Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 31
FRÁ apríl 1990 hafa hámarks-
greiðslur lyfja fyrir elli- og örorku-
þega, börn og atvinnulausa hækkað
úr 5.000 kr í 18.000 kr. Hækkunin
vegna röntgenþjónustu hefur á sama
tíma hækkað um 13,3% og hámarkið
er 18.000. Heildarafsláttur lyfjabúða
hefur minnkað í allflestum búðum.
B-merktu lyfin, eins og t.d. asma-,
exem- og hjartalyf, hækkuðu um 55%
frá jan. ’98 til jan. ’02. Raunhækkun
hefur þrátt fyrir lágmarksgreiðslur
orðið um 64% frá janúar 2002. Áður
greiddu lífeyrisþegar ákveðið lág-
marksgjald að viðbættum 15% af
heildarverði lyfja, þó ekki meira en
rúmar 600 kr. á verðlagi 2002. Þetta
hlutfall hefur nú hækkað úr 15% í
50%. Það þýðir að hámarksgreiðsla
þeirra hækkaði um 72% frá 1. jan ’98
og er nú 1.050 kr. á hvert lyf í þessum
flokki. Raunhækkun á E-merktum
lyfjum, t.d. giktar-, maga-, hormóna-
lyfjum og ýmsum verkjalyfjum, er
um 53% frá 1. jan 1998 en hámark um
22% og getur hlutur sjúklings orðið
4.950 kr. Lágmarksgreiðslur elli- og
örorkuþega hafa á þessum fjórum ár-
um hækkað um 65% á sambærilegu
verðlagi en hámarksgreiðslur hafa
hækkað um 25% og eru nú 1.375 kr. á
hvert lyf. Ráðamenn virðast ekki
gera sér ljóst að hlutfallslega lang-
stærsti neytendahópur lyfja eru elli-
og örorkuþegar. Þess skal getið að
hið opinbera niðurgreiðir lyf einna
minnst til sjúklinga utan sjúkrahúsa
á Norðurlöndunum.
Niðurgreiðsla hins opinbera á
lyfjum sjúklinga utan spítala á
Norðurlöndunum:
1990 1999 2001
Finnland 64% 62%
Svíþjóð 59% 64%
Noregur 49% 55%
Ísland 57% 50% 48% 1
Danmörk 46%
1 Upplýsingar frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Health Statistics in the Nordic co-
untries 1999.
Lyfjakostnaður
hefur stóraukist
Eftir Ólaf
Ólafsson
Höfundur er formaður Félags eldri
borgara.
„Ráðamenn
virðast ekki
gera sér
ljóst að hlut-
fallslega
langstærsti neytenda-
hópur lyfja eru elli- og
örorkuþegar.“
ÁR hvert frá 1995 hefur Sjálfs-
björg haldið upp á Alþjóðadag fatl-
aðra 3. desember, með því að vekja
athygli á þeim fyrirtækjum og
stofnunum sem meðvitað hafa unn-
ið að því að byggja aðgengileg
mannvirki eða bæta aðgengi í eldri
húsum. Á þessu tímabili hefur ver-
ið veitt 41 viðurkenning og með
þessum sem afhentar verða í dag
hafa 49 fyrirtæki og stofnanir í
landinu hlotið viðurkenningu
Sjálfsbjargar. Í dag heldur Sjálfs-
björg upp á Alþjóðadag fatlaðra á
tveimur stöðum.
Kl. 17.00 verður athöfn í félags-
heimili Sjálfsbjargar, félags fatl-
aðra á höfuðborgarsvæðinu, Há-
túni 12, þar sem Bókasafni
Hafnfirðinga og Borgarbókasafni
Reykjavíkur, Tryggvagötu, verða
veittar viðurkenningar fyrir gott
aðgengi.
Kl. 18.00 verður svo önnur at-
höfn á Hótel Eldhestar, Völlum í
Ölfusi þar sem sex viðurkenningar
verða veittar. Fjögur fyrirtæki á
Selfossi fá viðurkenningar en það
eru Árvirkinn ehf., Eyrarvegi 32,
Húsasmiðjan, Eyrarvegi 42, Mið-
garður, Austurvegi 4, og Kjarninn,
Austurvegi 3–5. Í Hveragerði fær
Hjúkrunarheimilið Ás, Hverahlíð
20, viðurkenningu og Hótel Eld-
hestar í Ölfusi.
Flutt verða ávörp, tónlist leikin
og kaffiveitingar. Allir félagsmenn
og velunnarar eru velkomnir.
Sjálfsbjörg vinnur markvisst að
bættu aðgengi með fræðslu og
upplýsingagjöf. Sl. haust var hald-
in námsstefnan „Hönnun fyrir
alla“ í samvinnu við Endurmennt-
unarstofnun. Námstefnuna sóttu
arkitektar, byggingafulltrúar og
aðrir sem að hönnun koma og ráð-
gera sömu aðilar að halda þrjú
hagnýt námskeið um hönnun að-
gengilegs umhverfis á næsta ári.
Þá var „Aðgengi fyrir alla“, hand-
bók um umhverfi og byggingar,
endurútgefin hjá Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins en hún
hafði selst upp sl. sumar. Þessi bók
inniheldur nákvæmar lýsingar og
teikningar og er ómissandi öllum
þeim sem vinna við skipulag og
hönnun mannvirkja. Á heimasíðu
Sjálfsbjargar er að finna upplýs-
ingar um aðgengilega staði á Ís-
landi. Margir, bæði einstaklingar
og fyrirtæki, hafa gert frábæra
hluti eins og sjá má þegar upplýs-
ingarnar eru skoðaðar. Þessi síða
er ný og eiga vonandi margir aðrir
aðgengilegir staðir eftir að finna
leið inn í gagnagrunninn.
Í dag verður forsýnd jólamynd
Disney, Santa Claus 2 með Tim
Allen. Forsýningin hefst klukkan
19:00 í Kringlubíói. Almennt miða-
verð gildir á sýninguna og rennur
allur ágóði sýningarinnar til
styrktar Sjálfsbjörg, lsf. og verður
fénu varið til endurnýjunar á íbúð-
um Sjálfsbjargar í Hátúni 12.
Einnig gefur Sjálfsbjörg út
geisladiskinn „Ástin og lífið“ en
hann inniheldur 14 áður útgefin
lög. Fjöldi hljómlistarmanna hefur
lagt Sjálfsbjörg lið með útgáfu
disksins, sem ætlað er að safna fé
til breytinga og stækkunar á íbúð-
um fyrir hreyfihamlaða í Sjálfs-
bjargarhúsinu.
Næsta ár hefur Evrópuráðið til-
einkað málefnum fatlaðra og ber
þar hæst á góma blöndun, baráttu
og fræðslu gegn mismunun og
bættum lífskjörum. Markmiðið er
að fatlað fólk taki sem virkastan
þátt í samfélaginu. Fyrir hreyfi-
hamlaða fjallar þetta fyrst og
fremst um aðgengi, að fólk finni
bústað sem er aðgengilegur, kom-
ist inn í skólann, á vinnustaðinn og
aðra þá staði sem aðrir borgarar
sækja. Ár fatlaðra 2003 er ár tæki-
færanna, nýtum það sem best í
þágu hreyfihamlaðra og gerum Ís-
land aðgengilegt.
Aðgengi er til
alls fyrst
Eftir Ragnheiði
Kristiansen
„Næsta ár
hefur Evr-
ópuráðið til-
einkað mál-
efnum
fatlaðra og ber þar hæst
á góma blöndun, bar-
áttu og fræðslu gegn
mismunun og bættum
lífskjörum.“
Höfundur er kynningar- og félags-
málafulltrúi Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra.
EITT merkasta framfaramál nú-
verandi ríkisstjórnar var samþykkt
nýrra laga um fæðingar- og for-
eldraorlof nr. 95/2000. Raunar má
fullyrða að lögin um fæðingarorlof
hafi markað tímamót í jafnréttis-
og fjölskyldumálum hér á landi.
Fyrir gildistöku núverandi laga
um fæðingar- og foreldraorlof
höfðu feður ekki sjálfstæðan rétt
til fæðingarorlofs. Sú staðreynd
leiddi af sér ýmsa mismunun á
stöðu kynjanna, bæði innan fjöl-
skyldunnar og á hinum almenna
vinnumarkaði. Þannig áttu feður
þess ekki kost að njóta samvista
við börn sín á fyrstu ævimánuðun-
um og þá er jöfn ábyrgð foreldra á
uppeldi barna sinna forsenda þess
að kynin geti staðið jafnfætis á
vinnumarkaði.
Sjálfstæður réttur karla til fæð-
ingarorlofs var því mikið réttlæt-
ismál fyrir bæði kynin. Það er oft
erfitt að meta í krónum og aurum
ávinning samfélagsins af auknu
jafnrétti og traustari fjölskyldu-
böndum. Íslensk stjórnvöldu
ákváðu eigi að síður að sýna mik-
inn rausnarskap við lögfestingu
nýju fæðingarorlofslaganna. Mæltu
þau fyrir að feður skyldu hafa jafn-
an rétt til fæðingarorlofs á við
mæður. Það er í sjálfu sér ástæðu-
laust að leyna þeirri staðreynd að
hér var um kostnaðarsama aðgerð
að ræða. Þannig eru gjöld ríkis-
sjóðs vegna fæðingarorlofs áætluð
rúmir 5 milljarðar króna í frum-
varpi að fjárlögum fyrir árið 2003.
Er því full ástæða til að hrósa rík-
isstjórninni fyrir þá framsýni sem
fæðingarorlofslögin bera með sér.
Eins og gerist og gengur voru þó
menn misjafnlega framsýnir innan
ríkisstjórnarinnar. Þannig töldu
ýmsir að tilvalið væri að brýna
hinn alræmda niðurskurðarhníf á
þeim lið í fjárlögunum sem mælti
fyrir um gildistöku annars áfanga
feðraorlofsins við gerð fjárlaga fyr-
ir árið 2002, en við samþykkt lag-
anna hafði verið ákveðið að feðra-
orlofið skyldi taka gildi í þremur
áföngum. Það er hins vegar ljóst
að hefði öðrum áfanganum verið
frestað hefði málið allt verið sett í
uppnám og hefði þá allt eins mátt
búast við því að frestunin yrði til
eilífðarnóns.
Til allrar hamingju mótmæltu
fjölmargir þessum ráðagerðum. Á
engan er hallað þótt hér verði sér-
staklega minnst á hlut ungra fram-
sóknarmanna í þeirri baráttu. Hinn
27. nóvember er einmitt ár liðið frá
því að framkvæmdastjórn Sam-
bands ungra framsóknarmanna
sendi frá sér ályktun þar sem þess-
um sparnaðaráformum var mót-
mælt og þess krafist að í engu yrði
hvikað frá þeirri stefnu ríkisstjórn-
arinnar að feður skyldu njóta jafns
réttar til fæðingarorlofs.
Viðbrögðin létu ekki á sér
standa og í kjölfarið fundu menn
aðra fjárlagaliði til að brýna nið-
urskurðarhnífinn. Um næstu ára-
mót mun síðan lokaáfanganum
verða náð. Þann dag verður brotið
blað í sögu jafnréttismála á Ís-
landi.
Jafn réttur
feðra í höfn
Eftir Finn Þór
Birgisson
Höfundur er lögfræðingur og
fyrrverandi varaformaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna.
„Um næstu
áramót mun
síðan loka-
áfanganum
verða náð.
Þann dag verður brotið
blað í sögu jafnréttis-
mála á Íslandi.“
B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8
w w w . b u s e t i . i s
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
umsóknarfrestur til og með 10. desember
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Með umsóknum
um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila: síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 11. desember kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti
gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.
N Ý T T H Ú S
Kristnibraut 61-63, Reykjavík
Tvær 3ja herb (89/91m2)eftir
Búsetur.: 1.764.732/1.800.303
Búsetugjald: 76.592/78.136
Sex 4ra herb. (99-109m2)eftir
Búseturéttur frá kr. 1.960.374
til 2.154.040
Búsetugjald frá 85.082 til
93.488
Almenn lán
Afhending 16. maí 2003
3ja herb.2ja herb.
Miðholt 3, Hafnarfirði
90m2 íbúð 202 Leiguíb.lán
Búseturéttur frá kr. 1.082.369
til 1.126.691
Búsetugjald kr. 45.434
Laus 1.6.03 eða skv samkomulagi
Kristnibraut 67 , Reykjavík
92m2 íbúð 206 Alm.lán
Búseturéttur frá kr. 1.865.268
til 1.880.398
Búsetugjald kr. 79.361
Laus strax að ósk seljanda
Garðhús 2 , Reykjavík
80m2 íbúð 201 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.821.698
Búsetugjald kr. 38.591
Laus í mars 2003 að óskseljanda
Miðholt 13, Mosfellsbæ
82m2 íbúð 101 Alm.lán
Búseturéttur frá kr. 1.553.457
til 1.568.886
Búsetugjald kr. 59.847
Laus 15.feb. 2003 að ósk seljanda
Berjarimi 7, Reykjavík
67m2 íbúð 201 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.255.375
Búsetugjald kr. 44.203
Laus strax að ósk seljanda
Arnarsmári 4, Kópavogi
54m2 íbúð 203 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 745.876
Búsetugjald kr. 29.046
Laus strax að ósk seljanda
Skólatún 1, Bessastaðahreppi
69m2 íbúð 102 Leiguíb.lán
Búseturéttur frá kr. 739.128
til 745.460
Búsetugjald kr. 30.095
Afhent skv. samkomulagi
Eiðismýri 22, Seltjarnarnesi
59m2 íbúð 102 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 1.169.425
Búsetugjald kr. 35.491
Laus fljótlega að ósk seljanda
Íbúð með almennum lánum veitir rétt til vaxtabóta.
Íbúð með leiguíbúðalánum veitir rétt til húsaleigubóta.
4ra herb.
Lerkigrund 7, Akranesi
94m2 íbúð 301 Alm.lán
Búseturéttur frá kr. 1.338.467
til 3.878.478
Búsetugjald frá kr. 62.061til
77.085
Laus skv. samkomulagi í des.
Suðurhvammur 13, Hafnarf.
102m2 íbúð 301 Leiguíb.lán
Búseturéttur kr. 2.036.196
Búsetugjald kr. 56.118
Laus fljótlega að ósk seljanda
Blikaás 19, Hafnarfirði
1142 íbúð 102 Alm.lán
Búseturéttur kr. 1.587.421
Búsetugjald kr. 82.916
Laus strax
N Ý T T H Ú S Þverholt 13-15, Mosfellsbæ
Sjö 2ja herb. 54-83m2, átta 3ja herb. 82-90,3m2 og þrjár 4ra herb.
100 -119m2. Almenn lán. Afhending 4. apríl 2003
Búseturéttur kr. 1.141.794-1.574.294, 1.567.060-1.751.331 og
1.845.535-2.119.618
Búsetugjald kr. 57.203-78.154, 77.804-86.731 og 91.293-104.571