Morgunblaðið - 26.11.2002, Page 17

Morgunblaðið - 26.11.2002, Page 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 17 Klapparstíg 27, sími 552 2522 Simo dúkkuvagn Kr. 14.500 stór og sterkur afsláttur 25% N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 7 9 2 4 / s ia .is Til að fá hið eina sanna jólabragð í baksturinn dugar ekkert annað en ekta íslenskt smjör. Smjörið laðar fram það besta í bakstrinum og gerir kökurnar að ómótstæðilegri freistingu. Bakaðu þér vinsældir! Nú er jólasmjör á tilboði í næstu verslun RÁÐHERRAR orkumála í Evrópu- sambandslöndunum fimmtán sam- þykktu formlega á fundi í Brussel í gær að innleiða algert frjálsræði á raforku- og gasveitumarkaði í öllu Evrópusambandinu fyrir mitt ár 2007. Þessi niðurstaða náðist eftir að frönsk stjórnvöld féllust á að láta opnun markaðarins á þessu sviði ná einnig til einkaneytenda frá og með júlímánuði 2007, eftir því sem Nicole Fontaine, aðstoðarorkumálaráðherra Frakklands, sagði eftir fundinn. Frakkar höfðu fram til þessa staðið í vegi fyrir samkomulagi um málið. Framkvæmdastjórn ESB hafði lagt til að gas- og raforkuveituþjónusta við venjulega heimilisnotendur yrði gefin alveg frjáls frá ársbyrjun 2005, en það fannst stjórnvöldum í París allt of stuttur frestur. Stefnt er að því að gas- og rafveituþjónusta við fyr- irtæki verði gefin frjáls á öllum Evr- ópumarkaðnum á árinu 2004. Orkumarkaður ESB Síðustu höftin falla 2007 Brussel. AFP. Á ÞRÓUNARFERLINU frá úlfi til kjölturakka hafa hundar öðlast ein- staka gáfu til að skynja fyrirætlanir manna. Samskipti herrans og hundsins hafa haft mótandi, líf- fræðileg áhrif á atferli hunda og eru vísindamenn fyrst núna að gera sér grein fyrir þessum áhrifum, að því er fram kemur í niðurstöðum nýrra rannsókna. Hundar eru orðnir sérsniðnir til að passa við mannshugann, líkt og hanski á hönd. Frá fæðingu eru hundar fluglæsir á handahreyf- ingar og svipbrigði manna. Hundar skilja menn betur en simpansar gera, sem eru þó nánustu ættingjar mannskepnunnar, og betur en gráúlfar, sem eru forfeðrar hunda, að því er fram kemur í fyrsta beina samanburðinum á tegundum. Mannfræðingurinn Brian Hare, sem gerði samanburðinn, birti nið- urstöður sínar í tímaritinu Science. Þessi óvenjulega félagsfærni hundanna á ekki rætur að rekja til þjálfunar eða reynslu, segir Hare. Hún er tilkomin vegna þess að arf- berar hafa mótast af samskiptum við menn og hver einasti núlifandi hundur hefur fengið þetta í arf, að því er sérfræðingar telja. „Við höf- um skapað hundinn í okkar eigin mynd,“ sagði þróunarerfðafræð- ingurinn Jasper Rine, við Háskól- ann í Kaliforníu í Berkeley. Þrír hópar vísindamanna, þ. á m. Hare, hafa rannsakað þróun hunda frá rándýrum til besta vinar manns- ins til þess að öðlast betri skilning á einni elstu uppfinningu mannanna – tamningu dýra. Með því að rannsaka DNA-efni úr hundum hvaðanæva úr heiminum hafa vísindamennirnir komist að því, að tamning á hundum hafi farið eins og eldur í sinu um heiminn, hraðar og mun seinna en hingað til hefur verið talið. Hver einasta teg- und hunda sem nú er til, alls um 400, á ættir að rekja til einungis fimm kvendýra í Austur-Asíu, að því er vísindamenn segja. Hundar sniðnir að mannshuganum New York. The Los Angeles Times. Reuters Eins og hanski á hönd. ’ Við höfum skapaðhundinn í okkar eigin mynd ‘ ROBERTO Sebastián Antonio Matta Echaurren, einn af virt- ustu listmálurum aldarinnar sem leið, lést í Tarquinia á Ítalíu á laug- ardag, 91 árs að aldri. Matta var af basknesk- um ættum, fæddist í Chile árið 1911 og nam fyrst arkitektúr. Hann komst í kynni við Salvador Dali í París árið 1934 og þau urðu til þess að hann öðlaðist innsýn í stefnu súrrealistanna og kynntist fleirum úr þeim hópi, m.a. André Breton, sem varð til þess að hann ákvað að verða listmál- ari og ganga í hóp súrrealista árið 1938. Matta dvaldi lengst af í Frakklandi en bjó í tæpan ára- tug í Bandaríkjunum frá árinu 1939. Í Frakklandi var litið á hann sem síðasta meistarann úr röðum súrrealistanna í vina- hópi Bretons. Stjórn Chile lýsti á sunnudag yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna andláts Matta. Blóðbað í musteri FJÓRTÁN manns létu lífið og meira en 50 særðust er ísl- amskir hryðjuverkamenn réð- ust á eitt mustera hindúa í borginni Jammu í Kasmír í fyrradag. Í gærmorgun hafði indverskum hermönnum tekist af fella þrjá þeirra en talið var að aðrir tveir væru á flótta. Útgöngubann var sett í borg- inni eftir árásina en að sögn lögreglunnar í Jammu komu árásarmennirnir frá Pakistan. Er því haldið fram að mennirn- ir tilheyri íslömsku hryðju- verkasamtökunum Lashkar-e- Taiba en í síðustu viku leystu pakistönsk yfirvöld forsprakka þeirra, Hafiz Mohammad Sa- eed, úr haldi þrátt fyrir hörð mótmæli Indverja og þótt sam- tökin hafi verið bönnuð í Pak- istan. Eldur í gasskipi SLÆMT veður kom í gær í veg fyrir tilraunir til að slökkva elda, sem loguðu í tankskipi úti fyrir Hong Kong. Er það með 20.000 tonn af fljótandi gasi en ekki var talin yfirvofandi hætta á sprengingu í skipinu. Eldurinn kom í fyrradag upp í vélarrúmi skipsins, sem heitir Gaz Poem og er skráð í Pa- nama, og hafði ekki breiðst út þaðan. Voru allir skipverjar, 34 að tölu, fluttir frá borði en skip- ið liggur nú við festar í um 48 km fjarlægð frá ströndinni. Hafa önnur skip verið vöruð við að sigla nálægt því en talið er hugsanlegt, að eldurinn í vél- arrúminu deyi út af sjálfu sér. STUTT Meistari Matta látinn Matta SVISSNESKIR kjósendur höfn- uðu því naumlega í þjóðarat- kvæðagreiðslu um helgina að reglur varðandi landvistarleyfi útlendinga yrðu hertar verulega. Um 2,2 milljónir manna tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni og greiddu aðeins 50,1% atkvæði gegn hertum reglum. Munaði ekki nema 3.400 atkvæðum að þær hlytu samþykki. Það voru hægrimenn í Þjóð- arflokknum (SVP) sem höfðu lagt til að útlendingum sem kæmu til Sviss frá landi, þar sem aðstæður væru taldar í lagi, yrði sjálfkrafa bannað að biðja um hæli sem pólitískir flóttamenn í Sviss og sendir til baka. Tillögunni var beint gegn flóttafólki sem liðsmenn Þjóðar- flokksins telja einfaldlega þvæl- ast um alla Evrópu, í leit að því landi sem býður bestu aðstöðuna fyrir flóttafólk, áður en það biður um pólitískt hæli. Með breyting- unni væri fólki gert ókleift að sækja um hæli í Sviss ef það væri að koma þangað um einhver nágrannaríkjanna, þ.e. Frakk- land, Þýskaland, Austurríki og Ítalíu. Sögðu forystumenn Þjóðar- flokksins að einungis um 10% þeirra, sem sæktu um hæli í Sviss, væru raunverulegt flótta- fólk; að í reynd væri oftast um að ræða fólk sem einungis vildi mis- nota velferðarkerfið svissneska. Stjórnvöld í Bern svöruðu því til að 95% allra þeirra, sem sæktu um hæli í Sviss, kæmu þangað um nágrannaríkin og að tillaga Þjóðarflokksins þýddi því í raun að næstum öllu flóttafólki yrði vísað á dyr, án þess að mat væri lagt á mál þess. Slíkt fyr- irkomulag myndi stefna í voða því orðspori, sem af Sviss færi sem landi mannréttinda og mannúðar. Ætla að breyta lögum um flóttafólk Ruth Metzler, dómsmálaráð- herra í Sviss, viðurkenndi hins vegar eftir atkvæðagreiðsluna að tvísýn niðurstaðan sýndi að al- menningur hefði áhyggjur af málefninu, og sagði að þær áhyggjur yrði að taka alvarlega. Hafa stjórnvöld í bígerð breyt- ingar á lögum um flóttafólk. Þjóðarflokkurinn lagði tillögu sína fram árið 1999 þegar fjöldi Albana flýði átök í Kosovo og lagði meðal annars leið sína til Sviss. Um 46 þúsund flóttamenn báðu þá um hæli í Sviss, sem er met, en á síðasta ári voru hæl- isleitendur 20.600, samkvæmt opinberum tölum. Um 11,7% þeirra, sem báðu um hæli í fyrra, fengu ósk sína uppfyllta. Hafna hertum reglum um landvistarleyfi Genf. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.