherra og fyrrum sjávarútvegsráðherra, flutti ávarp við opnun sýningarinnar á Ísafirði á laugardag en Árni Gísla- son formaður á Stanley var langafi Þorsteins. Þorsteinn sagði að vél- bátaútgerðin hafi öðru fremur á einni öld fært Ísland úr hópi fátæk- ustu ríkja Evrópu í hóp þeirra rík- ustu. „Það auðnuafl sem forfeður okkur sýndu hefur sannarlega reynst okkur auðnubót. Það er skylda okkar að meta það starf að verðleikum.“ Sagði Þorsteinn að sér væri stór- lega til efs að langafi sinn hafi með vélarkaupunum gert sér grein fyrir þeirri byltingu atvinnuhátta og lífs- kjara sem varð í kjölfarið. Vænt- anlega hafi vélarkaupin fyrst og fremst átt að létta róðurinn og ef til vill hafi hann séð fyrir sér lítils hátt- ar meiri afla og ef til vill eitthvað bættan hag. „En þegar við lítum til baka, réttri öld síðar, getur engum blandast hugur um að vélbátaút- gerðin var ekkert minna en upphaf byltingar að þessu leyti á Íslandi.“ Þorsteinn sagði að þrátt fyrir efa- semdir í fyrstu hafi menn skjótt áskynjað að hér voru nýir mögu- leikar og vélbátum fjölgað hratt. „Þó að Árni Gíslason hafi tekið frumkvæði að þessari fyrstu vél- bátsútgerð og fengið aðra til liðs við sig á hér enginn einn óskiptan hlut. Þetta er saga margra manna og kvenna. Í andrúmslofti þessa tíma var súrefni nýjunga. Spurningin var að grípa tækifærið, hrífa menn með og ryðja öðrum braut,“ sagði Þor- steinn. Sögufélag Ísfirðinga mun hafa forgöngu um, í samráði við afkom- endur og með tilstyrk frá Alþingi, að reistur verði á Ísafirði minn- isvarði um fyrsta vélbátinn. Til þess hefur verið valið verkið Harpa hafs- ins eftir Svanhildi Sigurðardóttur myndhöggvara. Vélvæðingar íslenska fiskiskipaflotans minnst á Ísafirði Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Tveggja hestafla Møllerup-vél vakti mikla athygli á sýningunni. F.v. Finn- bogi Bernódusson vélsmiður í Bolungarvík, Pétur Sigurðsson, forseti Al- þýðusambands Vestfjarða, Jón Ólafur Sigurðsson, vélvirki, og Guðmundur Einarsson, vélfræðikennari við Menntaskólann á Ísafirði. Auðnuafl reyndist auðnubót Þorsteinn Pálsson, sendiherra, flyt- ur ávarp við opnun sýningar í Byggðasafni Vestfjarða um fyrsta íslenska vélbátinn. ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur skipað Friðrik Má Baldursson hag- fræðing stjórnarfor- mann Hafrannsókna- stofnunarinnar frá 1. desember 2002 til 30. júní 2004 en þá lýkur skipunartíma núver- andi stjórnar. Friðrik Már hefur á undan- förnum árum átt sæti í ýmsum opinberum nefndum sem fjallað hafa um málefni sjáv- arútvegsins. Hann var m.a. formaður nefndar um endurskoðun á lög- um um stjórn fiskveiða. Friðrik tek- ur við stjórnarformennskunni af Brynjólfi Bjarnasyni forstjóra, sem lætur af störfum í stjórninni að eigin ósk. Friðrik Már segir það heiður að fá að tak- ast við þetta verkefni. „Hafrannsóknastofn- unin er öfluga stofnun sem veltir á annan milljarða króna á ári. Þar starfa færustu vís- indamenn þjóðarinnar á þessu sviði, enda er það lífsspursmál fyrir Íslendinga að búa við bestu þekkingu sem völ er á á lífríki sjávar. Þetta er áhugavert og spennandi verkefni en um leið erfitt, enda hef- ur fráfarandi stjórnarformaður sinnt sínu hlutverki vel og staðið vel að verki,“ segir Friðrik Már. Friðrik Már stjórn- arformaður Hafró Friðrik Már Baldursson SJÓKLÆÐAGERÐIN 66º Norður fékk í gær Njarðarskjöldinn, hvatn- ingarverðlaun Reykjavíkurborgar og Íslenskrar verslunar. Þetta er í sjö- unda sinn sem Njarðarskjöldurinn er veittur. Að Íslenskri verslun standa Samtök verslunarinnar-FÍS, Kaup- mannasamtök Íslands og Bílgreina- sambandið. Markmiðið með veitingu verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavíkurborg. Verðlaunahafinn, 66º Norður, sér- hæfir sig í sölu á íslenskri hönnun og hugviti á sviði útivistarfatnaðar. Fyr- irtækið opnaði verslun í Lækjargötu í júní á síðasta ári og var bæði stað- setning og vöruúrval miðað við mikla umferð erlendra ferðamanna um miðbæinn. Sérstök áhersla hefur ver- ið lögð á að eiga alltaf gott úrval af vörum úr nýrri línu útivistarfatnaðar sem er íslensk hönnun og niðurstaða þriggja ára þróunarstarfs. Sjóklæða- gerðin hf. rekur fjórar verslanir undir merkinu 66º Norður, þar af tvær í Reykjavík. Þá veitti Þróunarfélag miðborgarinnar Ófeigi, gullsmiðju og listmunahúsi við Skólavörðustíg, við- urkenningu fyrir framlag sitt til þró- unar og uppbyggingar í miðborg Reykjavíkur. 66º Norður fékk Njarð- arskjöldinn Morgunblaðið/Þorkell Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, afhendir Jóni B. Stefánssyni, forstjóra Sjóklæðagerðarinnar, og Elvari Frey Vernharðssyni, versl- unarstjóra í verslun fyrirtækisins í Lækjargötu, Njarðarskjöldinn. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.