Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 12
ERLENT
12 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
BIC Atlantis penni
Verð 90 kr/stk
STABILO SWING
áherslupenni Verð
70 kt/stk
Ljósritunarpappír 400 kr/pakkningin
Skilblöð númeruð,
lituð, stafróf eða eftir
mánuðum.Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í 10-25-50 og 100 stk einingum
NOVUS
B 425
4ra gata, gatar 25 síður.
Verð 2.925 kr
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003
Ljósritunarglærur,
100 stk í pakka.
Verð 1.599 kr/pk
Bleksprautu
50 stk í pakka 2.990 kr/pk
STABILO BOSS
Verð 78 kr/stk
GEORGE Ryan, fráfar-
andi ríkisstjóri í Illinois í
Bandaríkjunum, hefur
ákveðið að breyta refs-
ingu allra þeirra 167
manna, sem í ríkinu bíða
þess að dauðadómi yfir
þeim verði fullnægt, í
lífstíðarfangelsi. Sagði
Ryan er hann tilkynnti
þessa ákvörðun sína á
laugardag, að dauða-
dómar, eins og að þeim
hefur verið staðið í rík-
inu, væru „geðþótta- og
handahófskenndir, og
því ósiðlegir.“
Fullvíst þykir að þessi
ákvörðun ríkisstjórans, sem á sér
engin fordæmi, muni hafa mikil áhrif
á umræðuna um dauðarefsingar í
Bandaríkjunum. Saksóknarar, til-
vonandi arftaki Ryans í embætti rík-
isstjóra og aðstandendur fórnar-
lamba nokkurra hinna dauðadæmdu
mótmæltu ákvörðun ríkisstjórans
harðlega.
Fyrir þremur árum lét Ryan gera
hlé á fullnægingu dauðarefsinga í
ríkinu unz hann hefði látið gera út-
tekt á sanngirni refsingakerfisins.
Hann sagði að sér hefði fundizt að
hann ætti ekki annarra kosta völ en
að breyta öllum dauðadómunum í
lífstíðardóma eftir að færðar voru
sönnur á nokkur tilvik, þar sem sak-
lausir menn voru dæmdir til dauða.
„Mistakapúkinn
ríðum húsum í refs-
ingakerfi okkar – mis-
tök við að færa sönnur
á hver sé sekur og
mistök við að ákveða
hverjir hinna sak-
felldu verðskuldi að
láta lífið. Af þessum
ástæðum hef ég í dag
ákveðið að breyta
refsidómunum yfir
öllum dauðadeildar-
föngum,“ sagði ríkis-
stjórinn í ávarpi við
Northwestern-há-
skóla í Chicago. Ryan,
sem lætur af embætti
í dag, mánudag, sagðist í bréfi til að-
standenda myrtra hafa samúð með
þeim, en sér hefði fundizt að hann
yrði að gera þetta. „Ég er ekki tilbú-
inn að taka þá áhættu að við líflátum
mann sem gæti verið saklaus,“ skrif-
aði Ryan.
Þessi rök þykir saksóknurum ekki
upp á marga fiska. „Mikill meirihluti
þeirra sem sótt hafa um mildun
dauðadóms hefur ekki einu sinni
reynt að þræta fyrir sekt sína,“ sagði
Kevin Lyons, saksóknari Peoria-
sýslu.
Frá því dauðarefsingar voru aftur
teknar upp í Illinois árið 1977 hafa
yfirvöld í ríkinu hreinsað 17 dauða-
dæmda menn af þeim sökum sem
þeir voru dæmdir fyrir. Það eru fleiri
en í nokkru öðru ríki Bandaríkjanna
fyrir utan Flórída.
Ásakanir um lögregluofbeldi
Fjórir fyrrverandi dauðadeildar-
fangar, sem voru hreinsaðir af sök í
síðustu viku, fullyrtu hver fyrir sig
að lögreglan hefði þvingað þá, jafn-
vel pyntað, til að játa á sig brot sem
þeir frömdu ekki. Óháður saksóknari
er að rannsaka hvort lögregluforing-
inn sem var yfir hópi óstýrilátra lög-
reglumanna sem grunaðir eru um að
hafa pyntað þessa fjóra blökkumenn
og tugi aðra á tímabilinu 1972 til
1986, skuli leiddur fyrir rétt.
The Washington Post hældi rík-
isstjóranum fráfarandi í gær. Bera
bæri virðingu fyrir því áræði Ryans
„að horfast í augu við það hve illilega
réttarkerfi ríkis hans hefur brugð-
izt.“
Dauðadeild Illinois tæmd
Fráfarandi ríkisstjóri segir dauðarefsingar ósiðlegar
George Ryan
Chicago. AP, AFP.
Reuters
Aaron Patterson (t.v.) og Leroy Orange, fyrrverandi dauðadeildarfangar,
heilsast í Northwestern-háskóla í Chicago í gær, áður en þeir hlýddu þar á
ræðu George Ryan, fráfarandi ríkisstjóra.
FLAK Fokker F-28-skrúfuþotu
perúska flugfélagsins TANS í
Amazon-skóginum, fannst loks
á laugardag, tveimur dögum eft-
ir að hún fórst. Voru 46 manns
innanborðs og komst enginn
þeirra lífs af. Flugvélin var í að-
flugi að borginni Chachapoyas,
sem er í fjalllendi og um rúma
600 km norður af höfuðborginni
Lima, er hún fórst á fimmtudag.
Björgunarsveitir komust ekki á
vettvang í bili vegna veðurs.
Galtieri
látinn
LEOPOLDO Galtieri, fyrrver-
andi hershöfðingi og stjórnar-
herra í Argentínu, lézt í gær á
hersjúkrahúsi í Buenos Aires.
Kvað bana-
mein hans
hafa verið
krabbamein;
hann var 76
ára að aldri.
Galtieri var
einn leiðtoga
hershöfð-
ingjastjórn-
arinnar, sem
fór með
völdin í Arg-
entínu á árunum 1976–1983, á
tímum „Skítuga stríðsins“ svo-
kallaða. Hann var forseti Arg-
entínu 1981–1982 og það var
hann sem gaf út skipunina um
innrás Argentínuhers í Falk-
landseyjar. Þar með hófst stríð
við Breta um yfirráð yfir eyjun-
um, sem lyktaði eftir tíu vikna
átök með algerum ósigri Arg-
entínumanna. Galtieri var hand-
tekinn í júlí 2002 vegna meintrar
aðildar að mannránum og morð-
um á 20 vinstrisinnuðum skæru-
liðum árið 1980. Hann sat eftir
það í stofufangelsi.
Maurice
Gibb allur
MAURICE Gibb, sem lék á
bassa og söng í diskóhljómsveit-
inni Bee Gees, lézt í gær, 53 ára
að aldri.
Hann fékk
hjartaáfall
er verið var
að gera á
honum
neyðarupp-
skurð vegna
botnlanga-
kasts á
sjúkrahúsi í
Miami á
Flórída á fimmtudag. Ásamt
bræðrum sínum Robin og Barry
varð Gibb ein skærasta stjarna
diskótímabilsins á áttunda ára-
tugnum, þótt tónlist þeirra
bræðra – sem fæddust brezkir
en hófu frægðarferilinn í Ástral-
íu – nyti vinsælda langt fram yfir
það. Plötur Bee Gees hafa selzt í
yfir 110 milljónum eintaka og er
hljómsveitin þar með í hópi
þeirra fimm söluhæstu í sögunni.
STUTT
Flak
fundið
Maurice Gibb
Leopoldo F.
Galtieri
SEM konsertpíanista finnst Banda-
ríkjamanninum Barrett Wissman
að færustu hljóðfæraleikarar ættu
að eiga þess kost að leika á beztu
hljóðfærin sem völ er á.
Sem kaupsýslumaður og fjár-
festir gerir hann sér grein fyrir að
oft hefur mesta hæfileikafólkið
ekki efni á því að komast yfir eitt
af þessum sjaldgæfu og dýru grip-
um.
Fyrir um sex árum stofnaði
Wissman félag sem kaupir dýr,
klassísk hljóðfæri – sem mörg voru
smíðuð af löngu gengnum meist-
urum – í þeim tilgangi einum að
lána þau því fólki sem beztu tökin
kann á því að töfra tóna út úr þeim.
„Þetta er fólkið sem stendur
fremst í sinni stétt og það þarf að
hafa til umráða hljóðfæri sem kost-
ar allt að því á bilinu eina til fjórar
milljónir dollara [andvirði um 80
til 320 milljóna ísl.kr.],“ segir
Wissman í samtali við AP-
fréttastofuna. Eiginkona hans er
sellóleikarinn Nina Kotova.
Aðrir auðugir velgjörðarmenn
hafa séð tónlistarmönnum fyrir
hljóðfærum, en að sögn Wissmans
gera þeir það oft með ómarkviss-
um hætti. „Ég ákvað að koma ein-
hverju í gang sem yrði færum
hljóðfæraleikurum kerfisbundið að
liði,“ segir Wissman.
Hann hefur keypt yfir tíu af-
burðahljóðfæri, mestmegnis fiðlur
og selló. Hann gefur ekki upp
verðgildi hvers og eins hljóðfæris,
en segir það rokka á bilinu sem
svarar um átta milljónum ísl. kr. til
hundruða milljóna.
Christopher Adkins, fyrsti selló-
leikari í sinfóníuhljómsveit Dallas,
er einn þeirra sem hafa notið þess
að hafa hljóðfæri í láni frá Crem-
ona-félagi Wissmans. Það selló var
smíðað í Róm árið 1714.
Það felst viss áhætta í því að
lána slíka dýrgripi. „Vegna söfn-
unargildis þessara hluta – sem
ekki er hægt að endursmíða nýja –
hefur verð þeirra rokið upp úr öllu
valdi,“ segir Wissman um hljóðfæri
á borð við fiðlur Stradivariusar og
Guarneris, sem ráku sín hljóðfæra-
smíðaverkstæði í Cremona á Ítalíu
á 17. og 18. öld. Ein Stradivarius-
arfiðla í eigu Cremona-félagsins,
smíðuð 1714 og metin á
um 300 milljónir króna,
hvarf fyrir skemmstu, er
hún var í höndum sér-
hæfðs hljóðfærasala í
New York sem hafði ver-
ið falið að hjálpa til við
hugsanlega sölu á gripn-
um.
Hljóðfærasalinn,
Christophe Landon, tjáði
lögreglu að hann hefði
skilið fiðluna eftir í
einkaherbergi með hugs-
anlegum viðskiptavini og
tók ekki eftir því fyrr en
tveimur dögum síðar að
dýrgripurinn var horf-
inn. Greiddar voru 1,9
milljónir dollara, 154 milljónir
króna, í tryggingabætur fyrir fiðl-
una, en málaferli standa enn yfir
vegna málsins.
Mikill öryggisviðbúnaður er því í
kring um hljóðfærin frá Cremona-
félagi Wissmans, sem eru í reglu-
legri notkun. Fiðlueinleikarinn
Kurt Nikkanen, sem býr í New
York, setur það þó ekki fyrir sig.
Hann spilar reglulega bæði á
Grulli-fiðlu frá 1890, en heldur þó
meira upp á aðra og eldri fiðlu úr
safni Wissmans. „Ég hef ekki fund-
ið neina fiðlu sem jafnast á við
Guarneri-fiðluna „mína“,“ segir
Nikkanen. „Hljómurinn sem maður
hefur í eyranu þegar maður spilar
á hana; nú get ég ekki hugsað mér
að vera án hans.“
Lánar dýrustu
hljóðfæri heims
Dallas. AP.
AP
Fiðluleikarinn Kurt Nikkanen með Grulli-
fiðlu, smíðaða árið 1890. Hana er hann með í
láni frá Cremona, félagi kaupsýslumannsins
og píanistans Barretts Wissmans.
FULLTRÚAR tveggja fylkinga upp-
reisnarmanna á Fílabeinsströnd voru
í gærkvöld væntanlegir til Lomé, höf-
uðborgar grannríkisins Tógó, til að
staðfesta vopnahlé í átökunum sem
staðið hafa í landinu í 16 vikur.
„Ef það á að komast á friður í
þessu landi verðum við að undirrita
þetta skjal,“ sagði Felix Doh, foringi
annars uppreisnarhópsins sem látið
hefur að sér kveða í vesturhluta þess-
arar fyrrverandi frönsku nýlendu.
Vonazt er til að vopnin þegi á meðan
á friðarviðræðum stendur, sem eiga
að hefjast í París um miðja vikuna og
fyrirhugað er að fulltrúar allra
þriggja uppreisnarhópanna í landinu
auk ríkisstjórnar Laurents Gbagbo
forseta sæki.
Von um
vopnahlé
Abidjan, Bouake. AFP, AP.
Fílabeinsströnd
RÁÐHERRAR OPEC-olíufram-
leiðsluríkjanna samþykktu á fundi í
höfuðstöðvum samtakanna í Vínar-
borg í gær að auka framleiðsluvið-
miðið um 6,5%. Var þetta ákveðið í
því skyni að mæta þeim samdrætti
sem orðið hefur á framboði á olíu á
heimsmarkaði vegna allsherjarverk-
fallsins í Venesúela. Forseti OPEC,
Abdullah bin Hamad Al Attiyah,
sagði framleiðsluaukninguna, um 1,5
milljónir fata á dag, taka gildi 1.
febrúar nk.
Olíufram-
boð aukið
Vínarborg. AP.
♦ ♦ ♦