Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRAMÓTABRENNUR verða haldn-
ar á 17 stöðum víðsvegar um höf-
uðborgarsvæðið um þessi áramót.
Kveikt verður í flestum þeirra kl.
20.30, á Ásvöllum í Hafnarfirði, á
Valhúsahæð á Seltjarnarnesi og við
íþróttamiðstöðina í Mosfellsbæ
verður kveikt í brennum kl. 20 og á
Arnarneshæð kl. 21.
Óskars Bjartmarz hjá lögreglunni
í Reykjavík vill benda fólki á að
notkun flugelda í grennd við brenn-
ur er ekki heimil. Vissara er því fyr-
ir þá sem hugsa sér gott til glóð-
arinnar um áramótin að bíða með að
sprengja flugelda þar til nær dregur
miðnætti. Notkun blysa og stjörnu-
ljósa er þó heimil en fara verður að
öllu með gát, að sögn lögreglu, enda
eðlilega mikill mannfjöldi sem safn-
ast saman við brennur um áramótin.
Jón Bergvinsson, brennustjóri við
Ægissíðu, segir brennuna þar verða
rétt rúmlega meðalstóra, hún megi
ekki vera stærri sökum nálægðar
við húsin í kring. Fyrir nokkrum
dögum greindi Morgunblaðið frá
því að jólatré sem ekki seldust fyrir
hátíðirnar myndu enda á brennum
landsmanna um þessi áramót, enda
þykja þau góður eldmatur. Jón segir
að jólatré sé þó varla að finna í
brennunni við Ægissíðu. Í henni sé
fyrst og fremst timbur.
Timbrið kemur frá byggingarfyr-
irtækjum sem gefa afgangstimbur.
Þá gaf Grandi hf. kefli á brennuna
sem setja skemmtilegan svip á hana
í ár, að sögn Jóns.
Byrjað var að safna í brennuna
27. desember sl. og hafa starfsmenn
borgarinnar þurft að hafa hraðar
hendur við að stafla henni upp.
Hann bendir þó á að mun minna
sé af iðnaðarstarfsemi og bygging-
arframkvæmdum í Vesturbænum
samanborið við nýrri hverfi borg-
arinnar og þar af leiðandi sé miklu
minna af efni sem fellur til.
„Þetta er rótgrónara hverfi, það
eru fleiri sem eiga leið um Árbæinn
og Gufunes en hingað,“ segir hann.
700 jólatré á einu bretti
Kjartan Gíslason, brennustjóri í
Geirsnefi og Gufunesi, fullyrðir að
stærstu brennurnar á höfuðborg-
arsvæðinu um þessi áramót verði á
þessum stöðum, að öllum líkindum
verði brennan við Geirsnef eilítið
stærri.
Á hvorri brennu eru nokkur
hundruð jólatré og Kjartan nefnir
sem dæmi að einn aðili hafi hringt
og sagst vera með 700 jólatré sem
hann þufti að losna við.
Þá eru í brennunum bretti og ann-
að timburdót sem fyrirtæki hafa
gefið. Í brennunni í Gufunesi er
einnig að finna gamlan nótabát frá
J. Hinrikssyni. Upphaflega stóð til
að setja hann heilan á brennuna en
báturinn var illa farinn og var því
ákveðið að búta hann niður.
Kjartan segir að ólíkt við rótgrón-
ari hverfi borgarinnar séu brennur
við Geirsnef og í Gufunesi ekki eins
bundnar af nálægðinni við íbúða-
byggð og fyrirtæki séu auk þess
dugleg að gefa efni á brennurnar.
Áður fyrr var algengt að ung-
menni söfnuðu á brennurnar. Það
fyrirkomulag er hins vegar ekki
lengur fyrir hendi, að sögn Kjart-
ans, og nú er það alfarið á hendi fé-
lagasamtaka og sveitarfélaga að
taka við efninu, sjá til þess að það
sem fari á brennuna sé í góðu
ástandi og að lokum að kveikja í öllu
saman.
„Við hættum að safna á brennuna
í dag [gær] og lokum á þetta. Það er
í raun hægt að taka endalaust við,“
segir Kjartan.
Hann býst við að mikill fjöldi fólks
leggi leið sína á brennuna, einkum
ef vel viðrar á borgarbúa.
Fyrir þá sem vilja leggja til efni á
brennur í Reykjavík skal bent á að
hætt verður að taka við efni þegar
bálkestirnir þykja hæfilega stórir
eða í síðasta lagi kl. 14 í dag.
Frá því kveikt verður í brenn-
unum og fram til miðnættis verða
brennustjórar á vakt við brenn-
urnar ásamt aðstoðarmönnum. Gert
er ráð fyrir að um kl. 2 eftir mið-
nætti fari fjórir vatnsbílar á ferð um
höfuðborgarsvæðið og hefji slökkvi-
starf. Annan janúar er loks áætlað
að hreinsa brennubotna.
Gaman saman
á gamlárskvöld
Af þeim fjölmörgu brennum sem
verða um áramótin má nefna
brennu á Ásvöllum í Hafnarfirði
sem kveikt verður í kl. 20.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarð-
arbæ segir að ferð á brennu sé
skemmtun fyrir alla fjölskylduna og
ágætis byrjun á góðu kvöldi.
Íþrótta- og æskulýðsnefnd Hafn-
arfjarðar, Forvarnarnefnd, For-
eldraráð og foreldrafélögin í Hafn-
arfirði hafa ásamt lögreglunni
staðið fyrir átaki þar sem foreldrar
barna og unglinga í bænum eru
hvattir til gera gamlárskvöld að
kvöldi þar sem allir aldurshópar fá
að njóta sín.
Fram kemur í tilkynningu frá
bænum að foreldrar séu einnig
hvattir til að virða reglur um útivist-
artíma barna og unglinga.
Áramótabrennur verða haldnar á 17 stöðum og með svipuðu sniði og í fyrra
Jólatré, af-
gangstimb-
ur og nóta-
bátur á
bálkestina
Höfuðborgarsvæðið
Morgunblaðið/RAX
Brennan á Geirsnefi með Esjuna í baksýn. Vel hefur gengið að safna í brennuna í ár, að sögn brennustjóra.
Morgunblaðið/RAX
Jólatré eru vinsæl á brennum landsmanna í ár. Myndin er tekin í Gufunesi.
Áramótabrennur 2002/28C
Í TILKYNNINGU frá lögregl-
unni í Reykjavík um meðferð
skotelda er á það bent að ekki
megi selja skotelda til unglinga
yngri en 16 ára og að öll sala á
flugeldum til barna yngri en 12
ára sé óheimil nema um annað
sé sérstaklega getið.
„Fullorðið fólk þarf að hafa
vit fyrir börnunum og gæta
þess að þeim stafi ekki hætta af
skoteldum og blysum. Börnin
geta stundum orðið áköf, vilja
gleyma sér við spennandi að-
stæður og ganga þá stundum
lengra en æskilegt getur talist.
Munið að slysin gera ekki boð á
undan sér,“ segir m.a. í tilkynn-
ingunni.
Bent er á að mikilvægt sé að
lesa leiðbeiningar sem fylgja
skoteldum og blysum og fara
eftir þeim leiðbeiningum. Ekki
á að vera með skotelda við
brennur og þar sem fólk safn-
ast saman getur notkun þeirra
verið varasöm. Þar þarf að sýna
ýtrustu varkárni, að mati lög-
reglunnar, engu síður en ann-
ars staðar.
Áfengi og púður
fara ekki saman
Þá hvetur lögreglan fólk til
að gæta hófs í áfengisneyslu yf-
ir áramótin og foreldra að
gleyma ekki börnum sínum svo
flestir megi eiga ánægjuleg
áramót.
„Hverjum og einum má vera
ljóst að meðferð áfengis og
notkun skotelda og blysa fara
ekki saman,“ segir að lokum í
tilkynningu frá lögreglunni.
Lögreglan um
meðferð skotelda
„Fullorðið
fólk þarf
að hafa
vit fyrir
börnunum“
Höfuðborgarsvæðið
BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð-
isflokksins hafa lagt til að borgarráð
samþykki að verkefni Borgarendur-
skoðunar verði frá og með 1. janúar
nk. að annast samskipti við innri end-
urskoðendur og annast innri endur-
skoðun hjá borgarsjóði og stofnunum
borgarinnar.
Þá leggja þeir til að stofnunin ann-
ist ráðgjöf um mál sem varða innri
endurskoðun og meðferð fjármuna
borgarinnar og stjórnsýsluendur-
skoðun innan borgarkerfisins eftir því
sem við á auk annarra verkefna sem
borgarráð ákveður að fela stofnun-
inni.
Gert er ráð fyrir að fjalla um fram-
tíð Borgarendurskoðunar á fundi
borgarstjórnar 16. janúar nk.
Samkvæmt tillögu borgarstjóra og
forseta borgarstjórnar er lagt til að
embætti Borgarendurskoðunar verði
lagt niður frá og með 28. febrúar á
næsta ári og ný innri endurskoðunar-
deild taki til starfa 1. mars nk.
Tillaga D-lista um
framtíð Borgar-
endurskoðunar
Stofnunin fái
ný verkefni
Reykjavík
KRAKKARNIR á leikskólanum
Sæborg í Vesturbæ skelltu sér um
borð í þennan fák og og ímynduðu
sér að þau þeystust um sandkass-
ann á ægilegri ferð. Eins og sjá
má er hann líka rúmgóður.
Í dag er alveg sérstakur dagur
sem börnin hafa án efa beðið eftir
lengi, mörg fá að vaka lengur,
fara á brennu og kveikja á blysum
og stjörnuljósum. Það má gera sér
í hugarlund að eitthvað af þessu
hafi borið á góma í ökuferðinni í
gær.
Á þeysi-
reið í sand-
kassanum
Vesturbær
Morgunblaðið/Jim Smart
FLYTJA á það sem eftir stóð óhreyft
af húsinu í Aðalstræti 16 á Lindar-
götu þar sem það mun nýtast undir
íbúðarhús í tengslum við uppbygg-
ingu á lóð nr. 60.
Í gær var húsið flutt vestur á
Granda á geymslusvæði Reykjavík-
urhafnar þar sem það mun standa yfir
áramótin. Fljótlega á nýju ári verður
það tekið aftur upp og sett niður í
Skuggahverfið.
Að sögn Þorsteins Bergssonar,
framkvæmdastjóra Minjaverndar,
hafði húsið, sem var byggt árið 1900,
götunúmerið 14 á sínum tíma. Árið
1901 var það sameinað Aðalstræti 16
og hefur verið svo síðan, eða þar til
Aðalstræti 16 var tekið niður fjöl fyrir
fjöl fyrir nokkrum misserum í
tengslum við fornleifauppgröf í Aðal-
stræti. Elsta hlutanum er haldið til
haga og er hann sem stendur í
geymslu þar til mál skýrast og fram-
kvæmdir hefjast aftur við fyrirhug-
aða hótelbyggingu á horni Aðalstræt-
is og Túngötu. Efri hluti hússins
stendur hins vegar enn á lóðinni, auk
hlutans sem til stendur að flytja.
Eins og greint hefur verið frá er
ráðgert að þar rísi 70–75 herbergja
hótel á þremur hæðum og er stefnt að
því að hótelið verði tilbúið í mars 2005.
Svæðið undir rannsakað
Að sögn Þorsteins hefur loks verið
ákveðið að flytja þennan hluta af Að-
alstræti 16 svo Fornleifastofnun geti
sinnt fornleifarannsóknum á svæðinu
undir húsinu.
„Þetta er liður í því að fækka
spurningarmerkjunum áður en menn
ráðast endanlega til leiks og reisa eitt-
hvað ofan á þetta,“ segir hann.
Annað gamalt og merkilegt hús,
ÍR-húsið, hefur dagað uppi á hafnar-
svæðinu, nánar tiltekið á Ægisgarð-
inum. Þar hefur það verið í geymslu
frá því í mars á síðasta ári en menn-
ingarmálanefnd borgarinnar sam-
þykkti nýlega að flytja það á Árbæj-
arsafn.
Spurður um þetta segir Þorsteinn
litla hættu á því að Aðalstræti 16
dvelji jafnlengi á hafnarbakkanum og
ÍR-húsið.
Hluti af Aðalstræti 16 fluttur í geymslu vestur á Granda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það sem eftir var af Aðalstræti 16. Húsið hægra megin á mynd var flutt
vestur á Granda í gær. Rannsaka á jarðveginn undir því.
Flutt aftur eft-
ir áramót á
Lindargötu 60
Miðborg