Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 34. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 mbl.is Ástríðuþjóf- ur fyrir rétti Stal 239 listaverkum og geymdi í svefnherberginu Erlent 15 Uppbygging á Hofsósi Búist er við 12—15 þúsund gestum í Vesturfarasetrið í ár 9 Í íþróttum í yfir hálfa öld Starfaði með 13 ráðherrum sem íþróttafulltrúi Íþróttir 44 UM 10.000 manns tóku í gær þátt í athöfn í Houston í Texas til minn- ingar um geimfarana sjö, sem fór- ust með geimferjunni Kólumbíu. Vottaði George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, þeim virðingu sína og er hann beindi orðum sínum til fjölskyldna þeirra, sagði hann, að „við erum öll sameinuð í sorginni, þessum mikla missi ykkar og okkar allra“. Bush laut höfði og Laura, kona hans, grét er geimfaranna sjö var minnst við aðalstöðvar NASA, bandarísku geimvísindastöðv- arinnar, í Houston. „Í dag er okkur ekki aðeins harmleikurinn í huga, heldur einn- ig metnaður og afrek geimfaranna sjö, sem fórust í þessu skelfilega slysi,“ sagði Bush og las upp nöfn þeirra allra. Sagði hann einnig, að Bandaríkjamenn myndu vinna áfram að geimferðaáætlun sinni, þá skuld ættu þeir meðal annars að gjalda þeim, sem látið hefðu líf sitt við þetta hættulega starf. Athöfnin hófst með bæn, sem flutt var á ensku og á hebresku í virðingarskyni við einn geimfar- anna, sem var ísraelskur. Sean O’Keefe, yfirmaður NASA, sagði í sinni ræðu, að stofnunin yrði meðal annars að heiðra minningu hinna látnu með því að komast að því hvað fór úrskeiðis. Lauk athöfninni með því, að skipsklukku var hringt sjö sinnum. Tveir kunnir geimfarar, þeir John Glenn og Neil Armstrong, voru viðstaddir athöfnina en Arm- strong varð fyrstur manna til að ganga á tunglinu. Rannsóknin á slysinu heldur áfram og grunsemdir um, að það hnjask, sem ferjan varð fyrir í flug- taki, hafi valdið því, hafa styrkst ef eitthvað er. Kemur það meðal ann- ars fram á minnisblaði hjá NASA, sem skrifað var fáum dögum áður en hún átti að lenda. Brota úr Kólumbíu er nú leitað á stóru svæði og meðal annars hefur fundist hluti úr stjórnklefa ferj- unnar. „Sameinuð í sorginni“ AP Bush forseti og nokkrir ættingjar geimfaranna, sem fórust með Kólumbíu, biðjast fyrir við athöfnina í gær. Um 10.000 manns voru viðstaddir hana, þar á meðal margir frammámenn í bandarísku þjóðlífi. Houston. AP, AFP.  Hluti stjórnklefa/18 Minningarathöfn um þá sem fórust með Kólumbíu SADDAM Hussein, forseti Íraks, neitar því, að nokkur tengsl séu á milli stjórnar hans og hryðjuverkasamtak- anna al-Qaeda. Kemur það fram í við- tali, sem breski stjórnmálamaðurinn og vinstrimaðurinn Tony Benn átti við Íraksforseta. Var það sýnt í bresku sjónvarpi í gær en í dag mun Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýra öryggisráði Sameinuðu þjóðanna frá ýmsum upp- lýsingum, sem Bandaríkjamenn hafa um gereyðingarvopnasmíð Íraka. Viðtalið var tekið á sunnudag og er það fyrsta við Saddam frá því Íraks- deilan hófst og að sögn Benns fyrsta sjónvarpsviðtalið við hann í 12 ár. Í því neitar Saddam ekki aðeins tengslum við al-Qaeda, heldur einnig, að Írakar eigi nokkur gereyðingar- vopn. Sagði hann, að slík vopn yrðu ekki falin og hélt því fram, að það, sem fyrir Bandaríkjamönnum vekti, væri að komast yfir írösku olíuna. Gerði Saddam nokkuð menningu og mannúð að umtalsefni og sagði, að Írakar vildu frið. Þess vegna hefðu þeir fullt samstarf við vopnaeftirlits- mennina. Viðtalið var sýnt á óháðri, breskri sjónvarpsstöð, Channel 4. Varði tals- maður hennar þá ákvörðun í gær og sagði, að þótt Saddam væri í litlum metum á Vesturlöndum, yrði rödd hans einnig að fá að heyrast. Powell í öryggisráðinu Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði í gær, að Powell myndi nota hálfan annan klukkutíma til að kynna öryggisráðinu ýmislegt, sem Banda- ríkjamenn vita um tilraunir Íraka til að koma sér upp gereyðingarvopnum. Með honum verður George Tenet, yf- irmaður CIA, bandarísku leyniþjón- ustunnar. Ákveðið hefur verið, að fulltrúi Íraka hjá SÞ fái að svara þótt þeir eigi ekki sæti í öryggisráðinu. Saddam neit- ar tengslum við al-Qaeda Reuters Saddam Hussein, forseti Íraks, ræðir við Tony Benn. Viðtalið var tekið upp á sunnudag og er það fyrsta við Íraksforseta í langan tíma. Powell ræðir gereyðingarvopn Íraka í öryggisráðinu í dag London, Washington. AP, AFP.  Blair/16 þótt hún sé ekki hliðstæð þeirri sem fólkið hafði áður. Hann segir einnig að fyrirsjáanlegar stóriðju- framkvæmdir ýti undir jákvæðar væntingar þótt ekki komi til þeirra strax. Ríkið áformi einnig að flýta framkvæmdum á þessu ári sem hafi þá margföldunaráhrif og bæti ástandið. „Síðan er þessi tími, janúar og febrúar, sá harð- asti þótt sveiflan sé dýpri núna. Ég tel því öruggt að það muni draga úr þessu strax í apríl og þegar líður á sumarmánuðina.“ Kemur harðar niður á fólki Gissur neitar því ekki að atvinnuleysið hafi komið hart niður á fólki. Hann segir vandamálið að sumu leyti stafa af lágum atvinnuleysisbótum og þess vegna sé áfallið við atvinnumissi mjög mikið. „Það sem gerir þetta erfitt hérna á Ís- GISSUR Pétursson, forstjóri Vinnumálastofn- unar, segir útlit fyrir að greiða þurfi á fjórða milljarð króna í atvinnuleysisbætur á þessu ári gangi allar spár eftir. Í fyrra hafi útgjöld at- vinnuleysistryggingasjóðs hins vegar verið 2,5 milljarðar króna. Í gær voru 6.026 manns á atvinnuleysisskrá á landinu. Þar af 3.230 karlar og 2.796 konur. Frá áramótum hefur fólki á atvinnuleysisskrá fjölg- að um 955 eða 18,8%. Gissur segir aukið at- vinnuleysi birtast í annarri mynd í dag en þegar það mældist hæst á árunum 1994 og 1995. Nú sé meira um að menntað vinnuafl og fólk í betri verslunar- og þjónustustörfum missi vinnuna en áður. Hann segir þessu fólki ekki jafn hætt við langtímaatvinnuleysi og ófaglærðu. Það búi yfir ákveðinni hæfni og sveigjanleika sem geri það að verkum að það grípi fyrr til vinnu sem bjóðist landi er að bæturnar eru lágar. Þær eru miklu lengra frá hinni raunverulegri framfærsluþörf heldur en í flestum löndum í Vestur-Evrópu.“ Aðspurður segir hann einn skýringarþáttinn, að atvinnuleysið bitni harðar á fólki nú en áður, að tekjuhærra fólk missi vinnuna. Það sé búið að laga sig að ákveðnum lífsstíl og mikið högg sé að hrapa úr t.d. 300.000 krónum í mánaðarlaunum í tæp 80.000 krónur. Slíkt ástand geti ekki varað lengi. Hann segir umræðu um lágar atvinnu- leysisbætur meiri nú en síðustu ár þar sem at- vinnuleysi hefur verið lítið. Þó sé þetta ákveðinn línudans á milli bótaupphæðarinnar og hins innri hvata til að sýna fulla virkni í atvinnuleit. Að sögn Gissurar er ástandið núna eitthvað sem menn máttu búast við. „Ég held að allir séu sam- mála um að það ástand sem var hérna í fyrra og árið þar áður gat ekki staðið lengi. Ég er ekki viss um að það sé eftirsóknarvert að ná því ástandi aftur þar sem umframeftirspurn eftir vinnuafli var það mikið að flytja þurfti inn þús- undir manna til að mæta því.“ Það vinnuafl sé þó ekki meginorsökin fyrir auknu atvinnuleysi nú.  Mælt fyrir/10  Atvinnulausum/28 Sveiflan dýpri nú en áður                                                                    Árstíðabundið atvinnuleysi hér á landi mest í janúar og febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.