Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 21
HALDIN var söngskemmtun á fé-
lagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sl.
sunnudag þar sem fram komu þær
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og
Anna Guðný Guðmundsdóttir sem
lék undir á píanó.
Alls söng Díddú um 23 lög, í
blandaðri dagskrá, auk þess sem
Anna Guðný spilað einleik á pí-
anó. Voru góðar undirtektir
hjá tónleikagestum sem voru
vel yfir 200 manns. Tónleik-
arnir voru í boði lista og menn-
ingarnefndar Snæfellsbæjar.
Tónleikarnir eru liður í há-
tíðarhöldum vegna 100 ára af-
mælis gamla félagsheimilisins
við Gilið.
Morgunblaðið/Alfons
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir á tónleikunum.
Haldið upp á 100
ára afmæli Gilsins
Ólafsvík
ÞAÐ er nóg um að vera fyrir íbúa
á Akranesi sem teljast til eldri
borgara bæjarins og nú hefur
boccia bæst í fjölbreytta flóru fé-
lags eldri borgara á Akranesi,
FEBAN.
Leikið er tvisvar í viku í sal fé-
lagsins sem áður tilheyrði Verka-
lýðsfélagi Akraness en nú hafa
reyndustu íbúar knattspyrnubæj-
arins lagt salinn undir sig og
stunda þar ýmislega tómstunda-
starfsemi.
Má þar nefna dans, kórsöng,
spilakvöld og nú boccia en verið er
að breyta húsnæðinu á þann veg
að þar verði hægt að stunda ým-
iskonar hannyrðir í samvinnu við
Dvalarheimilið á Höfða.
Að auki er FEBAN með fasta
tíma í keilusal bæjarins í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu og er Morg-
unblaðið leit við á bocciaæfingu fé-
lagsins var það mál manna að þeir
sem vildu gætu haft nóg fyrir
stafni á hverjum virkum degi, en
boðið er uppá vatnsleikfimi í
Bjarnalaug einu sinni í viku yfir
vetrartímann.
Þessu til viðbótar er golfið
stundað af krafti á sumrin en þá
hittist hópurinn á Garðavelli og
púttar grimmt á æfingaflötinni við
golfskála Leynismanna.
Líf og fjör en hörð keppni
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Það var rafmagnaður keppnisandi sem sveif yfir vötnum þegar eldri borg-
arar spreyttu sig og Málfríður Þorvaldsdóttir gaf ekkert eftir í keppni.
Akranes
ÞEIM brá heldur betur í brún sem
leið áttu um Langadal í Austur-
Húnavatnssýslu síðastliðinn laug-
ardag því eyðibýlið Strjúgsstaðir
stóð í björtu báli. Alvaran var þó
minni en efni stóðu til því hér var
um brunaæfingu hjá slökkviliðs-
mönnum í A-Hún. að ræða. Rífa á
húsið og þótti tilvalið að nýta það
áður til æfinga í brunavörnum og
til að kanna tækjakost. Æfingin
tókst ágætlega og sannaði fyrir
mönnum að afl og eyðingarmáttur
eldsins er mikill. Haft var á orði að
gott væri að slökkviliðsmenn þyrftu
einungis að sinna æfingum og
„leika “ sér að eldinum en vanga-
veltur sem þessar eru því miður
fjarri hinum kalda raunveruleika
og mikilvægt að vera ávallt viðbú-
inn alvörunni.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Slökkviliðsmenn í A-Húnavatns-
sýslu gengu vasklega fram á bruna-
æfingu á bænum Strjúgsstöðum.
Brunaæfing
í Langadal
Blönduós