Morgunblaðið - 13.01.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.01.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Vertu nú duglegur í uppvaskinu, Össi minn. Fjölmenningarvefur fyrir ungt fólk Markmiðið að virkja ungt fólk Fjölmenningarvefur ánokkrum tungu-málum fyrir ungt fólk verður formlega opn- aður í Gamla Apótekinu, kaffi- og menningarmið- stöð ungs fólks á norðan- verðum Vestfjörðum í kvöld en um samstarfs- verkefni Gamla Apóteks- ins, Ný-ungar, félagsmið- stöðvar fyrir ungt fólk, á Egilsstöðum, og Fjöl- menningarseturs á Ísafirði er að ræða. Morgunblaðið ræddi við Halldór Hlöð- versson, framkvæmda- stjóra Gamla Apóteksins, og spurði um vefinn og til- urð hans og tilgang. – Hvenær verður vefur- inn ræstur? „Vefurinn verður form- lega opnaður í Gamla Apó- tekinu á Ísafirði í kvöld klukkan 20, að viðstöddum öllum þeim ungmennum sem hingað til hafa komið að gerð vefj- arins. Viðstaddir verða einnig Þráinn Sigvaldason, forstöðumað- ur Ný-ungar, félagsmiðstöðvar fyrir ungt fólk á Egilsstöðum, og Einar Guðbrandsson, fulltrúi landsskrifstofu Ungs fólks í Evr- ópu á Íslandi, ásamt fleirum sem tengjast verkefninu.“ – Segðu okkur frá innihaldi vefjarins … „Á vefnum verða almennar upplýsingar um íslenskt samfélag, s.s. ökuleyfi, kosningarétt, sjálf- ræðisaldur og fleira. Einnig er ætlunin að hafa á vefnum svæð- isbundnar upplýsingar um það íþrótta- og tómstundastarf sem stendur ungu fólki til boða á hverjum stað og þá möguleika sem það hefur á því að koma fram með nýjar hugmyndir og taka sem virkastan þátt í samfélaginu.“ – Hver hefur haft veg og vanda af efnis- og gagnasöfnun? „Efnis- og gagnasöfnun og út- litsgerð vefjarins hefur verið í umsjá ungs sjálfboðaliða frá Hol- landi, Stefan Van Nierop. Þá hafa verið honum til aðstoðar ung- menni frá Póllandi, Íslandi, Þýskalandi, Serbíu, Króatíu, Kúbu og Svíþjóð.“ – Hver er tilgangur og mark- mið þessa vefjar? „Markmiðið er að virkja ungt fólk á Íslandi til þátttöku í fjöl- menningarsamfélaginu og um- ræðu um það og að miðla upplýs- ingum um íslenskt samfélag á sem flestum tungumálum. Í framtíð- inni er vonast til að vefurinn skapi umræðugrundvöll fyrir ungt fólk um fjölmenningarsamfélagið á Ís- landi. Einnig gefur það ungu fólki af erlendum uppruna möguleika á því að eiga í samskiptum við önn- ur ungmenni á Íslandi svo og ann- ars staðar, sem tala sama tungu- mál.“ – Hvernig er samstarfið við Egilsstaði tilkomið? „Gamla Apótekið og Fjölmenn- ingarsetrið hafa verið í samstarfi til að aðlaga starfsemi beggja aðila betur að ungmennum af erlendum uppruna og gefa íslenskum ung- mennum í leiðinni tækifæri til að aðlagast fjölmenningarsamfélag- inu. Fjölmenningarsetrið og Ræt- ur, félag um menningarlega fjöl- breytni, hafa verið í samstarfi við Rauða krossinn vegna þjóðhátíð- anna fyrir austan sem hafa verið haldnar undanfarin tvö ár og einn- ig var ég að vinna áður í Ný-ung og þekki því vel til fyrir austan.“ – Er vefurinn byggður á fyrir- myndum eða er þetta sá fyrsti sinnar tegundar í landinu? „Vefurinn er ekki byggður á fyrirmynd og ég veit ekki um sam- bærilegan vef á nokkrum tungu- málum fyrir ungt fólk á Íslandi. Eitt af aðaleinkennum hans og styrkur er að hann verður á nokkrum tungumálum. Vefurinn verður ekki opnaður fullunninn þar sem hann kemur til með að verða áfram í mótun og er stefnan að virkja sem flest ung- menni til þátttöku við mótunina.“ – Segðu okkur hvers vegna þörf er á vef sem þessum … „Það er mikil þörf á því að skapa sameiginlegan umræðu- grundvöll fyrir ungt fólk á Íslandi, hvar sem er úr heiminum og hvar sem er á landinu. Meiri umræða þarf að vera um fjölmenningar- samfélagið og það er nauðsynlegt að sjónarmið ungs fólks komi fram. Einnig þurfum við að spá í hvernig aðlögun okkar allra sem byggjum þetta land þarf að vera að breyttu samfélagi svo að allir fái að njóta sín sem best, óháð lit- arhætti, þjóðernisuppruna, tungu eða trúarbrögðum.“ – Sérðu líkindi til að vefurinn geti teygt arma sína víðar en um Vestfirði og Egilsstaði? „Það er ekkert á borðinu í þeim efnum, en það væri vissulega ánægjulegt að sjá þennan vef með tíð og tíma þjóna landinu í heild. Það er ekkert nema gott um það að segja ef það tækist að bæta við efni þannig að ungt fólk gæti sótt sér upplýsingar á mörgum tungu- málum, sama hvar í landinu það væri statt.“ – Finnurðu fyrir eft- irvæntingu fyrir vestan vegna vefjarins? „Það er kannski of- mælt að tala um al- menna eftirvæntingu, en það hafa komið mörg ungmenni að vinnslu vefjarins og auðvitað er eftirvænt- ing í þeirra röðum að sjá afrakstur vinnu sinnar.“ – Hefur þetta verkefni kostað mikið? „Það er nú reikningsdæmi sem ekki hefur verið reiknað enn sem komið er, þannig að þessu get ég ekki svarað.“ Halldór Hlöðversson  Halldór Hlöðversson er fædd- ur í Reykjavík 10. október 1973. Hann er útskrifaður íþrótta- kennari og núverandi fram- kvæmdastjóri Gamla Apóteksins, sem er kaffi- og menningar- miðstöð ungs fólks í Hafnar- stræti 18 á Ísafirði. Halldór á einn son, Arnór Rúnar Hall- dórsson, fæddan 1994. … svo að allir fái að njóta sín sem best

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.