Morgunblaðið - 13.01.2003, Síða 1
Oft sjónræn
skemmtun
Gagnrýni um söngleikinn Sól og
Mána Listir 14
Sökk dýpra
og dýpra
Játning Eiðs Smára um spila-
fíkn vekur athygli Íþróttir 12
BRETLAND ætti ekki að
taka þátt í hernaðaríhlutun í
Írak án þess að fyrir því lægi
ótvíræð heimild Sameinuðu
þjóðanna. Þetta fullyrti ráð-
herra í brezku ríkisstjórninni í
gær. Clare Short, ráðherra
þróunaraðstoðarmála í ríkis-
stjórn Tony Blairs, sagði í
ávarpi í Lundúnum að Bret-
landi bæri skylda til að hindra
að Bandaríkin færu ein út í
stríð gegn Írak.
„Hlutverk Bretlands á
þessum sögulegu og viðsjár-
verðu tímum er að reyna að
halda Bandaríkjunum við far-
veg Sameinuðu þjóðanna; að
efla völd SÞ og víkja ekki frá
SÞ-leiðinni,“ sagði Short.
Í hópi ráðamanna utan
Bandaríkjanna hefur Blair
verið dyggastur í stuðningi við
herskáa stefnu George W.
Bush Bandaríkjaforseta
gagnvart Írak. En margir
áhrifamenn í brezka Verka-
mannaflokknum eru ekki alls
kostar sáttir við fylgispekt
forsætisráðherrans við stefnu
Bush. Niðurstöður skoðana-
könnunar meðal héraðsfor-
ystumanna flokksins vítt og
breitt um Bretland, sem birt-
ar voru í gær, sýna svo ekki
verður um villzt að grasrótin í
flokknum er andsnúin stríði
við Írak án ótvíræðs sam-
þykkis SÞ.
Meirihluti Breta á móti
Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar sem gerð
var fyrir ITV-sjónvarpsstöð-
ina brezku og verður birt þar í
dag, mánudag, telur meiri-
hluti Breta að Saddam Huss-
ein Íraksforseti sé ekki svo
hættulegur að það réttlæti að
farið sé út í stríð.
Þrjátíu af hundraði svar-
enda í könnuninni, sem við-
horfskannanafyrirtækið You-
Gov gerði, telja að aðalhvatinn
að áhuga bandarískra og
brezkra stjórnvalda á íhlutun í
Írak sé viljinn til að stýra nýt-
ingu olíulinda við Persaflóa.
Bretar haldi aftur af
Bandaríkjamönnum
Brezkur ráð-
herra segir hern-
að í Írak ekki
koma til greina
án heimildar SÞ
Lundúnum. AP.
SEBASTIAN Clover, fimmtán ára Englendingur, tryggði sér í
gær sess í metabókum með því að verða yngsti maðurinn til að
sigla einsamall yfir Atlantshafið. Hér veifar hann er hann
sigldi seglskútu sinni, Reflection, sigri hrósandi inn á Ensku
höfn á Antigua-eyju í hádeginu í gær. Faðir hans, Ian Clover,
sagði að „hreint brjálæði“ hefði rekið þá feðga til að fara í
kappsiglingu hvor á sinni skútunni yfir Atlantshaf. Þeir hófu
siglinguna á Kanaríeyjum þann 19. desember.
AP
Yngstur yfir Atlantshaf
HÓPUR franskra meist-
arakokka, rithöfunda og
fjölmiðlastjarna hyggst á
næstunni senda Jóhann-
esi Páli II páfa formlega
bæn um að matgræðgi
verði fjarlægð af listanum
yfir dauðasyndirnar sjö,
eftir því sem franska blað-
ið Le Journal du Dim-
anche greindi frá í gær.
Félagar í Samtökum
um matgræðgis-málið,
þ.á m. meistarakokkarnir
Paul Bocuse og Alain
Ducasse, viðurkenna að
kjarni málsins felist í
skilningi orðsins „gourm-
andise“, sem í hugum
flests frönskumælandi
fólks hefur breytzt úr
„ofáti“ í að „kunna að
njóta góðs matar“.
Matgræðgi
verði ekki
dauðasynd
París. AFP.
Mynddiskalistinn fyrir fyrstu
viku ársins Fólk 32
Austin Powers
á toppnum
STOFNAÐ 1913 11. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 mbl.is
FRAMKVÆMDASTJÓRN Samfylkingarinnar veitti
Össuri Skarphéðinssyni, formanni flokksins, sl. mánu-
dag umboð til að ræða við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur um hvernig nýta mætti krafta hennar. Bryndís
Hlöðversdóttir, formaður þingflokks Samfylkingar-
innar, segir að þingflokkurinn hafi verið einhuga um að
bjóða ætti Ingibjörgu Sólrúnu að verða forsætisráð-
herraefni og talsmaður flokksins. Engin formleg sam-
þykkt hafi verið gerð í málinu, enda ekki þörf á því á
vettvangi þingflokksins þar sem ákvörðunin hafi verið
tekin á vettvangi flokksins í samráði við þingmenn og
aðra trúnaðarmenn, en gengið hafi verið úr skugga um
að allir væru sáttir við þetta boð. Ingibjörg Sólrún og
Össur boðuðu til blaðamannafundar í gær þar sem til-
kynnt var að Ingibjörg Sólrún yrði forsætisráðherraefni
Samfylkingarinnar. Þetta er óháð því hvort hún nær
kjöri sem alþingismaður. Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, mun leiða hugsanlegar
stjórnarmyndunarviðræður og einbeita sér að innra
starfi flokksins en Ingibjörg Sólrún verður fulltrúi
flokksins í helstu kappræðum kosningabaráttunnar.
Össur segist hafa beðið Ingibjörgu Sólrúnu að taka
að sér þetta hlutverk 4. janúar sl. eftir að hafa kannað
viðhorf þingmanna Samfylkingarinnar, líklegra þing-
manna að loknum kosningum og trúnaðarmanna víðs
vegar um landið. Ingibjörg Sólrún hafi ekki léð máls á
hugmyndinni í fyrstu en fallist á þetta í upphafi síðustu
viku.
Morgunblaðið/Þorkell
Þingflokkurinn ein-
huga um Ingibjörgu
Af fullum/4
Bryndís Hlöðversdóttir formaður þingflokks Samfylkingar
Jón gefur lítið fyrir opinberar tölur
um að atvinnuleysi sé á bilinu 2–3%.
„Ég er með alls konar fólk á skrá
hérna, háskólamenntað fólk, margir
eru úr tölvugeiranum, hér eru bók-
arar, fjármálastjórar og fleira reynt
fólk. Verkamenn fáum við ekki á skrá
hérna og ófaglært starfsfólk veitinga-
staða, stórmarkaða og stórverslana
sjáum við ekki. Það fólk fer gjarnan
úr einum stórmarkaði í annan, því
mikil hreyfing er á fólki í þessum
geira.“
Jón segir að hann hafi, frá því að
hann stofnaði Ráðningarþjónustuna
árið 1995, fellt nöfn fólks út úr tölvu-
grunni eftir fjóra mánuði, enda hafi
reglan verið sú að þá hafi það verið
komið með vinnu. „Þessari reglu get
ég ekki fylgt lengur. Við könnuðum
nú í vikubyrjun hve margir af þeim,
sem skráðu sig hjá okkur í janúar og
febrúar á síðasta ári, væru komnir
með vinnu. Flestir þeirra sem við
höfðum samband við voru enn at-
vinnulausir.“
Fólk í starfi þorir
ekki að skipta
Jón segir að sú breyting hafi einnig
orðið á hópi umsækjenda, að þar sé
nú eingöngu fólk sem hafi ekki að
neinum störfum að hverfa, en fólk
sem hafi e.t.v. áhuga á að skipta um
starf haldi að sér höndum. „Óánægja
með starf er ekki nóg til að hrekja fólk
út í óvissuna á vinnumarkaði. Það
þorir hreinlega ekki að skipta. Núna
fáum við yfir eitt þúsund heimsóknir
á heimasíðu okkar á dag og 30 manns
skrá sig atvinnulausa hjá okkur á degi
hverjum. Talan er því þegar komin í
300 í janúar, en í meðalári ættu 2–300
manns að skrá sig á heilum mánuði.“
300 sóttu um
á tíu dögum
Framkvæmdastjóri Ráðningarþjón-
ustunnar telur atvinnuleysi 5–6%
„VIÐ höfum fengið um 300 umsækjendur um störf á skrá hjá okkur á
tíu fyrstu dögum ársins. Á sama tíma berast fáar beiðnir frá fyr-
irtækjum um starfsfólk, eða þrisvar sinnum færri beiðnir en í meðal-
ári. Ég held að raunverulegt atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu sé
nærri því að vera 5–6%,“ segir Jón Baldvinsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Ráðningarþjónustunnar ehf.
GERT er ráð fyrir kólnandi veðri um
land allt í vikunni eftir langvarandi
hlýindi það sem af er vetri. Á
fimmtudag gerir Veðurstofan ráð
fyrir snjókomu um land allt.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands verður hæg suðvest-
læg átt og skúrir eða él á vestan-
verðu landinu á morgun, en létt-
skýjað austan til. Hiti verður víða 0
til 5 stig, en vægt frost norðaustan-
lands. Búist er við svipuðu veðri
næstu daga. Nánast ekkert hefur
snjóað á landinu það sem af er vetri
og hlýindi hafa verið dögum saman.
Snjókoma
um land allt
á fimmtudag
♦ ♦ ♦