Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÞÁ ER komið að áramótum, einusinni enn, með tilheyrandi aug-
lýsingum frá flugeldasölum og lík-
amsræktarstöðvum. Það fylgir alltaf
sérstök stemmning gamlárskvöldi,
menn horfa yfir farinn veg og leggja
drög að næsta ári. Þótt vissulega
megi líta svo á að í dag sé þriðjudag-
ur og á morgun miðvikudagur, rétt
eins og síðustu viku og alveg eins og
í næstu viku, eru áramótin ágætis
tækifæri til að staldra við.
Víkverji er ekki mikið fyrir að
gefa áramótaheit og hyggst ekki
breyta út frá þeirri venju um þessi
áramót. Það getur hins vegar verið
öllum hollt að fara yfir það í hug-
anum hverju maður vill koma í verk
á nýju ári. Víkverji er til dæmis einn
þeirra sem eru voðalega svifaseinir
þegar jólakort eru annars vegar. Á
hverju ári skammar hann sjálfan sig
fyrir að senda kort seint og illa og
fær töluvert samviskubit þegar kort-
in fara að streyma til hans frá sam-
viskusamari vinum og kunningjum.
Alltaf hefur hann gleymt einhverj-
um sem ekki gleymir honum og heit-
ir því að gera bragarbót að ári.
Það verða eflaust margir með
kalkún í matinn í kvöld og er Vík-
verji einn þeirra. Nafnið á þessum
fugli, sem orðabók Menningarsjóðs
lýsir á eftirfarandi hátt: „stór (tam-
inn) hænsnfugl, blár og rauður á
höfði og hálsi“, vefst hins vegar fyrir
mörgum. Er það kalkún eða kalk-
únn, sem menn ætla að elda, eða
jafnvel kalkúni? Þótt ótrúlegt megi
virðast eru öll þessi afbrigði heitisins
góð og gild, samkvæmt orðabókinni.
En þótt hægt sé að tala um kalkún
jafnt sem kalkúna finnst Víkverja þó
að menn verði að passa upp á að
samræma heitið. Þannig keypti Vík-
verji sér fugl sem kallaður var
„holdakalkúnn“ á umbúðum fram-
leiðandans. Á verðmiða verslunar-
innar stóð hins vegar „ferskur kalk-
ún“. Þótt í hvorugu tilvikinu sé réttu
máli hallað fannst Víkverja þetta
svolítið afkáralegt.
x x x
RAUNAR geta matarumbúðirverið mjög skrautleg lesning og
ekki síst virðist það eiga við um kjöt-
afurðir. Framleiðendur eru gjarnir á
að skeyta orðinu „holda“ framan við
nafnið á afurðinni þótt oft virðist við-
komandi dýr ekki hafa verið í neitt
sérstaklega góðum holdum. Lengi
hafa verið til á markaðnum sérstak-
ar VSOP-kjötvörur þar sem vænt-
anlega er verið að vísa til gæðamerk-
inga á koníaki. Þessi skammstöfun
mun standa fyrir very special old
pale eða einstaklega gamalt og fölt,
sem þætti varla góð lýsing á kjöt-
vöru. Þá voru settir á markaðinn fyr-
ir skömmu kjúklingaréttir undir
heitinu Gordon Bleu. Víkverji þekkir
til Cordon Bleu, sem er einn elsti og
virtasti matreiðsluskóli heims og
hefur verið starfræktur í París frá
því á nítjándu öld. Cordon Bleu þýð-
ir blái borðinn og dregur nafn sitt af
borða er sérstakur heiðurskross var
hengdur á. Margir réttir hafa verið
kenndir við Cordon Bleu og er sá
þekktasti þegar teknar eru þunnar
sneiðar af kjúklingakjöti (eða kálfa-
kjöti) og settar saman með skinku og
svissneskum gruyere-osti á milli.
Víkverji veit hins vegar hvorki hver
þessi blái Gordon er né heldur í
hverju framlag hans til matargerð-
arlistarinnar felst.
Víkverji óskar landsmönnum öll-
um gleðilegs nýárs.
ÞAÐ vakti aldeilis athygli
mína, er ég heyrði í BBC-
sjónvarpinu að morgni 21.
des. (sbr. grein í Mbl.
sama dag) að helstu verð-
bréfafyrirtækin í Banda-
ríkjunum hafi samþykkt
að borga tugi milljarða
króna í sektir fyrir misvís-
andi ráðleggingar til við-
skiptavina sinna og hygla
öðrum. Erfitt er kannski
að komast að í hve stórum
stíl slíkt hefur verið gert
hér á landi og hve lengi.
Fjármálaeftirlitið ætti að
hafa einhverja hugmynd
um slíkt. Siðgæði í við-
skiptum virðist fara sífellt
hrakandi.
Ósköp lítið hefur borið
á ráðgjöfum hinna ýmsu
verðbréfafyrirtækja sem
voru orðnir gestir heim-
ilanna á skjánum fyrir
nokkrum misserum. Hvað
kemur til?
Eftir lestur bókar sem
heitir „Fjandsamleg yfir-
taka“ finnst mér varla von
að fólk beri traust til
slíkra manna. Ef svo satt
reynist „að meðan dóm-
arinn flautar ekki er
leiknum haldið áfram“
eins og verðbréfasali sagði
spurður um hvort kollegar
hans færu ekki býsna
langt inn á gráa svæðið í
viðskiptum. Athyglisvert
væri að vita hve víðtækt
eftirlit Fjármálaeftirlitið
hefur með þessum málum.
Svanur Jóhannsson.
Umgengni
í matvörubúðum
EKKI er ég sátt við um-
gengni fólks í matvöru-
búðum. Vörum er þeytt úr
hillum, ávextir liggja á
gólfum og fólk virðist ekki
láta sér til hugar koma að
taka upp þá hluti sem það
hefur rutt niður. Inn-
kaupakerrur eru fljúgandi
um öll plön og á bílana.
Veit fólk ekki að allar
skemmdir og rýrnun á
vörum leggjast ofan á
vöruverðið? Það er
kannski ein af ástæðunum
fyrir háu matvöruverði
hér á landi, slæm um-
gengni viðskiptavina.
Gengur fólk svona um
heima hjá sér?
Viðskiptavinur.
Hundar ganga lausir
VEGNA fréttar í Morg-
unblaðinu um manninn
sem skaut á hunda er
gengu lausir í Skerjafirði
er ég ekki hissa á að
menn taki til sinna ráða
því mikið er um að stórir
hættulegir hundar séu
látnir ganga lausir og hef
ég lítið orðið var við að
lögreglan geri neitt í mál-
inu. Að vísu eiga menn
ekki taka lögin í sínar
hendur en ég er samt ekki
hissa á þessu atviki.
Skerfirðingur.
Sammála Erlu
ÉG vil koma því á fram-
færi að ég er hjartanlega
sammála Erlu sem skrifar
um lélegt söngnámskeið í
Velvakanda sl. föstudag.
Dóttir mín, sem syngur
vel, fór á sams konar
námskeið og kom ekki heil
út úr því, því hún hafði
ekkert sjálfstraust eftir
námskeiðið. Finnst mér
vanta mikið á að börnin á
námskeiðinu fái nægilegt
hrós, hvort sem þau hafa
hæfileika eða ekki. Ég er
einnig sammála því að
Helga Möller sýni börn-
unum mestan áhuga.
Ólöf Jónsdóttir.
Dýrahald
Mjásu vantar heimili
MJÁSA er ársgömul, ljúf
og vel vanin. Vegna of-
næmis leitum við að nýju
heimili. Uppl. gefur Gígja
í síma 588 8046 og
515 5348.
Kettlingar
fást gefins
ÞRÍR kettlingar sem eru
fæddir 11. okt fást gefins.
Þetta eru tvær gulbrönd-
óttar læður, einn gul-
bröndóttur og hvítur
fress, öll kassavön og
skemmtileg. Uppl í síma:
554 3480, Sigríður eða
564 0056 og 847 1162
Lilja.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Siðgæði í
viðskiptum
Morgunblaðið/Kristinn
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 tilkynnir, 8 deigar, 9
nægir, 10 tala, 11 kind, 13
byggja, 15 hestur, 18
fljótin, 21 nam, 22 aftur-
kallaði, 23 fiskar, 24
dásamlegt.
LÓÐRÉTT:
2 umræða, 3 kroppa, 4
bál, 5 mannsnafn, 6 dig-
ur, 7 ýlfra, 12 tíni, 14 bók-
stafur, 15 ástand, 16 am-
boðin, 17 stíf, 18 bæn, 19
ekki gömul, 20 lélegt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bólga, 4 fölar, 7 rugls, 8 ljóst, 9 ask, 11 iðra, 13
vita, 14 rekki, 15 vont, 17 trúr, 20 gil, 22 liðna, 23 jafnt,
24 síðla, 25 taðan.
Lóðrétt: 1 byrði, 2 lógar, 3 ansa, 4 fólk, 5 ljóði, 6 rotta, 10
sukki, 12 art, 13 vit, 15 volks, 16 næðið, 18 rofið, 19 rotin,
20 gata, 21 ljót.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Laug-
arnes, Richmond Park
og Nordic Ice koma í
dag. Atlantica Hav kem-
ur á morgun Ottó N. Þor-
láksson fer á morgun.
Hafnarfjarðarhöfn: Pét-
ur Jónsson fór í gær.
Lómur og Langenes
koma á morgun. Rán fer
á laugardag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Lokað í
dag. Starfsfólk óskar
gestum árs og friðar.
Árskógar 4. Fimmtu-
daginn 2. janúar, kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43.
Fimmtudaginn 2. janúar,
kl. 8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 böðun, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13 bókband, kl.
14–15 dans.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Fimmtudaginn 2. jan-
úar, kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13,
verslunin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Fimmtudaginn 2.
janúar, kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9.30 danskennsla, kl. 14.
söngstund, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–16.45
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Furugerði
1. Starfsfólk Fé-
lagsstarfsins í Furugerði
1, óskar gestum sínum
gleðilegs árs og þakkar
samveruna á liðnu ári.
Félagsstarfið byrjar aft-
ur með hefðbundnum
hætti 6. jan. 2003.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Fimmtudag-
inn 2. janúar, kl. 9–12
böðun, kl. 9–16.30 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14, kl. 15.15 línu-
dans o.fl., kl. 15.15 dans-
kennsla. Söngtími kl.
13.30.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Fimmtudaginn 2. jan-
úar, kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ og nágrennis.
Aðalfundur félagsins
verður í Hlégarði 13. jan-
úar kl. 20.
Gerðuberg, félagsstarf.
31. des. Fimmtudaginn 2.
janúar opið kl. 9–16.30,
m.a. spilamennska frá
hádegi. Föstudaginn 3.
janúar verður áramóta-
guðsþjónusta í Digra-
neskirkju. Á eftir verður
ekið um höfuðborg-
arsvæðið ljósum prýtt.
Skráning á þátttöku haf-
in. Starfsfólk óskar öll-
um þátttakendum og
samstarfsaðilum gleði-
legs ár og friðar með
þakklæti fyrir stuðning
og samstarf á árinu sem
er að líða. Hlökkum til
nýja ársins. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Fimmtudaginn 2. jan-
úar, handavinnustofan
opin, og leirmótun, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans. Kynning-
arfundur verður í Gjá-
bakka 2. janúar kl. 14.
Skráning á námskeið fer
fram á sama tíma. Fólk
er hvatt til að mæta og
kynna sér þá starfsemi
sem fyrirhuguð er til
vors og koma með til-
lögur.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 17 heitt á
könnunni.
Hraunbær 105.
Fimmtudaginn 2. jan-
úar, kl. 9 handavinna og
keramik, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58.
Fimmtudaginn 2. jan-
úar, kl. 9 böðun og búta-
saumur, kl. 10 boccia, kl.
13 handavinna, 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Vesturgata 7. Fimmtu-
daginn 2. janúar, kl. 9–16
fótaaðgerðir, og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl.13–16
kóræfing og mósaik.
Föstudaginn 3. janúar
kl. 14 verður áramóta-
guðþjónusta í Digra-
neskirkju. Lagt af stað
frá Vesturgötu kl. 13.15
Skráning í síma
562 7077, allir
velkomnir.
Vitatorg. Fimmtudag-
inn 2. janúar, kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður,
körfugerð og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og spilað.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í síma
861-6880 og 586-1088.
Gíró- og kreditkortaþjón-
usta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin mán.–
fim. kl.10–15. Sími 568-
8620. Bréfs. 568-8621.
Tölvupóstur ms@msfe-
lag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd á
skrifstofutími í síma 552-
4440 frá kl. 11–15. Kortin
má einnig panta á vef-
slóðinni: http://
www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna,
Tryggvagötu 26, Reykja-
vík. Opið virka daga frá
kl. 9–13, s. 562-5605,
bréfsími 562-5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar (K.H.), er hægt
að fá í Bókabúð Böðvars,
Reykjavíkurvegi 64, 220
Hafnarfirði s. 565-1630
og á skrifstofu K.H., Suð-
urgötu 44, II. hæð, sími á
skrifstofu 544-5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er að
senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, eru
afgreidd í síma 551-7868
á skrifstofutíma og í öll-
um helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis fást á
skrifstofu endurhæf-
ingadeildar Landspít-
alans Kópavogi (fyrrver-
andi Kópavogshæli),
síma 560-2700 og skrif-
stofu Styrktarfélags van-
gefinna, s. 551-5941 gegn
heimsendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst. hjúkr-
unarforstjóra í síma 560-
1300 alla virka daga milli
kl. 8 og 16. Utan dag-
vinnutíma er tekið á móti
minningargjöfum á deild
11-E í síma 560-1225.
Í dag er þriðjudagur 31. desember,
365. dagur ársins 2002, gamlárs-
dagur, Sylvestrimessa. Orð dagsins:
Ég er ljós í heiminn komið, svo
að enginn, sem á mig trúir, sé
áfram í myrkri.
(Jóh. 12, 46.)