Morgunblaðið - 26.11.2002, Page 20

Morgunblaðið - 26.11.2002, Page 20
HÖFUÐBORGIN 20 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Enskunám í Englandi Virtur málaskóli á suðurströndinni 18 ára og eldri 2-10 vikna námskeið. 13-17 ára 2-4 vikna námskeið 50 ára og eldri 2 vikna námskeið Skólinn sér fyrir fæði og húsnæði. Uppl. eftir kl. 17.00 í síma 862 6825. SKIPULAGS- og bygginganefnd Reykjavíkur hefur samþykkt stærst- an hluta skipulags Landssímareits- ins svokallaða í Rimahverfi í Graf- arvogi. Afgreiðslu nyrsta hluta reitsins, þar sem gert er ráð fyrir fjölbýlishúsum, var hins vegar frest- að en fyrir liggur að sá hluti skipu- lagsins verður auglýstur á ný síðar. Að sögn Steinunnar Valdísar Ósk- arsdóttur, formanns skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur, var sá hluti reitsins samþykktur þar sem gert er ráð fyrir einbýlishúsum, rað- húsum og skólabyggingu. Ekki hafi verið gerðar miklar breytingar á þessum hluta skipulagsins og því hafi ekki verið talið forsvaranlegt að bíða lengur með að samþykkja hann. „Þetta er búið að taka mjög langan tíma og það tekur fjóra til fimm mán- uði að auglýsa svona upp á nýtt. Það hefur verið lítill ágreiningur um þetta svæði og það hefur breyst mjög lítið og því finnst mér eðlilegt að menn geti hafið uppbyggingu þar.“ Hún segir að þessi samþykkt verði að öllum líkindum tekin fyrir í borg- arráði í dag og í framhaldinu á næsta fundi borgarstjórnar. Á fundi sínum í síðustu viku ákvað skipulags- og bygginganefnd að aug- lýsa að nýju nyrsta hluta skipulags- ins þar sem gert er ráð fyrir fjöl- býlishúsum enda hefur mestur styr staðið í kring um hann að sögn Stein- unnar. „Það segir í skipulags- og byggingarlögum að ef skipulagstil- lögu er breytt verulega þá skuli aug- lýsa hana að nýju og við teljum að við höfum breytt þessum hluta það mik- ið. Það má segja að þessar breyting- ar séu til bóta og ívilnandi fyrir íbúa en engu að síður var það niðurstaða okkar að auglýsa þetta á ný.“ Hún segir að eftir eigi að fara yfir hvort breytingar verði gerðar á þess- um hluta eða hvort hann verður aug- lýstur óbreyttur. Ekki staðið við fyrirheit um samráð Í bókunum sjálfstæðismanna á fundi skipulagsnefndar segir að að ekkert hafi staðið á bak við þau fyr- irheit sem meirihlutinn gaf íbúum hverfisins fyrir kosningarnar í vor þar sem afgreiðsla skipulagsins sé í andstöðu við þá. „Að halda því fram að einungis hafi staðið deilur um hluta svæðisins er útúrsnúningur,“ segir í bókuninni. „Deilurnar hafa líka staðið um byggingarmagn á svæðinu, auk þess sem fram hefur komið að í Rimahverfi er minna um græn svæði en í öðrum hverfum Grafarvogs og fyrirhuguð byggð er ekki í samræmi við aðra byggð í hverfinu.“ Þá segir að augljóst sé að „samráð í huga Reykjavíkurlistans felur einungis í sér að hitta íbúa en taka ekki tillit til viðhorfa þeirra og óska“. Steinunn Valdís vísar þessari gagnrýni alfarið á bug. „Það er búið að halda þrjá opna kynningarfundi og koma á laggirnar samráðshópi sem fór yfir málið frá a til ö. Það er búið að breyta tillögunni mjög mikið til að koma til móts við íbúana og ef það er ekki samráð þá skil ég ekki það hugtak. Það má eflaust gagn- rýna okkur fyrir skort á samráði í einhverjum öðrum málum en það á alls ekki rétt á sér í þessu tiltekna máli.“ Hún bendir á að í nýju aðalskipu- lagi borgarinnar sé mörkuð sú stefna að byggja þéttar en gert hefur verið og það sé sú pólítíska stefna sem R- listinn var meðal annars kosinn út á.“ Landssímalóðin afgreidd í skipulags- og bygginganefnd Samþykkt að hluta Hönnun/Zeppelin arkitektar Tillagan eins og hún liggur fyrir. Nyrsti hlutinn með fjölbýlishúsunum verður auglýstur á ný en eftir er að taka afstöðu til hvort þeim hluta skipu- lagsins verður breytt áður en að því kemur. Grafarvogur BÖRN á öllum aldri fengu kannski ofurlitla glýju í augun yfir allri dýrðinni sem blasti við þeim á Laugaveginum síðastliðinn laug- ardag en þá voru jólaljósin þar tendruð. Fjöldi manns var mættur í miðborgina til að taka þátt í hátíð- arhöldum af þessu tilefni. Nokkrir villuráfandi jólasveinar og foreldrar þeirra forljótir, Grýla og Leppalúði, litu við í bænum þennan dag þrátt fyrir að enn væri talsvert í að komu þeirra væri að vænta og þótt jólaljósin skapi ekki sömu brunahættu nú og fyrr mætti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins með gamlan brunabíl og ók honum niður Laugaveginn. Hið sama gerði hestvagn með Árna Þór Sigurðs- son, forseta borgarstjórnar, í far- arbroddi jólaskrúðgöngu, en Árni tendraði ljósin. Í frétt frá Laugavegssamtök- unum segir að verslanir verði opn- ar um helgar fram að jólum og verða margskonar uppákomur við götuna þann tíma. Frá og með föstudeginum 13. desember verða verslanir opnar til kl. 22 öll kvöld nema Þorláksmessukvöld en þá verður opið til klukkan 23 að venju. Gengið undir glitrandi jólaljósum Miðborg Morgunblaðið/Kristinn Vantar þig fjármagn til atvinnusköpunar? Frumkvöðlasetur Norðurlands boðar til kynningarfunda miðvikudaginn 27. nóvember. Á fundunum munu Arne Vagn Olsen hjá Tækifæri og Stefán Gunnlaugsson hjá Framtaks- sjóðnum kynna hlutverk og starfsemi sjóðanna og Pétur Bjarnason mun kynna Frumkvöðlasetur Norðurlands. Haldnir verða þrír fundir á starfssvæði Frumkvöðlasetursins: Morgunverðarfundur í Safnaðarheimilinu á Dalvík frá kl. 8:00 til 9:15. Hádegisverðarfundur á Fosshóteli Húsavík kl. frá 12:00 til 13:15. Síðdegisfundur á Fiðlaranum á Akureyri frá kl. 16:30 til 17:45. Allir sem áhuga hafa á atvinnumálum og nýjungum í þeim málaflokki eru hvattir til að mæta. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á Akureyri, FSA, mun annast rekstur sjúkraflutningaskóla samkvæmt samningi sem Jón Kristjánsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra og Halldór Jónsson, forstjóri FSA, undirrituðu í gær. FSA mun koma slíkum skóla á fót, ráða skólastjóra og sjá um skipulag og umsjón náms fyrir sjúkraflutningamenn. Mun FSA samkvæmt samningnum gera samn- inga við þá sem sjá um menntun sjúkraflutningamanna og m.a. leita til Háskólans á Akureyri, þannig að hægt verði að samnýta tæki, búnað og sérfræðinga til kennslu. Rauði kross Íslands hefur fram til þessa annast menntun sjúkraflutn- ingamanna, en með tilkomu samn- ingsins færist hún yfir til FSA. Við ákvörðun um staðsetningu skólans var tekið tillit til vilja ríkisstjórn- arinnar og Alþingis að setja nýjar stofnanir á laggirnar utan höfuð- borgarsvæðisins að svo miklu leyti sem hentugt þykir. Halldór Jónsson, forstjóri FSA, sagði starfsfólk stofnuninnar fagna því að henni skyldi treyst til að taka við þessu verkefni. „Við munum kappkosta að eiga gott samstarf við þá sem málið varðar og leggja metnað okkar í að bjóða upp á eins gott nám og kostur er,“ sagði Hall- dór. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra sagði samninginn marka þátttaskil og í kjölfar hans yrði sjúkraflutningaskólinn efldur. Þor- valdur Ingvarsson, lækningafor- stjóri FSA, tók í sama streng og sagði stofnunina tilbúna að auka við menntun sjúkraflutningamanna og nefndi hann menntun bráðaliða í því sambandi, en mikilvægt væri að sjúkraflutningamenn fengju aukið vægi innan heilbrigðiskerfisins. „Með því skrefi sem nú hefur ver- ið stigið hefur skólanum verið komið farsællega fyrir og við erum ham- ingjusöm með þessa niðurstöðu,“ sagði Úlfar Hauksson, formaður Rauða krossins. Sjúkraflutningaskóli verður rekinn á FSA Metnaður verð- ur lagður í að bjóða gott nám Morgunblaðið/Kristján Halldór Jónsson forstjóri FSA og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra skrifa undir samning um að FSA taki að sér rekstur skjúkraflutningaskól- ans. Fyrirhugað er að efla og bæta nám sjúkraflutningamanna. Stofnfundur félags sem kallast „Vin- ir Wathnehúss – áhugamannafélag um varðveislu Wathnehúss á Ak- ureyri,“ verður í kvöld, þriðjudags- kvöldið 26. nóvember kl. 20.30 í húsa- kynnum Minjasafnsins á Akureyri. Wathnehúsið var flutt af Oddeyr- artanga inn á Krókeyri í byrjun þessa mánaðar. Hlutverk félagsins verður að stuðla að varðveislu hússins og finna því framtíðarhlutverk og stað- setningu. Húsið var reist árið 1895 af Otto Wathne og er svonefnt síldartöku- hús, eitt þeirra sem reist voru á Odd- eyrartanga í lok 19. aldar á upp- gangstíma síldveiða á Norðurlandi. Húsið er samofið sögu sjávarútvegs og skipasmíða á Akureyri og að lík- indum eina húsið sem enn stendur af þeim útgerðarhúsum sem áður stóðu meðfram austurströnd Oddeyr- artanga. Það hefur því mikið minja- gildi, bæði vegna sögu þess og bygg- ingagerðar, segir í frétt um stofnfundinn og eru áhugamenn um varðveislu gamalla húsa því hvattir til að mæta. Í DAG Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga og heilabilaðra á Norðurlandi heldur fund í salnum á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri í kvöld, þriðjudagskvöldið 26. nóv- ember, kl. 20. Þetta er fyrsti fundur vetrarins og er hann jafnframt jólafundur félags- ins. Margt verður til gamans gert segir í frétt um fundinn og eru fé- lagsmenn því hvattir til að mæta og eiga saman góða kvöldstund. Ljóðakvöld verður í Húsi skálds- ins á Sigurhæðum í kvöld, mið- vikudagkvöldið 27. nóvember, og hefst það kl. 20.30. Húsið verður opnað hálfri stundu fyrr og verður opið til kl. 22. Yfirskrift þessa ljóðakvölds er: „Fólk klæðir af sér frost – en á hvergi skjól fyrir skrumi.“ Erlingur Sigurðarson, forstöðumaður Húss skáldsins, spjallar á ljóðakvöldinu um nokkur öndvegisskáld liðinnar aldar og fer með ljóð þeirra út frá yf- irskrift kvöldsins. Ráðstefna um vistvæna ferðaþjón- ustu verður haldin í Háskólanum á Akureyri í dag, miðvikudaginn 27. nóvember, frá kl. 13 til 18. Fjallað verður um vistvæna ferðaþjónustu og hvernig hún er í verki, sem og hvaða ávinning fyrirtæki hafa sem tileinka sér hana. Fyrirlesarar eru reyndir í ferðaþjónustu og vita því af eigin raun hvað umhverfismálin eru mikilvæg segir í frétt um ráðstefn- una. Einnig verður fjallað um vottun sem notuð er alþjóðlega og er þá við- urkenning á þeirri stefnu sem fyr- irtækin hafa tileinkað sér á sviði um- hverfismála. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Ferðamálasetur Íslands halda ráð- stefnuna. Á MORGUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.