Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 23
STÓRMARKAÐIR sem selja bækur auglýstu tilboð með háum afslætti um helgina og verða með 120–400 titla á boðstólum fyrir jólin. Í sumum verslunum er afsláttur gefinn af öll- um titlum, annars staðar af til- teknum fjölda bóka, sem breyst get- ur frá degi til dags. Þá er verði breytt daglega, að sögn viðmælenda. Elías Þór Þorvarðarson, versl- unarstjóri Nettó í Mjódd, orðar það svo að sálarstríð kaupmanna sé haf- ið. Segir hann auglýsingar undanfar- inna daga bera djarfara útspili versl- unarmanna vitni, en Netto vakti til að mynda athygli á 40–100% afslætti af bókum á laugardag. Hagkaup auglýstu 30–40% afslátt af bókum á föstudag og segir Elías afslátt- arprósentuna ívið hærri nú en í fyrra. Bókin sem gefin var í Nettó um helgina nefnist Orðabók andskot- ans og segir hann að verslunin hafi keypt upplagið af útgefanda. „Rétt að byrja“ í Nettó Mestur afsláttur var reyndar gef- inn af bókum útgefnum í fyrra hjá Nettó um helgina, en Elías segir að líka hafi verið gefinn 45% afsláttur af nýjum titlum strax á fyrsta degi. „Það er meiri harka í þessu nú en nokkurn tímann áður. Verð- samkeppnin er gífurleg, einkum milli lágvöruverðsverslana, og við getum ekki leyft okkur að selja bækur á fullu verði. Ég myndi segja að lág- marksafsláttur væri 30%, enda erum við ekki að bjóða sömu þjónustu og bókaverslanir,“ segir hann. Þá segir Elías að bókaverð fari lækkandi eftir því sem nær dregur jólum. „Auglýsingar undanfarinna daga eru stríðsyfirlýsingar og við er- um einungis að tala um verð í dag. Þetta er ekki botninn. Við erum rétt að byrja. Afsláttartilboðum annarra verður fylgt eftir af fullri hörku og ekkert annað kemur til greina en að bjóða betur,“ segir hann. „Ódýrustu bækurnar“ í Bónusi Bónus kveðst jafnan „bjóða betur“ í auglýsingum og segist Guðmundur Marteinsson verslunarstjóri Bónuss einnig ætla að selja ódýrustu bæk- urnar í verslunum sínum nú fyrir jól- in. „Við bjóðum alltaf lægsta verðið, í bókum sem öðru. Við vorum að klára samninga við Eddu Miðlun og verð- um til að mynda með bók Davíðs [Oddssonar] og ævisögu Jóns Bald- vins [Hannibalssonar]. Þá vorum við með 45% afslátt af bókum JPV for- lags um helgina, sem gefur út þrjár metsölubækur nú fyrir jólin,“ segir hann. Ekki er alltaf ljóst frá hvaða verði er verið að auglýsa afslátt og segir Guðmundur „eiga að banna“ auglýs- ingar sem ekki sýna verð áður og verð með afslætti. Fjöldi bókatitla verður að lág- marki 300 í verslunum Bónuss fyrir jólin að hans sögn. Segir Guðmundur jólamarkað verslunarinnar við Smáratorg gera að verkum að hægt sé að leggja meira rými undir bók- sölu nú en í fyrra. „Ef við verðum varir við spurn eft- ir bókum frá í fyrra munum við bjóða upp á þær með afslætti líka, en við seldum reyndar nokkrar af met- sölubókum síðustu jóla í kiljuformi í sumar. Nú er megnið af bókum kom- ið upp hjá okkur og ljóst að við mun- um elta öll afsláttartilboð,“ segir Guðmundur. „Lægstir í Hagkaupum og með alla titla“ Sigríður Gröndal, innkaupastjóri sérvöru í Hagkaupum, segir að hver einasta bók sem kemur út fyrir jólin verði á boðstólum í Hagkaupum. „Við erum eini stórmarkaðurinn með alla titlana, viðskiptavinir geta treyst því. Einnig erum við staðráðin í því að vera með lægsta verðið,“ segir hún. Fyrsta auglýsingin um lækkað verð á bókum kom frá Hagkaupum fyrir rúmri viku og segir Sigríður aðra hafa fylgt þeirra frumkvæði. Bókaverðstríð stórmarkaðanna er fyrr á ferðinni í ár en í fyrra, segir hún ennfremur. Afsláttur af vinsælum jólabókum var 30–40% í Hagkaupum um síð- ustu helgi og er nú 50% af nýjum bókum segir Sigríður. Eldri bækur eru með 90% afslætti. Þegar af- sláttur er reiknaður segir hún miðað við leiðbeinandi verð í Bókatíðindum, sem borist hafa landsmönnum í pósti. „Það er meiri harka í þessu nú en áður og menn fara fyrr af stað. Verðkannanir eru gerðar daglega og verð breytast jafnoft ef þannig ber undir. Undanfarna daga höfum við gefið afslátt af að minnsta kosti 100 titlum og munum áfram taka þátt í samkeppni af fullum krafti og vera með lægsta verð,“ segir hún. Útgefendur hafa einnig auglýst afslátt af bókum sínum. Edda Miðl- un vakti til að mynda athygli á 30% afslætti af tveimur bókum merktum „tilboðsbók mánaðarins“ á laug- ardag og Mál og menning kynnti fjóra titla með sama afslætti á „jóla- hlaðborði“ sama dag. Þess má geta að í samskonar sam- antekt og birtist á neytendasíðu Morgunblaðsins 29. nóvember í fyrra buðu stórverslanir 15–70% af- slátt af jólabókum. „Sálarstríð kaupmanna hafið“ Stórmarkaðir byrjuðu að auglýsa 30-100% af- slátt af jólabókum nú um helgina. Helga Kristín Ein- arsdóttir ræddi við full- trúa þriggja verslana sem allar ætla að bjóða lægsta verðið. Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Jim Smart OPNUÐ hefur verið ný verslun í Kringlunni með Nici-vörur. Í fréttatilkynningu frá versluninni kemur fram að Nici sé þýskt merki sem framleiði vandaðar gjafavör- ur fyrir börn á öllum aldri. Þekktasti vöruflokkur Nici er mjúkdýr, en auk þeirra má nefna símahulstur, myndaramma, skóla- vörur og lyklakippur. Nici-vörur hafa á undanförnum árum fengist í Pennanum- Eymundssyni, Polarn & Pyret, í Fríhöfninni og í Skólavörubúðinni. Verslunin verður opin fram að áramótum. Hún er á annarri hæð í Kringlunni, beint á móti Íslands- banka. Nici-verslun í Kringlunni NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 23 KOMETA ehf. hóf nýlega innflutn- ing á bandarískum hárvörum, göt2b. Vörurnar komu á markað í Banda- ríkjunum í fyrra- sumar. Um er að ræða hársápu, hárnæringu og froðu í neonlitum og stílhreinum umbúðum, að því er segir í tilkynn- ingu. „göt2b-vör- urnar ilma fersk- lega af ávöxtum og eru ákaflega endingargóðar,“ segir ennfremur. Vörurnar fást nú þegar í Plús apó- tekum og Sól og sælu. NÝTT göt2b hárvörur FYRIRTÆKIÐ i&d... ehf. vekur at- hygli á hrotuúðanum Snor Away sem nú er fáanlegur aftur. Um er að ræða úða úr fimm mis- munandi náttúruleg- um olíutegundum með B, C og E-vít- amíni og mintu- bragði sem spreyjað er í munninn hálf- tíma áður en gengið er til náða til þess að koma í veg fyrir hrotur. Virkni úðans er talin 6–8 klukkustundir, að því er fram kemur í tilkynningu frá i&d. Munnúði gegn hrotum INNFLUTNINGUR á Toyota- saumavélum er hafinn á ný en hann mun hafa legið niðri um nokkurra ára skeið. Nýr umboðsaðili er Við- gerðaþjón- ustan sem annast hef- ur við- gerða- og varahluta- þjónustu fyrir saumavélar í hartnær 30 ár, að því er fram kemur í tilkynningu. Við- skiptavinum gefst kostur á að láta gamla Toyota-saumavél ganga upp í kaup á nýrri en nánari upplýsingar um vélarnar má finna á heimasíð- unni www.saumavelar.is. Toyota-sauma- vélar komnar MIKIÐ ÚRVAL HAGSTÆTT VERÐ LOFTPRESSUR TILBOÐ SDAGA R

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.