Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 35
✝ Helga Þórarins-dóttir fæddist á
Hvoli í Hvolhreppi í
Dalasýslu 21. apríl
1919. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Sólvangi í Hafnar-
firði 24. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Steinunn
Valdimarsdóttir, f.
7. apríl 1894, d. 5.
júlí 1969, og Þórar-
inn Jónsson, f. 13.
nóvember 1866, d.
4. apríl 1943, lengst
á Beinakeldu í A-Hún. Bróðir
Helgu er Ragnar A. Þórarinsson
á Blönduósi, f. 1. október 1924.
Hinn 10. ágúst 1940 giftist
Helga Pálma Helga Ágústssyni
kennara, f. 12. desember 1911.
Foreldrar hans voru Ágúst
Pálmason húsvörður í Hafnar-
firði og Sigríður Jónsdóttir kona
hans. Þau hófu búskap sinn í
Viðey, þar sem Pálmi var kenn-
ari, og jafnframt sá síðasti sem
gegndi störfum kennara þar. Þá
fluttu þau til Hafnarfjarðar og
bjuggu lengst af á Hringbraut
69 þar í bæ. Börn Helgu og
Pálma eru: 1) Árdís
Eygló, f. 9. maí
1940, meinatæknir,
búsett í Noregi, m.
1. Kaare Mjelde
stærðfræðingur, f.
28. desember 1938,
látinn, m. 2. Jon
Kaare Schultz arki-
tekt. 2) Steinunn, f.
13. nóvember 1941,
kennari í Hafnar-
firði, m. Pétur
Trausti Borgarsson,
f. 6. desember 1940,
vélfræðingur 3)
Friðrik Ágúst, f. 13.
nóvember 1941, rafeindavirki í
Garði, k. Kristjana Þorbjörg Vil-
hjálmsdóttir stöðvarstjóri, f. 3.
júní 1941. 4) Þórarinn, f. 7. maí
1944, aðalbókari á Höfn í
Hornafirði, k. Guðlaug Björg-
vinsdóttir starfstúlka við
umönnun aldraðra, f. 6. október
1946. 5) Guðlaug J., f. 8. júlí
1954, kennari í Hafnarfirði, m.
Magnús Kjartan Bjarkason
prentari, f. 14. nóvember 1953.
Helga verður jarðsungin frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Helga ólst upp hjá foreldrum sín-
um til tíu ára aldurs í Húnavatns-
sýslu, en þá var hún send í fóstur að
Víkum á Skaga og var þar til sextán
ára aldurs. Um tvítugt fór hún til
náms í Kvennaskólanum á Blöndu-
ósi. Eftir vistina þar réð hún sig sem
kaupakonu að Steinnesi. Þar var
fyrir kaupamaður ungur kennari
Pálmi Helgi Ágústsson. Þarna réð-
ust örlög þeirra beggja, því að þau
felldu hugi saman og giftu sig þar
hjá prófastinum séra Þorsteini
Gíslasyni.
Fyrsta árið bjuggu þau í Viðey,
en þá var elsta dóttirin Árdís fædd.
Þá flytja þau til Hafnarfjarðar og
bjuggu fyrstu árin hjá Aðalbjörgu
Jónsdóttur móðursystur Pálma, og
þar fæddust tvíburarnir Steinunn
og Friðrik Ágúst árið 1941 og Þór-
arinn árið 1944. Árið 1949 byggðu
þau ásamt systkinum Pálma hús að
Hringbraut 69 í Hafnarfirði og
flytja inn í það 1952 og þar fæðist
Guðlaug 1954.
Þarna bjó fjölskyldan saman í
ótrúlegu samlyndi í fjörutíu ár.
Helga stundaði ýmsa vinnu utan
heimilis í mörg ár, og var jafnan
hvers manns hugljúfi, því hennar
létta lund og sérstaka góðmennska
heillaði alla sem henni kynntust.
Hún var gædd þeim eiginleika að
kunna að gleðja aðra, og þeir sem
áttu um sárt að binda fengu að
kynnast vináttu hennar og tryggð.
Móðir okkar var ljóðelsk og hafði
yndi af lestri góðra bóka og las mik-
ið meðan sjónin leyfði. Við systkinin
minnumst hennar sem góðrar móð-
ur og ekki síður sem góðs félaga.
Hún var trúhneigð og innprentaði
okkur systkinunum í æsku, að taka
ætíð svari þeirra sem minna máttu
sín. Barnabörnin og barnabarna-
börnin nutu ástar og hlýju og minn-
ast ástríkrar ömmu sem umvafði
þau af sérstakri elsku og natni.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson.)
Fyrir fjórum árum fór heilsu
hennar að hraka, og fór hún þá á
Hjúkrunarheimilið Sólvang og naut
hún þar hlýju og frábærrar umönn-
unnar starfsfólksins. Viljum við
færa því góða fólki okkar bestu
þakkir.
Þórarinn Pálmason og systkini.
Ég minnist Helgu, tengdamóður
minnar, með þakklæti fyrir allt, hún
var einstaklega hlý og létt kona,
sem gott var að hafa í návist sinni.
Í ferðalagi sem við fórum norður í
Húnavatnssýslu með Helgu, keyrð-
um þá fyrir Skaga og út að Víkum,
en þar dvaldist Helga sem barn og
fram á unglingsár, langt frá foreldr-
um sínum. Sá ég hana fyrir mér,
netta og hláturmilda, létta í spori,
og svo viljuga til verka, hún fermd-
ist þar frá lítilli kirkju að Ketu.
Helga minntist þess að einu sinni
þegar hún fór í heimsókn til foreldra
sinna, þá að Beinakeldu. Var það
tveggja dag gönguferð. Helga talaði
hlýlega um fólkið sem hún hafði um-
gengist, og þar sem við komum við
var henni tekið opnum örmum.
Helga og Pálmi bjuggu í Hafn-
arfirði, lengst af að Hringbraut 69,
þar var komið við í öllum okkar
ferðum og voru þau ætíð kát og
hress, Pálmi vildi fræða okkur svo-
lítið um trjáræktina og Helga lét sér
annt um börnin, sem voru mjög
hænd að ömmu og afa. Eftir að
Pálmi lést, bjó Helga ein meðan
heilsan leyfði, en þá naut hún þess
að dætur hennar bjuggu nærri
henni og létu sér einstaklega annt
um hana, einnig eftir að hún var
komin á Sólvang, þar sem Helga
fékk mjög góða umönnun í erfiðum
veikindum.
Vertu Guði falin, elsku Helga.
Kristjana Vilhjálmsdóttir.
Elsku amma, nú er komið að
kveðjustund. Ég veit að þér er ætlað
stórt og mikið hlutverk á himnum.
Þú varst verndarengillinn minn í
þessu lífi og nú veit ég að ég á góðan
bandamann á himnum. Ég man svo
vel eftir því þegar ég var yngri og
hjá þér alla morgna. Ég lék mér, þú
hjálpaðir mér við erfiðustu púslu-
spilin og við spiluðum á spilin með
myndinni af fossinum. Ég veit núna
að þú leyfðir mér alltaf að vinna. Við
eldhúsborðið vildi ég alltaf sitja á
tunnunni. Þú gafst mér alltaf flat-
köku og hnetujógúrt en afi fékk
hafragraut, undanrennu og greip.
Ég veit að þú saknaðir hans mjög
mikið eftir að hann dó, en nú eruð
þið saman á ný og það gleður mig.
Ég er svo feginn að ég kynntist þér
svona vel og svo þakklátur fyrir all-
ar yndislegu minningarnar. Þannig
lifir þú að eilífu í hjarta mínu.
Elsku amma, ég elska þig og
sakna þín en ég veit að ég mun hitta
þig aftur einn góðan veðurdag, þeg-
ar þú tekur á móti mér í himnaríki.
Ásgeir Helgi Magnússon.
Elsku amma, okkur langaði að
segja nokkur orð um þig og hvað þú
hefur gert fyrir okkur systurnar.
Ég man alltaf eftir því þegar við
komum til ömmu og afa með rútunni
og hún amma beið í rútuskýlinu og
stoppaði rútuna og við tvíburarnir
hoppuðum út. Amma leiddi okkur á
milli sín upp að Hringbraut 69 og
þegar við vorum rétt komnar að
húsinu sáu Gunna og Sirrý okkur og
komu niður, fengu hana Hildi systur
mína lánaða til að gefa henni gos og
kökur en ég hins vegar er ekki mik-
ið fyrir sykurfæði og það vissi hún
amma mín og hún vissi alveg hvað
var uppáhaldið mitt, það var nefni-
lega egg á brauð og mjólkurglas. Ég
settist uppá tunnuna í einu horninu
á eldhúsinu og horfði á hana ömmu
mína útbúa handa mér uppáhaldið
mitt.
Ég man hvað mér fannst hún góð
og natin við að hugsa um okkur
systurnar þegar við vorum í heim-
sókn hjá ömmu Helgu á Hring-
brautinni. Það var lesið á kvöldin,
spilað á spil og svo sönglaði hann afi
Pálmi fyrir okkur og alla sem komu
til þeirra, það var alveg yndislegt að
vera hjá ömmu og afa, svo mikill
kærleikur sem umvafði þau. Það var
líka voða gott að koma til hennar á
Sólvang og sjá hlýja brosið hennar
ömmu og Eva Lín, Ágúst Annel og
Þórarinn Vagn höfðu mjög gaman af
heimsóknunum til hennar lang-
ömmu.
En elsku amma, nú ertu komin til
hans afa og mikið hlýtur að vera
glatt á hjalla. Hann tekur svo vel á
móti þér, elsku amma.
Kannski hann syngi fyrir þig eins
og eitt lag. Þú hefur nú örugglega
saknað þess að heyra ekki sönglið
hans en nú ertu hjá honum.
Guð veri með þér, elsku amma.
Helga, Hildur og Steinunn
Ágústsdætur og börn.
HELGA
ÞÓRARINSDÓTTIR
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar og tengdamóður,
HULDU GUÐNADÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Hlíðar góða
umönnun.
Hjörtur Pálsson, Steinunn Bjarman,
Hreinn Pálsson, Margrét Ólafsdóttir
og aðrir vandamenn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
GUNNLAUGUR SIGURBJÖRNSSON,
lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum sunnu-
daginn 24. nóvember.
Útförin fór fram í kyrrþey laugardaginn 30. nóv-
ember að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristbjörg Gunnlaugsdóttir, Halldór Bergsson,
Gunnar K. Gunnlaugsson, Hafdís Baldvinsdóttir,
Björn Þór Gunnlaugsson, Olga Ingimundardóttir,
Þórbjörg Gunnlaugsdóttir, Axel Guðlaugsson,
Snjólfur Gunnlaugsson, Rósarío Inga Payla.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
HRAFNKELL SVEINSSON
flugumferðarstjóri,
er látinn.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Þorbjörg Magnúsdóttir,
Sigríður Hrafnkelsdóttir, Richard Korn,
Ísak Ríkharðsson.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, bróðir og afi,
ÍSLEIFUR ÖRN VALTÝSSON,
Klukkubergi 12,
Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut föstudaginn 29. nóvember.
Sigurbjörg Þorvarðardóttir,
Halldóra Skúladóttir,
Valtýr Sigurður Ísleifsson, Aðalbjörg Guðgeirsdóttir,
Harpa Melsteð, Björgvin Pétursson,
systkini og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN BÖÐVARSDÓTTIR
frá Bólstað, Mýrdal,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 16. nóvember sl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Þökkum starfsfólki Grundar góða ummönnun.
Sigurbjörn G. Guðmundsson, Málfríður Ögmundsdóttir,
Kolbrún Elín Andersen, Friðjón Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn elskulegur og faðir okkar,
PÉTUR Á. THORSTEINSSON,
Austurbrún 4,
Reykjavík,
er látinn.
Hrefna J. Thorsteinsson
og börn.