Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert samstarfsfús, en
missir þó ekki sjónar á tak-
markinu þótt ágreiningur
sé um leiðir að því.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu það ekki koma þér á
óvart þótt orsakir deilu
þinnar og vinar þíns séu aðr-
ar en fram kemur á yfirborð-
inu. Vertu því þolinmóð/ur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Skoðanir þínar hafa vakið
nokkra andstöðu sem þú
þarft að taka tillit til og yf-
irvinna með fullri sanngirni.
Treystu á sjálfan þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Reyndu að umbera fólk þótt
það geti verið þreytandi á
stundum. Einhver ágrein-
ingur gæti komið upp varð-
andi heimilisþrifin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sýndu varfærni á öllum svið-
um, ekki síst í peningamál-
unum, því það tekur oft
skamma stund að gera af-
drifarík mistök á því sviði.
Farðu því varlega í einu og
öllu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnast sumar persónu-
legar skoðanir starfsfélaga
þinna út í hött. Forðastu að
vera með stóryrtar yfirlýs-
ingar um líf annarra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur látið margt reka á
reiðanum en nú verður ekki
hjá því komist að taka málin
föstum tökum. Nú er að
bretta upp ermarnar og
drífa sig í að klára hlutina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Yfirmenn þínir eru ánægðir
með störf þín svo þú getur
baðað þig í sviðsljósinu um
sinn. Njóttu velgengninnar á
meðan þú hefur byr í seglin.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gleymdu því ekki að tvær
hliðar eru á öllum málum og
oft þarf lítið til að skapa mis-
skilning.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Segðu hug þinn tæpitungu-
laust og þá muntu fá áheyr-
endur. Njóttu þessa hæfi-
leika þíns.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vinskapur er þér mikilvæg-
ur. Þú skalt hugleiða hvern-
ig þú hefur reynst þínum
nánustu vinum. Gætir þú
hugsað þér að eiga vin sem
hefur sömu eiginleika og þú?
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að hvíla þig og
hlaða batteríin fyrir átök
sem eru framundan. Farðu
þér hægt því tækifærin
hlaupa ekkert frá þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú efast um hefðbundin
gildi. Efldu trúarlíf þitt og
leitaðu svara við spurning-
um þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 3. des-
ember, verður áttræð
Mikkalína Finnbjörnsdóttir
frá Efri-Miðvík í Aðalvík, til
heimilis á Suðurgötu 17,
Sandgerði. Mikkalína verður
að heiman á afmælisdaginn.
LJÓÐABROT
Undrast öglis landa
eik, hví vér erum bleikir.
Fár verðr fagr af sárum.
Fann eg örva drif, svanni.
Mig fló málmr inn dökkvi
magni keyrðr í gögnum.
Hvasst beit hjarta ið næsta
hættlegt járn, er vætta eg.
Þormóður Bessason Kolbrúnarskáld
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Garðakirkju 10.
ágúst sl. af sr. Guðlaugu
Helgu Ágústsdóttur þau
Fífa Konráðsdóttir og Pét-
ur Þór Sigurðsson.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4.
Rf3 Rf6 5. Bg5
0-0 6. e3 Rbd7 7.
Dc2 c5 8. 0-0-0
cxd4 9. Hxd4 Da5
10. cxd5 exd5 11.
h4 Rb6 12. Hf4
Bd6
Staðan kom
upp á Ólympíu-
skákmótinu í
Bled sem lauk
fyrir skömmu.
Svíinn Tiger Hill-
arp Persson
(2.493) hafði hvítt
gegn Kúbumann-
inum Walter
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Arencibia (2.521). 13. Hxf6!
gxf6 14. Bxf6 Rd7 15. Df5!
og svartur gafst upp enda
fátt til varnar eftir t.d. 15. …
Rxf6 16. Dg5+ Kh8 17.
Dxf6+ Kg8 18. Dxd6.
SVEITIR Guðmundar
Hermannssonar og Ís-
lenskra aðalverktaka eru
efstar og jafnar í hrað-
sveitakeppni Bridsfélags
Reykjavíkur. Tveimur lot-
um af fjórum er lokið, en
þriðja lotan verður spiluð í
kvöld í húsnæði BSÍ í
Síðumúla. Lítum á spil frá
síðasta þriðjudegi:
Vestur gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ DG4
♥ KG5
♦ K65
♣D653
Suður
♠ Á5
♥ ÁD842
♦ 94
♣Á872
Vestur Norður Austur Suður
2 spaðar Pass Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Fjögur hjörtu var al-
gengur samningur í NS,
oft eftir opnun vesturs á
veikum tveimur í spaða.
Hvernig myndi lesandinn
spila með laufníunni út?
Útlitið er dökkt. Hvort
sem laufnía vesturs er ein
á ferð eða hærra frá tví-
spili, fær vörnin alltaf tvo
slagi á lauf og einn á tíg-
ulás. Tígulásinn gæti verið
hvorum megin sem er, en
spaðakóngurinn er mjög
sennilega hjá opnaranum.
En í raun er ekki um
margt annað að ræða en
treysta á draumaleguna,
spila tígli á kóng og svína í
spaðanum. Og það gerðu
flestir og fóru einn niður:
Norður
♠ DG4
♥ KG5
♦ K65
♣D653
Vestur Austur
♠ K109632 ♠ 87
♥ 97 ♥ 1063
♦ ÁD82 ♦ G1073
♣9 ♣KG104
Suður
♠ Á5
♥ ÁD842
♦ 94
♣Á872
Steinar Jónsson fann
hins vegar betri leið. Hann
spilaði spaðafimmunni að
blindum í öðrum slag!
Vestur íhugaði málið
um stund, en lét loks lítinn
spaða. Hann óttaðist að
suður ætti einspil í spaða
og þá myndast möguleiki á
trompsvíningu ef tekið er
á kónginn. Eftir þessa
byrjun var spilið léttunnið:
Steinar tók þrisvar tromp,
spilaði tígli á kóng og frí-
aði slag á lauf. Tíu slagir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
THORSTEN, sem er 34 ára
Þjóðverji, óskar eftir ís-
lenskum pennavini. Hann
skrifar á ensku og þýsku.
Torsten Behrens,
Reiner-Lange-Str. 1,
D-21680 Stade,
Germany.
torstenbehrens1@aol.com
HENRYK leitar að íslensk-
um pennavini. Safnar póst-
kortum, peningaseðlum og
fl.
Mr. Henryk Hryniewicz,
Skrytka Pocztowa 29,
ul. Glogowska 46/1,
PL 56-200 Góra Slaska,
Dolny Slask,
Poland - Polska.
JOSÉ óskar eftir íslenskum
pennavini. Hann safnar frí-
merkjum.
José Manuel Cuenca,
Francesc Maciá, 198,
4.°, 2.a,
08292 Esparreguera,
Barcelona,
Espana.
Pennavinir
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í hjónaband 10. ágúst
sl. Anna Sue Rock og Sig-
urður Örn Arnarson, flug-
rekstrarfræðingur. Heimili
þeirra er að: 2878 Cory
Creek Rd., Butte Valley,
California 95965, USA.
Ljósmynd/Oddgeir
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. ágúst sl. í Kefla-
víkurkirkju af sr. Sigfúsi
Baldvini Ingvarssyni þau
Sigrún Vilhelmsdóttir og
Georg H. Georgsson. Heim-
ili þeirra er í Efstaleiti 45,
Keflavík.
Þetta er maðurinn minn! Vertu nú snöggur að selja mér
tryggingu …
Með morgunkaffinu
Laugavegi 84, sími 551 0756
Kjólar • Dragtir • Jakkar
Samkvæmisfatnaður frá
Gallafatnaður
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Fjárfestar / Verktakar
Erum með í sölu 275 m² heila húseign á Laugavegi í Rvk. Húsið stendur
á rúmlega 500 m² lóð m/byggingarétti. Húsið getur selst fullútleigt með
góðum leigutekjum. Í húsinu eru tvær íbúðir og tvær verslanir auk
kjallara. Frábært tækfæri sem vert er að skoða.
Sími
511 2900
Fundur á Hótel Sögu, Sunnusal,
miðvikudaginn 4. desember
klukkan 13:00-16:00
Gerð verður grein fyrir aðferðafræði flokkunarlistans,
uppbyggingu hans og sýnd verða dæmi um notkun hans.
Notendur geta kynnt sér LU-flokkunarlistann í heild sinni að
loknum fyrirlestrum. Lögð er áhersla á að fá viðbrögð notenda.
Verkefnið er á lokastigi og munu notendur geta prófað
LU-flokkunarlista í ákveðinn tíma áður en endanlega
verður gengið frá listanum.
Fundurinn er haldinn á vegum Landmælinga Íslands
og LISU samtakanna.
Dagskrá og nánari upplýsingar á heimasíðum: www.lmi.is og
www.rvk.is/lisa
Skráning: lisa@aknet.is - Verð kr. 2000
1956 - 1996
Kynning
á samræmdum
flokkunarlista fyrir
landupplýsingar
Gullsmiðja
Hansínu
Jens
Seljum eingöngu
smíðað af
Hansínu og Jens Guðjónssyni
Laugaveg 20b v/ Klapparstíg • sími 551 8448
Íslenskt handverk