Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 16

Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 16
16 C ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Mosfellsbær - Eignamiðlunin er með í sölu einbýlishúsið Brekkuland 4a í Mosfellsbæ. Um er að ræða steinhús, byggt árið 1980. Það er 255 fermetrar ásamt 42 fermetra bílskúr og 42 fermetra vinnustofu sem gæti verið stúdíóíbúð. „Hús þetta er mjög vandað og hef- ur prýtt forsíðu Arkitektablaðsins og einnig verið fjallað um það í öðr- um tímaritum. Það er steypt úr sjón- steypu með innfellingum, en þak- brún er úr ryðfríu aluzinki," sagði Þorleifur St. Guðmundsson hjá Eignamiðluninni. „Húsið er á þremur pöllum, vand- að mjög sem fyrr sagði en ekki alveg fullbúið. Innréttingar eru allar úr mahóníi og graníti og gegnheilt Mer- bau-parket er á gólfum þar sem ekki eru flísar úr graníti eða náttúruleg- um leir. Innihurðir eru allar úr gegn- heilu efni og mjög vandaðar. Komið er inn í rúmgóða forstofu sem er með þreföldum skápum og graníti á gólfi og síðan inn í rúmgott hol sem einnig er granítlagt. For- stofan er með 5 metra lofthæð og glugga alveg upp úr. Stór hurð er á milli holsins og forstofunnar, hún liggur á nokkurs konar ási sem hún snýst á. Til hægri úr holinu er mjög stórt eldhús með sérsmíðuðum mahóníin- nréttingum, eyju og rafmagns-gas- eldavél. Á vinnuborðum er granít og íslenskt stuðlaberg og er það einnig í öðrum hlutum innréttingarinnar að hluta. Gert er ráð fyrir arni í eldhús- inu. Tuttugu og sjö ljós eru í eldhúsinu og loft myndar ákveðið mynstur eins og víðar í húsinu. Á eldhúsgólfi er gegnheilt mahóníparket. Samliggj- andi við eldhúsið er n.k. laufskáli sem er með granítflísum en gengið er út í garðinn úr laufskálanum. Beint áfram úr holinu er mjög stór stofa sem er með 5–7 metra lofthæð, innbyggðum bókahillum, innfluttum gömlum enskum arni úr stáli og tinnu, stórum innbyggðum sjón- varps- og tækjaskáp o.fl. Gengið er beint út á hellulagða verönd úr stofunni. Gólf í stofu eru slípuð en gólfið er um 30 cm lægra fyrir framan arininn, þar sem er inn- byggður svartur leðursófi. Þar er gegnheilt parketi á gólfi. Stigi er niður í stofuna úr áli en telst bráðabirgðalausn. Til vinstri við holið er gangur og stigi upp á efri pallinn. Af ganginum er gengt í þvottahús með bakinngangi og geymslu. Inn af holinu er einnig snyrting sem er með upphengdu vatnssalerni og granítflísum. Á efri pallinum er komið upp í rúmgott hol með Merbau-parketi á gólfi. Út af holinu eru n. k. svalir sem snúa inn í stofuna. Gert er ráð fyrir herbergi inn úr holinu en nú er það hluti holsins. Í holinu/herberginu er einn veggur með hleðslugleri en hann snýr niður að aðalinngangi. Inn af holinu er síðan stórt parketlagt hjónaherbergi sem er með miklum sérsmíðuðum skápum og suðvestur- svölum, en þaðan er fallegt útsýni til Varmár og foss í henni. Vængjahurðir eru út á svalirnar. Innrétting er í hjónaherberginu. Á sömu hæð er baðherbergið. Inn af ganginum er stór stigapallur og sval- ir og tvö svefnherbergi. Ásett verð á þessa eign er 35 millj. kr.“ Brekkuland 4a Húsið er 255 ferm. ásamt 42 ferm. bílskúr og 42 ferm. vinnustofu sem gæti verið stúdíóíbúð. Ásett verð er 35 millj. kr., en þessi eign er til sölu hjá Eignamiðluninni. GRETTISGATA - 101 2-3ja herbergja falleg 65 fm íbúð í góðu litlu fjölbýlishúsi í hjarta borgar- innar. Verð 9,9 millj. Sjá nánari lýsingu og myndir á netinu. GVENDARGEISLI - LEIRDAL, GRAF- ARH. Vel skipulagt 163 fm einbýlishús í Leidaln- um í Grafarholti. Hægt er að kaup húsið fokhelt að innan en tilbúið að utan og verð þá 16,1 millj. með afhendingu í febrúar 2003. Einnig er í boði að kaupa það tilbúið til innréttinga á 21,5 millj. Sjá nánari lýsingu á netinu. NÝBYGGINGAR KLETTABERG - HF. Sérlega vandað og fal- legt parhús með, verönd stórum svölum og óvið- jafnanlegu útsýni yfir Hafnarfjörð. Stutt í þjónustu og skóla. Mikið lagt í innréttingar og böð. Verð 23 millj. Skoðið 55 myndir á www.husakaup.is. TRÖNUHJALLI - KÓP. Mjög vel staðsett parhús ásamt frístandandi bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum og er gengið inn í húsið frá götu- hlið og inn á efri hæð hússins. Neðri hæð hússins er jarðhæð til suðurs og snýr út að skjólsælum garði. Fullbúin eign. Verð 22,9 millj. Sjá nánar 30 myndir á www.husakaup.is og www.mbl.is. KAMBASEL - ENDARAÐHÚS Mjög fal- legt og vandað endaraðhús ásamt innbyggðum bílskúr. Stórar stofur. Allt að 6 svefnherbergi. Mikið geymslurými. Suðursvalir og stór sólpallur. 38 myndir á netinu. ÁLMHOLT - MOS. Þetta vel staðsetta einbýli er 278 fm, 48 fm bílsk. Hús á 2 hæðum og hægt að hafa séríbúð í kjallara. Stór herb. Arinn. Góður garður. Verð 24,5 millj. Sjá 38 myndir á netinu. AUSTURBERG + SKÚR Snyrtileg og rúm- góð 4ra herbergja íbúð í góðu nýlega viðgerðu fjölbýli ásamt litlum bílskúr. Tvennar góðar geymslur og snyrtileg sameign. Stutt í skóla og alla þjónustu. Verð aðeins 12 millj. KLAPPARHLÍÐ - MOS. Glæsileg 4ra her- bergja íbúð í nýju klæddu fjölbýli. Sérinngangur, sérþvottahús. Sérlega vönduð eign á frábærum útsýnisstað. Skoðaðu 21 mynd á netinu. Verð 15,4 millj. Áhv. 9,2 millj. í húsbréfum. ÚTHLÍÐ Sérlega skemmtileg stór og björt kjall- araíbúð á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Húsið og þak í góðu standi. Sérinngangur, sérhiti. Nýlegt ídregið rafmagn en gömul tafla. Mjög góður af- lokaður bakgarður í mikilli rækt. Verð 13,9 millj. 4 - 6 HERBERGJA HÓLAR - LYFTUHÚS Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 7. hæð í góðu nýlega álklæddu lyftuhúsi við Krummahóla. Snyrtileg sameign. Yfirbyggðar svalir og fallegt útsýni yfir Esjuna og sundin. Öll þjónusta í næsta nágrenni m.a. verslunar- og þjónustukjarni, skólar, leikskólar og sundlaug. Verð 9,9 millj. ÁLFHOLT - HAFNARF. Mjög falleg og sér- lega rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu góðu fjölbýli vel staðsettu í Hafnarfirði. Útsýni. Örstutt í skóla, leikskóla og þjónstu. Áhv. 7,5 millj. Verð 12,4 millj. Sjá nánar 25 myndir á www.husa- kaup.is og www.mbl.is. VESTURBERG - LAUS Mjög góð, stór þrig- gja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli. Sérþvottahús. Frábært útsýni. Stutt í skóla og verslanir. Verð 10,9 millj. LÆKJASMÁRI - M. BÍLSKÝLI Einstak- lega vel skipulögð og snyrtileg 3ja herbergja end- aíbúð á 3ju og efstu hæð í litlu fjölbýli. Sér-inn- gangur og sérþvottahús. Íbúðin er fullbúin og nýt- ist einstaklega vel. Allt umhverfi er fullfrágengið og sérlega snyrtilegt. Verð 13,4 millj. BRÆÐRABORGARSTÍGUR Mjög góð 2ja herb. íbúð í fjórbýli. Þakklæðning nýleg, hús end- urkvarsað og íbúðin sjálf var uppgerð fyrir fáum árum. Endurnýjuð einangrun útveggja, gluggum skipt út, ný eldhúsinnrétting, ný gólfefni. Raf- og vatnslagnir í íbúð hafa verið endurnýjaðar. Sér- lega skemmtileg baklóð. Verð 7,8 millj. LAUS. 2 HERBERGI I 3 HERBERGI GRUNDARHÚS - ENDARAÐHÚS Fallegt endaraðhús á tveimur hæðum með góðri suður- verönd og garði. Gott hús í grónu hverfi, stutt í skóla, leikskóla, íþróttahús, sundlaug og aðra þjónustu. 3 góð svefnherbergi og tvær stofur. LAUST FLJÓTLEGA. Verð 16,5 millj. Sjá nánar 26 myndir á www.husakaup.is og www.mbl.is. YRSUFELL- RAÐHÚS Mjög gott raðhús á tveimur pöllum með grónum garði og góðum bíl- skúr. Nýir skjólveggir fyrir framan húsið sem af- marka skemmtilega hellulagða stétt fyrir framan húsið. Laust fljótlega. Gott verð! 17,9 millj. TEIGAGERÐI + STÓR SKÚR Skemmtileg neðri sérhæð í vönduðu tvíbýli á þessum skemmtilega stað í Smáíbúðahverfinu ásamt stórum bílskúr. Gott endurnýjað þak, tvöfalt verk- smiðjugler og Danfoss-hitastýring. Verð 16,3 millj. Sjá nánar 31 myndr á www.husakaup.is og www.mbl.is. BERJARIMI Fallegt 168 fm parhús á tveimur hæðum. Húsið er ekki tilbúið og því kjörið tæki- færi að innrétta á sinn hátt. Verð 18,5 millj. Sjá nánari lýsingu og myndir á netinu. SAFAMÝRI Glæsileg 120 fm neðri sérhæð ásamt 28 fm bílskúr í þessu vel staðsetta þríbýli. Íbúðin er mikið endurnýjuð, m.a baðherb., gólf- efni og allt tréverk. Skipti möguleg á stærri eign. Áhv. 8,8 millj. Verð 18,9 millj. SÉRBÝLI ÆGISIÐA Glæsilegt og algjörlega endurnýjað ein- býlishús á þessum eftirsótta stað. Húsið er hægt að nýta hvort sem er í einu lagi eða í tvennu lagi með séríbúð í kjallara. Góður sérstæður bílskúr. Þetta er eign sem vert er að skoða. GRETTISGATA - M. AUKAÍBÚÐ OG ATV.HÚSNÆÐI GAUTAVÍK - MEÐ GÓÐU AÐGENGI Glæsileg 3-5 herbergja íbúð í litlu fjölbýli, sérstaklega hönnuð og innréttuð með þarfir fatlaðra í huga, m.a. baðaðstaða, engir þröskuldar og gott aðgengi. Tvenn- ar verandir. Vandaðar sérsmíðaðar inn- réttingar, allt tréverk í stíl úr ma-hóní. Allt sér. 4 íbúðir í húsinu sem er staðsett efst í lokuðum botnlanga. LAUS FLJÓTLEGA. Verð 15,7 millj. Sérlega fallegt gamalt einbýli í miðbænum, byggt 1908, allt uppgert, m.a. nýleg þak- klæðning, nýlegt rafmagn og ofnakerfi. Innréttingar og gólfefni endurnýjuð að mestu leyti. Lítil 2-3ja herbergja íbúð á jarðhæð og blómaskáli í garði. Húsinu fylg- ir 148 fm sérlega vandað atvinnuhúsnæði á baklóð með margvíslega möguleika. Hellulagt bílastæði með hitalögn. Fallegur lítill garður og blómakantar. Vandaður útskurður á tréverki ofan við glugga. Verð samtals 27,5 millj. Sjá nánar 36 myndir á www.husakaup.is og www.mbl.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.