Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Flott
kvenúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
mann Morgunblaðsins á dögunum. „Við höf-
um mikið dálæti á landinu og vildum heim-
sækja það að vetri til núna, höfðum séð það í
sumarbúningnum.“
– Hvað er það eiginlega sem þið kunnið
svona vel við?
„Það er erfitt að segja. Landslagið, fólkið,
Björk og Sigur Rós. Allt eitthvað svo
mikilfenglegt, frábrugðið og ferskt. Og svo
auðvitað Bláa lónið sem er eins og af öðrum
heimi.“
– Hvað gerðuð þið ykkur annað til dundurs
síðast þegar þið komuð?
„Sáum þennan hver þarna sem aldrei gaus
(Geysir) og mikinn foss (Gullfoss), skoðuðum
landslagið á hraðferð út um bílrúður og héng-
um á kaffihúsum og drukkum heitt kakó og
bjór.“
– Eitthvað sem þú smakkaðir eða upplifðir
sem þig langar að endurnýja kynnin við – eða
munt forðast?
„Eitt skal ég segja þér. Ef einhver býður
mér þennan þurrkaða lúbarða þorsk þá mun
ég afþakka kurteisislega. Síðast þáði ég og
kunni því miður ekki að meta þann þjóðlega
mat ykkar. Held ég haldi mig frá harðfisk-
inum sem sagt að þessu sinni en ég fékk hins
vegar frábæran humar sem ég mun reyna að
hafa uppi á aftur.“
Háskólarokk
Champion var síðastur til að ganga til liðs
við Coldplay og trommur voru eiginlega það
eina sem hann kunni ekki á þegar honum
bauðst að setjast bak við settið. En hann var
fljótur að læra og segist nú ekki vilja spila á
neitt annað. Champion er að sögn félaga sinna
harðjaxlinn í sveitinni, sá sem enginn þorir að
abbast upp á. Sjálfur kemur hann af fjöllum
þegar sú persónulýsing er borin undir hann
en gerir samt enga tilraun til þess að hrekja
EFTIR fjóra daga mun breska rokk-sveitin Coldplay stíga á svið Laug-ardalshallarinnar, í annað sinn á 16mánuðum. Þá var hún efnileg sveit,
hafði sent frá sér frambærilegan frumburð
sem gaf góð fyrirheit um framtíðina. Nú þeg-
ar sú tíð er upp runnin hefur sveitin sann-
arlega uppfyllt allar væntingarnar sem gerðar
voru til hennar með annarri plötunni A Rush
of Blood to The Head. Hún kom út síðsumars
og er að mati margra skríbenta í hópi þeirra
allra bestu sem komið hafa út á árinu og náði
meira að segja að skipa sér meðal 100 bestu
platna rokksögunnar í nýlegri lesendakönnun
tímaritisins Q, þar sem platan var ennfremur
valin plata ársins af aðstandendum tímarits-
ins.
Geysir sem aldrei gaus
Það er því ekki að ástæðulausu sem talað
hefur verið um að kominn sé fram á sjón-
arsviðið líklegasti kandídatinn til að taka við
rokkkrúnunni af U2, láti þeir hana þá ein-
hvern tímann af hendi. Óvænt velgengni
Coldplay í Bandaríkjunum hefur ekki hvað
síst hrint þeim bollaleggingum af stað enda
hafa breskar hljómsveitir síður en svo riðið
feitum hesti þar vestra liðna tvo áratugi eða
svo. Þegar Coldplay steig því fyrst á svið
Laugardalshallarinnar var hún ný og upp-
rennandi sveit, í leit að áhangendum. Nú mun
hún stíga á svið sem ein eftirsóttasta hljóm-
sveit heimsins í dag, sjóðheitir rokkarar sem
gátu efnt til jólatónleika hvar í heiminum sem
er en kusu Ísland og litlu snjóhúslaga hand-
boltahöllina í Laugardalnum.
„Reyndar var það eitt af fyrstu skilyrð-
unum sem við settum þegar við lögðum upp í
heimsreisuna, að því yrði komið í kring að við
lékjum á Íslandi,“ segir Will Champion,
trommuleikari Coldplay, í samtali við blaða-
hana, tekur þó skýrt fram að félagarnir hafi
sjálfir aldrei fengið að kynnast þeirri hlið á
honum. Líkt og félagar hans var Champion í
háskólanámi þegar Coldplay var stofnuð og
áður en frægðin bankaði á dyrnar náðu þeir
hver í sína gráðu. Champion er þannig með
gráðu í mannfræði, Guy Berryman í verk-
fræði, Johnny Buckland stærðfræði og Chris
Martin fornaldarsögu.
– Hvað hafiði annars verið að bardúsa upp á
síðkastið?
„Við spilum á endalausum tónleikum, nú
síðast í Bandaríkjunum og Evrópu, líf sem ég
sé ekki alveg fyrir endann á,“ segir Will.
– Er það ekkert þreytandi?
„Nei, það er frábært. Að sækja heim ný og
ný lönd og kynnast nýjum siðum og nýju fólki.
Við skemmtum okkur konunglega.“
– En finnst þér ekkert yfirþyrmandi til-
hugsunin um að lífið sé skipulagt upp á mín-
útu ár fram í tímann?
„Nei, það myndi kannski hvarfla að mér ef
ég kynni illa við tónleikalífið. Maður venst því
hreint ótrúlega fljótt og fer að líta á það sem
fastan og óumflýjanlegan hluta af lífi sínu –
semja, fara í hljóðver, gefa út plötu, kynna
hana fyrir blaðamönnum og leggja upp í tón-
leikaferð, fara svo að semja, síðan í hljóðver,
gefa út plötu o.s.frv.“
– Funduð þið fyrir hvenær það gerðist að
þið urðuð allt í einu heimsfræg rokksveit?
„Eiginlega ekki, við höfum eiginlega átt
fremur hægvaxandi velgengni að fagna. Alla-
vega hef ég aldrei orðið var við neina
sprengju.“
– Rokkblaðamenn hafa talað um Coldplay
sem næstu íþróttaleikvangasveitina. Eruð þið
farnir að leika á íþróttaleikvöngum?
„Nei,“ segir Champion og hlær. „Við höfum
leikið í nokkrum íþróttahöllum, en ekki á leik-
vöngum.“
– Finnst þér það heillandi tilhugsun að leika
á leikvöngum?
„Ég veit það satt að segja ekki. Eins og
stendur reynum við hvað við getum til að gera
þessa íþróttahallartónleika sem innilegasta –
að reyna að vinna 10 þúsund manns á okkar
band og snerta hvern og einn þeirra. Það
finnst mér alveg nægilega erfið áskorun eins
og stendur, þakka þér fyrir.“
Coldplay mun setja á svið sína fínustu sýn-
ingu. Þannig er á leiðinni risaskjár sem sveitir
ku einungis tjalda á útvöldum hljómleikum en
á skjáinn verður varpað hreyfimyndum sem
ku eiga að auka á áhrifamátt laganna og gera
tónleikana að ennþá meira sjónarspili.
– Funduð þið á ykkur þegar þið senduð frá
ykkur plötuna að hún yrði meðal þeirra bestu
sem út kæmu á árinu?
„Það kom allavega aldrei til tals, því við
gerum lítið af því sjálfir, að bera tónlist okkar
saman við tónlist annarra. Látum öðrum það
eftir. Það eina sem vakti fyrir okkur var að
gefa út plötu sem við værum fullkomlega sátt-
ir við. Enda gerist það æði oft að frábærar
plötur fara fyrir ofan garð og neðan hjá fólki,
af einhverri óskiljanlegri ástæðu. Þannig
hefði getað farið fyrir okkar plötu.“
Champion segist ekki vita hvort Coldplay
ætli sér að dveljast yfir jólin á Íslandi. Langar
sjálfan að eyða nokkrum dögum með fjöl-
skyldu sinni í Southampton og skella sér á
völlinn, reyna að taka einhvern smáþátt í
þeirri langþráðu og óvæntu velgengni sem
fótboltaliðið hans nýtur um þessar mundir.
Háskólarokksveitin Coldplay: Buckland stærðfræðingur, Berryman verkfræðingur, Martin sagnfræðingur og Champion mannfræðingur.
Held mig
frá harð-
fiskinum
Hann spilar á flestöll hljóð-
færi, styður Southampton, er
harðjaxl hinn mesti og mann-
fræðingur að mennt. Skarp-
héðinn Guðmundsson ræddi
við Will Champion, trommara
Coldplay, sem leikur á fimmtu-
daginn í Laugardalshöll.
Coldplay leikur í Laugardalshöll á fimmtudag
ásamt Ash. Óseldir miðar eru innan við 500.
Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar og
kostar miðinn 4.400 kr.
skarpi@mbl.is
ÚTVARPSMAÐURINN Ólafur Páll
Gunnarsson stendur fyrir útgáfu á
safnplötunni Rokklandi 2002. Platan
heitir eftir þættinum Rokklandi, sem
er á dagskrá Rásar 2 en Óli Palli, eins
og hann er kallaður, hefur umsjón
með þáttunum.
„Þetta er í rauninni þverskurður af
árinu 2002 eins og það hljómaði í
þessum útvarpsþætti á þessari
ákveðnu útvarpsstöð,“ útskýrir hann
en segir þáttinn í raun miklu breiðari.
„Ég hef verið með viðtal við Britn-
ey Spears og Aliciu Keys. Þessar
hljómsveitir á diskinum valdi ég hins
vegar úr því mér fannst þær standa
sem ein heild,“ segir Óli Palli og bæt-
ir við að þetta séu lög, sem honum
fannst standa upp úr á árinu.
Á plötunni hljóma lög þekktari
hjómsveita eins og Oasis og Coldplay.
„Svo eru þarna nokkrar nýjar sem
hafa vakið athygli á þessu ári,“ segir
Óli Palli og nefnir í því sambandi Cor-
al, The Hives og The Hellacopters.
Rokkland 2002 er tileinkuð árinu í
ár eins og nafnið gefur til kynna. Svo
var ekki með fyrstu Rokkland-plöt-
una, sem kom út í fyrra. Hún var upp-
rifjun á þáttunum frá þeim tíma, sem
Óli Palli byrjaði með þáttinn árið
1995. Aðeins ein íslensk
hljómsveit á lag á diskinum,
Leaves. „Þessi þáttur minn
byggist að megninu til á er-
lendri músík,“ segir Óli Palli
til útskýringar. „Það er meiri
kynning á íslenskri tónlist í
hinum þættinum mínum,
Popplandi.“
Auðveldar að kynnast
tónlistinni
Í plötuumslaginu er að
finna ýmsar upplýsingar um
hljómsveitirnar, sem eru á
diskinum. „Þetta er ekki fyr-
ir alla en fyrir tónlistar-
áhugafólk er þetta skemmtilegt.“ Til
viðbótar er vísað í vefsíður hljóm-
sveitanna og birtar myndir af plötu-
umslögum viðkomandi sveita, sem
auðveldar fólki að kynna sér viðkom-
andi hljómsveitir betur.
„Allir plötusnúðar eiga það sam-
eiginlegt að þeir vilja alltaf vera að
leyfa öðrum að heyra eitthvað,“ út-
skýrir Óli Palli og segir plötuna í raun
framhald af þessari þörf.
Þörfin hefur lengi verið til staðar
hjá honum. „Þegar ég var pínulítill
púki, 10 ára, var ég alltaf með kass-
ettur á mér. Ég var búinn að taka upp
hin og þessi lög og var alltaf að leyfa
öllum vinum mínum að heyra.“ Hann
segir Rokkland 2002 að vissu leyti
gegna sama hlutverki.
Tilgangurinn með útgáfunni er líka
að hafa gaman af þessu, segir Óli
Palli. „Það er ótrúleg orka búin að
fara í þetta prógramm hjá mér. Það
er búinn að fara stór partur af mínum
tíma í þennan útvarpsþátt undanfar-
in átta ár. Þetta er smáuppbrot í
hversdagsleikann. Af hverju ekki að
hafa gaman af þessu?“
Margt á seyði
í Rokklandi 2003
„Hlutirnir eru svo fljótir
að breytast og eftir að búið
var að velja lögin á plötuna
heyrði ég margt sem ég
hefði viljað hafa með á plöt-
unni. Ég hefði viljað hafa
Johnny Cash, Datsuns og
D4,“ segir Óli Palli aðspurð-
ur hvort hann sakni ein-
hvers.
Hann segir margt á seyði í
Rokklandi næsta árs. „Mér
finnst mikið hafa gerst á
þessu ári. Sérstaklega seinni
hluta ársins. Það á ábyggilega eftir að
lita næsta ár mjög mikið. Ég spái því
að það verði svolítið mikið pönkrokk á
næsta ári. Svona eins og Yeah Yeah
Yeahs og líka bönd frá Ástralíu og
Nýja-Sjálandi. Það er meiri ládeyða í
Bretlandi og Bandaríkjunum, nema
að í New York er eitthvað að gerast.
Þetta er málið í dag, svolítið eins og
New York árið 1978.“
Óli Palli í hjóðveri Rásar 2 en hann stjórnar þættinum
Rokklandi og stendur fyrir útgáfu Rokklands 2002.
Þú verður að heyra þetta!
Rokkárið gert upp á Rokklandi 2002
Rokkland 2002 er komin í verslanir
en Skífan og Rás 2 gefa út. Þátturinn
Rokkland er á dagskrá Rásar 2 á
sunnudögum milli 16 og 18.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
VEÐUR
mbl.is