Morgunblaðið - 13.01.2003, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 29
DAGBÓK
VESTUR tekur upp spilin
sín, skoðar þau lauslega en
sér fátt merkilegt og leggur
þau frá sér til að hræra í
kaffibollanum. Hann er rétt
búinn að taka fyrsta sopann
þegar sögnum er lokið og við
blasir að spila út gegn sex
hjörtum. Settu þig í hans
spor:
Vestur
♠ D1095
♥ --
♦ K1085
♣D10973
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 6 hjörtu !
Pass Pass Pass
Suður er ekkert að tví-
nóna við hlutina. En það er
hans mál. Þitt er að spila út.
Satt best að segja er ekki
á miklu að byggja. Og þó.
Sagnhafi virðist ekki státa
af neinum afgerandi hliðar-
lit, svo sennilega er hann
með langt hjarta og dreifan
styrk til hliðar. Ekkert virð-
ist liggja á að fría slag fyrir
vörnina og meginhugsunin
ætti að vera sú að komast
klakklaust út úr spilinu. Og
þá er laufið best, þar sem
lengdin er mest, því ef sagn-
hafi er einhvers staðar stutt-
ur fyrir þá er það í laufi:
Norður
♠ G64
♥ D843
♦ 9642
♣K2
Vestur Austur
♠ D1095 ♠ 832
♥ -- ♥ K107
♦ K1085 ♦ DG3
♣D1093 ♣G854
Suður
♠ ÁK7
♥ ÁG9652
♦ Á7
♣Á6
Útspil í tígli sleppur, en ef
þú valdir spaðann er senni-
legt að þér svelgist á
kaffinu. Sagnhafi fær á gos-
ann og spilar hjartadrottn-
ingu. Hann getur svo notað
innkomuna á laufkóng til að
svína aftur fyrir hjartatíuna
og gefur aðeins einn slag á
tígul.
Spilið kom upp í þriðju
umferð Reykjavíkurmótsins
og slemma var sögð á þrem-
ur borðum. Einn sagnhafi
fékk út spaða og vann
slemmuna, en hinir tveir
voru ekki eins heppnir og
fóru tvo niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vel að þér um margt
og kannt að nýta það til hins
ýtrasta. Þolinmæði er ekki
þín sterka hlið.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu víðsýni þegar þú ræð-
ir hjartans mál fólks. Þú
myndir ekki sjálfur vilja láta
afgreiða sannfæringu þína
sem dellu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur tekið ákvörðun sem
hreyfir við vinum þínum og
ættingjum. Haltu fast við
áform þín og láttu skoðanir
annarra ekki hafa áhrif á þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hugsaðu þig vandlega um
áður en þú segir af eða á um
tilboð sem þér berast. Ekki
er allt gull sem glóir og þú
græðir á því að skoða hlutina.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er góður eiginleiki að
geta snúið hinum margvís-
legustu aðstæðum sér í hag.
Láttu því einskis ófreistað til
að ná settu marki.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að taka þátt í sam-
eiginlegum kostnaði og verð-
ur að gæta þess að láta smá-
munasemina ekki ná tökum á
þér. Hugsaðu málið vand-
lega.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Settu það í forgang að verða
öðrum að liði því það gefur
sjálfum þér mest. Ekki þarf
alltaf að vera ástæða til þess
að maður láti gott af sér
leiða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Stundum fara málin á annan
veg en maður ætlaði en vertu
ekkert að velta þér upp úr
því og taktu bara þann pól í
hæðina að ekki er allt á þínu
valdi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Stundum er ekki nóg bara að
heyra það sem sagt er heldur
þarf líka að taka með í reikn-
inginn hvernig hlutirnir eru
settir fram. Hafðu þetta í
huga.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft að söðla um og finna
orku þinni heppilegasta far-
veginn, að öðrum kosti áttu á
hættu að vinna allt fyrir gíg.
Drífðu í þessu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki reka á reiðanum,
heldur taktu málin í þínar
hendur og framkvæmdu þau.
Þeir sem grípa tækifærin
verða ofan á, hinir sitja eftir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að vera vandlátari í
vali á samstarfsmönnum.
Þeir eru ekki traustastir sem
tala mest, en af minnstri
þekkingu. Varastu slíka.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ákveðið efni hefur lengi
blundað með þér og nú er
rétti tíminn til að festa það á
blað fyrir sjálfan þig og svo
aðra ef þú kýst að deila því
með þeim.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
VORHVÖT
Þú, vorgyðja! svífur úr suðrænum geim
á sólgeisla vængjunum breiðum
til Ísalands fannþöktu fjallanna heim
að fossum og dimmbláum heiðum;
ég sé hvar í skýjum þú brunar á braut,
ó ber þú mitt ljóð heim í ættjarðar skaut.
Og kveð þar fyr gumum í gróandi dal
við gullskæra hörpunnar strengi
um þjóðvorið fagra, sem frelsi vort skal
með fögnuði leiða’ yfir vengi;
þá vaxa meiðir þar vísir er nú, –
svo verður, ef þjóðin er sjálfri sér trú.
– – –
Steingrímur Thorsteinsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Bc5 4. O-O Rge7 5. Rxe5
Rxe5 6. d4 Bd6 7. dxe5
Bxe5 8. Dh5 Rg6 9. f4 c6
10. Bc4 Bxb2
Staðan kom upp í
skákmóti sem hald-
ið var í Slóvakíu
1996 og hafði Serg-
ei Movsesjan hvítt
gegn Arthur Kog-
an. 11. Bxf7+!
Kxf7 12. Bxb2
Db6+ 13. Kh1
Dxb2 14. f5 Dxa1
15. fxg6+ Ke7 16.
c3! Dxa2 17. gxh7!
Dc4 18. Dg5+ Ke8
19. Rd2 Dxc3 20.
e5 Dd3 20... Hxh7
21. Re4 og hvítur
vinnur. Þrátt fyrir liðs-
muninn reyndist sókn hvíts
svörtum ofviða. 21. Hf5! d5
22. Dxg7 Bxf5 23. Dxh8+
Ke7 24. Df6+ Kd7 25.
Df7+ og svartur gafst upp
enda verður hann mát eftir
25... Kd8 26. h8=D#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 7.572
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Katrín Júníana
Lárusdóttir, Lilja María Einarsdóttir og Halla Marta Árna-
dóttir.
Hlutavelta
Ljósmynd/Sissa
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 11. maí sl. í Laugarnes-
kirkju þau Eva Úlla Hilmarsdóttir og Jón Erlendsson.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, þriðjudag-
inn 14. janúar, er fimmtugur
Gunnar Trausti Guðbjörns-
son, Brekkubyggð 36,
Garðabæ. Hann og eigin-
kona hans, Halldóra Jónas-
dóttir, taka á móti vinum og
vandamönnum á heimili sínu
kl. 17–20 á afmælisdaginn.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Bankastræti 11
sími 551 3930
Útsala
20-50%
afsláttur
www.gimli.is - www.mbl.is/gimli
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Sveinbjörn Halldórsson
sölustjóri - sími 693 2916
Seljandi góður!
Nú fer í hönd líflegasti tími ársins
á fasteignamarkaðinum.
Höfum fjölda kaupenda að öllum
stærðum og gerðum eigna.
Hafðu samband - það kostar ekkert
Með kveðju,
Sveinbjörn
Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð
Námskeið á vegum Upledger stofnunarinnar
á Íslandi fyrir árið 2003 er eftirfarandi:
- Kynningarnámskeið á Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð verður haldið 17. til 18. janúar
í Lionshúsinu, Sóltúni 20, Reykjavík.
- Kynningarnámskeið á Upledger höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð verður haldið á Akureyri í febrúar.
- Námskeiðið CSTI verður haldið 1. til 4. mars.
- Námskeiðið CSTII verður haldið 23. til 26. maí.
- Námskeiðið Energy Intergration verður haldið 17. til 20. maí.
- Námskeiðið SERI verður haldið 18. til 21. október.
Upplýsingar og skráningar í síma 566 7803, Erla, og í síma 864 1694, Birgir.
Nánari upplýsingar má sjá á www.craniosacral.is/næsta
námskeið. Kynningarnámskeiðin eru góður undirbúningur
fyrir CSTI og Energy Intergration námskeiðin.
býður
Örnu Friðriksdóttur sjúkraþjálfara
velkomna til starfa.
Tímapantanir í síma 567 7455.
Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna verður haldið
laugardaginn 25. janúar 2003
Þingið verður haldið á Hótel Sögu (Sunnusal) og hefst
með aðalfundi Varðar - Fulltrúaráðsins og lýkur um
kvöldið með þorrablóti í Valhöll.
Nánari tilhögun dagskrár auglýst síðar.
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Kjördæmisþing reykvískra
sjálfstæðismanna