Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 20
ERLENT
20 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DÓMSTÓLL í Ashkhabad, höf-
uðborg Túrkmenistans, dæmdi
í gær Boris Shikhmuradov,
fyrrverandi
aðstoðarfor-
sætisráðherra
landsins, í lífs-
tíðarfangelsi
fyrir aðild að
samsæri um að
ráða forseta
landsins af
dögum.
Shikhmuradov var handtekinn
í kjölfar skotárásar sem gerð
var á bílalest Saparmurats
Niyazovs forseta í nóvember.
Fréttaskýrendur í Moskvu
segja að Niyazov kunni að hafa
sett hið meinta banatilræði á
svið sem átyllu til að láta til
skarar skríða gegn andstæð-
ingum sínum.
Gíslataka
í Stokkhólmi
VOPNAÐUR maður, sem hafði
tekið tvær konur í gíslingu á að-
aljárnbrautarstöðinni í Stokk-
hólmi, gafst upp og var hand-
tekinn á sunnudagsmorgun,
strax eftir að hann hafði sleppt
síðari gísl sínum. Að sögn lög-
reglu er maðurinn um þrítugt
og talar rússnesku. Hann gekk
inn á gjaldeyrisskiptaaf-
greiðslu á stöðinni á laugar-
dagskvöld og tók tvær konur
sem þar störfuðu í gíslingu.
Annarri þeirra sleppti hann eft-
ir eina klukkustund. Brá mað-
urinn á það ráð að taka gísla er
tilraun hans til að ræna reiðufé
fór út um þúfur.
Engin árás
í bígerð
COLIN Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði um
helgina að ekki væru uppi nein-
ar ráðagerðir um árás á Norð-
ur-Kóreu þrátt fyrir brot norð-
anmanna á samningum um
kjarnorkuvopn. Stjórnvöld
kommúnista í N-Kóreu hafa
gefið í skyn að þau kunni að
draga sig út úr alþjóðlegu sam-
komulagi um bann við út-
breiðslu kjarnorkuvopna
(NPT), að sögn suður-kóreskra
embættismanna í gær. Sams
konar hótun var sett fram 1993
en þá hættu N-Kóreumenn við
úrsögn eftir að Bandaríkja-
menn samþykktu að hefja við
þá viðræður er lyktaði með
samningi 1994 um að N-Kórea
stöðvaði tilraunir til að smíða
kjarnorkuvopn.
Mannfall
í Kólombíu
ALLT að sextíu liðsmenn
hægrisinnaðra skæruliðasveita
eru taldir hafa látið lífið í árás
vinstrisinnaðra uppreisnar-
manna á búðir hinna fyrr-
nefndu í norðanverðri Kólomb-
íu um helgina. Liðsmenn
stærstu uppreisnarhreyfinga
vinstrimanna í landinu lögðu
saman krafta sína til að gera
áhlaup á herbúðir Sjálfsvarnar-
sveita Kólombíu (AUC) – sem
eru sjálfstæðar hersveitir með
óformleg tengsl við stjórnar-
herinn – í San Pablo í Bolivar-
héraði, um 300 km norður af
höfuðstaðnum Bogota.
STUTT
Dæmdur
fyrir
tilræði
Shikhmuradov
STARFSMAÐUR í farangursaf-
greiðslu á Charles de Gaulle-flug-
velli við París var í gær handtekinn
með heilt vopnabúr í skotti bifreiðar
sinnar, þar á meðal sprengju sem
var „tilbúin til notkunar“, eftir því
sem talsmenn lögreglu greindu frá.
Maðurinn, Abderazak Besseghir,
er 27 ára franskur ríkisborgari, ætt-
aður frá Alsír. Hann var handtekinn
síðla laugardags eftir að hermaður í
fríi gerði lögreglu viðvart er honum
sýndist hinn grunaði handfjatla eitt-
hvað sem leit út eins og skotvopn.
Starf Besseghirs við farangurs-
hleðslu veitti honum aðgang að
mörgum öryggisgæzlusvæðum á
flugvellinum, en hann er einn sá fjöl-
farnasti í Evrópu.
Að sögn heimildarmanna sem
tengjast rannsókninni mun Bessegh-
ir hafa haft í bíl sínum fimm túpur af
plastsprengiefni og tvær hvellhett-
ur, en samtengt myndaði þessi bún-
aður öfluga sprengju sem var tilbúin
til að vera sprengd. Lögregla fann
einnig skammbyssu og vélbyssu í bíl
mannsins.
Húsleit var gerð í íbúð hans í
Bondy-hverfinu í norðausturjaðri
Parísar, sem og heima hjá einum vini
hans. Faðir Besseghirs, tveir bræð-
ur og einn fjölskylduvinur voru enn-
fremur handteknir og færðir til yf-
irheyrslu hjá rannsóknarlögreglu
sérhæfðri í rannsóknum á hryðju-
verkastarfsemi. Allir mennirnir
fimm voru enn í haldi í gær.
Ekki er vitað til þess að Besseghir
hafi verið viðriðinn nein íslömsk
samtök, en lögregla fann í bíl hans
„skjöl sem kunna að tengjast hug-
myndafræði herskárra múslima“.
Með vopnabúr í far-
angursgeymslunni
París. AFP, AP.
Starfsmaður
á Charles de
Gaulle-flugvelli
handtekinn
STJÓRNARANDSTAÐAN í Venes-
úela efndi til útifunda í tveimur fá-
tækrahverfum höfuðborgarinnar
Caracas í gær. Var markmiðið að
grafa undan kjarnafylginu við Hugo
Chavez forseta og efla virkni allsherj-
arverkfalls sem hefur staðið yfir í
fjórar vikur og lamað olíuútflutning
án þess þó að ná fram því markmiði að
fella Chavez úr embætti.
„Verkfallið mun halda áfram unz í
odda skerst,“ sagði Carlos Ortega,
formaður stærsta verkalýðssam-
bands Venesúela. „Þessi ríkisstjórn er
aðeins að auka á þjáningar þjóðarinn-
ar,“ sagði hann eftir mótmæli hundr-
aða þúsunda andstæðinga Chavez í
miðborg Caracas á sunnudag. Af völd-
um verkfallsins hefur olíuútflutningur
frá Venesúela, fimmta stærsta olíu-
framleiðsluríkis heims, fallið úr um
þremur milljónum fata á dag niður í
um 160.000 föt og eldsneyti er þrotið á
flestum benzínstöðvum.
Heimsmarkaðsverð á olíu náði nýju
hámarki í gær vegna verkfallsins og
vegna ótta um að stríð sé yfirvofandi í
Írak. Verð á hráolíufatinu hélzt ofan
við 30 dollara í viðskiptum á mörk-
uðum í London í gær og í New York
fór það fyrir helgi yfir 32 dali og hefur
ekki verið hærra í tvö ár.
Chavez ítrekaði á sunnudag að
hann hvikaði hvergi. Hélt hann því
fram að hann væri nú þegar búinn að
brjóta verkfallsmenn á bak aftur. „Ég
held ég víki aldrei. Ég finn svo fyrir
því að fólkið elskar mig að ég held ég
fari aldrei,“ sagði Chavez í vikulegu
sjónvarpsávarpi sínu. Í skoðanakönn-
unum hefur stuðningur við Chavez
dottið niður í um 30%. Stuðningur við
hann er mestur í niðurníddum fá-
tækrahverfum Caracas.
Verkfalli haldið til streitu
Lömun olíufram-
leiðslu í Venes-
úela þrýstir olíu-
verði upp
Caracas, London. AP, AFP.
AP
Andstæðingur Hugo Chavez forseta, með andlitið málað í fánalitunum, í mótmælagöngu í borginni Maracaibo.
KÍNVERJAR hófust í liðinni viku
handa við það risavaxna verkefni
að veita vatni úr stórfljótunum í
Suður-Kína til hinna þurru svæða í
norðurhluta landsins. Áætlaður
kostnaður við verkið er nærri 4.900
milljarðar íslenskra króna og búist
er við að það taki fimmtíu ár.
Grafnir verða þrír miklir skurðir
eða vatnsrásir. Verða tvær þeirra
um 1.300 km langar og eiga að
tengja Peking og aðrar iðnaðar-
borgir í norðurhlutanum við
Yangtze-fljótið, sem er það stærsta
og vatnsmesta í Kína. Þriðji skurð-
urinn, sem verður grafinn í gegn-
um fjalllendið við Tíbet, á að flytja
vatn úr Yangtze yfir í Gulá en hún
þornar yfirleitt upp vegna mikillar
vatnstöku.
Margir hafa gagnrýnt þetta verk
og segja, að það muni valda mikilli
breytingu á heilu vistkerfunum. Þá
benda fornleifafræðingar á, að
mjög mörg mikilvæg svæði muni
verða eyðilögð.
Kínversk stjórnvöld segja á
móti, að miklu sé fórnandi vegna
þess, að vatnsskorturinn í stórum
hlutum landsins verði æ alvarlegri
og muni fljótlega hafa afdrifaríkar
afleiðingar fyrir efnahagslífið verði
ekkert að gert.
Mestu vatnsflutningar
í sögunni að hefjast
Shanghai. AP.
!"#
$%&%
'()&*
+,-.
!"#!$%&
$ $' &
($ ) &* +" ,-) %$
* )./,000% # & !
1 $* $$%2/% #3 $%%%"
$%400% #!%55 +#$
/
0/
1 #'#"' &"6
7# *$
$
$ $'
MAÐUR, vopnaður Kalashnikov-
hríðskotariffli, skaut í gærmorgun til
bana þrjá bandaríska starfsmenn
trúboðsspítala í borginni Jibla í Jem-
en og særði einn að auki. Fólkið,
tvær konur og einn karlmaður, var á
fundi í spítalanum. Önnur konan var
læknir á sjúkrahúsinu sem rekið er
af baptistum. Um 40.000 manns fá
þar meðhöndlun ár hvert.
Morðinginn er 32 ára gamall, heit-
ir Ali Abdulrazzak al-Kamel og var
hann handtekinn á staðnum. Hann
er sagður vera nemandi við Al-Iman-
háskólann í Jemen en skólanum var
lokað um hríð í fyrra vegna þess að
hann var talinn vera gróðrarstía her-
skárra bókstafstrúarmanna úr röð-
um múslíma.
Myrti þrjá
Banda-
ríkjamenn
Jibla í Jemen. AFP.
SERGEI Ívanov, varnarmálaráð-
herra Rússlands, lýsti yfir því í gær
að herafli landsins myndi á nýju ári
leggja höfuðáherslu á að berjast
gegn hryðjuverkaógninni. Ívanov
sagði verkefni heraflans að tryggja
öryggi ríkisins, þar undir félli bar-
átta gegn hryðjuverkum.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
tók í gær í sama streng. Lýsti hann
yfir því að hryðjuverkamenn í Tétsn-
íu hefðu afráðið að spilla fyrir til-
raunum til að koma á friði í héraðinu
en þar berjast þjóðernissinnar fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis. Hryðju-
verkamenn þar hefðu ákveðið að
beita auknu ofbeldi í baráttu sinni en
þeim myndi ekki takast að ná fram
markmiðum sínum, sagði Pútín.
Á föstudag var tveimur bifreiðum
hlöðnum sprengiefni ekið á bygg-
ingu stjórnvalda í Grosní, höfuðstað
Tétsníu. Rússneskir fjölmiðlar sögðu
í gær að vitað væri um 83 menn sem
týnt hefðu lífi í árásinni. Fullvíst
þykir að tétsenskir aðskilnaðarsinn-
ar hafi staðið fyrir árásinni.
Her gegn
hryðju-
verkum
Moskvu. AFP.