Morgunblaðið - 26.11.2002, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14.
Ben Cronin átti bjarta framtíð, en á
einu augnabliki breyttist allt
saman. Nú er hans mesti aðdáandi
orðin hans versta martröð.
Frábær spennutryl-
lir sem fór beint á
toppinn í
Bandaríkjunum
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Kvikmyndir.com
DV
HJ. MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
DV
5, 7.30 og 10.
1/2Kvikmyndir.com USA Today
SV MblRadíóX
ÓHT Rás 2
Ben Cronin átti bjarta framtíð, en á einu
augnabliki breyttist allt saman. Nú er hans
mesti aðdáandi orðin hans versta martröð.
Frábær spennutryl-
lir sem fór beint á
toppinn í
Bandaríkjunum
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Bi 14. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Hann er með 1000
andlit...en veit
ekkert í sinn haus!
Dana Carvey fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd sem
er framleidd af
Adam Sandler.
One Hour Photo
Sýnd kl. 5.30. B. i. 16.
EYÐIMERKURDÖGUN erjafnframt heiti samtaka,sem sómalska fyrirsætanog rithöfundurinn Waris
Dirie stofnaði á síðasta ári. Sam-
tökin eru helguð baráttunni gegn
þeirri siðvenju að umskera og af-
skræma kynfæri kvenna.
Waris, sem hefur ferðast víða um
heiminn til að kynna bækur sínar
og baráttumál. Hún er nú stödd á
Íslandi í annað sinn og hélt fyr-
irlestur í Íslensku óperunni í gær, á
alþjóðlegum baráttudegi Samein-
uðu þjóðanna gegn ofbeldi gagn-
vart konum.
„Samtökin ganga mjög vel. Það
er mikið verk fyrir höndum og mig
langar ekki til að sóa tíma. Það
þarf að bregðast við núna,“ segir
hún.
Markmið samtakanna
er m.a. að setja upp
heilsugæslustöðvar, ná til
hirðingjasamfélagsins með
færanlegum stöðvum og
fræða kennara í Sómalíu
um skaðleg áhrif þessarar
limlestingar á kynfærum
kvenna.
„Sómalskar stúlkur
mega þola harðneskjuleg-
ustu misþyrminguna. Þá
eru bæði snípurinn og
innri skapabarmarnir
skornir burt og kynfærin
saumuð saman svo aðeins
er eftir lítið gat.“ (16)
Sjálf upplifði Waris
þessa misþyrmingu ung að árum.
Hún ákvað snemma að taka örlögin
í eigin hendur og flúði að heiman
um 13 ára gömul, líkt og hún hefur
lýst í Eyðimerkurblóminu og Eyði-
merkurdögun en síðastnefnda bók-
in er nýkomin út hjá JPV. Hún
hlaut frægð og frama í fyr-
irsætuheiminum, en það var í við-
tali við tískublaðið Marie Claire
fyrir fáeinum árum, sem hún sagði
sögu sína í fyrsta sinn og greindi
opinskátt frá lífsreynslu sinni. War-
is er jafnframt sérlegur sendiherra
Sameinuðu þjóðanna, þar sem hún
berst einnig gegn umskurði stúlku-
barna.
„Það er ekki hægt að breyta lifn-
aðarháttunum í Afríku, maður
verður bara að aðlagast þeim.“ (78)
Waris segir viðhorf fólks í heima-
landi sínu og víðar vera hindrun á
framfaravegi breytinga. „Við vitum
öll um vandamálin og um þá hræði-
legu hluti, sem eiga sér stað í heim-
inum. Það þarf að bara bregðast
við þeim og berjast fyrir breyt-
ingum.“
Hún minnist þess ennfremur að
börn um allan heim þjáist á hverj-
um einasta degi. „Mér finnst heim-
urinn mjög sorglegur. Ég berst
fyrir börnin. Þaðan kemur styrk-
urinn. Ég hugsa fyrir þau, líð fyrir
það sem þau þurfa að líða og tala
máli þeirra. Þess vegna get ég
haldið áfram dag eftir dag. Þetta
snýst ekki um mig.“
Waris segir starf sitt hafa skilað
árangri. „Mér finnst ég vera að ná
til heimsins. Ég get
miðlað tilfinningum
mínum og það er það
sem ég geri,“ segir hún.
„Á Vesturlöndum
reynir fólk í sífellu að
fylla eitthvert tóm. Þar
eru allir í sífelldri leit.“
(115)
„Það eru allir hér í
sífelldu kappi við tím-
ann en komast ekkert
áfram. Það er betra að
vakna og athuga hvern-
ig manni líður og hvert
dagurinn leiðir mann.
Ég skipulegg aldrei
neitt.“
Í Eyðimerkurdögun
lýsir Waris ferð sinni til
Sómalíu og endur-
fundum við fjölskyld-
una eftir langa fjar-
veru. Hún ætlar að fara
til Sómalíu innan tíðar,
ásamt Aleeke, syni sín-
um. „Eftir nokkra mán-
uði. Enshallah, ef Guð
lofar. Aleeke spyr á
hverjum degi hvenær
við förum til Afríku.“
„Þegar ég kom til
Sómalíu var ég eins og
hver önnur manneskja.
Ég fann aldrei til ótta,
ekki eitt andartak.“
(189)
Vinir Warisar hafa
lýst yfir ótta sínum um
að öfgamanneskja ráð-
ist á hana vegna hugð-
arefna hennar. „Eng-
inn getur ógnað mér. Ég er ekki
hrædd við aðrar manneskjur. Að-
eins Guð getur sært mig. Það eru
allir svo hræddir við eitthvað. Til
hvers? Maður á bara eitt líf, sem
maður verður að nota.“
„Þetta ættbálkakarp stendur í
vegi fyrir því að það sé hægt að
leysa vandamálin sem þjóðin stend-
ur frammi fyrir. Ef þú færir ein-
hvern tímann frá Sómalíu myndir
þú skilja að við erum öll af sömu
þjóð!“ (125)
Waris segir framtíðina bjarta
fyrir heimaland sitt. „Landið mitt
er að breytast. Það er loksins frið-
ur. Lífið þar er að breytast til hins
betra. Landið verður að lækna
sjálft sig.“
Kannski er ekki skrýtið að henni
finnist allt mögulegt þegar hún
sjálf hefur áorkað svo miklu. „Ef ég
hugsa um hvaðan ég er, hvernig ég
var alin upp, þá er það algjört
kraftaverk að sitja hér með tvær
metsölubækur. Ég hef lært að allt
er mögulegt. Lífið er stöðug áskor-
un.“
Snýst ekki
um mig
Morgunblaðið/Kristinn.
Sómalska baráttukonan Waris Dirie hræðist ekkert nema Guð og telur að allt sé mögulegt.
Baráttukonan Waris Dirie segist
umfram allt vera að lýsa tilfinningum
sínum. Inga Rún Sigurðardóttir ræddi
við hana og rýndi í nýjustu bók
hennar, Eyðimerkurdögun.
TENGLAR
.....................................................
www.desertdawn.com
ingarun@mbl.is
Waris Dirie, sómalska hirðingjastúlkan, sem varð heimsfræg