Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 52
ÁRIÐ 2002 var ár athafnasemi fyrir íslenskt dægurtónlistarfólk og um- fram allt árangurs, veri það innan- lands sem utan. Íslenskir listamenn voru æði virkir á erlendri grundu, ís- lenska rappið blómstraði, gnótt góðra gesta heimsótti landið til hljómleikahalds og fjöldi sterkra og góðra platna var meiri en oftast áður. Eins og klisjan segir þá var allt að gerast og vegurinn genginn til góðs á fleiri vígstöðvum en víðast hvar áður. Fyrstu stóru fréttirnar voru af hinni nýstofnuðu Leaves, sem hafði leikið á fyrstu tónleikum sínum á Airwaves-tónlistarhátíðinni haustið áður. Sveitin, leidd af fyrrverandi dauðarokks-undrinu Arnari Guð- jónssyni, var þá búin að koma sér í góð sambönd ytra, nánast í kyrrþey. Breiðskífa sveitarinnar, Breathe, kom svo út í ágúst en spenna hafði verið byggð markvisst upp með smá- skífuútgáfu, enn fremur sem sveitin hafði ferðast víða um á árinu og lék m.a. á Glastonbury-hátíðinni. Plöt- unni var tekið gríðarlega vel og er á árslistum Rolling Stone og Q svo dæmi séu nefnd. Vel haldið á spöðum hjá Leaves-liðum. Það voru engin peð sem komu til tónleikahalds þetta árið og strax í apríl kom New York-sveitin Strokes til landsins, umtöluð sem heitasta rokksveit heims, hvorki meira né minna. Um þetta leyti var rokk-rappsveit- in Quarashi að hefja sín strandhögg af alvöru. Plata þeirra, Jinx, kom loks út í Bandaríkjunum þá um vorið og hefur selst í um 250.000 eintökum skv. nýjustu tölum. Hljómsveitin hef- ur flakkað um heiminn til að kynna plötuna og frábært myndband þeirra við lagið „Stick em’up“ hlaut þá tals- verða spilun á MTV-sjónvarpsstöð- inni og var tilnefnd til tónlistarverð- launa stöðvarinnar, Músíktilraunir Tónabæjar hafa í tuttugu ár verið eitt mikilvægasta gróðurhús íslenskra bílskúrs-lista- manna, en þar fá þeir tækifæri til að munda verkfæri sín á alvörusviði, í alvörugræjum og fyrir framan al- vöruáhorfendur. Í ár sigraði hin kornunga rokksveit Búdrýgindi en meðlimir eru enn í grunnskóla. Hljómsveitin sýndi síðar á árinu að hún var fyllilega að fyrsta sætinu komin þegar hún gaf út afbragðs- plötu, Kúbakóla, eina ferskustu rokk- skífu sem út hefur verið gefin hér- lendis í áraraðir. Íslendingar áttu tvo fulltrúa á Hró- arskelduhátíðinni þetta árið, múm og Mínus. Hljómsveitirnar eru eins langt frá hvor annari í tónlistarlegum skilningi og hugsast getur og vera þeirra á hátíðinni því skínandi dæmi um fjölbreytnina sem þrífst í hér- lendri dægurtónlist. Sú fyrrnefnda hafði skömmu áður gefið út sína aðra, eiginlegu breiðskífu, og nefnist hún Loksins erum við engin (Finally We Are No One á ensku). Hér er um að ræða firnagott áframhald af fyrstu plötunni, Yesterday Was dramatic … og hæglega ein allra besta plata sem út kom hér á landi í ár. Platan hefur nú selst í 75.000 eintökum, víðsvegar um heim og er það einstakur árangur fyrir sveit sem leikur ekki vinsælda- vænni tónlist en raun ber vitni. Árangur Sigur Rósar, listrænn sem sölulegur, er eitt mesta ævintýri íslenskrar dægurtónlistarsögu frá upphafi. Þannig þótti hápunktur listahátíðar þetta árið vera flutningur Sigur Rósar á verkinu Hrafnagaldur Óðins, ásamt þeim Hilmari Erni Hilmarssyni, Steindóri Andersen, kór og strengjasveit. Hinn virti strengjakvartett, kenndur við Kron- os, kom þá til landsins á Listahátíð og lék m.a. tvö lög eftir Sigur Rós. Og nú vill Merce Cunningham, einn þekkt- asti danshöfundur heims, starfa með piltunum. Langþráð breiðskífa, ( ) kom svo út í haust og brást í engu þeim væntingum sem til hennar voru gerðar. Í þessa hringiðu íslensks poppfárs bárust góðir og gegnir straumar frá frændum vorum Færeyingum (sem hinir allra rómantískustu vilja kalla bræður okkar og systur). Löngu var orðið tímabært að Íslendingar fengju að kynnast því sem þar er að gerast en sköpunargleðin þar ku víst engu minni en hér. Um vorið kom þunga- rokkssveitin Týr (sem á hið vinsæla lag „Ormurinn langi“) til landsins en seinna komu meðal annara pönk- sveitin 200%, söngvaskáldið Eivör Pálsdóttir (öðru sinni) og framsækna rokksveitin Clickhaze. Í október var tónlistarhátíðin Airwaves haldin í fjórða sinn, og hef- ur hún vaxið að mætti með hverju árinu. Erlendis frá kom sænska sveitin Hives, sem með Strokes er talin helsti bjargvættur hrárrar rokktónlistar í dag; hinn heimsfrægi plötusnúður Fatboy Slim og ein at- hyglisverðasta rappsveit Bandaríkj- anna í dag, Blackalicious. Tugir ís- lenskra listamanna úr öllum áttum dægurtónlistar léku þá víðsvegar um miðbæinn. Eins og alltaf raðast megnið af út- gáfu íslenskrar tónlistar á síðustu fjóra mánuði ársins eða svo. Og feng- sælir voru þeir. Björk gaf t.d. út for- láta kassa og safnplötu, Bubbi Morthens gaf út sína allra bestu plötu í langan, langan tíma og til- raunapoppsveitin Ske kom, að því er virtist, utan úr geimnum með hreint út sagt snilldarlega plötu, Life, death, happiness & stuff. Þessa árs verður líka minnst sem ársins þegar rappið íslenska sprakk út – og það með látum. Útgáfur á nýju, íslensku rappi (þar sem menn rappa vel að merkja nær undantekningarlaust á íslensku) eru næsta óteljandi: Bent og 7berg, Afkvæmi guðanna, Móri, XXX Rottweiler, Bæjarins bestu, Sesar A, Kritikal mass; safnplöturn- ar Dizorder: Óreiða í Reykjavík, Bumsquad, Rímur og rapp, Rímna- mín og Rímnaflæði. Þá sló poppsveit- in Írafár í gegn með fyrstu plötu sinni, Allt sem ég sé, og vísaði veginn í þeim efnum að þar eins og annars staðar er hægt að gera góða hluti og metnaðarfulla. Góðu ári var svo slaufað með þrennum stórtónleikum. Sigur Rós lék í Háskólabíói; Coldplay, vinsæl- asta sveit heims í dag, lék í Laug- ardalshöllinni og hinn hópdýrkaði Nick Cave lék á tvennum tónleikum á Broadway. Ekki má heldur gleyma tvennum tónleikum hljómsveitarinnar Stereo- lab, einnar „stærstu“ jaðarsveitar samtímans, sem fram fóru á Grand- rokk í haust. Fjölda annarra uppákomna er ógetið hér en hópar/félög/innflutn- ingsaðilar eins og breakbeat.is (dans- og tæknótónlist), Kronik (rapp/hipp-hopp), Harðkjarni (harð- kjarnarokk) og Hljómalind (jaðar- tónlist) unnu ötullega á árinu að alls kyns viðburðum. Þannig var nú það. Sköpunargleð- in hefur verið straumþung í íslenskri dægurtónlist undanfarin ár og kannski aldrei jafnstórvirk og á þessu ári. Og allt virðist þetta gerast í gegnum rífandi einbeittan sjálfs- þurftarbúskap þar sem viðkvæðið „Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir“ er í heiðri haft. Þetta líf og þessi kraftur hefur hreyft við haus- um um allan heim og því er kannski eðlilegast að spyrja: Hvenær vakna þeir, sem búa eiga að þessari fjölæru listgrein hérlendis, úr rotinu? Annáll íslenskrar dægurtónlistar árið 2002 Enn er útrás Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir Múm héldu glæsilega tónleika hinn 31. ágúst í Þjóðleikhúsinu. Gyða Valtýsdóttir á sviði. Árið sem er að líða var afar vænt og gott hvað dægurtónlist varðar. Arnar Eggert Thoroddsen leggur mat á stöðuna og rekur atburðarásina. arnart@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM 52 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 28.12. 2002 4 6 5 6 8 2 7 0 4 6 6 7 11 18 19 34 26.12. 2002 4 12 22 25 33 34 1 8 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4548-9000-0059-0291 4539-8500-0008-6066 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. Lostafullt, ósiðlegt Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 2 /0 2 miðvikudaginn 8. janúar kl. 19:30 fimmtudaginn 9. janúar kl. 19:30 föstudaginn 10. janúar kl. 19:30 laugardaginn 11. janúar kl. 17:00 3.000 / 2.600 / 2.200 kr. Í lok átjándu aldar þóttust menn vissir um að „hinn lostafulli og ósiðlegi“ vals væri „ein af meginástæðunum fyrir veikleika kynslóðar okkar bæði á sál og líkama.“ Tíminn hefur síðan leikið þessa kenningu grátt en eins og allir unn- endur Vínartónlistar vita er hún sannkallaður óður til fegurðar og lífsgleði. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru vinsælustu sígildu tónleikar ársins. Peter Guth, listrænn stjórnandi Strauss hátíðarhljómsveitarinnar í Vín, stjórnar af sinni alkunnu snilld. Hafðu hraðann á til að tryggja þér miða. Síminn er 545 2500. Hljómsveitarstjóri: Peter Guth Einsöngvari: Garðar Thór Cortes Einleikari: Lucero Tena Vínartónleikar Miðaverð og mjög vinsælt LAUS SÆTI LAUS SÆTI ÖRFÁ SÆTI LAUS UPPSELT VÍNARTÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓI HLJÓMSVEITIN Slipknot hefur ákveðið að hætta og verður næsta breiðskífa sveitarinnar jafnframt hennar síðasta, að sögn söngvarans Corey Taylor. Rokkararnir grímuklæddu ætla að byrja vinnu við þriðju plötu sveitarinnar í næsta mánuði. Slipknot ætlar þrátt fyrir þetta í hljómleikaferðalag til að fylgja skífunni eftir. Taylor segir að það verði í síðasta sinn, sem fé- lagarnir í hljómsveitinni vinni sam- an. Hann hefur að undanförnu ein- beitt sér að hinni hljómsveit sinni, Stone Sour, og staðfestir að spennan milli hljómsveitarmeðlima í Slipknot hafi verið mikil að und- anförnu. POPPkorn AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.