Morgunblaðið - 26.11.2002, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 26.11.2002, Qupperneq 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 33 ✝ Hermann KáriHelgason fædd- ist á LSH við Hring- braut í Reykjavík 8. nóvember síðastlið- inn. Hann andaðist á sama stað 12. nóv- ember. Foreldrar hans eru Helgi Magnús Her- mannsson fasteigna- sali og Björk Bald- ursdóttir, skrifstofumaður hjá LSH. Bræður Her- manns Kára eru Ólafur Örn, f. 28.3. 1991, og Guðbrandur Óli, f. 9.5. 1998. Foreldrar Helga voru Hermann Sigurðs- son og Elínborg Óladóttir. Foreldr- ar Bjarkar eru Baldur Ólafsson og Ingibjörg Jóna Jón- asdóttir. Hermann Kári var skírður í höfuðið á afa sínum Hermanni Sigurðs- syni sem var 12 barna faðir og var Hermann Kári fer- tugasta og fimmta barnabarn Her- manns og Elínborg- ar. Útför Hermanns Kára fór fram í kyrrþey 20. nóvember. Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi ei saka. Til moldar oss vígði hið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur. Sem hafsjór, er rís með fald við fald, þau falla, en Guð þau telur, því heiðloftið sjálft er huliðstjald, sem hæðanna dýrð oss felur. En ástin er björt sem barnsins trú, hún blikar í ljóssins geimi, og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú, oss finnst þar í eining streymi. Frá heli til lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (E. Ben.) Elsku litli drengurinn okkar. Af hverju fengum við ekki að hafa þig hjá okkur? Slys verða, hver ræður at- burðarás? Hvernig eigum við að halda áfram? Almáttugur drottinn okkar allra, gef okkur styrk. Pabbi, mamma, Ólafur Örn og Guðbrandur Óli. Elsku litli sólargeislinn okkar, þú ert svo fallegur. Við getum ekki ann- að en verið reið og sár með sorginni. Þú varst svo hraustur í móðurkviði, alltaf á hreyfingu. Meðgangan gekk vel og þú hafðir alla burði til að koma í heiminn alheilbrigður. En hræðileg mistök urðu sem gerðu það að verk- um að þú varst tekinn með keisara- skurði nær dauða en lífi og nú hófst hetjuleg barátta hjá þér í fjóra daga, en allt kom fyrir ekki. Þú yfirgafst þennan heim í fangi foreldra þinna. Við grátum þig svo mjög, við getum ekki spurt: „Af hverju?“, því við vit- um hvað olli því að þú varst tekinn frá okkur sem gerir söknuðinn enn sárari. Mamma, ekki gráta mig, ég veit þú saknar mín. Mig langar að vera hjá þér og þerra tárin þín. Ég fékk aldrei að sjá þig og blíðu brosin þín, Guð vantaði lítinn engil og kallaði mig til sín. Segðu pabba að ég elsḱann því pabbi á líka bágt, faðmaðu hann fyrir mig og hvíslaðu ofurlágt. Segð́onum frá stjörnunni sem á himnum skærast skín, kennd́onum að þekkja hana því hún er stjarnan mín. Núna áttu lítinn engil sem vakir yfir þér, ég passa líka pabba, segðu honum það frá mér. Það eru hér svo margir sem þykir vænt um mig, fjöldi fallegra engla sem gæta mín fyrir þig. Tendraðu lítið kertaljós til að lýsa þér til mín, láttu á leiðið mitt hvíta rós, það læknar sárin þín. Þegar sorgarinnar skuggi dvín, þá muntu minnast mín og tár þín verða gleðitár því ég verð ávallt þinn. (Höf. ók.) Elsku Helgi, Björk, Ólafur Örn og Guðbrandur Óli, megi Guð veita ykk- ur styrk til að finna frið og ró eftir þungan missi. Drottinn blessi og varðveiti Her- mann Kára Helgason. Friðþjófur, Lilja, Sólveig Auður, Ingibjörg og Bergdís Björk. Hinn 8. nóvember fæddist þú og ég varð rosalega glöð að vita að ég hefði eignast nýjan frænda en þú varst rosalega veikur og það var ég ekki glöð með. Þú opnaðir augun tvisvar en bara mjög stutt og hreyfðir aðeins hendurnar. Ég bað til guðs að láta þér batna og styrkja þig og ég lét skírnarkertið mitt loga til að þess að reyna að láta þér batna. Svo vaknaði ég 13. nóvember og mér sagt að ég þyrfti ekki að fara í skólann heldur heim til mömmu þinnar og pabba. Ég hlakkaði rosalega mikið til að fá að sjá þig en þegar ég kom var mér sagt að þú værir dáinn og ég varð rosalega sorgmædd og ég grét og grét og geri það enn. Þú barðist fyrir lífi þínu eins og hetja, þú varst fullkominn frændi. Svo kom jarðarförin 20. nóvember og ég grét og grét. Ég signdi yfir þig og kyssti þig á ennið og þú varst mjög kaldur. Ég mun reyna að koma til þín hverja helgi og gefa þér blóm og tala við þig. Ég myndi gera hvað sem er til að fá þig aftur en það er víst ekki hægt. Diddú kom og söng svo rosa- lega fallega við jarðarförina þína. Þú varst klæddur í hvítar flísbuxur og hvíta flíspeysu með hettu og með verndarengilinn frá okkur um háls- inn. Þú lást í kistunni með hvít sæng- urföt sem mamma þín hafði saumað nafnið þitt í, Hermann Kári, með bláu garni og kross fyrir ofan nafnið þitt. Ég vildi að ég fengi að sjá þig aftur en það var huggun að fá að kyssa þig. Þegar læknarnir vissu að þú varst að deyja þá tóku þeir allar leiðslurnar úr þér og settu þig í fang mömmu þinn- ar. Það huggar okkur pínulítið að vita að afi Hemmi og amma Bogga passa upp á þig hjá guði, en auðvitað vildum við hafa þig hjá okkur. Þín frænka Sólveig Auður. HERMANN KÁRI HELGASON Ég kynntist Borg- þóri H. Jónssyni fyrst í Stokkhólmi árið 1947 þegar ég hóf nám í veð- urfræði við skóla sænsku veðurstof- unnar (SMHI). Borgþór var þá einu ári á undan mér. Það breytti því ekki að við eyddum mörgum stundum saman eftir því sem tími gafst til. Hann kom mér strax fyrir sjónir sem góður og traustur drengur sem ekki brást vinum sínum. Það var svo árið 1952 að við Borg- þór gerðumst starfsfélagar á veður- stofunni á Keflavíkurflugvelli og þar unnum við saman til ársins 1975. Á flugveðurstofunni var ákaflega eril- samt svo að stundum sást ekki fram úr verkefnum þar sem flugvélar komu inn í tugatali á hverri vakt. Ég minnist þess glögglega að mér þótti ótrúlegur léttir að fá að vinna með Borgþóri við slíkar aðstæður þar sem hann hélt ætíð ró sinni og kímnigáfu. Hann lét eril flugumferð- arinnar ekki trufla sig. Hans eina boðorð var að flugmenn fengju allar tiltækar upplýsingar svo fljótt sem auðið var. Borgþór tók við starfi deildar- stjóra 1963 en þá varð ekki séð í neinu að hann breytti framkomu sinni við samstarfsfólk og naut hann óskiptra vinsælda allra undirmanna sinna. Sjálfur naut ég þess að hafa sam- gang við Borgþór á heimili hans en þar voru þau Nanna, kona hans, BORGÞÓR H. JÓNSSON ✝ Borgþór Haf-steinn Jónsson fæddist í Vestmanna- eyjum 10. apríl 1924. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut 12. nóv- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Háteigs- kirkju 22. nóvember. samstiga í gestrisninni. Heimili þeirra geislaði af hlýju og vináttu sem seint verður fullþökk- uð. Með Borgþóri er genginn einn af mínum traustustu vinum og skilur eftir sig ljúfar minningar. Ég sendi Nönnu og öðrum vandamönnum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ingólfur Aðalsteinsson. Nú í kvöld munum við stelpurnar í Grænásnum hittast á Café Rue Roy- ale á Laugavegi 22a. Þar munum við fagna því að sauma- og kjaftaklúbb- urinn okkar til margra ára fær verð- laun fyrir eina af mataruppskriftum mínum. Þar verður skálað í minn- ingu þína en bálför þín verður í dag þótt minningarathöfnin hafi farið fram á föstudaginn. Þar verður vel tekið á móti okkur stelpunum sem oftast höfum mætt. Við fáum for- drykk og Miðjarðarhafsrétti að borða. Vínþjónasamtök Íslands verða með vínkynningu fyrir okkur. Að lokum verðum við leystar út með gjöfum frá heildversluninni Bergís. En, Nanna mín, uppskriftin sem var valin er allt eins þín ef farið væri eftir höfundarlegri skilgreiningu lögfræðinnar. Mamma fékk þegar ég var sjö til tíu ára danska uppskrift frá þér sem er meginhugmyndin að baki uppskriftar minnar. Uppskrift- in verður fljótlega birt í Vikunni ásamt mynd af okkur stelpunum sem nú erum allar orðnar stórar. Flestar ef ekki allar mömmur og nokkrar orðnar ömmur. Ég man að þú, Borgþór, tókst mig, Ernu dóttur þína og systur mína Halldóru Lydiu á jólaball í Stapan- um þegar við vorum litlar. Þú kennd- ir okkur að dansa í kringum jólatréð og syngja jólalög. Ég man svo vel eftir því þegar þú varst að spila fyrir okkur Karíus og Baktus á plötuspil- arann þinn. Ég vildi fá að heyra sönginn aftur og aftur. Einnig man ég þegar þið voruð flutt á Háteigsveginn. Afi minn og amma áttu hús við götuna uppi við vatnsgeyminn. Húsið var mannlaust. Mig langaði alltaf að byggja þar nýtt hús og flytja þangað. Erna ætlaði að fylgjast með húsinu. Dag nokkurn hringdi Erna og sagði að það væri verið að skemma þar allt. Urðum við fljótari en lögreglan alla leið frá Hafnarfirði til þess að stoppa leik- inn. Fyrir Geymisvellina við Há- teigsveg fengust síðar eignarnáms- bætur. Hafið þið þökk fyrir og gæfan fylgi fjölskyldu ykkar í framtíðinni Margrét Þórðardóttir. Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, afi og langafi, HAUKUR GUÐMUNDSSON, Æsufelli 2, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 28. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á FAAS, Félag aðstandenda alzheimerssjúklinga. Sigurbjörg Eiríksdóttir, Sigríður Hauksdóttir, Hafliði Albertsson, Guðrún Hauksdóttir, María Thors, Guðmundur Ó. Hauksson, Halldóra Sigfúsdóttir, Gunnar E. Hauksson, Birgitta Bragadóttir, Þór Hauksson, Magnhildur Sigurbjörnsdóttir, Ragnar Hauksson, Esther L. Þórhallsdóttir, Ólafur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, EIRÍKUR SÆLAND garðyrkjubóndi, Espiflöt, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 22. nóvember. Hulda Sæland. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför okkar elskulega ÖRLYGS SIGURÐSSONAR listmálara. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða. Unnur Eiríksdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.