Morgunblaðið - 26.11.2002, Page 14

Morgunblaðið - 26.11.2002, Page 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GUNNAR Þ. Ander- sen, sem verið hefur framkvæmdastjóri al- þjóða- og fjármálasviðs Landsbankans síðast- liðin fjögur ár, hefur látið af störfum hjá bankanum. Í samtali við Morgunblaðið sagði Gunnar að hann hefði hætt að eigin ósk að vandlega íhuguðu máli. Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir að alþjóðleg tengsl bankans hafi styrkst verulega á liðn- um árum og erlend lán- taka orðið fjölbreyttari. Þar kemur einnig fram að Brynjólfur Helgason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, muni nú einnig stýra alþjóða- og fjármálasviði, en af- koma þessara sviða verði áfram sundur- greind. Landsbankinn-Fjár- festing hf., dótturfélag bankans, verður sam- einað bankanum í byrj- un næsta árs og starf- semi þess í fjárfestingarbanka- þjónustu verður sam- einuð fyrirtækjaráðgjöf í nýrri starfseiningu sem ber heitið Fyrir- tækjaþróun. Samhliða breytingunum verða þrír aðstoðarframkvæmdastjórar ráðnir að sviðum bankans: Tryggvi Tryggvason, sem verið hefur for- stöðumaður fjármálamarkaða, verð- ur aðstoðarframkvæmdastjóri al- þjóða- og fjármálasviðs. Davíð Björnsson, sem verið hefur forstöðu- maður fyrirtækjatengsla, verður að- stoðarframkvæmdastjóri fyrirtækja- þjónustu á fyrirtækjasviði. Steinþór Baldursson, forstöðumaður fyrir- tækjaráðgjafar, verður aðstoðar- framkvæmdastjóri fyrirtækjaþróun- ar á fyrirtækjasviði. Ennfremur verður sú breyting gerð að bakvinnsla á alþjóða- og fjár- málasviði verður sameinuð reiknings- haldi verðbréfasviðs í nýrri starfsein- ingu sem nefnist Varsla og viðskiptaumsjón. Starfseiningin verð- ur undir stjórn Erlu Aðalgeirsdóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra verð- bréfasviðs. Gunnar Þ. Andersen hætt- ir hjá Landsbankanum Gunnar Þ. Andersen UMHVERFISSTJÓRNUN í fjár- málafyrirtækjum var til umfjöllun- ar á fundi sem haldinn var á vegum Norræna fjárfestingarbankans (NIB) á Grand hóteli nýverið. Er- indi fluttu Roland Randefelt, um- hverfissérfræðingur NIB, og Steinn Kárason umhverfishagfræð- ingur. Fram kom að fjármálafyr- irtæki ættu að varast að taka óþarfa umhverfisáhættu við val á fjárfestingum, þau ættu fremur að nýta sér „græn markaðstækifæri“. Með því er átt við að fjármálafyr- irtæki setji fjármagn frekar í verk- efni sem ekki spilla umhverfinu. Þannig geti þau bætt ímynd sína, minnkað áhættu og aukið þar með arðsemi sína. Í máli Steins kom fram að ný við- horf ríktu í umhverfismálum fyr- irtækja. Hjá fjármálafyrirtækjum væri nú aukin áhersla lögð á að minnka umhverfis- og útlánaá- hættu af fjárfestingum. Krafan um hagnað stæði vissulega fyrir sínu en „farvegurinn að hagnaðinum þarf að liggja í gegnum siðfræði og vistfræði,“ sagði Steinn. Fjármagn væri verkfæri til umhverfisstjórn- unar og að ekki mætti vanmeta getu fjármálageirans til verndar umhverfisins. Að mati Steins er mikill ávinningur fólginn í því fyrir fjámálafyrirtæki að taka upp um- hverfisstjórnun. Ímynd fyrirtækj- anna verði jákvæðari sem laði að fleiri viðskiptavini og skili sér í auknum hagnaði. Að sögn Steins er Landsbanki Íslands eina íslenska fjármálafyrirtækið sem hefur ritað undir svokallaða UNEP-yfirlýsingu (United Nations Environment Pro- gram Statement). Í henni felst skuldbinding um að betrumbæta frammistöðu sína á sviði umhverf- isverndar. Alls eru 195 fjármálafyr- irtæki í 49 löndum aðilar að verk- efninu. Fyrirtæki meti umhverfisáhættu Roland Randefelt er finnskur umhverfissérfræðingur hjá NIB. Hann sagði fjármálafyrirtæki, eins og NIB, ekki aðeins þurfa að meta fjárhagslega áhættu við val á verk- efnum til fjármögnunar heldur einnig umhverfisáhættu. Randefelt sagði að t.a.m. þyrfti að líta til þess hvort líklegt væri að kostnaður við hreinsun lands eða vatns, eða kostnaður vegna notkunar spilli- efna næmi nokkru. Þá yrði að skoða hvort verkefnið sem fjár- magna ætti hefði tilskilin leyfi og einnig hvort viðkomandi fyrirtæki hefði umhverfisstefnu og væri tryggt fyrir áföllum af umhverfisá- stæðum, s.s. mengunarslysum. Hann sagði það vera stefnu NIB að meta hverja einustu umsókn um lánsfjármagn útfrá umhverfisá- hættu og bankinn tæki ekki þátt í að fjármagna verkefni sem stang- ast á við alþjóðlega umhverfissátt- mála eða löggjöf um umhverfisáhrif í viðkomandi landi. Umhverfisvæn verkefni krefj- ast langtímafjármögnunar Að mati Randefelt er vel hægt að hagnast á fjármögnun verkefna sem miða að því að bæta umhverfið. Hann nefndi sem dæmi að NIB tæki þátt í fjármögnun fjölda um- hverfisverkefna í Eystrasaltslönd- unum. Hann minntist á borgina Kunda í Eistlandi sem var á tíma- bili kölluð „gráa borgin“ því þar var allt fullt af ryki frá mengandi sem- entsverksmiðju. Verð á fasteignum var lágt í borginni og lítil framþró- un í viðskipta- og atvinnulífi. Þá voru settir peningar í að minnka rykið frá verksmiðjunni og stjórn- endur sáu þá að hægt var að breyta því ryki sem áður hafði fokið út í loftið, í söluvöru. Rykið var ekkert annað en sement sem fór til spillis og eftir þessar aðgerðir gat verk- smiðjan framleitt meira sement án þess að auka framleiðslukostnað. Randefelt benti á að aðrar afleið- ingar þessarar umhverfisvænu fjár- festingar væru hækkun fasteigna- verðs og aukin viðskipti í borginni. Hann sagði að oft gleymist að reikna með þeim jákvæðu ytri áhrifum sem umhverfisvæn verk- efni leiði af sér. Verkefnin höfði þó ekki alltaf til fjárfesta því til að byrja með skili þau ef til vill ekki miklu. Þau séu ekki ábatasöm til skemmri tíma heldur þarfnist lang- tímafjármögnunar. Landsbanki Íslands hefur skrifað undir svokallaða UNEP-yfirlýsingu Græn markaðs- tækifæri skila sér Norræni fjárfestingabankinn stóð nýverið fyrir fundi um umhverfisstjórnun fjármála- fyrirtækja. Umhverfissérfræðingur bank- ans sagði umhverfisvæn fjárfestingatæki- færi oft vera ábatasamari en í fyrstu virðist. HIÐ umdeilda útgáfu- og afþrey- ingarfyrirtæki Playboy Enterprises Inc. tilkynnti nýverið að 8% starfs- fólks þess yrði sagt upp á næstunni í hagræðingarskyni. Fyrirtækið hyggst í kjölfarið sameina skrif- stofuhúsnæði og skera niður kostn- að á ýmsan hátt. „Við erum að taka það erfiða en nauðsynlega skref að skera niður kostnað nú til að tryggja að við náum fjárhagslegum markmiðum á næsta ári,“ sagði stjórnarformaður og forstjóri Playboy, Christie Hefner, í tilkynn- ingu frá fyrirtækinu. Hún sagði að fækkað yrði um 70 stöðugildi hjá fyrirtækinu og að gert væri ráð fyr- ir að það kostnaður við það komi fram á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Playboy er skráð á hlutabréfa- markað í New York. Gengi bréfa í fyrirtækinu hefur farið ört lækk- andi frá áramótum. Reuters Playboy fækkar fólki Samdráttur í sölu áfengis Veltuaukning varð í dagvöru í októ- ber um 1,6 prósentustig frá mánuðin- um á undan samkvæmt smásöluvísi- tölu SVÞ. Hins vegar varð samdráttur í veltu áfengis og tóbaks á sama tímabili um 3,3 prósentustig. Smásöluvísitala SVÞ er nú birt leið- rétt miðað við dagvöruhluta neyslu- verðsvísitölu Hagstofunnar í stað heildarvísitölu neysluverðs eins og verið hefur. Smásöluvísitala SVÞ byggist á upplýsingum frá flestum dagvöruverslunum landsins og ÁTVR. Þær breytingar hafa orðið á smásöluvísitölu SVÞ, að í stað þess að leiðrétta hana með heildarvísitölu neysluverðs, er hún leiðrétt með dag- vöruhluta neysluverðsvísitölunnar (matur, hreinlætis- og hreingerning- arvörur). Þá er vísitala ÁTVR leiðrétt miðað við verðbreytingar á áfengi og tóbaki. Vísitala fyrri mánaða hefur því breyst lítillega, en þetta á að gefa nákvæmari mynd af veltu fyrirtækja í smásölu. IMG annast vinnslu smá- söluvísitölunnar fyrir SVÞ. Hagnaður Járnblendis minnkar HAGNAÐUR Íslenska járnblendi- félagsins á fyrstu níu mánuðum árs- ins nam 3,5 milljónum króna, en 141 milljón á sama tímabili í fyrra. Hagn- aður fyrir afskriftir og fjármagns- gjöld, EBITDA-framlegð, var 353 milljónir króna, samanborið við 652 milljónir á sama tímabili 2001. Rekstrartekjur á tímabilinu námu 3,6 milljörðum króna, en voru tæp- lega 4,3 milljarðar í fyrra. Gjöld lækkuðu hlutfallslega minna, úr 3,9 milljónum í 3,6. Nettó fjármagns- gjöld (fjármagnsgjöld að frádregn- um fjármunatekjum) minnkuðu úr 234 milljónum í 28 m.kr. Veltufjárhlutfall 31. ágúst var 0,89, en um áramótin var það 4,48. Lækkunin skýrist af mikilli hækkun skammtímaskulda. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr 0,44 í 0,49 frá áramótum. Veltufé frá rekstri var neikvætt um 157 milljónir, en var jákvætt 357 milljónir á sama tíma í fyrra. Hand- bært fé frá rekstri var neikvætt um 234 milljónir, en var neikvætt um 181 milljón á sama tímabili 2001. FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur hf. tapaði 40,8 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins en hagnaður fé- lagsins á öllu síðasta ári nam 130,8 milljónum króna. Einkum var tap á rækjuvinnslu félagsins en stjórnend- ur gera ráð fyrir að reksturinn verði í jafnvægi á fjórða ársfjórðungi. Fé- lagið sameinaðist í ársbyrjun dótt- urfélagi sínu Melavík ehf. Saman- burðarfjárhæðum í efnahagsreikningi hefur verið breytt til samræmis við samrunaefnahags- reikning félaganna. Rekstrartekjur félagsins á tíma- bilinu námu 1.469 milljónum króna en námu 2.051 milljón á síðasta ári. Rekstrargjöld voru 1.405 milljónir en 1.646 milljónir á árinu 2001. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnskostnað (EBITDA) á fyrstu níu mánuðum ársins nam 63,6 millj- ónum króna samanborið við 405,4 milljónir í fyrra. Afskriftir tímabils- ins námu 154,2 millj. kr. og hreinar fjármunatekjur 49,8 millj. kr. Eigið fé Fiskiðjusamlagsins nam rúmum 470 milljónum í lok septem- ber en var 515 milljónir króna í árs- byrjun. Eiginfjárhlutfall var 21,9% í lok september en 22,1% í ársbyrjun. Tap hjá Fisk- iðjusamlagi Húsavíkur ♦ ♦ ♦ TAP líftæknisjóðsins MP Bio hf., til lækkunar á eigin fé félagsins, á fyrstu níu mánuðum ársins 2002, var 405 milljónir króna. Þar af var innleyst tap tímabilsins 72 milljónir. Segir í til- kynningu frá MP Bio að tapið stafi fyrst og fremst af lækkun á gengi skráðra markaðsbréfa og vegna styrkingar krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. Á fyrstu níu mánuð- um síðasta árs var tap MP Bio 183 milljónir. Eigið fé félagsins nam 597 milljónum í lok september á þessu ári Fram kemur í tilkynningu frá MP Bio að eignarhlutir félagsins í óskráð- um félögum, sem öll séu erlend, séu sem fyrr metnir miðað við kaupverð í erlendri mynt að teknu tilliti til geng- isbreytinga. Veruleg óvissa ríki um raunverulegt verðmæti óskráðra bréfa. Stjórnendur félagsins benda á að fjárfesting í lyfja-, líftækni- og erfðatæknifyrirtækjum sé almennt afar áhættusöm og þrátt fyrir að þeir hafi trú á að eignir félagsins komi til með að skila ávinningi, þá beri að skoða þær og almenna starfsemi fé- lagsins með tilliti til þess. Tap MP Bio 405 milljónir HAGNAÐUR Kögunarsamstæð- unnar á nýliðnu rekstrarári nam 125 milljónum króna eftir skatta og jókst um 32,3% á milli ára, nam 94 millj- ónum króna á síðasta ári. Samstæð- an er gerð upp í heild sinni og rekstr- arárið nær frá 1.október 2001 til 30. september 2002. Í samstæðunni eru, auk Kögunar hf., Navision Ísland ehf., Kögurnes ehf., Verk- og kerf- isfræðistofan hf. og Vefmiðlunun hf., sem á árinu sameinaðist Verk- og kerfisfræðistofunni. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 162 milljónir króna eða 16,5% af rekstrartekjur en var 219 milljónir króna og 20,6% af tekjum á síðasta rekstrarári. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 980 milljónum króna en 1.066 krónum árið áður og lækkuðu því um rúm 8%. Í tilkynningu frá samstæð- unni segir að lækkunina megi fyrst og fremst rekja til þess að svokallað Link-16 verkefni á vegum NATO fór ekki af stað á árinu eins og áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Allur kostnaður vegna verkefnisins, sem felst í upp- setningu stafræns samskiptakerfis, var gjaldfærður á árinu en þrátt fyr- ir það tókst að lækka kostnað. Þann- ig námu rekstrargjöld 855 milljónum króna en 897 milljónum króna á síð- asta uppgjörsári. Fjármunatekjur umfram gjöld voru 33 milljónir en sama tala var neikvæð um 42 millj- ónir á síðasta ári. Nemur breytingin um 75 milljónum króna og er m.a. rakin til breyttra áherslna í ávöxtun lausafjármuna. Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam 154 milljónum og handbært fé frá rekstri 180 milljónum króna. Eigið fé Kögunar hf. er 575 milljónir króna en var 464 milljónir fyrir ári og hefur aukist um tæp 24% milli ára. Eiginfjárhlutfall var 68% og veltufjárhlutfall 3,2. Þriðjungi meiri hagn- aður hjá Kögun ♦ ♦ ♦ DDúddi Listhúsinu Engjateig i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.