Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 13

Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 13 Lagastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við umhverfisráðuneytið stendur fyrir opnum fræðafundi um þátttöku almennings í ákvörðunum um umhverfismál. Markmið fundarins er að varpa ljósi á gildandi lög og alþjóðasamninga á sviði umhverfisréttar sem fjalla um rétt almennings til að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnvalda varðandi einstaka framkvæmdir sem hafa áhrif á umhverfið. Fundarstjóri verður Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Jonas Ebbesson, dósent við Háskólann í Stokkhólmi Public participation and access to justice in the light of the Aarhus Convention Aðalheiður Jóhannsdóttir, lögfræðingur Þátttaka almennings í ákvarðanatöku sem lýtur að einstaka framkvæmd Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands Réttur til að bera ákvarðanir stjórnvalda um umhverfismál undir dómstóla Almennar umræður og fyrirspurnir. FRÆÐAFUNDUR Almenningur og umhverfismál Lagastofnun Háskóla Íslands Lagastofnun Háskóla Íslands Lögbergi Sími 525 4386 www.hi.is/stofn/lagast N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 0 8 5 4 1 Fundurinn verður haldinn föstudaginn 7. febrúar, kl. 12.15 í hátíðasal Háskóla Íslands, aðalbyggingu. Stefnt er að því að honum ljúki kl. 14.00. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Í einkasölu ca 135 fm neðri sér- hæð ásamt 27,2 fm bílskúr í góðu steinhúsi. Íbúðin er skemmtilega innréttuð. 3 rúm- góð svefnherb., 2 saml. stofur. Skemmtilegt skipulag. Eiguleg eign. Sérinng. Verð 17,5 millj. Blönduhlíð - sérhæð sími 588 4477 MIÐAÐ við nýjustu tilkynningar um afkomu og farþegafjölda írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair bendir allt til þess að það hirði bronsið af Air France í keppninni um stærsta flugfélag Evrópu. Hagnaður Ryanair á síðasta fjórð- ungi ársins 2002 nam tæpum 50 milljónum evra en um 33 milljónum evra á sama tíma ári áður. Þá flutti félagið 46% fleiri farþega á síðustu þremur mánuðum 2002 en það gerði 2001, alls um 2,7 milljónir far- þega. Frá þessu greinir í frétt BBC. Forsvarsmenn Ryanair hafa nú þegar gert spár um áframhaldandi velgengni á næsta uppgjörsári, sem hefst í lok mars nk. Í spám er gert ráð fyrir að 24 milljónir farþega verði þá fluttar milli Evrópulanda með þotum félagsins. Í fréttinni er þó haft eftir fjámálaspekúlant hjá NCB Stockbrokers í Dublin, hvar höfuðstöðvar Ryanair eru, að spár félagsins séu þó umfram væntingar. Ryanair er nú að ganga frá kaup- um á öðru lággjaldaflugfélagi, Buzz, sem áður var í eigu hollenska KLM. Eftir þau kaup verður Ryanair orðið þriðja stærsta flugfélag Evr- ópu, en félagið er nú þegar það arð- samasta í álfunni. Ryanair hyggst segja upp a.m.k. fimmtungi starfsmanna Buzz og hefur hótað að segja upp fleirum samþykki starfsmenn ekki vinnu- reglur Ryanair. Þá mun ekki verða hikað við að stokka upp leiðakerfi Buzz og fella niður áætlunarleiðir, fái félagið ekki vilja sínum fram varðandi lækkun lendingargjalda. Reuters Ryanair stækkar KRÖFU Samkeppnisstofnunar um frávísun máls Hf. Eimskipafélags Ís- lands gegn stofnuninni var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur sl. fimmtu- dag. Málið, sem Samkeppnisstofnun vildi fá vísað frá, snerist um kæru Eimskipafélagsins á úrskurði áfrýj- unarnefndar samkeppnismála frá því í nóvember sl., að því er fram kemur í tilkynningu frá Eimskipi ehf. Þar kvað áfrýjunarnefndin á um aðild Samskipa hf. og þar með hugs- anlegan aðgang þess fyrirtækis að gögnum í því máli sem nú er til með- ferðar hjá samkeppnisyfirvöldum og beinist að Eimskipafélaginu. Framkvæmdastjóri Eimskips ehf., Erlendur Hjaltason, segir úr- skurð héraðsdóms vera jákvæðan áfanga í málinu. „Samskip kærðu okkur til samkeppnisyfirvalda fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu. Okkur fannst hins vegar óeðli- legt að Samskip væru beinn aðili að málinu þar sem félagið gæti hugs- anlega fengið aðgang að gögnum málsins,“ segir Erlendur. Málið var tekið fyrir efnislega hjá héraðsdómi í gærmorgun og er dóms að vænta fljótlega. Frávísunarkrafa Samkeppnis- stofnunar, sem nú hefur verið synj- að, var á því byggð að Eimskipa- félagið hefði ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu málsins. Eimskipa- félagið taldi sig þvert á móti hafa ríka hagsmuni af úrlausn þess og er sá skilningur staðfestur með úr- skurði héraðsdóms. Máli Eimskips ekki vísað frá í héraðsdómi HÚSASMIÐJAN hefur sagt upp átta starfsmönnum í versl- un sinni í Skútuvogi. Starfs- mönnunum var boðinn starfs- lokasamningur en meirihluti þeirra sem sagt var upp hafði ekki unnið lengur en eitt og hálft ár hjá fyrirtækinu að sögn Steinars Árnasonar, rekstrar- stjóra verslunarinnar. „Við tókum búðina í gegn í ágúst sl. og fórum í mikla end- urskipulagningarvinnu og bættum við okkur 15 manns til að bæta þjónustustigið í búð- inni. Síðan kom það í ljós að við þurftum að segja upp 8 starfs- mönnum og við buðum þeim starfsmönnum öllum sérstaka starfslokasamninga,“ sagði Steinar Árnason. Uppsagnir hjá Húsa- smiðjunni í Skútuvogi LOÐNUSKIPIÐ Huginn VE land- aði um 1.500 tonnum af loðnu í Bodö í Noregi í gær og fékk um 13.500 íslenskar krónur fyrir tonn- ið. Aflaverðmæti var því um 20,3 milljónir íslenskra króna en hefði verið um 10,5 milljónir króna ef skipið hefði komið með aflann að landi hér. Verð fyrir tonn af loðnu á Íslandi hefur verið í kring um 7.000 krónur að undanförnu. Haft er eftir Helga Einarssyni, skip- stjóra á Hugin VE, á Skip.is að ferðin til Noregs hafi tekið um tvo sólarhringa. Norska pressan fjallaði um málið í gær og sagði í Fiskeribladet að skortur á loðnu í Noregi gerði það að verkum að meira væri greitt fyrir kílóið. Segir að norski loðnu- kvótinn hafi verið lækkaður veru- lega að undanförnu og sé nú ein- ungis 183.000 tonn. Íslensk loðnu- skip hafa hins vegar kvóta upp á 660.000 tonn fyrir vertíðina og jafnvel útlit fyrir að sá kvóti verði aukinn. Í Fiskeribladet segir að talið sé ólíklegt að hið háa verð fyrir loðnuna í Noregi haldi sér. Líklegt þykir að um stutt tímabil sé að ræða. Haft er eftir skipverja á Hugin VE að búast megi við að skipið landi aftur í Noregi í næstu viku ef verðið helst jafnhátt. Fleiri en íslenskir sjómenn sjá hag í því að landa loðnu fjarri heimahögum því Fiskeribladet greinir einnig frá því að norska loðnuskipið Vikar-1 hafi landað 500 tonnum í Múrmansk í byrjun vik- unnar. Fengust um 16.800 íslensk- ar krónur fyrir tonnið og aflaverð- mæti því um 8,4 milljónir króna í stað 6,8 milljóna sem fengist hefðu í Noregi. Tvöfalt verð fyrir loðnuna í Noregi HAGNAÐUR fasteignafélagsins Stoða hf. og dótturfélaga fyrir árið 2002 var 763 milljónir króna saman- borið við 76 milljónir króna árið 2001 og tífaldaðist því milli ára. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að jákvæð afkoma skýr- ist meðal annars af gengishagnaði vegna styrkingar íslensku krónunnar. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 1.587 milljónir króna. Veltufé frá rekstri var 588 milljónir króna og handbært fé frá rekstri var 662 milljónir króna. Í tilkynningu félagsins segir einnig að rekstrartekjur samstæðunnar á tímabilinu námu 2.122 milljónum króna og jukust um 1.714 milljónir frá fyrra ári. Rekstrargjöld að meðtöld- um afskriftum námu 1.089 milljónum króna og jukust um 945 milljónir króna frá fyrra ári. Heildareignir félagsins námu tæp- um 24,2 milljörðum króna í lok síðasta árs. Eigið fé nam um 4,7 milljörðum króna eða sem svarar 19,4% niður- stöðutölu efnahagsreiknings. Eigið fé ásamt víkjandi láni að fjárhæð 1,5 milljarðar króna er alls um 6,2 millj- arðar króna eða 25,5% af niðurstöðu- tölu efnahagsreiknings. Á árinu sameinaðist félagið Þyrp- ingu hf. og miðast samruninn við 1. janúar 2002. Við samrunann myndað- ist viðskiptavild að fjárhæð 690 millj- ónir króna og er hún eignfærð meðal óefnislegra eigna og afskrifuð á 20 ár- um. Hagnaður Stoða tífaldast milli ára ● ALCATEL hefur varað við því að sala gæti minnkað allt að 30% snemma á árinu. Nýlega birti félagið afkomutölur sem sýna tap upp á 1,1 milljarð evra eða yfir 90 millj- arða íslenskra króna á síðasta fjórð- ungi ársins 2002. Í frétt BBC um málið segir að þó sé það huggun harmi gegn fyrir fyrirtækið að tapið sé um 40% minna en á sama tíma ári áður. Engu að síður tapaði fyrirtækið alls 4,8 milljörðum evra á öllu síð- asta ári, um 400 milljörðum króna, sem er svipað og fyrir árið 2001. Fyrirtækið, sem er franskt og framleiðir hátæknibúnað, hyggst nú skera kostnað verulega niður og segja upp um 40% starfsfólks. Fleiri hátæknifyrirtæki eru í vanda því sænska Ericsson tilkynnti einnig um tap fyrir fjórða ársfjórðung 2002. Sala fyrirtækisins dróst saman um 36% frá sama tíma 2001. Ericsson hefur þó ekki gefið út viðvörun um að sala muni dragast saman heldur gerir þvert á móti ráð fyrir að hún aukist á næstu mánuðum. Segir í frétt BBC að bæði fyrirtæki séu talin á sérlega viðkvæmu stigi þar sem þau byggja afkomu sína á að selja tæknibúnað til símafyrirtækja, en þau hafa verulega dregið úr fjárfest- ingum að undanförnu. Hátæknifyrirtæki í vanda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.