Morgunblaðið - 03.12.2002, Síða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 45
Varaáætlunin
(Plan B)
Gamanmynd
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS. 101 mín.
Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: Greg
Yaitanes. Aðalhlutverk: Diane Keaton,
Paul Sorvino, Maury Chaykin og Burt
Young.
DIANE Keaton er greinilega langt
frá því að vera á hátindi ferils síns,
eins og reyndar svo margar ágætar
leikkonur sem komnar eru yfir fer- og
fimmtugt. Til að bæta úr skorti á hlut-
verkavali í kvikmyndaleik mun hún
hafa ráðist í gerð þessarar mafíósa-
gamanmyndar með
vini sínum og koll-
ega Paul Sorvino.
Myndin ber þess
dálítil merki að vera
einhvers konar
einkaflipp vina.
Húmorinn er kvik-
indislega svartur og
söguþráðurinn eins
konar spunagrín
sem hefur mjög lítið með fagmennsku
að gera. Diane Keaton leikur þar
óheppna eiginkonu smákrimma sem
sendur er yfir móðuna miklu af yf-
irmönnum sínum í mafíunni. Eigin-
konan, Fran, situr uppi með skuld-
irnar og ákveður mafíósaforinginn að
láta hana vinna fyrir þeim. Fran er
því gerð að handbendi mafíunnar, og
fengin ýmis morðverkefni. En hún á
frekar erfitt með að drepa fólk og los-
ar sig út úr vandanum með skamm-
tímalausnum: Í hvert sinn sem hún er
send til að þurrka einhvern út, sendir
hún viðkomandi til dvalar hjá kunn-
ingja sínum í Flórída en þykist síðan
hafa drepið hann. Þessi grunnhug-
mynd sögunnar er kannski það eina
fyndna í allri myndinni, sem er í raun
langdregin og klaufalega gerð. Diane
Keaton má tvímælalaust muna sinn
fífil fegri. Myndbönd
Subbulegir
mafíósar
Heiða Jóhannsdóttir
Loforði
(The Hard Word)
Spennumynd
Ástralía 2002. Bergvík VHS. (102 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og hand-
rit Scott Roberts. Aðalhlutverk Guy
Pierce, Rachel Griffiths og Robert Taylor.
FRÁ gömlu fanganýlendinni kem-
ur þessi ruddalegi krimmi um þrjá
bræður, fanga, sem sleppt er úr
fangelsi af spilltum fangelsisstjóra
til þess að geta framið hið fullkomna
rán. Þeir bræður telja sig heiðarlega
menn í óheiðarlegum bransa, forðast
m.ö.o. í lengstu lög
allar blóðsúthell-
ingar. Auðvitað fer
allt úrskeiðis sem
getur farið úrskeið-
is og allir svíkja
alla, nema að bræð-
urnir standa ætíð
saman.
Þetta er skilget-
ið afkvæmi Tarantino-myndanna.
Allt voða svalt, ofbeldisdýrkunin í al-
gleymingi og allt að frjósa úr kald-
hæðni. Samt er eitthvað sem gerir
myndina svo afgerandi ástralska,
trúlega húmorinn, sem er einstak-
lega sér á báti, eins og þeir vita sem
séð hafa þær áströlsku myndir sem
náð hafa hylli utan heimalandsins á
liðnum árum.
Leikurinn er líka fínn enda urmull
af góðum áströlskum leikurum til.
Pierce stendur fyrir sínu að vanda,
er sannfærandi glæpamaður, kulda-
legur fauti sem erfitt er að átta sig á.
Myndin er því þegar allt kemur til
alls hinn þokkalegasti krimmi.
Frumleikanum er síður en svo til að
dreifa en afþreyingargildið er gott.
½
Bræður
munu berjast
Skarphéðinn Guðmundsson
ÞAÐ er ekki orðum aukið
að húsfyllir hafi verið á
Míkrófónkvöldi á Sport-
kaffi á miðvikudags-
kvöldið. Þar létu ýmsir
uppistandarar, reyndir og
óreyndir, verkin tala.
Kynnir og einn gleðigjafa
kvöldsins var Sigurjón
Kjartansson, en kvöldið
var haldið í samvinnu við
útvarpsstöðina Radíó X.
Orðið
gefið
laust
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Greinilegt er að mörgum finnst gott að
lyfta sér upp og hlusta á grínsögur í
skammdeginu.
Snorri Hergill Kristjánsson fór
á kostum þetta kvöld á Míkró-
fónkvöldinu á Sportkaffi.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
SPV Þreper góður kostur fyrir þá sem vilja geta
gengið að varasjóðnum vísum en njóta um leið hárra vaxta.
Vextirnir hækka á sex mánaða fresti af þeirri innstæðu, sem látin
er standa óhreyfð, þar til þeir ná hámarki eftir 36 mánuði.
Óverðtryggður
Alltaf laus
Stighækkandi vextir
Ekkert úttektargjald
Enginn kostnaður eða þóknun
Vextirnir
hækka
stig af stigi
Vertu velkomin(n) í Borgartún 18, Hraunbæ 119 og Síðumúla 1,
hringdu í síma 575 4100 eða kynntu þér möguleikana á www.spv.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PV
1
93
53
11
/2
00
2