Morgunblaðið - 26.11.2002, Síða 25

Morgunblaðið - 26.11.2002, Síða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 25 KAMMERSVEIT Reykjavíkur held- ur fyrstu tónleika starfsársins að Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20. Á efn- isskránni eru verk eftir Jón Ásgeirs- son: Þjóðlagasvíta fyrir píanókvint- ett, Blásarakvintett nr. 2, Strengjakvartett nr. 3, Sjöstrengja- ljóð og Oktett fyrir blásara. Jón er eitt afkastamesta tónskáld þjóð- arinnar og hefur samið fjölda verka, allt frá ástsælum smálögum á borð við Maístjörnuna til stórra óp- eruverka. Það er ekki á hverjum degi að færi gefist á því að heyra fimm kammerverk eins tónskálds á sömu tónleikunum, og kveðst Jón ákaflega ánægður með það og þakk- látur Kammersveit Reykjavíkur. „Fyrsta verkið er píanókvintett byggður á íslenskum þjóðlögum, og er afrakstur þess að ég vann í nokk- ur ár með Sigríði Valgeirsdóttur við að útsetja þjóðdansa fyrir Þjóð- dansafélagið. Það var svo alltaf ein- hvers staðar bakatil í huga mér að taka þessi lög sem eru svo söngvæn og finna þeim tóntak á hljóðfæri. Menn hafa nú ekki gert mikið af því að búa til hljóðfæramúsík úr þjóð- lögum, en þetta er tilraun til að hljóðfæravæða þau.“ Jón notar þjóðlagið Vera mátt góður í fyrsta þætti verksins, en í öðrum þætt- inum, Raunarollu, fléttar hann sam- an fjögur þjóðlög. Undir þeim leikur píanóið alltaf sömu tvo tónana. „Þeir eiga að túlka Íslandsklukkuna sem klingir með undir þessu,“ segir Jón. Þriðji þátturinn er byggður á laginu Krummi svaf í klettagjá, og sá fjórði á Vísum Vatnsenda-Rósu. Jón samdi Blásarakvintett nr. 2 fyrir Blásarakvintett Reykjavíkur, sem frumflutti hann á Myrkum mús- íkdögum 1999. „Ég kalla kaflana Fjörleik og Hrynlaust millispil og sá síðasti heitir Snertla, stillur og stefja; – snertla er þýðing mín á orð- inu tokkata; stillur eru sálmalag og stefja er nafnið sem Hallgrímur Helgason gaf fúgu.“ Strengjakvart- ett nr. 3 er líka nýlegt verk, var saminn árið 2000, og frumfluttur á Þjóðlagahátíð á Siglufirði. „Annar kaflinn í strengjakvartettnum er seríal að nokkru leyti, byggður á fjórum tónaröðum sem eru spilaðar samtímis í öllum hljóðfærunum, en þá koma tilbrigði við tónaraðirnar. Síðasti kaflinn er fjórföld fúga, og aðalstef fúgunnar er þjóðlagið Nú er hann kominn á nýja bæinn.“ Sjö- strengjaljóð var samið fyrir sjö strengjahljóðfæri, en hefur oftast verið flutt af strengjasveit. Aðalstef verksins er sönglag Jóns við kvæði Þorsteins Valdimarssonar um Inga T. Lárusson: Svanur ber undir bringudúni banasár. „Núna verður verkið spilað í sinni réttu mynd, fyr- ir sjö strengi. Ég hef hugsað mér að búa til fleiri verk fyrir sjö strengi og byggja á sönglögum sem ég hef samið.“ Oktett Jóns hefur sérstaka hljóðfæraskipan, því þar notar hann eingöngu átta tréblásturhljóðfæri: pikkoló, flautu, óbó, enskt horn, klarinettu, bassaklarinettu, fagott og bassafagott. „Þetta er til- brigðaverk, tólf tilbrigði við stef, og hvert þeirra situr á sínum tóni tón- stigans. Þetta er í einum kafla og maður á ekkert að heyra skilin á milli tilbrigðanna.“ Hef aldrei losnað við þjóðlögin Jón segir að þegar hann var að semja við þjóðlög og útsetja þau á yngri árum, hafi verið talsverð and- staða við það að tónskáld nýttu sér þann efnivið. „Kollegar mínir voru svolítið að skamma mig fyrir þetta, og vildu að ég semdi nútímalegri tónlist. Þetta þótti ekki mjög fínt. En nú er vakning í þá átt að nota þennan sjóð meira.“ Þótt ekki séu til nein ógrynni af íslenskri hljóðfæra- tónlist byggðri á þjóðlögum, þá gegnir öðru með sönginn, og fjöldi íslenskra sönglaga hefur verið út- settur fyrir alls konar kóra. Þau ís- lensku tónskáld, auk Jóns, sem hvað mest hafa nýtt sér þjóðlög í hljóð- færatónlist sinni eru Jón Leifs, Jór- unn Viðar, Þorkell Sigurbjörnsson og Hafliði Hallgrímsson. „Módern- isminn átti að taka við af allri tónlist á sínum tíma, og það var hreinlega goðgá ef menn vildu ekki taka þátt í þeirri framþróun. En þetta er eins og í pólitíkinni, það kemur ákveðið bakslag í hlutina þegar þeir hætta að vera nýir og ferskir og þá fara menn að leita að nýjum leiðum. Ein- hverra hluta vegna komst það þá aftur í tísku að rækta þjóðararfinn. En ástæðan fyrir því að ég er í þjóð- lögunum er sú, að ég hef bara aldrei losnað við þau. Ég var alinn upp við þau og ól sjálfan mig upp við að skoða þau; – lá í séra Bjarna, og fannst það alla tíð sá grunnur sem maður ætti að byggja á. En nú get ég vel samið án þess að nota þjóð- lögin, þótt tónmálið sé oft undir áhrifum frá þeim; en ég er frjáls.“ Síðustu daga hefur Jón kíkt á æf- ingar hjá Kammersveitinni til að fylgjast með og rifja upp kynnin af verkum sínum. „Ég hef alltaf sagt að það sé einn dásamlegasti eig- inleiki mannsins að geta gleymt. Þegar ég er búinn með verk, er ég ákaflega lítið upptekinn af því. Ég hef ekki gert mikið til að koma verkum mínum á framfæri, en þarf ekkert að kvarta. Það eina sem ég á óspilað núna er Klarinettkonsert sem Útvarpið tók upp, en á eftir að klippa og ganga frá, og Tromp- etkonsert og Flautukonsert sem ég var að ljúka við. Svo er ég að semja mína þriðju óperu, Möttulssögu. Maður er ekkert að draga af sér meðan maður hefur heilsu og vit, það verður nógur tími þegar það fer frá manni. Þá situr maður bara og spinnur með þumlunum. Ég er sennilega að því leyti gæfumaður, að ég er bæði seinþroska og heilsu- góður.“ Eftir tónleikana verða verk Jóns hljóðrituð til útgáfu á geisladiski. Goðgá ef menn fylgdu ekki módernismanum Morgunblaðið/Jón Svavarsson Jón Ásgeirsson fylgist með æfingum Kammersveitar Reykjavíkur á Sjöstrengjaljóði. Stundarfriður eftir Guðmund Steinsson verður leiklesinn í leiklist- ardeild LHÍ á Sölvhólsgötu 13 kl. 20. Flytjendur eru nemendur 2. árs leiklistardeildar ásamt Guðrúnu Gísladóttur, Kristbjörgu Kjeld, Randver Þorlákssyni og Sigurði Sig- urjónssyni. Súfistinn í Bókabúð Máls og menningar Dagskrá helguð Hall- dóri Laxness hefst kl. 20. Auður Jónsdóttir, barnabarn Halldórs, les upp úr bók sinni: Skrýtnastur er maður sjálfur. Hver var Halldór Laxness? Ólafur Ragnarsson les upp úr og kynnir bók sína Halldór Lax- ness – lifað í skáldskap. Þá les Ari Trausti Guðmundsson úr smásagna- safni sínu Vegalínur og Hörður Torfason leikur af nýrri safnplötu sinni. Kaffileikhúsið, Hlaðvarpanum Lesið verður úr nýjum bókum kl. 20.30. Þessir höfundar lesa úr verk- um sínum: Vigdís Grímsdóttir, Hjarta tungl og bláir fuglar; Reynir Traustason, Sonja, saga um líf og leyndardóma Sonju W. Benjamíns- son de Zorilla; Anna Valdimars- dóttir, Leggðu rækt við ástina; Æv- ar Örn Jósepsson, Skítadjobb og Taxi 101; Þorsteinn Guðmundsson, Hundabókin. Þá les Magnús R. Ein- arsson úr bókinni um Bítlana eftir Ingólf Margeirsson. Fræðslufundur Minja og sögu verður haldinn í Norræna húsinu kl. 17. Guðjón Friðriksson sagnfræð- ingur og rithöfundur flytur erindi um Jón Sigurðsson. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is KRISTINN Sigmundsson óperu- söngvari situr fyrir svörum í Ís- lensku óperunni í kvöld kl. 20 og skeggræðir við gesti um reynslu sína í hinum al- þjóðlega óperu- heimi. Með því er hleypt af stokk- unum nýjum dag- skrárlið hjá Ís- lensku óperunni sem fengið hefur nafnið Við fót- skörina. Dag- skránni er ætlað að vera framvegis einu sinni á hverju misseri. Fenginn er gestur úr óperuheiminum til þess að miðla reynslu sinni, skrafa og skeggræða. Dagskránni er ætlað að höfða sérstaklega til ungs tónlistar- fólks en ætti jafnframt að vera for- vitnileg fyrir alla sem áhuga hafa á óperulist. Með Kristni á sviðinu verða tveir aldavinir hans; þau Jónas Ingimund- arson og Elísabet B. Þórisdóttir. Þau munu taka þátt í upprifjun á söng- ferli Kristins og þeir Jónas og Krist- inn krydda svo dagskrána með tón- dæmum. Kristinn Sigmundsson situr fyrir svörum Kristinn Sigmundsson FJÓRÐU og síðustu tónleikarnir í hádegistónleikaröð Íslensku óper- unnar á haustmisseri verða í dag kl. 12.15. Yfir- skrift tón- leikanna er Ljón í hádeginu og þar munu þeir Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Ólafur Vignir Alberts- son píanóleikari flytja lög fyrir söngrödd og pí- anó eftir þýska tónskáldið Carl Loewe. Jóhann Friðgeir segist hafa ver- ið að velta því fyrir sér að flytja eitthvað af ljóðaflokkum Schuberts á tónleikunum, Vetrarferðina eða Malarastúlkuna fögru, þegar Bjarni Daníelsson óperustjóri ósk- aði eftir því að hann syngi ljóðaprógramm. „Ég bar þetta undir Ólaf Vigni, sem benti mér á söngva Loewes, og þau gripu mig strax. Það varð ekkert aftur snúið með það. Loewe er skemmtilega rómantískt tón- skáld og ljóðin öll tengd nátt- úrunni, blómum, álfum og þvíum- líku. Ég syng til dæmis Álfakónginn, sem hann samdi við sama ljóð og Schubert notaði í sinn Álfakóng. Önnur þekkt lög Loewes sem ég syng eru Heinrik der Vogel og Tom der Reimer. Ég syng átta lög í allt, passlegan skammt fyrir hálf- tímann. Þetta eru skemmtileg lög og maður þarf stundum að vera meira en ein persóna í hverju þeirra, eins og í Álfakónginum, þar sem ég syng Álfakónginn, pabbann og drenginn og þarf að breyta um blæbrigði til að túlka hvern um sig. Ég hef virkilega gaman af því að takast á við þetta, ég hef lítið verið að syngja ljóðasöng, en það er þroskandi skóli sem allir söngvarar hafa gott af að ganga í gegnum.“ Hádegistónleikarnir hefjast kl. 12.15 og standa í um 40 mínútur. Hægt verður að kaupa samlokur fyrir eða eftir tónleika, svo enginn ætti að þurfa að fara svangur úr Óperunni. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.000 krónur. Ekki aftur snúið með Loewe Jóhann Friðgeir Valdimarsson HILDIGUNNUR Halldórsdóttir sópransöngkona og fiðluleikari heldur einsöngstónleika í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20. Tón- leikarnir eru burtfararpróf Hildigunnar frá Tónskóla Sigur- sveins D. Krist- inssonar. Kenn- ari hennar þar hefur verið Marta Guðrún Halldórsdóttir. Hildigunnur flytur sönglög eftir Joseph Haydn, Jo- hannes Brahms, Richard Strauss, Sigursvein D. Kristinsson, Yrjö Kilpinen og Edvard Grieg. Píanó- leikari er Þóra Fríða Sæmunds- dóttir. Hildigunnur starfar með Sinfón- íuhljómsveit Íslands þar sem hún gegnir leiðandi stöðu, en hefur jafnframt verið virk í kammertón- list og leikur með hópunum Caput, Camerartica og Contrasti. Hún hefur jafnframt sungið með söng- hópnum Hljómeyki. Burtfarar- prófstónleik- ar í Sigurjóns- safni Hildigunnur Halldórsdóttir ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.